Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 9
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 9 Engjateigi 5, sími 581 2141. Útsalan í fullum gangi 20% viðbótarafsláttur Frábær tilboð Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00. Kringlunni - sími 581 2300 50-70% afsláttur Herrar Verð áður Verð nú Kuldajakkar ull 24.990 12.490 Frakki ull/kasmír 31.290 12.490 Frakki ull 28.490 11.390 Úlpur 16.990 5.990 Tíglapeysur ull 9.990 4.995 Peysur merino ull 7.490 3.745 Skyrtur frá kr. 1.197 Dömur Verð áður Verð nú Úlpur 22.490 8.990 Ullarkápur 24.990 9.990 Jakkar (vendi) 31.990 9.990 Vaxkápur 31.590 15.795 Pils 9.990 3.990 Vesti 6.790 1.990 Stuttermabolir 3.290 990 Ullarpeysur 11.290 3.990 Golffatnaður 70% afsláttur Lagersala á Fiskislóð 73 (úti á Granda), 101 Reykjavík. Miðvikudaga kl. 14:00 til 18:00 Fimmtudaga kl. 14:00 til 18:00 Föstudaga kl. 14:00 til 18:00 Laugardaga kl. 12:00 til 16:00 Outlet Mikið úrval af skóm á ótrúlegu verði !!! Opnunartími: ps. Oilily sumarbæklingurinn er kominn Laugavegi 56, sími 552 2201 10.259 7.296 02 3B / TA K T IK Útsala nú 70% afsláttur BARNAVÖRUVERSLUN www.oo.is af barnafötum Útigallar Úlpur Kápur Peysur Buxur Kjólar Skokkar Bolir Gallar Náttföt Sigurstjarnan, Suðurlandsbraut 50 (bláu húsin), sími 588 4545. Rýmum fyrir vörum - allt á að seljast 20-50% afsláttur Sigurstjarnan - Stórútsala Opið virka daga frá kl. 11-18, laugard. 11-15 Opið virka daga frá kl. 10—18 laugardaga frá kl. 10—18 aukaafsláttur af nýrri vörum 50% aukaafsláttur af eldri vörum Sími 567 3718 ÚTSALAN STENDUR ENN 20% Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur þakkar fyrir hönd skjólstæðinga sinna hinn mikla velvilja og frábæra aðstoð þeirra fjölmörgu fyrirtækja og einstaklinga sem hjálpuðu þeim að halda gleðileg jól. Án ykkar aðstoðar væri það ekki hægt. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur. HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær 24 ára karlmann í 15 mánaða fangelsi fyrir stórhættulega líkamsárás en hann lagði til skips- félaga síns með hnífi og veitti honum skurði á hálsi og handlegg. Segir í dómnum að tilviljun ein hafi ráðið því að ekki hafi hlotist af stórfelld meiðsl eða bani. 12 mánuðir af refsingunni eru skilorðsbundnir. Málavextir eru þeir að mennirnir höfðu ásamt fleirum úr áhöfn mb. Klettsvíkur neytt áfengis að kvöldi fimmtudagsins 24. maí sl. og haldið henni áfram um borð um nóttina. Voru þeir báðir talsvert ölvaðir. Sá sem varð fyrir stungunni lýsti at- burðum svo hann hafi lent í deilum við hinn ákærða. Upp úr því hafi þeir rifist heiftarlega og ýtt hvor við öðr- um og hafi hinn ákærði átt upptökin að þeim ýtingum. Vissi hann síðan ekki fyrr en ákærði var kominn með hníf í hendurnar og sveiflaði honum í mittishæð og skar hann þrívegis í hönd. Hlaut hann einn djúpan skurð sem talsvert blæddi úr. Við þessa árás hafi hann gjörsamlega misst stjórn á sér og ráðist á hinn ákærða og kýlt hann mörgum sinnum í andlit og líkama. Bárust átökin úr borðsal í stakkageymslu. Tókst honum að ná hnífnum af ákærða og féll hnífurinn í gólfið. Þegar búið var að skilja þá að hafi hann í hugsunarleysi tekið hníf- inn upp af gólfinu, lagt hann að bringu ákærða og sagt „stingdu mig núna, auminginn þinn“ og taldi að þá myndi ákærði skilja að í óefni væri komið. Gekk hann þá aftur í stakka- geymsluna og aftur inn í borðsalinn. Hafi ákærði komið hlaupandi á eftir honum og sagst ætla að drepa hann. Bar við óminni af völdum áfengisneyslu Lagði ákærði til hans með hnífn- um en á síðustu stundu hefði hann getað sveigt sig afturábak. Kom hnífslagið í hálsinn og opnaðist við það 12–13 sentimetra langur skurð- ur fyrir neðan barkakýli og náði m.a. yfir hægri hálsslagæð. Þegar lög- regla kom á staðinn sátu mennirnir í borðsalnum og ræddust við. Framburður þess sem varð fyrir árásinni var studdur framburði vitna. Árásarmaðurinn bar hins veg- ar við óminni af völdum áfengis- neyslu. Sagði hann dómnum að slíkt hefði oft hent sig og lenti hann gjarn- an í átökum þegar svo væri komið fyrir honum. Eftir atburðinn hefði hann hætt áfengisneyslu. Þetta mat dómurinn til refsilækkunar auk þess sem hann hefði mjög iðrast gerða sinna og framkoma hans við lög- reglurannsókn og fyrir dómi verið óaðfinnanleg. Þá þótti dómara að meta bæri frýjunarorðin „stingdu mig núna, auminginn þinn“ til refsi- lækkunar. Maðurinn var auk refsingar dæmdur til að greiða þeim sem varð fyrir árásinni 417.000 í miska- og þjáningarbætur. Einnig allan sakar- kostnað, þ.m.t. málsvarnarlaun skip- aðs verjanda síns, Steingríms Gauts Kristjánssonar hrl., og kostnað rétt- argæslumanns, Steinars Þórs Guð- geirssonar hdl. Sveinn Sigurkarls- son héraðsdómari kvað upp dóminn. Sigríður Jósefsdóttir saksóknari flutti málið f.h. ríkissaksóknara. 15 mánaða fangelsi fyrir stórhættulega líkamsárás Tilviljun ein að ekki hlaust bani af árásinni LITLAR skemmdir urðu í lyfjaverk- smiðju Delta hf. við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði þegar vatn lak úr loft- ræstikerfi niður á gólf í eldri hluta verksmiðjunnar í fyrrinótt. Björn Aðalsteinsson, fram- kvæmdastjóri markaðssviðs Delta, segir að tækjabúnaður hafi ekki orð- ið fyrir skemmdum. Hugsanlega hafi orðið óverulegt tjón á hráefnum til lyfjagerðar og eftir sé að kanna nán- ar rakaskemmdir á milliveggjum og hurðum. Bilun varð í þurrksamstæðu loft- ræstikerfis á þaki verksmiðjunnar um kl. 3.30 í fyrrinótt sem varð til þess að kalt vatn lak niður á gólf. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn rétt fyrir fjögur og hóf að dæla vatni út úr húsinu. Var því lokið á sjötta tímanum. Minnstur hluti lyfjaframleiðslu Delta er í eldri hluta verksmiðjunnar og segir Björn að framleiðsla muni varla tefjast meira en um einn dag af þessum sökum. Lítið tjón hjá Delta vegna vatnsleka Til að auglýsa á þessari síðu hafðu samband við okkur í síma 569 1111 eða sendu okkur tölvupóst á augl@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.