Vísir - 08.07.1980, Blaðsíða 22
VÍSLR Þriöjudagur 8. júli 1980.
^Nýr presiur vlgður til Búðardals:
saKna tieiiu nottanna
Uétt-
nvi-„
muf
Nýr prestur er kominn heim
i 'Búðardal. Heitir hann sr.
Friðrik Hjartar, 28 ára gamall,
og var vígður s.l. sunnudag í
Dómkirkjunni af biskupi
islands. Vísir átti stutt spjall
viðhann og spurði fyrst hvern-
ig hið nýja starf leggðist í
hann:
„Það leggst afar vel i mig. Að
vlsu eru þetta nokkur viðbrigði,
þvi preststarfið er óllkt öðrum
störfum sem ég hef gegnt hing-
að til. En ég held að það verði
gaman að takast á við þetta
nýja starf.”
— A hvern hátt er prestsstarf-
ið sérstætt?
„Það er sérstætt á þann hátt
fyrst og fremst að I þvl felst ilt-
breiðsla kristinnar trúar. Siðan
er þjónustan við söfnuðinn og
hið nána samband sem prestur-
inn hefur við fólk af ýmsu tilefni
mjög sérstætt fyrir preststarfiö.
Þá er ýmislegt I ytra umbún-
aði starfsins frábrugöið þvi sem
en
unga
Ragna Hjarvai,
sirira Kristrúnu,
Frlöriks ^“^“L^sklrn. Visismynd HR-
cfi'iikunni unair ssu
dóttur slna,
Mannlíf
eftir
Halldór
Reynisson
og
ö n n u
HeiBi
Oddsdóttur
gerist í Öðrum störfum. Þaö er
ekki endilega unniö frá nlu til
fimm eða á ákveðnum stað. Og
vinnuaöstaðan er á heimilinu
oftast nær.”
— Nú ferðu I Búöardal: Ertu
vanur dreifbýlinu?
„Já ég er vanur dreifbýlinu og
kann vel við mig þar. Ég er
fæddur á Flateyri og bjó þar
fyrstu ellefu ár ævi minnar og
næstu ellefu bjó ég I Borgarnesi.
Ég bjó I Reykjavik á námsár-
unum og ef það er eitthvað sem
ég kem til meö að sakna úr þétt-
býlinu þá eru það heitu pottarn-
ir 1 sundlaugunum.”
— Nú varstu kosinn prestur
sama daginn og forsetakosning-
arnar fóru fram — varstu einn I
kjöri?
„Já, ég var einn I kjöri.
Annars eyddi ég ekki miklum
tima I kosningabaráttuna eða til
að kynna mig. Ég predikaöi þó I
öllum sóknum, en hins vegar
ætla ég að húsvitja söfnuöinn,
svo að ég fái að kynnast honum
og hann mér I ró og næði.”
— Á kirkjan meiri itök i sveit-
um en I þéttbýli?
„Já ég hygg það vera. Sem
þaö var móöir hans,
dæmi um þaö vil ég nefna að I
tveimur litlum sóknum sem ég
þjóna er nýbúið að endurbyggja
kirkjur og I þriðju sókninni er
nýbyggð kirkja. Hins vegar
virðist oft vera erfitt að standa I
slikum kirkjubyggingum i þétt-
býlinu.
Ef taka má þetta sem merki
um safnaðarvitund virðist þetta
staðfesta meiri Itök kirkjunnar
til sveita.”
Þess má geta að kona sr.
Friðriks er Anna Nllsdóttir og
eiga þau tvö börn. Sr. Friðrik
sklrði einmitt hið yngra þeirra
sama daginn og hann var vlgöur
og var það hans fyrsta prests-
verk. -HR.
