Vísir - 21.05.1980, Blaðsíða 5
5
pfii
>:Ns->X;.S
\
.
íffiíSlí.'WWJ^
^mrn&m
;ÍSSS!s#i®#5
Hisilll?
■•’.. - ■:
lllsplfl
' ■: ■
vísm
Miðvikudagur 21. mai 1980
T'exti:'Guft-
mundur
Pétursson
SNJOPLOGAR RVBJA
Svipmyndir, sem timaritiO
„Time” birti úr „Empire”.
Geimskipið „Fálkinn” sést á
flótta undan orrustuflaug keisar-
ans. Svarthöfði hinn illi. Chew-
bacca, C3PO, Leia preinsessa og
Han Solo. t neðra horni vinstra
megin er Joda, lærimeistari
Jedi-riddara. Svarthöfði og Luke i
skylmingaeinvigi. Chewbacca
stýrimaður. Joda uppfræðir
Luke, R2D2.
ans. Solo skipherra, Leia prins-
essa, vákurinn Chewbacca (stýri-
maður Solos) og C3P0 sleppa
með naumindum i „Fálkanum”,
geimskipi Solos, sem fyrir ein-
hvern tæknigalla nær ekki ljós-
hraöanum, er gæti skotið þvi út i
ytrigeiminn.. Til að sleppa undan
eftirreiöarmönnum stefnir Solo
þeim inn i stjörnuþoku, sem er
þeim voöinn sjálfur vegna
árekstrarhættu við loftsteina, er
þjóta um allt hjá þeim. Þaö atriði
þykir meistaraleg tæknibrella hjá
kvikmyndamönnunum.
Auðvitað sleppa þau úr þeirri
Bjarmalandsför og leita hælis i
skýjaborg gamals vinar Solos.
A meðan hefur Obi-Won Kenobi
eða Ben Kenobi (Alec Guinness)
birst Luke I andahjúpi, en hann
gufaði upp i viðureign við Svart-
höfða i „Stjörnustriði”. Svo er að
skilja, sem Jedi-riddarar deyji
ekki vegna „máttarins”, sem
þeir ráða yfir. Heldur hverfa þeir
og birtast á vixl. Kenobi segir
Luke að leita uppi einhvern, sem
kallast Joda og býr á plánetunni
Dagobah. Sá staður reynist mikið
fúafen og illgresishorn, og sekkur
Luke þangað kominn I leöjuna, en
upp úr henni skýst furöuvera,
sem reynist vera Joda, að hálfu
álfur og hálfu töframeistari.
Hann á að kenna Luke Jedi-fræö-
in, eo vill ekki verða við þeirri
beiöni Kenobi I fyrstu.
-Toda er eins og klipptur beint úr
„Prúðuleikurunum” og enda
stýrt af Frank Oz, maninum, sem
stýrir Svinku i þeim vinsæla
barnaþætti. Joda er spáð mikilli
hylli barna og þykir Lucas hafa
tekist meistaralega til við sköpun
þessarar figúru.
Joda, sem kennt hefur
Jedi-riddurum I 800 ár, segir von-
laust aö kenna Luke, og talar
skringilegt mál meö annarri
orðaröð en viögengst. Hann telur
Luke hálfgerðan skýjaglóp, sem
vonlaust sé aö hemja. Auðvitaö
lætur hann siðan undan og tekur
til við fræðsluna og þjálfun Luke I
notkun „máttarins”. Luke nær
tökum á þvi að færa til hluti með
viljamættinum einum, en er of
vantrúaður til þess að takast á við
stærri grettistök. Þó lærir hann
nóg til þess að takast á við Svart-
höfða, sem er jafnvel enn magn-
aöri en i „Stjörnustriði”.
Endir „Empire” þykir orka
nokkuö tvimælalaus og ekki jafn-
ast á við „Stjörnustrið”. Þar
veldur um framhaldsþráðurinn,
sem gætt er I þessum mynda-
flokki. En leikbúningar, ljósa- og
hljóðtæknin er kölluð „snilld” af
kvikmyndafróðum mönnum.
Þykir myndin likleg til metað-
sóknar eins og „Stjörnustriö” og
þá væntanlega ámóta umtalsverð
og fyrirrennarinn, sem var á
allra vörum, sem séö höfðu.
GOSOSKUNNI FRA
Hugsanlega þarf að flytja 50
þúsund manns burt af heimilum
sinum, ef stifla brestur, sem
myndast hefur i ánni Toutle
vegna öskufallsins og aurskriðu-
falla úr eldfjallinu St. Helens.
Myndast hefur kflómetra breitt
uppistöðuvatn ofan við stifluna,
og hlytist af hrikalegt flóð i
Toutle-dalnum, ef hún brysti.
Fyrir neðan stiflu eru tveir bæir
með samtals um 50 þúsund ibú-
um.
