Vísir - 27.06.1980, Side 5
'Umsjdn: Axel
j Ammendrup
„NATO kom
herfor-
ingjastjórn-
inni aö”
Andreas Papandreou.
S-Afríka gerir innrás í Angóla:
,j>etta er sttiO”
- segja Angólamenn
Thatcher: Mesta sigurvlman er
farin af henni.
- segir papandreou
Andreas Papandreou, einn
helsti leiðtogi griskra sósialista,
sagði I gær að boð Spánverja um
að ganga úr NATÖ myndi ekki
tryggja frið heimafyrir né hið ný-
fengna lýðræði i landinu.
„Hvað Grikkjum viðvíkur er
NATO ekki aðeins hernaðar-
bandalag, heldur er NATO ábyrgt
fyrir innrás Tyrkja i Kýpur og
herforingjastjórninni.
svæöinu drepinn, hús og ökutæki
eyöilögð og sprengjum komið fyr-
ir á öllum vegum, þannig að búast
má við að enn fleiri eigi eftir að
falla vegna innrásarinnar.
Formaður angólsku sendi-
nefndarinnar, Elisio de
Figueiredo, sagði i bréfi til
öryggisráðsins, að enn væru
átta s-afriskar herdeildir i
Angóla.
„bað eru tilrfiæli stjórnar
minnar, að Sameinuðu þjóðirnar
bregðist fljótt við aðgerðum
S-Afrikumanna og fordæmi þessa
heimsvaldasinnuðu aðgerð kyn-
þáttahaturs, sem ógnar firði og
stöðugleika á svæðinu”, sagði
Figueiredo.
„Suður-Afrikumenn eru ekki
aö undirbúa striö — þetta er
striö”.
Kampútsea:
Tveggja
Rauðakposs-
manna saknað
Herforingjastjórninni var kom-
iðá i Grikklandi með Prometheus
áætluninni, sem NATO undirbjó.
Þegar ég var forsætisráðherra
komst ég að þvi, að griska leyni-
þjónustan fékk peninga frá
Bandarikjunum i gegnum NATO.
Papandreou sagöi þetta við
spænska blaðamenn, er hann var
I stuttri heimsókn á Spáni i boði
spænska sósialistaflokksins.
öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna var kallað saman I gær að
beiðni stjórnar Agnóla vegna inn-
rásar herliðs frá S-Afriku.
Angólska sendinefndin hjá
Sameinuðu þjóðunum sagði, að
s-afriskir hermenn hefðu drepið
370 manns og sært um 255, þar af
meirihlutinn böm, konur og gam-
almenni.
Þá var bústofninn á innrásar-
Tveggja Rauða kross
starfsmanna og tveggja
blaðamanna er saknað
eftir að þeir nálguðust
vietnamska hermenn
við landamæri Thai-
lands og Kampútseu í
gær.
Rauða kross mennirnir eru
Breti, Robert Ashe, og Frakki,
Pierre Perrin. Ekki er nákvæm-
lega vitað, hverjir blaðamenn-
irnir eru en þó talið að þeir séu
v-þýskir.
Talsmaður Rauða krossins
sagði, að fjórmenningarnir hefðu
farið inn i yfirgefnar flótta-
mannabúðir nálægt thailenska
landamæraþorpinu Nong Chan,
en þaðan flúðu um 50 þúsund
manns fyrr I þessari viku er
ákafir bardagar stóðu þar yfir.
Vitni sáu, er fjórmenningarnir
nálguðust vietnamska hermenn i
þorpinu, en misstu slðan sjónar á
þeim, og siðan hefur ekkert
heyrst til þeirra.
Suður-afriskir hermenn eru sagöir komnir inn f Angóla.
ENN MINNKA VINSÆLDIR THATCHERS
Margaret Thatcher,
forsætisráðherra Breta,
reið ekki feitum hesti frá
fyrstu aukakosningun-
um, sem haldnar voru i
Bretlandi eftir að hún
komst til valda i þing-
kosningunum i mai 1979.
