Vísir - 27.06.1980, Side 26
VISIR Föstudagur 27. júnl 1980.
■
(Ur pokahorninu
smm
lllii
Agnar
ofkeyrir
Flugvél flugmálastjóra er nú
keyrO á „leigumótor” og herma
fregnir að sú leiga nemi um
einni milljón króna. Þannig var,
aö i siðasta mánuði var annar
mótor vélarinnar ofkeyrður i
svokallapri uppkeyrslu þannig
að stórkostlegar skemmdir
hiutust af og mun viðgerðar-
kostnaður nema 15-20 milljón-
um króna. Þangaö tii að viðgerð
lýkur veröur að notast við
„leigum.ót orinn ’ ’.
Þess má geta að Agnar
Kofoed Hansen flugmálastjóri,
var sjálfur undir stýri þegar
umrætt atvik átti sér stað.
í
...og enn
um Agnar
Og úr þvi að minnst er á flug-
I málastjóra. Hann hefur ekki
« enn séð sér fært að mæta á flug-
| ráðsfundi frá þvl að nýtt fiugráð
H var skipað um áramót og Leifur
■ Magnússon gerður formaður i
■ hans stað.
Að sögn kunnugra er þvi
■ ýmist borið við að hann sé er-
■ lendis eða við laxveiðar I
■ Hitará.
■ Augiýsa
■ vlnnustaða-
■ kannanir
■ Sú saga komst á kreik i vik-
■ unni, að kosningaskrifstofa Pét-
■ urs Thorsteinssonar hefði geng-
I ist fyrir sjálfstæöri skoöana-
■ könnum, og fylgdi sögunni, að -
I útkoman hefði veriö Pétri mun
* hagstæöari en niðurstöður i
I skoðanakönnunum Visis og
1 Dagbiaðsins. Allt mun þetta
I vera úr lausu lofti gripið, en at-
hyglisvert er, að stuðningsmenn
I Péturs hafa gripið tii þess ráðs,
að auglýsa sérstaklega niður-
stöður prófkosninga á vinnu-
stöðum, sem sýna aukið fylgi
Péturs, en sumir staðanna eru
állka fjölmennir og meðaiferm-
ingarveislur.
Vilhjálmur
framkvæmda-
stjóri Sjáif-
stæðis-
flokksins?
Sigurður Hafstein sem um
árabil hefur verið fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðis-
flokksins mun láta af þvl starfi i
sumar. Engar ákvarðanir munu
liggja fyrir um það, hver taki
við starfinu, en slikar stöður eru
ekki auglýstar, heldur er ráön-
ing aö mestu I höndum for-
manns og formlega á valdi mið-
stjórnar.
Sjálfsagt er flokknum nokkur
vandi á höndum að finna i starf-
ið heppilegan mann, sem hafinn
er yfir flokkadrætti, og getur
hleypt nýjum krafti I flokks-
starf. Fréttir herma að athyglin
hafi einkum beinst að Vilhjálmi
Vilhjálmssyni, framkvæmda-
stjóra SAA, sem lengi var fram-
kvæmdastjóri fulltrúaráösins i
Reykjavik.
Vilhjálmur Vilhjálmsson.
Útvarpsráð
mæiir með
Nelga P.
Á fundi sinum I vikunni tók út-
varpsráð afstöðu til umsækj-
enda um fréttamannsstarf hjá
útvarpinu. Umsækjendur voru
tveir, Helgi Pétursson fyrrv.
ritstjóri Vikunnar og Halldór
Halldórsson sem undanfarin ár
hefur starfað sem afleysinga-
maður hjá fréttastofu útvarps.
Otvarpsráð mælti einróma
með Helga Péturssyni.
Svo sem fram kom I yfirlýs-
ingu, sem birt var i Visi I vik-
unni frá Sveini Eyjólfssyni,
stjórnarformanni Hilmis h.f. út-
gáfufélags Vikunnar, var ekki
rétt, það, sem nefnt var hér i
siðasta Pokahorni, að dóttir
hans myndi setjast i ritstjóra-
stól Vikunnar eftir Helga. Að
sögn Sveins hefur þaö ekki kom-
ið til tals.
Helgi Pátursson.
Stlórnarskránefnd:
Endurskoðar
Irumtillðgurnar
Unnið er nú, á vegum
stjórnarskrárnefndar, að breyt-
ingum á uppkasti að tillögum til
stjórnarskrárbreytinga. Meöal
annars er verið að semja nýjan
kafla I uppkastið, um
kjördæmamálið.
Nefndin hefur rætt milli 20 og
30 málaflokka. Upp úr þeim
viðræðum, var starfsmanni
nefndarinnar falið að gera upp-
kast að tillögum. Þetta uppkast
var slðan rætt á fundi nefnd-
arinnar og athugasemdir
geröar við það.
Endanlegar tillögur verða
sendar þingflokkunum áður en
þær verða birtar opinberlega.
jrsteinn Pálsson
Fðstskoti ■
haráttunni í
Þótt huggulegheitasvipur
hafi verið yfir kosningabarátt-
unni fyrir forsetakosningarnar
fram að þessu, með ákveönum
uiylantekningum, virðist nú
slöustu dagana vera farið að
skjóta föstum skotum.
Þannig sendir Hersteinn
Pálsson ábyrgðarmaöur „29.
júnl” blaðs stuðningsmanna
Péturs Thorsteinssonar jafn-
réttisráði tóninn I gær og segir
að framkvæmdastjóri þess hafi
átakalaust gengið fram fyrir
skjöldu og prédikaö gegn hlut-
verki ráösins og skorað á fólk að
kjósa ákveöinn frambjóðanda,
af þvi að um konu sé að ræða.