Úr næsta nágrenni eldfjallsins
haföi áður verið búið að flytja
burt um 2000 manns, en engu að
siður er vitað um 6, sem farist
hafa, og óttast er um afdrif 95,
sem saknaö er.
Jörð er á þessum slóðum sviðin
undan glóandi ösku og sjóðandi
leir, sem vall upp úr gignum og
jók við sig aur i skriðuföllum
niður hliðar fjallsins. öskufallið
hefur valdið miklum usla. Það er
sumstaðar 60 sm þykkt, og loft
hefur verið svo mettað, að fólki
er naumast lift utan dyra nema
með grimur. Flugumferð hefur
lagst niður i austurhluta Was-
hingtonfylkis vegna öskuskýja,
sem bagað hafa flug. Fjöldi öku-
tækja á þessum slóðum er meö
úrbræddar vélar, þar sem askan
stiflaði loftsiur og kælikerfið
brást.
Kvaddir hafa verið til
sumstaðar snjóplógar til þess að
moka burt öskunni.
Lögreglan IS-Kóreu býr sig undir áhlaup á múginn inni I táragasmekkinum.
Hermðnnum att á
borgara í S-Kóreu
Fallhlifahermenn S-Kóreu áttu
I átökum I gærkvöldi og I nótt til
þess að reyna að kveða niður ó-
eirðir i bænum Kwangji, þar sem
rikt hefur algert uppreisnará-
stand að undanförnu.
5 lögregluþjónar og hermenn
létu lifiö I átökunum og 13 opin-
berar byggingar voru brenndar
eða eyöilagðar með öðrum hætti.
Kwangji-búar buöu herliðinu
byrginn, þótt hermennirnir not-
uðust viö brynvaröa vagna. Var
barist I alla nótt á götum
bæjarins, sem var upplýstur eins
og um miðjan dag af brennandi
húsum.
Hiö opinbera hefur ekkert látið
uppi i fréttum sinum um mannfall
borgara, en sjónarvottar sögðu,
að hermennirnir hefðu gengiö
hart fram og engu þyrmt, en
aðallega beitt þó kylfum. Töldu
þeir, aö mannfallið væri einhvers
staöar milli 100 og 300.
OIÍU-
hækkanlr
Fjögur meiriháttar oliufram-
leiðsluriki hafa bæst I hóp þeirra,
sem nýlega hækkuðu oliuna enn
eina feröina. Þau eru frak,
Kuwait, Sameinuöu furstadæmin
og Venezúela.
Aöur höfðu Indónesia, Libia og
Alslr fariö að fordæmi Saudi
Arabiu, sem hækkuðu hráoliuna
14. malum 2 dollara fatið. —Saudi
Arabia skýrði hækkun slna þá
sem tilraun af sinni hálfu til þess
að sameina að nýju oliuverð
OPEC-rikja og koma röö og reglu
á ollumarkaðinn.
Er Reagan
orðlnn
öruggur?
Ronald Reagan virtist I gær-
kvöldi hafa tryggt sér þá 998 full-
trúa, sem hann þarf til þess aö
vera öruggur um útnefningu
repúblikana til forsetaframboðs.
ABC-fréttastofan telur, að
Reagan sé kominn meö þennan
fjölda,þrátt fyrir ósigurinn I gær I
forkosningunum I Michigan, þar
sem eini keppinautur hans,
George Bush, hafði 58% meöan
Reagan hafði 31%.
— Forkosningar voru einnig I
Oregon I gær, en úrslit liggja ekki
fyrir. Þó er Reagan spáð þar
sigri.
Bush haföi tryggt sér tæpa 200
fulltrúa fyrir forkosningarnar I
gær.
QUEBEC
SAGÐI NEII
Framtlð Quebec sem óað-
skiljanlegur hluti af Kanada
virðist tryggð I dag eftir ósigur
Levensque forsætisráðherra og
aðskilnaðarsinna hans I þjóðarat-
kvæðinu I gær.
Rúmlega 59% kjósenda höfnuðu
kröfu Levesque um umboð til
þess að taka upp samninga um
sjálfstæði Quebec.
Levesque var gráti næst ,
þegarhann skýrði fylgismönnum
slnum frá úrslitunum I gærkvöldi,
en þar voru margir, sem létu
tilfinningamar yfirbuga sig og
grétu vegna úrslitanna.
Aðalkeppninautur hans I
stjórnmálum Quebec, Claude
Ryan, leiðtogi stjórnarandstöð-
unar, hvatti Levesque til að boöa
til nýrra kosninga innan fylkisins
og vildi túlka þjóöaratkvæöið sem
vantraust á Levesque.
Af 4.4 milljónum á kjörskrá
kusu 3.6 milljónir. 59.4’% sögöu
nei, en 40.6% já.
Rene Levesque, leiötogi aö-
skilnaðarsinna, var gráti næst
eftir ósigurinn I þjóðaratkvæðinu
I gær.