Kosið var I Mið-Glasgow kjör-
dæminu, og fékk frambjóðandi
ihaldsmanna aðeins 707 atkvæði,
eða innan við nfu af hundraði
greiddra atkvæöa. í kosningunum
Ifýrra hlaut frambjóðandi ihalds-
manna rúmlega 16%. Frambjóð-
andi verkamannaflokksins hélt
sæti sinu, fékk um 60% atkvæða,
en fékk 72% fyrir ári.
Skoski þjóðernisflokkurinn
hlaut 26% atkvæða, og skaut þar
með stjórnarflokknum niður i
þriðja sæti i Mið-Glasgow kjör-
dæminu.
Stjórnmálaskýrendur telja, að
úrslit i þessu kjördæmi geti vart
talist marktæk um dvinandi vin-
sældir frú Thatcher. Þetta sé fá-
mennasta kjördæmi Bretlands,
með 19000 kjósendum, en af þeim
greiddi aðeins helmingur
atkvæði.
Steiktu egg á
gangstéttlnni
Methiti var f Dallas i Texas i
gær og komst hitinn upp I 45
gráður á Celsius. Vonast menn
til að þetta hafi veriö hámark
hitabylgju, sem orðið hefur
þremur mönnum að bana hing-
að til.
Sjúkrabifreiðar voru fullar af
ismolum, sem sjúkraliðar báru
til manna, sem þjáðust af hitan-
um. Sjónvarpsmenn gerðu til-
raun með aö steikja egg á gang-
stéttum, og tókst það mæta vel.
Þá hefur lögreglan kvartaö
undan þvi, að aldrei fyrr hafi
svo mörgum loftkælingartækj-
um verið stolið og er mönnum
bent á að gæta tækja sinna sér-
lega vel.
Sprengia sprakk
á kosningalundl
Einn maður var drepinn og 38
manns særöust er sprengju- og
skotárás var gerð á kosninga-
fund vinstri manna I La Paz,
höfuðborg Bóliviu i gær.
Alfredo Perez, 21 árs gamall,
lést þegar handsprengju var
kastað að þdsundum stuðnings-
manna UDP, vinstri sinnuðum
stjórnmálaflokki, sem gengu
fylktu liöi um götur La Paz. 28
manns hlutu meðferö á slysa-
deild og tiu til viðbótar voru
fluttir á sjúkrahús.
Vitni sögðust hafa séð menn
skjóta á hópinn úr jeppa,
skömmu eftir að sprengjan
sprakk.
Meöal þeirra, sem slösuðust
alvarlega, var niu ára gömúl
stúlka.
Frakkar smíða
niiteindasprenglu
Frakkar lýstu þvf yfir i gær,
að þeir gætu framleitt nifteinda-
sprengju hvenær sem væri.
Valery Giscard d’Estaing, for-
seti, sagöi, að Frakkar myndu
eftir tvö til þrjú ár taka ákvörö-
d’Estaing: Tökum ákvörðun um nifteindasprengju eftir örfá ár.
un um það, hvort þeir fram-
leiddu slika sprengju. Nift-
eindasprengjur drepa allt kvikt
á stóru svæði með geislum, án
þess að valda miklum skemmd-
um á mannvirkjum.
„Við höfum oröiö varir við
miklar umræður meðal
franskra ráðamanna um mögu-
leikann á frekari þróun geisla-
virkra vopna, svo yfirlýsingin
ætti ekki að koma neinum á
óvart”.
Rretar sjállum
sér nóglr
Bretar gætu orðið sjálfum sér
nógir I oliuframleiðslu eftir örfá
ár. Kemur þar bæði til minnk-
andi oliueftirspurn á innan-
landsmarkaði og aukin fram-
leiðsla Norðursjávaroliu.
Bretar framleiddu 19,8
milljón tonn af ollu á timabiUnu
febrúar-april I ár, og skortir þar
aðeins tvö milljón tonn til að
anna innanlandsmarkaði.