Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 16
VÍSIR
Þriöjudagur 8. júli 1980.
Umsjón:
Magdalena
Schram
Svefntafla í
sitt hvort eyra
Austurbæjarbió: The Goodbye
Girl
Leikstjóri: Herbert Ross
Höfundur handrits: Neil Simon
ABalleikarar: Richard
Dreyfuss, Masha Mason og
Quinn Cummings.
Leikari nokkur (Richard
Dreyfuss) sem á sér talsveröar
framavonir kynnist (fyrir til-
stuölan óvæntra atvika eins og
tiðkast i gamanmyndum) dans-
mey á niðurleið. Dansmærin
(Marsha Mason) á 10 ára gamla
dóttur og er þar komin þriöja
aöalpersóna myndarinnar.
Fyrst i stað er dansmeynni og
leikaranum flest andsnilið. Þau
eru oft atvinnulaus og vinna til
skiptis fyrir heimiiinu. Raunar
kemur þeim illa saman lengi
framan af eða þar til leikarinn
er piptur niður og dansmærin er
af sinu kveneöli knúin til að
veita honum nokkra huggun.
Eftir að leikarinn hefur unnið
ástir konunnar á dansskónum
tekur lukkuhjólið að snúast.
Hann fær gullin atvinnutilboð en
Einkunn:
5.0
kvikmyndix
hún snýr sér af alefli að fegrun
heimilisins og þenkir löngum
stundum um mublur og vegg-
fóður. En þar við er ekki látiö
sitja þvi leikarinn er ekki eins
og hinir vondu strákarnir sem
leyft hafa dansmeynni aö vegg-
fóöra hjá sér um tima en sfðan
sent henni reisupassann. Oðru
nær. Hann gerir hana að föstum
tengivagni sinum og leyfir henni
aö koma með þó hann þurfi yfir
þvera Ameriku vegna atvinnu
sinnar.
Söguþráðurinn i „The
Goodbye Girl” er sem sagt
heldur veiklulegur. Kimni Neil
Simon er lika einhæf og byggir á
endalausri kaldhæöni og ótelj-
andi meitluðum tilsvörum. f
„The Goodbye Girl” bætir
Simon um betur og leggur hluta
af harösnúnum linum textans I
munn stúlkubarnsins. Fullorð-
insleg tiltæki krakka hafa löng-
um þótt fyndin og eru það stund-
um i „The Goodbye Girl”.
Þó „The Goodbye Girl” sé
fremur litilsvert verk rifur
Richard Dreyfuss myndina upp
úr algerri lágkúru með leik sin-
um. Dreyfuss hefur hingaö til
fengið hlutverk I heldur léttvæg-
um kvikmyndum eins og
„Jaws”, „American Graffiti”
Richard Dreyfuss, ieikari i hlut-
verki leikara i „The Goodbye
Girl””.
og „Close Encounters of/ the
Third Kind”, en án efa væri
gaman að sjá til hans i bitastæð-
um verkum.
„The Goodbye Girl” einkenn-
ist af góðum leik, lélegum sögu-
þræöi og misjöfnum bröndur-
um. Sé tekiö tillit til þess að
„The Goodbye Girl” þótti I
Bandarikjunum með bestu
myndum ársins 1977 og vakti
óhemju athygli á Richard
Dreyfuss er óhætt að segja að
hún beri aldurinn með afbrigð-
um illa.
-SKJ
Fvrstu tónleik-
arnir heima:
Sembal
09
gítar í
Norræna
húsinu
annað
kvöld
Þóra Johansen semballeikari
heldur sina fyrstu opinberu tón-
leika á tslandi I Norræna húsinu
annað kvöld, miðvikudag kl.
20.30. Þóra er búsett i Hollandi og
hefur stundað þar framhaldsnám
um margra ára skeið. Hún lauk
prófi frá Tónlistarskólanum i
Reykjavik 1970 og útskrifaðist frá
Sweeiinck Konservatorium 1979.
Þóra kennir semballeik við há-
„Ástin er króna
fallandl gengis"
Þessi fyrirsögn er kaflaheiti úr nýrri bók, „Mannlif milli húsa”,
ljóð eftir Pétur Lárusson, myndír eftir örn Karlsson. Bókinni er
skipt i fjóra ljóðaþætti, Bernska, Verkamannasæla i borginni við
Sundin, Þjóðhátiðarsumarið mikla 1974 og Auövitaö veit maður það,
svo sem auðvitað, að auðvitað veit maður það, að það er svo sem
auðvitað. Fyrsta Ijóð i kaflanum Verkamannasæla við sundin er á
þessa leið:
Hverjum stimpilklukkan glymur
við undirieik sargandi véla,
það er spurning dagsins verkamaður.
Fljótt fljótt æpir færibandið.
Gleymdu ekki að kasta á það von þinni og þrá
að þær megi berast styrkum hagfæti
út í tómið.
Og annaö ljóð úr sama kafla:
Astin er dimmur hjúpur næturinnar
uns birtir af degi
og spyrjandi augu ganga á vit tómlætis.
Astin er afborgunarskilmálar og húsaleigustreð
Astin er:
Eigum við að detta í það
eða borga simareikninginn?
Ástin er króna fallandi gengis.
Bókin er gefin út af Ljósbrá og prentuð i Prentsmiði.
Undraiandið á
bremur máium
Úter komin frá Iceland Review
bók um Island á frönsku. Nafn
bókarinnar er Isiande, Une iie
surprenante dans l’Atiantique
Nord, eða Undralandið á Atlants-
hafi. Bókin byggist að mestu upp
á úrvaii litmynda og skiptist i
nokkra meginkafla, t.d. um
náttúru landsins, gróður, dýralif
og atvinnuvegi.
Þessi bók hefur áður komið út á
ensku og þýsku frá sama útgef-
anda, The Surprising Island of the
Atlantic og Die Wunderbare Insel
im Atlantischen Ozean. Uppruna-
legan texta skrifaði Haraldur J.
Hamar en frönsku þýðinguna
gerði Gerard Vautey.
skóiann i Amsterdam og i tónlist-
arskólanum I Utrecht og
Beverwijk.
A tónleikunum annaö kvöld
leikur einnig hollenskur gltarleik-
ari, Wim Hoogewerf. Hann lauk
Þóra Johansen, sembaileikari
Wim Hoogewerf, gitarleikari
einleikaraprófi frá Sweelinck
Konservatorium á siðasta vori.
Hann hefur haldið fjölda tónleika
og fengið afbragðs dóma.
Þóra og Wim halda einnig tón-
leika I næstu viku, þriðjudaginn
15. júli. Fyrri hluti efnisskrárinn-
ar bæði kvöldin eru verk eftir
Dowland, Sweelinck, Bach,
Scarlatti og Boccherini. Eftir hlé
er eingöngu samtimatónlist, eftir
Dodgson, Bons, Hekster og
Þorkel Sigurbjörnsson. Verk
Þorkels heitir FIORI og var sam-
ið sérstaklega fyrir Þóru og Wim.
Þau frumflytja það nú.
Ms
Ein af myndum Arnar Karlssonar i ljóðabókinni