Morgunblaðið - 07.02.2002, Blaðsíða 51
Opinn
fundur Starfs-
menntaráðs
OPINN fundur Starfsmenntaráðs
verður haldinn í dag, fimmtudaginn
7. febrúar, kl. 12–13.30 á Kornhlöðu-
loftinu, Bankastræti 2.
Dagskrá fundarins: Stefnumótun
Starfsmenntaráðs og áherslur ráðs-
ins við úthlutanir úr starfsmennta-
sjóði 2002. Starfsmenntaráð starfar
samkvæmt lögum nr. 19/1992 um
starfsmenntun í atvinnulífinu. Það
úthlutar styrkjum til starfsmenntun-
ar og er stjórnvöldum til ráðuneytis
um stefnumótun og aðgerðir á sviði
starfsmenntunar, segir í fréttatil-
kynningu.
Ungt fólk
hittist með
börn sín
UM þessar mundir er starfræktur
klúbbur í Hinu húsinu, nánar tiltekið
á Kakóbar, sem ber heitið: Ungt fólk
með ungana sína.
Aðaláherslan er lögð á að fá ungt
fólk, 16–25 ára, til að koma saman
með börnin sín og eiga notalegar
stundir með öðru ungu fólki. Einnig
munu fyrirlestrar og ýmis ráðgjöf
vera á döfinni, þannig að það verður
nóg um að vera.
Í dag, fimmtudaginn 7. febrúar, kl.
11 verður fluttur fyrirlestur um
slysavarnir og börn á Kakóbar. Fyr-
irlesari er Herdís Storgaard.
Allar helstu upplýsingar um starf-
semi Ungs fólks með ungana sína má
finna á slóðinni: www.msnusers.com/
krakkarnirokkar, segir í fréttatil-
kynningu.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. FEBRÚAR 2002 51
Fundur VG í
Reykjavík
FÉLAGSFUNDI þeim er hófst sl.
laugardag verður fram haldið í Rúg-
brauðsgerðinni, Borgartúni 6, í dag,
fimmtudaginn 7. febrúar, kl. 20. Þeg-
ar fundinum sl. laugardag var frest-
að átti eftir að ákveða aðferð við röð-
un á Reykjavíkurlistann, kjósa
fulltrúa í tvær uppstillingarnefndir
og kjörstjórn og verður það gert nú.
Ennfremur verður rædd stofnun
borgarmálaráðs Vinstrihreyfingar-
innar – græns framboðs, segir í frétt
frá stjórn VG í Reykjavík.
Félagsfundur
áhugafólks
um Downs-
heilkenni
FÉLAG áhugafólks um Downs-heil-
kenni boðar til félagsfundar fimmtu-
daginn 7. febrúar kl. 20.30 í húsi
Landssamtaka Þroskahjálpar á Suð-
urlandsbraut 22, 2. hæð.
Fjallað verður um hlutverk og
framtíð félagsins varðandi kynningu
á hugmynda- og kennslufræði pró-
fessor Iréne Johansson. Allir eru
velkomnir.
Meistaramót í
backgammon
MEISTARAMÓT Grandrokk í
backgammon verður haldið laugar-
daginn 9. febrúar kl. 13 á Grandrokk,
Smiðjustíg 6, efri hæð. Öllum er
heimil þátttaka.
Skráning um þátttöku á mótið fer
fram í síma og á netfanginu jever-
@simnet.is fyrir klukkan 20 á föstu-
dagskvöld. Verðlaun verða veitt,
segir í fréttatilkynningu.
Tourette-
samtökin með
opið hús
TOURETTE-samtökin á Íslandi
hafa opið hús fyrir foreldra barna
með Tourette-heilkenni í dag,
fimmtudag 7. febrúar, kl. 20.30 í Há-
túni 10b, 9. hæð.
Þessi opnu hús eru mánaðarlega,
fyrsta fimmtudag hvers mánaðar,
segir í fréttatilkynningu.
Örnefni
jökla
NAFNFRÆÐIFÉLAGIÐ gengst
fyrir fræðslufundi í sal Norræna
hússins laugardaginn 9. febrúar kl.
14. Oddur Sigurðsson jarðfræðingur
á Orkustofnun flytur fyrirlestur sem
hann nefnir: Örnefni jökla.
Jöklar eru gjarnan kenndir við á
þá sem frá þeim rennur eða landið
sem að þeim liggur. Örfáir jöklar eru
kenndir við útlit sitt. Flest jöklanöfn
enda á „–jökull“ en það er þó ekki al-
gilt, segir í fréttatilkynningu.
