Morgunblaðið - 02.12.2001, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 23
HVERNIG þætti þér að
búa í munninum á ein-
hverjum? Og þurfa sjálf/
ur að höggva þér hús í
einni tönninni? Eða borða
matarleifarnar sem fest-
ast í tönnunum? Oj bara!
Já, aumingja Karíus og
Baktus! Þeir bjuggu í
tönnunum hans Jens, og
líkaði reyndar bara vel.
Enda eru þeir ekki venju-
legir karlar, heldur búa í
tönnum fólks sem borðar
bara sætindi. Og það
gerði Jens.
En það er ekki nema
von að þeir bræður séu
reiðilegir á svipinn á
þessari mynd. Þeir höfðu
komið sér notalega fyrir
og höggvið hin fínustu
hús. Þá varð Jens svo illt
í tönnunum sínum að
hann byrjaði að bursta
þær, og eftir það er sko
ekkert gaman. Nú fá þeir
ekkert að borða, eru sí-
fellt svangir, auk þess að
þurfa alltaf að vera á
hlaupum undan tann-
burstanum.
Eru Karíus og Baktus í
þínum tönnum? En eftir
allt jólanammið?
Morgunblaðið/Kristinn
Karíus: „Við viljum franskbrauð!“
Baktus: „Sjáðu, nú kemur það. Hann opnar munninn.“
Svangir bræður
VEIGAR Örn Helgason verður
þriggja ára eftir tólf daga. Hann
fór með afasystur í fyrsta sinn í
leikhúsið fyrir viku og sá þá fé-
laga Karíus og Baktus í Þjóðleik-
húsinu.
„Það er gaman að horfa á Kar-
íus og Baktus, þeir eru svo
skemmtilegir. Lögin eru líka
skemmtileg en mig langar frekar
að eiga bókina um þá. Sum börn-
in voru hrædd í leikhúsinu en
ekki ég. Ég er stór og duglegur,
og líka duglegur að bursta tenn-
urnar mínar.“
Krakkarýni: Karíus og Baktus
„Vil eiga bókina“
Morgunblaðið/Hildur Lofts
Veigar Örn er duglegur að
bursta tennurnar.
ÞESSI kross-
gáta er tileinkuð
munninum og
tönnunum okkar.
Fylltu kross-
gátuna út og
finndu svo út
hvað af þessu
gæti laðað Kar-
íus og Baktus að
þínum munni. Er
eitthvað sem er
sérstaklega hollt
og myndi reka þá
í burtu?
Þetta getur
verið ögn snúið,
en þá er bara að
leggja heilann í
bleyti og bíta á
jaxlinn. Eða
hvað?
Krakkakrossgátan
Lausn á jólasveinarugli eru
sveinar númer eitt og þrettán.
Nýi stíllinn keisarans - Vinningshafar
Anna María Birgisdóttir, 10 ára,
Drekagili 16, 603 Akureyri.
Auður Franzdóttir, 4 ára,
Gerðavegi 1, 250 Garði.
Eldar Máni Gíslason, 2 ára,
Barðastöðum 23, 112 Reykjavík.
Fríða Theódórsdóttir, 7 ára,
Esjugrund 35, 116 Reykjavík.
Hanna Ágústa Olgeirsdóttir, 5 ára,
Kjartansgötu 3, 310 Borgarnesi.
Til
hamingju
krakkar!
Helga Guðmundsdóttir, 8 ára,
Safamýri 65, 108 Reykjavík.
Hildur Kristín Kristjánsdóttir, 5 ára,
Birkibergi 28, 220 Hafnarfirði.
Inga Þórs Ingvadóttir, 7 ára,
Lýsubergi, 815 Þorlákshöfn.
Jón Ragnar Jónsson, 10 ára,
Lerkiási 6, 210 Garðabæ.
Sverrir Guðjónsson, 10 ára,
Móabarði 8, 220 Hafnarfirði.
Vinninga má nálgast í afgreiðslu Morgunblaðsins, Kringlunni 1, Reykjavík, alla virka daga milli kl. 8 og 17. Vinningshafar utan Reykjavíkur-
svæðisins geta óskað eftir því að fá vinninga senda. Uppl. í síma 569 1324 eða 569 1384. Vinningar óskast sóttir innan mánaðar frá birtingu úrslita.
Nafn:
Heimilisfang:
Staður:
Aldur:
Utanáskriftin er:
Barnasíður Moggans,
- Jólin okkar -
Kringlunni 1, 103 Reykjavík.
Skilafrestur er til sunnudagsins 9.
des. Nöfn vinningshafa verða birt
sunnudaginn 16. des.
_________ hét sá þriðji,
stubburinn sá.
Hann krækti sér í pönnu,
þegar kostur var á.
Hann hljóp mað hana í burtu
og hirti agnirnar,
sem brunnu stundum fastar
við barminn hér og þar.
Nú eru jólasveinarnir að búa sig undir að
leggja af stað til byggða með alls konar
skemmtilegt dót í pokunum sínum. Eins og
þið munið eru sveinarnir 13 talsins,
Stekkjarstaur kemur fyrstur, næstur
Giljagaur og svo koll af kolli. Sá þriðji í röðinni er minnstur af bræðrunum. Manstu hvað
hann heitir? Skrifaðu nafnið hans inn í vísuna hér að neðan, sendu okkur svarið og ef
heppnin er með átt þú von á vinningi!
Tíu heppnir krakkar fá bókina
Jólin okkar eftir Brian Pilkington og
Jóhannes úr Kötlum, þar sem lesa má
um alla jólasveinana, Grýlu,
Leppalúða og fleiri tröll.