„Ég hef einstaka ánægju af
þvl aö starfa viö leiguflug og
flugkennslu. Tilbreytingin er
mikil, þvi aö verkefnin eru
sjaldan þau sömu frá einum
degi til annars. t gegnum starfiö
hittir maöur firnamargt fólk af
öllum manngeröum, og kynnist
landinu, litbrigöum þess og
sibreytilegri lund”.
Helgi Jónsson, flugmaður,
hefur rekið Flugskóla úti á
Reykjavlkurflugveili i sextán
ár, og jafnframt stundaö leigu-
flug, innanlands eingöngu fram-
an af, en slöar jafnt utan lands
sem innan. Leiguflugiö milli
landa felst aöallega I þvl að
flytja varahluti fyrir útgerðar-
félög, og þykir þaö nokkuö
nýstárlegt, að útgeröin notfæri
sér þjónustu leiguvéla til sllkra
hluta. Við skruppum út I Flug-
skóla og röbbuðum við Helga og
aðra sem þar voru fyrir.
Halda sig á jöröinni
Eiginkona Helga, Jytte
Marcher, og sonurinn Jón taka
talsverðan þátt I starfsemi
Flugskólans. Jytte sér að hluta
til um flugkennsluna, en hún
lærði aö fljúga hjá Helga fyrir
um tlu árum slðan. Einnig
kenna viö skólann flugmennirn-
ir Gústaf Guðmundsson og Þor-
geir Haraldsson, sem báðir hafa
starfað fyrir Helga I nokkur ár.
Jón sér að miklu leyti um
slmavörslu I Flugskólanum og
skráningu pantana á leiguvél-
um. Jytte sagði, aö þau mæðg-
inin héldu sig yfirleitt á jöröinni,
en Jón bætti þó við, aö ekki væri
það nú alltaf. Stundum fari hann
meira að segja með I milli-
Iandaflugið, sem Helgi hefur al-
mennt yfirumsjón með, og fylg-
ist þá með radarnum og vinni
önnur tilfallandi viövik.
Helgi sagðist fljúga til ýmissa
landa I tengslum við starfið,
aöallega Grænlands, Noregs,
Danmerkur og Færeyja, auk
Bretlands, Þýskalands, Hol-
lands, Belglu og Spánar. „Vara-
hlutaþjónustan við útgeröina
situr I fyrirrúmi á þessu flakki
Flautuleikarar, slomp-
aðlr sjómenn
og ráðherrar
- meðal farpega í leigullugi
Helga Jónssonar
Helgi, Jón og Jytte taka öll mikinn þátt f starfsemi Flugskólans
og leiguflugsins
til útlanda” sagði Helgi. „Það
hefur færst glfurlega I aukana
að útgerðin fái leiguvélar til að
sækja varahluti I staö þess að fá
þá senda með áætlunarflugi. Til
þess liggja giidar ástæður, þvi
að jafnvel þótt flutningskostn-
aöurinn sé nokkru meiri með
leiguflugi, margborgar sig þeg-
ar allt kemur til alls að nota
leiguvélar”.
„Yfirleitt tekur miklu lengri
tima aö fá varahluti með áætl-
unarflugi. Sendingin þarf að
sjálfsögðu að fara I gegnum toll-
afgreiðslu I Reykjavlk, þegar
hún kemur með áætlunarflugi,
þannig að komi sending til
dæmis á föstudegi, er stundum
ekki hægt að ná henni út fyrr en
á mánudegi. Liggi skipið I höfn
úti á landi getum við hins vegar
flogið leiguvélinni beint á stað-
inn. Það gengur miklu fljótar
fyrir sig, þvi að tollafgreiðsla á
flugvöllum I dreifbýlinu er skilj-
anlega miklu liprari en I
Reykjavik”.
