Vísir - 13.05.1980, Qupperneq 3
vísm Þriöjudagur 13. mal 1980
3
Ólafur Jóhannesson, utanrlkisráöherra, og Knut Frydenlund, utanrikisráöherra Noregs, rœöa um Jan
Mayen-máliö. . .
Vlsismynd: GVA
Norsku hlöðln um Jan Mayen-samnlngana:
Gjðf eða landráð?
Frá Jóni E. Guðjónssyni, Osló:
Þá þrjá daga, sem samningaviðræður Islands og Noregs stóðu
yfir var Jan Mayenmálið mikið á siðum dagblaðanna hér. Nú, þeg-
ar úrslitin liggja fyrir, hafa þau látið i ljós álit sitt á samningsupp-
kastinu.
■ Stærsta blað Noregs, Aften-
■ posten, segir I aðalleiðara: „Ef
| samningur Noregs og tslands er
® skoðaður i ljósi annarra milli-
I rikjasamninga, er ljóst að hann
er vanskapaður. En i samskipt-
g um okkar við ísland verðum við
aðsætta okkur við þá staðreynd,
| að hið venjulega gildir ekki, og
þvi munum við verja þennan
g samning, þrátt fyrir agnúa
E hans.”
— Blaðið bendir á að Islendingar
hafi ekki tekið tillit til þess,
hversu stórpólitiskt svæði er um
að ræða. Norska rikisstjórnin
gat ekki tekið þá áhættu, sem
fiskveiðideila við íslendinga
myndi hafa i för með sér, segir
Aftenposten.
Tillit til NATO
Dagbladet, siðdegisblað i
Osló, kemur inn á þetta sama
atriði. Undir fyrirsögninni,
„Tillit til NATO réði úrslitum
fyrir Noreg” segir blaðið, að
norska rikisstjórnin hafi verið
hrædd um að skaða samvinnuna
innan NATO.ef hún neitaði kröf-
um Islands siðastliðinn laugar-
dag. Einnig óttaðist rikisstjórn-
in, að ágreiningur við Island
gæti orðið vatn á myllu her-
stöðvarandstæðinga. I þvi sam-
bandi minnir blaöið á, hvað
gerðist i siðasta þorskastriði.
Dagblað Verkamannaflokks-
ins, Nordlys, I Tromsö, segir á
fyrstu siöu, að þrátt fyrir
háværa gagnrýni muni bæði sjó-
menn og stjórnmálamenn sam-
þykkja samningana. Blaðið
bendir á, að það séu einkum sjó-
menn, sem séu óánægðir með
samningana. Þeim sé þó ljóst að
samningar séu betri kostur en
fiskveiðideila við frændþjóðina i
vestri.
Ihaldsblaðið Morgenbladet
segir þá Frydenlund og Bolle
munu eiga erfiða daga við að
verja samningana. Blaðið hefur
eftir einum fulltrúa sjómanna,
að um landráö sé aö ræða og að
rikisstjórnin hafi fórnað hags-
munum sjávarútvegsins á altari
erlends rikis til að koma i veg
fyrir millirikjadeilur.
„Brothætt”
Dagblað Miöflokksins birtir
skopteikningu af Frydenlund og
Bolle, þar sem þeir rogast með
pakka niður stiga Loftleiðavél-
ar. Á pakkanum stendur „Brot-
hætt”. Undir fyrirsögninni
„Vonbrigði sjómanna” skrifar
leiðarahöfundur blaðsins: „Það
er auðvelt að skilja sjómenn,
sem hafa orðið fyrir sárum von-
brigðum með Jan Mayen-samn-
ingana. Þeir samningar voru
þunnur þrettándi”.
Næststærsta blaö Noregs,
Verdens Gang, bendir á i sinum
leiðara, að nú verði ekki auðvelt
fyrir Frydenlund að setjast að
samningaborði með Kremlverj-
um eða Efnahagsbandalaginu.
Þeir háu herrar hafi áreiðan-
lega fylgst vel með þvi sem
geröist siðastliðinn laugardag.
Blaðið segir að það sem Island
hafi fengið I sinn hlut sé vafa-
laust ekki meira en það , sem
Norðmenn hafi verið búnir að
lofa. Siðan segir: „En það er
framkvæmdin, sem gefur
ástæðu til umhugsunar. Það er
munur á stórvirkri gjöf og
skjalfestum réttindum.” MS
NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT
MÁNAÐARIT
* +
MÁLGAGN
MÓTORSPORT
ÁHUGAMANNA
-¥■ -¥■-¥- -¥-
KOMIÐ Á
BLAÐSÖLUSTAÐI
ÁSKRIFTAR OG AUGLÝSINGASÍMI34351
Kl. 3 — 6 VIRKA DAGA
NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT — NÝTT
1 TBl. 1 ABG - Apfil.'mai 1980 — Votö kr 1300.
MÓTORSPORT
Allar Mótorspöfiíffl'einarnar á sama slað
Regn- og s/agveðursföt
á börn og ung/inga
stígvé/, allar stærðir
PÓSTSENDUM SAMDÆGURS
SJÓBÚÐIN
Grandagarði 7 — Reykjavík
Sími 16814 — Hésmaslmi 14714
yalnshilunarkerll húsa:
ðll eldri tækl
skulu í lag
fyrir i. júlf
Þann 1. júli rennur út frestur til
að ljúka lagfæringum eldri vatns-
hitunartækja og kerfa svo þau
uppfylli kröfur um öryggisbúnað
samkvæmt reglugerð er tók gildi
árið 1978 fyrir ný tæki.
Eftir 1. júli skulu eldri vatnshit-
unartæki með rafhitun og kerfi
tengd þeim, uppfylla kröfur um
öryggisbúnað samkvæmt reglun-
um.
Notendum og kaupendum
vatnshitunartækja með rafhitun
skal sérstaklega bent á, að tæki
sem hafa verið tekin niður, til
dæmis með tilkomu hitaveitu, eru
i mörgum tilfellum ekki með til-
skildum öryggisbúnaði, að þvi er
segir i frétt frá Rafmagnseftirliti
og öryggiseftirliti rikisins.
Óheimilt er að setja þessi tæki
upp að nýju og taka I notkun,
nema þau uppfylli kröfur um ör-
yggisbúnað.
Helstu breytingar frá fyrri
reglugerðum eru aö öryggisbún-
aður tækjanna var aukinn, ná-
kvæmari reglur voru settar um
að búnaöur sé merktur framleið-
anda og að gerð tækjanna sé próf-
uö og viöurkennd af Rafmagns-
og öryggiseftirliti rikisins. Einn-
ig voru sett ákvæði um reglu-
bundnar prófanir á öryggisbún-
aði.
Nánari upplýsingar fást hjá
Rafmagnseftirliti rikisins og
öryggiseftirliti rikisins aö Siðu-
múla 13 og hjá rafmagnseftirlits-
mönnum viðs vegar um landið.
______________ -SG
Skuttogarlnn Bjarnl
Herjólfsson
Góð saia í
Þýskaiandl
Skutttogarinn Bjarni Herjólfsson
frá Stokkseyri fékk ágætt verð
fyrir afla sinn i siöustu viku. Sle-
ust 153,5 tonn af karfa fyrir 64.5
milljónir. Það þýðir að meðalverð
á hverju kilói hafi verið 420 krón-
ur.sem er með þokkalegra verði
sem fengist hafa á þessari vertið.
ÞJH