Hersteinn spyr: „Gæti ráðið
gengið öllu lengra I að brjóta
þau lög, sem þvl er ætlað að
starfa eftir?”
Ráðið sendi svo frá sér frétt I
gærkveldi þar sem sagði aö það
hefði ekki rætt um frambjóð-
endur til forsetakjörs 1980 á
fundum sinum og jafnréttisráð
hafi hvorki skoraö á konur né
karla að kjósa ákveöinn fram-
bjóðanda til forsetakjörs.
Framkvæmdastjóri ráðsins,
Bergþóra Sigmundsdóttir, mun
siðan I dag birta yfirlýsingu þar
sem hún segist telja sig hafa
fullan rétt til að taka afstöðu I
kosningunum sem einstaklingur
burt séð frá störfum slnum sem
framkvæmdastjóri ráðsins.
Mun hún hafa lýst yfir að hún
kjósi Vigdisi Finnbogadóttur
vegna þess. að hún telji hana
hæfasta frambjóðandann en
ekki vegna þess að hún sé kona.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
■
I
a
i
i
i
i
Bergþóra Sigmundsdóttir
KOSNINGAHANDBOKIN frá
er komin út. Fæst á blaðsölustöðum
og bókabúðum um land allt. forsetakjör
......29. júní 1980
rcsnmða
handb€>k
30
Sjónarhorn
MBH Arni
Xgí ÍPP Sigfússon
blaöamaöur
e skrifar:
Sannfæring
er ekki
söluvara
Einu fjöimiðlarnir sem um
lengri tima hafa reynt að
fylgjast með forseta-
framboðsmálum eru hinir
sjálfstæðu fjölmiðlar.
Kynning á frambjóðendum
hefur þó að undanförnu
fremur veriö I formi lesenda-
bréfa og greina en skýrlegrar
úttektar á störfum og persónu
forsetaframbjóðenda. Einn
þáttur i þessu framlagi, eru
skoðanakannanir. Þær hafa
orðið til þess, að nú hugleiða
menn alvarlega hvort ekki
þurfi að setja lög og reglur um
þetta fyrirbæri — þvi skoðana-
kannanir eru taldar hafa
skoðanamótandi áhrif á ein-
hverja kjósendur. Visir hefur
lagt sinn skerf fram til þess að
lyfta aðferðum islenskra skoð-
annakannana upp úr lágkúr-
unni.
Könnunin frá 2. júni var
unnin mjög fræðilega og hlaut
lof sérfróðra manna. Sú
könnun er nú að verða
mánaðargömul og margt
hefur breyst I framboðs-
málum á þeim tima.
Könnunin frá þvi nú um
helgina var unnin úr sama
úrtaki frá reiknistofnun
Háskólans, en aöeins var haft
samband við þann hóp, sem til
náðist siðast, enda markmiðið
fyrst og fremst að kanna
breytingar á fylgi frambjóö-
enda innan þessa tiltekna hóps
á þeim tima, sem leiö frá
upphafskönnuninni.
1 millitlðinni höfðu
kjósendur átt kost á að bera
frambjóðendur saman er þeir
komu fram samtimis i sjón-
varpssal. Mér viröist sú kynn-
ing hafa breytt miklu.
En þegar sami aðili er
spurður hvern hann muni nú
kjósa, er ekki óliklegt að
álykta, að hann telji sig minni
mann fyrir að tilkynna breytta
afstöðu. Hann sér liklega fyrir
sér Vlsismann, sem hafi allt á
hreinu um fyrri afstöðu kjós-
andans, brosandi I kampinn
yfir Istöðuleysi hans. Auðvitað
var könnunin unnin á allt
annan hátt og spyrjandi hafði
ekki hugmynd um fyrri
afstöðu kjósandans. Erfitt
getur aftur á móti verið að fá
menn til að trúa þvi I hita
leiksins og ýmisr vilja fara að
öllu með gát.
Ég tel þvi ekki óliklegt að
ætla, að þetta hafi haft áhrif á
þau svör er gefin voru. 3%
fleiri neituðu nú að svara en
áður og bendir það til sömu
niðurstöðu að mlnu mati.
Ef þessir þættir eru haföir I
huga, álykta ég persdnulega
að fylgi frambjóðenda sé nú
mun jafnara en slðasta VIsis-
könnun sýnir. Sú sveifla sem
kemur fram I fylgi eftir kjör-
dæmum, sýnir best hvað er að
gerast, miklar breytingar eiga
sér enn stað á fylgi frambjóð-
anda. Það er þvl enginn úr
leik.
Ég efast ekki um að fram-
bjóðendurnir fjórir eru hver
um sig gæddir hæfileikum er
sóma sér vel i embætti forseta
tslands.
Þeir kjósendur sem ætla nú *
að láta skoöun slna ganga
kaupum og sölum vegna
hræðslu yfir þvl að ákveðinn
frambjóðandi komist ekki að,
misskilja hrapallega stöðu
kosninganna, taka óbilandi trú
á tlmabundnar könnunartölur
og selja i raun sannfæringu
slna.
Viljum við eiga þá minningu
um atkvæði okkar til æðsta
embættis þjóðarinnar? Verum
fremur trú sannfæringu okkar
þó hún eigi ekki alltaf samleið
með stærstum hluta þjóðar-
innar — en hver veit? —AS.