„Einnig kemur oft fyrir að
varahlutir eru pantaöir frá stað,
sem islensk flugfélög halda ekki
uppi áætlunarflugi til, og verður
þvl að flytja þá langar og kró-
kóttar leiðir til að koma þeim I
vél til Islands. Vill þá oft bregða
við, að sendingarnar dveljast
langdvölum á einhverjum við-
komustað á leiðinni, þegar ekki
er hægt að troða þeim meö,
vegna þess að farangur farþega
fyllir allt flutningsrými. Oft
liggja svo skipin lengi I höfn af
þessum sökum. Stundum er
kannski um að ræða einhverja
smábilun, vantar örlitið stykki I
spilið og þviumlikt, og þykir
mönnum þá vandræðalegt að
þurfa að hanga I landi til eilifðar
eftir slikum smámunum á meö-
an útgerðin tapar stórum fjár-
fúlgum.
Flugvöllur enginn
Ekki eru varahlutirnir einu
farþegar Helga I millilandaflug-
inu. Hann flýgur ósjaldan til
Grænlands, bæði meö menn og
póst. Einkum eru þaö Ibúar
Scoresby, sem senda honum
skeyti, og biðja hann blessaöan
aö færa sér póst eöa flytja bæj-
arstjórnina og þingmann til
fundar I Danmörku, eins og
gerðist um daginn. Flugvöllur
er enginn I Scoresby, heldur
hefjast Ibúar handa eftir aö
skeyti hefur veriö sent, og ryðja
braut á Isnum til þess að Helgi
geti tyllt sér niður.
Nýlega flaug Helgi með kana-
dlskan ráðherra héðan til
Straumsvikur á Grænlandi fyrir
kanadiska sendiráðið, hinkraði
þar viö eftir herranum I tvo
daga og flutti hann síðan á brott
aftur.
Erfitt aö spila
heyrnartaus á flautu"
„Auk þessa förum við oft I
sjúkraflug og erum alltaf tilbúin
til þess”, sagði Helgi. „Hér inn-
anlands fljúgum við svo hvert á
land, sem menn vilja. Farþeg-
arnir eru ákaflega mislitir, allt
frá slompuöum sjómönnum,
sem nýkomnir eru I land og vilja
komast heim meö það sama, og
upp i ráöherra. Laxaseiði eru
einnig alltlðir gestir hjá okkur.”
„I fyrra leituðu til mln aust-
urrlskir flautuleikarar, sem
nauösynlega þurftu að komast
til Færeyja til aö halda þar tón-
leika, og vildu forðast að fá
hellu fyrir eyrun. Þaö er vist
heldur erfitt aö spila heyrnar-
laus á flautu, og af ýmsum
ástæðum fær maður minni hellu
I þessum litlu vélum. Flautu-
leikararnir voru I sjöunda
himni, þegar kom á leiöarenda
brostu út aö eyrum og sögðust
vera alveg reiöubúnir aö byrja.
Þrýstijöfnunarbúnaður er I
vélinni, sem notuð er til milli-
landaflugsins, Piper vélinni
Navajo, sem gerir þaö aö verk-
um, að hún getur flogið hæst I
29.000 feta hæð. Getur hún þvl
flogiö hraöar en ella, sérstak-
lega I meövindi. Til samanburð-
ar má geta þess, að Fokkervél-
ar Flugleiða komast hæst I
18.000 feta hæð. Alls eru fjórar
vélar notaðar til leiguflugsins
og þrjár til kennslunnar. Leigu-
vélarnar eru af f jórum mismun-
andi stærðum, og geta boriö frá
þrem upp I sjö manns.
„Þetta hefur allt saman geng-
ið mjög þokkalega hjá okkur
þegar á heildina er litið.” sagöi
Helgi. „Starfiö er talsvert erfitt
og bindandi, en að sama skapi
áhugavert. í sumar ætlum við
hjónin að taka okkur fri I nokkra
daga, og fljúga með stelpurnar
okkar á skóla I Irlandi. En fyrst
verö ég vlst að drlfa mig af stað
til Stykkishólms, þvl að ég hef
verið beðinn að flytja þangað
laxaseiði I dag”. -AHO