Vísir - 21.05.1980, Blaðsíða 1
r raún' ög"sTvTkTr"ili rmiðiundú úr" öbrnúérum sjóðúmTíðúsTiT iTmm JrTn" "1
..Sióðakóngurlnn” er á
launum 9.5 mánuði á ári!
„Sjóðakóngurinn” i hópi islenskra rithöfunda hefur siðustu fimm árin
verið á „opinberum” launum i rúmlega niu og hálfan mánuð á ári að
meðaltali.
Bergsson, en hann hefur, eins og geirsson (6.7), Vésteinn Lúö-
aö ofan greinir, fengiB sllk laun i viksson (6.5) og Kristmann
aö meðaltali riimlega 9.5 mán- Guðmundsson (6.4).
uði á ári.
Þetta kemur fram i yfirliti
sem Elias Snæland Jónsson, rit-
stjórnarfulltrúi hefur tekið
saman um Uthlutanir til rithöf-
unda úr Launasjóði rithöfunda,
Rithöfundasjóði íslands, Rit-
höfundasjóði rikisútvarpsins,
Starfslaunum listamanna og
Listamannalaunum!
Laun og styrkir úr áðurnefnd-
um sjóðum eru umreiknaðir i
byrjunarlaun menntaskóla-
kennara á hverjum tima, og
fæst þannig raunhæfur saman-
buröur fyrir allt timabilið.
Sá rithöfundur, sem mest hef-
ur fengið úr þessum sjóðum siö-
ustu fimm árin, er Guðbergur
Næstir honum koma Guð-
mundur G. Hagalin (8.7), Guð-
mundur Danielsson (8.4), Thor
Vilhjálmsson (7.6), Indriði G.
Þorsteinsson (7.2), Þorsteinn
frá Hamri (6.8), Þorgeir Þor-
A bls. 8, 9 og 11 i Visi i dag er
birt yfirlit um greiðslur til 36
rithöfunda, sem allir hafa verið
samanlagt á launum i 18 mánuði
eða meira árin 1976-1980.
Pétur
knatlspyrnukappi
heim irá Hollandi:
Kom mátu-
lega fyrir
fæöingu
dóttur-
innar
„Hárprúðari en
ég var” segir
Pelrina kona
Péturs
Pétur Pétursson fót-
boltakappi var, eins og
svo oft áöur, á réttum
stað á réttum tíma i gær,
þegar kona hans Petrína
fæddi dóttur á Fæðingar-
deild Landsspítalans.
Pétur kom til landsins í
fyrradag, þannig að það
mátti varla tæpara
standa að hann yrði á
landinu, er dóttir hans
fæddist.
„Ég er auövitað mjög ánægð-
ur. Fæðingin gekk vel og þeim
liöur báöum ágætlega,” sagði
Pétur er Visir heilsaði upp á
fjölskylduna á fæðingardeild-
inni.
Litla dóttirin var hin spræk-
asta þó að hún hafi fæöst nokkru
fyrir timann. Hún er 12 merkur
og 50 sentimetrar og alveg sér-
staklega hárprúö. „Hún hefur
það örugglega ekki frá mér,”
sagði Petrina, „ég var alveg
sköllótt, þegar ég fæddist.”
Þau Pétur sögðust ætla að
vera hér á landi að öllum likind-
um fram á mitt sumar, en þá
færu þau til Hollands.
Vísir óskar þeim Pétri og
Petrinu til hamingju meö frum-
burðinn, en svo sem menn
muna, kusu lesendur Visir Pét-
ur „mann ársins” á siöasta ári.
— ÞJH.
Péturog Petrína standa hamingjusöm hjá vöggu litlu
dótturinnar, sem var einungis nokkura stunda gömul,
er myndin var tekin. Sú litla lét sér hvergi bregða,
þrátt fyrir umstang blaðamanna og virtist bara þræl-
vön að sinna duttlingum þeirra. Vísismynd: J.A.
Borlnn „Jðtunn” keyptur
1976 með erlendu lánl:
Lánið nú
nær ivö-
faii kaup-
verðiðl
„Það er ljóst að ef við seldum
Jötunn núna á um tvær milljónir
dollara, sem er það verð sem við
fengjum fyrir hann, dygði það
hvergi nærri til að borga þau lán
sem við tókum vegna kaupanna á
honum”, sagði Jakob Björnsson,
orkumálastjóri, i samtali við Visi.
Visir spurði Jakob hve mikil
skuldin væri I dag.
„Þaö er nú varla nokkur frétt
hvernig skuld af einu láni stendur
og ég efast um að það sé i sjálfu
sér fjölmiðlamál”.
— Áttu þá við að það sé ekki
opinbert mál.
„Jú, auðvitað er það opinbert
mál, en ég hreinlega nenni ekki
að standa I þvi að afla þér upp-
lýsinga um það. Það er ekki ó-
maksins vert”.
— Get ég þá ekki snúiö mér til
einhvers annars innan stofnunar-
innar, sem hugsanlega nennti aö
taka saman þessar upplýsingar?
„Nei”.
Vfsir spurði þá Þorgils Jónas-
son hjá Jaröborunum rikisins, en
þær heyra undir Orkustofnun, um
stöðu lánsins.
„Ég neita að gefa nokkrar
upplýsingar um þetta, þú veröur
aöspyrja orkumálastjóra”, sagði
Þorgils og þar með var hringur-
inn lokaður.
Samkvæmt upplýsingum Visis
var það árið 1976, að Orkustofnun
tók um tveggja milljón dollara
lán til kaupa á bornum Jötni. Lán
þetta var hluti af stærri lántöku
rikissjóðs erlendis, sem meðal
annars var notuö til að fjármagna
framkvæmdir við Kröflu. Lánið
var tekið I svokölluðum Evrópu-
einingum (European Units of
Account) sem miöast viö gengi
niu gjaldmiðla Efnahagsbanda-
lagsins og er vestur-þýska mark-
ið þar stór hluti.
Vegna hins mikla sigs dollarans
gagnvart evrópugjaldmiöli hafa
þessi lán hækkað stórlega i doll-
urum talið og eru nú oröin gifur-
leg byröi á þeim stofnunum sem
þau tóku. Sé einungis tekiö tillit
til sigs dollarans gagnvart mark-
inu á þessu tímabili er höfuðstóll
lánsins, sem Orkustofnun tók, nú
orðinn jafnviröi 2,8 milljóna
dollara. Vlsir hefur það hins
vegar eftir áreiðanlegum heim-
ildum.að vegna vaxta og dráttar-
vaxta, sem hlaðist hafa utan á
lánið, sé ákuldin nú oröin hátt á
fjórðu milljón dollara. P.M.