Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 B 25 bíó SKOTINN Robbie Coltrane er búinn að vera góður kunningi íslenskra sjón- varpsáhorfenda um árabil. Þessi stóri og stæðilegi gæðaleikari hefur einnig verið iðinn við kolann á hvíta tjaldinu þar sem hann er eftirsóttur í vandasöm skapgerðarhlutverk í flestum greinum kvikmynda. Nú síðast fékk hann frá- bæra dóma sem hálftröllið Hagrid, sem er eitt aðalhlutverkanna í hinni feiki- vinsælu Harry Potter og viskusteinn- inn. Myndin var frumsýnd hérlendis um helgina, því ætti að vera auðvelt að ganga úr skugga um árangurinn. Hlutverk hans í bresku lögregluþátt- unum Cracker færði Coltrane mikla frægð innan sem utan Bretlands. Frammistaðan slík að hinn ábúðarmikli Skoti vann verðlaun bresku akadem- íunnar (’94), fyrir vikið. Þau eru þung í honum 300 pundin en Coltrane er vand- aður og metnaðarfullur fagmaður sem kastar aldrei til höndunum. Sem fyrr segir er Coltrane skoskur í húð og hár, fæddur í Rutherglen í há- löndunum, smábæ, sem þekktastur er fyrir maltviskíið sitt, miklar guðaveigar. Hann gerðist þó ekki bruggari, heldur hélt til menningarborganna Glasgow og Edinborgar. Nam leiklist við Listaskóla Glasgow og lék talsvert á sviði í borg- unum báðum, m.a. Traverne leikhúsinu í Edinborg.. Réttur maður á réttum tíma, því á níunda áratugnum var óhemju uppgangur í skoskri kvik- myndagerð, þar sem hver stórstjarnan á eftir annarri skaust fram í sviðsljósið. Hver kannast ekki við nöfn einsog Ewan MacGregor, Jim White, Oor Wullie, Dougie Donnelly, Billy Connolly, Archie McPherson, Gavin Hastings, Robbie Coltrane, Rab C. Nesbitt og Robert Carlyle? Fyrstu árin hélt Coltrane sig að mestu leyti við gamanleik, uppistand og skemmtiatriði á næturklúbbum. Með- leikararnir voru ekki af verri endanum, m.a. Emma Thompson og Billy Connolly. Um 1980, er Coltrane stóð á þrítugu, fóru kvikmyndatilboðin að berast. Fyrst í smáhlutverkum í myndunum Flash Gordon og Brittania Hospital (’80); þá brá honum fyrir í Scrubbles (’82), Krull (’83), og Defence of the Realm (’85). Hlutverkin fótu stækkandi í National Lampoońs European Vac- ation (’85), Mona Lisa (’86), Caravaggio og Absolute Beginners (’86). Vakti m.a. athygli Monty Python gengisins, sem réð hann í The Secret Policeman Other Ball (’87), og Kenneth Branagh fékk hann í hlutverk Falstaffs, í hina vel lukkuðu kvikmyndagerð Henry V. (’89). Ári síðar fór Coltrane með annað aðalhlutverkið í Nuns on the Run, sem náði aðeins tak- mörkuðum vinsældum beggja vegna Atlanshafsins, þrátt fyrir hressileg til- þrif okkar manns. Jafnframt velgengni í karakter- hlutverkum, varð Coltrane sífellt vin- sælli sjónvarpsstjarna. Á ferlinum hef- ur hann leikið í mýgrút sjónvarps- mynda, -þátta, og -þáttaraða. Það voru fyrrnefndir Cracker þættir sem komu honum á framfæri vestan hafs, og færðu honum Cable Ace verðlaunin. Í kjölfarið fékk Coltrane hlutverk í Disn- eymyndinni Ævintýri Stikilsberja Finns (’93). Nú er hann fastamaður í Bondbálknum, kom fyrst fram í Gold- eneye (’95), og stal senunni í The World is Not Enough (’99). Þrátt fyrir ótvíræða hæfileika og lík- amsburði, náði hvorugt að hjálpa hið minnsta uppá skelfinguna Message in a Bottle (’99). Hinsvegar fær Coltrane mikið hrós fyrir þrjár síðustu mynd- irnar; From Hell (’91), fokdýrri stór- mynd um Kobba kviðristi; gaman- myndinni On the Nose (’01), þar sem hann leikur húsvörð, haldinn ólæknandi veðmálafíkn. Og nú síðast sem hálf- tröllið, lyklavörð galdraskólans og verndara Harry litla Potters. stærir sig af því að það hafi ekki verið stærðin sem færði honum hlutverk risans Hagrids í Harry Potter og visku- steinninum, heldur fríðleikinn. Coltraie var fyrsta val höfundar bók- arinnar, J.K. Rawling, í hlutverkið. „Hún hafði jafnan séð Hagrid fyrir sér sem afburða fagran mann, ungan Brando, eða ámóta glæsimenni“, sagði gamanleikarinn geðþekki á blaðamannafundi. „Hún sagði að það kæmi aðeins einn leikari til greina, ég.“ Robbie Coltrane Hálftröllið Coltrane Sæbjörn Valdimarsson SVIPMYND

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.