Útsala Útsala
Pipar & salt, Klapparstíg 44
Kulnun í starfi
Málþing í Norræna húsinu,
föstudaginn 8. febrúar kl. 13.00–17.00.
Fundarstjóri: Ásta Möller, alþingismaður.
Dagskrá:
13:00.
Setning: Eyjólfur Sæmundsson, forstjóri Vinnueftirlitsins.
13.10-14.00.
Aðalfyrirlestur: Kulnun - alvara eða ímyndun?
Wilmar Schaufeli, prófessor í félags- og skipulagssálfræði
við háskólann í Utrecht í Hollandi.
14.00-15.00.
Kulnar eldur nema kynntur sé?
Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, félagsfræðingur hjá
Vinnueftirlitinu.
Er mér farið að kólna? Hugleiðingar heimilislæknis
Bjarni Jónasson, heilsugæslulæknir, Garðabæ.
Viðvörunarmerkin – aðgát skal höfð í nærveru sálar
Guðlaug Teitsdóttir, skólastjóri Einholtsskóla.
15.00-15.30
Kaffi
15.30-16.30.
Kulnun og viðbrögð í nokkrum starfsstéttum.
Þórður Óskarsson, framkvæmdastjóri INTELLECTA.
Starfa því nóttin nálgast.
Yrsa Þórðardóttir, framkvæmdastjóri ÆSKR.
Kulnun - félagslegt fyrirbæri eða sjúkdómur?
Kristinn Tómasson, yfirlæknir Vinnueftirlitsins.
16.30-17.00
Umræður.
17.00.
Málþingi slitið.
Öllum er heimill ókeypis aðgangur.
Model 6333DWBE
14.4 v Rafhlöðuborvél Aukarafhlaða / taska
REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500
AKUREYRI: Lónsbakka - Sími 461-1070
Model 6834
Gifsskrúfvél 470 W O = 4 x 57 mm
Tilboðsdagar
árið 2002
Málningarstyrkur
HÖRPU SJAFNAR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Skilafrestur er til 3. apríl nk.
Harpa Sjöfn hf. veitir á næstunni styrki í formi
málningar til góðra verkefna á vegum líknar-
félaga, sjálfboðaliða, þjónustufélaga, menningar-
samtaka og annarra sem vilja hafa forystu um að
fegra og prýða umhverfi sitt.
Síðustu fjögur ár hafa verið veittir samtals 60 til
70 málningarstyrkir, 2500 lítrar af málningu að
verðmæti um ein milljón króna á ári. Mikill fjöldi
umsókna hefur borist og voru undirtektir svo
góðar að ákveðið hefur verið að veita málningar-
styrki að nýju vorið 2002, enda hefur óspart verið
hvatt til þess.
Víða um land starfa margs konar félög og félaga-
samtök sem jafnan leita verðugra verkefna til að
láta gott af sér leiða fyrir samfélagið, t.d. með því
að mála og fegra mannvirki. Verkefnin geta falist
í endurbótum á sögufrægum húsum, kirkjum,
byggðasöfnum, sæluhúsum, björgunarskýlum,
íþróttamannvirkjum, elliheimilum og barna-
heimilum, svo eitthvað sé nefnt.
Harpa Sjöfn hf. ver að þessu sinni einni milljón
króna til málningarstyrkja sem verða á bilinu 50
til 300 þúsund krónur hver, eftir verkefnum. Þeir
sem hyggjast leita eftir styrkjum eru beðnir um að
skila umsóknum eigi síðar en 3. apríl nk. til Hörpu
Sjafnar hf., Austursíðu 2, 601 Akureyri eða
Stórhöfða 44, 110 Reykjavík. Gera þarf grein fyrir
verkefnum, senda mynd af því mannvirki sem
ætlunin er að mála og gefa upp áætlað magn
Hörpu Sjafnar málningar vegna verksins.
Dómnefnd velur úr umsóknum. Í dómnefndinni
eru: Formaður, Baldur Guðnason, stjórnar-
formaður Hörpu Sjafnar hf., Vigfús Gíslason
sölustjóri, Kristinn Sigurharðarson sölustjóri og
Helgi Magnússon framkvæmdastjóri. Móttakendur
styrksins sjá alfarið um kostnað við framkvæmd
verkefna. Tilkynnt verður um niðurstöður í maí.