Morgunblaðið - 02.12.2001, Side 6

Morgunblaðið - 02.12.2001, Side 6
6 B SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2001 MORGUNBLAÐIÐ ÞEIR Magnús Eiríksson ogKristján Kristjánsson,KK, hafa báðir verið áber-andi í íslensku tónlistarlífi,Magnús hefur verið að í tæpa fjóra áratugi, en 39 ár eru liðin síðan hann lék fyrst fyrir dansi, í Sjálfstæðishúsinu í Kópavogi, og Kristján í einn, en tíu ár eru síðan hann sneri til Íslands, eftir langvar- andi dvöl erlendis, með lögin á breið- skífuna Lucky One í farteskinu. Und- anfarin fimm ára hafa þeir svo starfað talsvert saman, leikið á tónleikum víða um land við góðar undirtektir og gefið út vinsælar plötur, tvær hljóð- vers, Ómissandi fólk og Kóngur einn dag, og eina tónleika sem einmitt var tekin upp í Kópavogi. Þó mönnum sé gjarnt að nefna þá KK og Magnús í sömu andrá eiga þeir sér umfangsmikinn tónlistarferil hvor í sínu lagi og fyrir skemmstu sendu þeir frá sér safnskífur með úrvali laga frá fyrri árum. Plata Magnúsar kem- ur út vegum Skífunnar, heitir Braggablús og inniheldur 40 lög frá ferlinum, það fyrsta frá 1976 og síð- asta af plötu þeirra Magnúsar og KK, Kóngur einn dag, sem kom út á þar- síðasta ári. Kristján sendir aftur á móti frá sér sautján laga safn, enda ekki úr eins miklu að velja, sem hann kallar Galfjaðrir, en á því er úrval laga frá því fyrsta skífa hans, Lucky One, kom út fyrir réttum tíu árum og fram til dagsins í dag, því eitt lag- anna, Englar himins grétu í dag, er samið með flugslysið í Skerjafirði í huga og tekið upp rétt áður en platan kom út. Ekki bara safnplötur Áður hafa komið út lagasöfn Magn- úsar á diskum, en hann leggur áherslu á að ekki sé bara verið að pakka upp á nýtt gömlum geisladisk- um. „Fyrst voru gefin út tuttugu bestu lögin en síðan föttuðu menn að það voru ekki bestu lögin, því það komu önnur sem voru miklu betri og þá var gefinn út annar diskur, en svo voru lög sem voru á hinum og þessum safnplötum og kannski ekki verið fá- anleg í langan tíma í neinu formi. Ég valdi þessi lög með Eiði Arnarsyni hjá Skífunni og hann tíndi til ýmis lög sem ég var búinn að gleyma, þannig að þetta er sambland af þeim tveim safnplötum sem komið hafa út og síð- an lög sem ekki hafa verið fáanleg til viðbótar,“ segir Magnús, en ekki er bara að menn séu búnir að velja upp á nýtt á safndisk með helstu lögum hans heldur er búið að hljóðvinna lög- in upp á nýtt og það eftir upprunalegu frumeintaki hverrar plötu. KK er líka að gefa út safnplötu, Galfjaðrir, en hún er bara einföld enda segist hann vera svo ungur enn, byrjaði ekki að gefa út fyrr en 1991. KK segir að það hafi ekki verið mál að velja á plötuna, frekar hafi verið erfitt að finna út hverju ætti að sleppa. „Ég var búinn að tala við fullt af fólki og flestir ráðlögðu mér að hafa hana ekki of langa. Ég var með lista yfir of mörg Sýnisplötur hálfrar aldar Magnús Eiríksson og Krist- ján Kristjánsson hafa margt brallað á sínum tónlist- arferli, enda er samanlögð starfsævi þeirra hálf öld. Árni Matthíasson tók þá fé- laga tali í tilefni þess að þeir sendu frá sér hvor sína safn- plötuna. Morgunblaðið/Golli Magnús Eiríksson, Þorleifur Guðjónsson og Kristján Kristjánsson, KK, hafa leikið saman undanfarin ár.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.