Vísir - 06.08.1980, Síða 9
9
VtSIR
Miövikudagur 6. ágúst 1980
Hér á Lenin leikvanginum er
nú að hefjast lokahátíð
Ölympiuleikanna i Moskwu,
sem staðið hafa yfir s.l. tvær
vikur með miklum giæsibrag.
Eins og undanfarna daga er
veður einstaklega gott, 24ja
stiga hiti, smágola og sólskin.
Lenin leikvangurinn tekur um
150 þúsund manns, og er hvert
sæti að verða skipað. Engin
stæði eru, heldur allt sæti.
Meðan áhorfendur eru að
þyrpast að og fánaberar og
sýningarflokkar að undirbúa
inngöngu sina á völlinn, er leik-
in klassisk tónlist viö mikinn
hljóðstyrkleika, sem berst til á-
horfenda gegnum 40 stóra há-
talara er umlykja leikvanginn.
Hestaíþróttir
Fyrr i dag fóru hér fram úrslit
i hindrunarhlaupi hestaiþrótta,
tilkomumikil og glæsileg
keppni. Sigurvegari varö Pól-
verji, Rússi númer tvö, og
Mexikani númer þrjú. Almenna
kátinu vakti hér á leikvanginum-
við verðlaunaafhendinguna i
dag, þegar i ljós kom aö, verö-
launahestarnir voru tvær hryss-
ur og svo einn stóðhestur. Sá var
rússneskur, dökkbrúnn að lit,
með hvita blesu og hvitsokkótt-
ur. Þegar hinn rússneski up-
götvaði hvers kyns var, fylltist
hann miklum eldmóði og voru
allir tilburðir hans og ásjóna i
samræmi við þaö sem gerist i
slikum tilvikum. En eigandi
hans mun hafa vitaö hvað um
var aö ræða, þvi aö meö sér
hafðihann aöstoðarmann og öfl-
ugan taum er hann notaði til að
leiða folann i hringi meðan
knapinn veitti verölaununum
viðtöku.
Allt sem hér var á leikvangin-
um fyrir þremur klukkustund-
um tilheyrandi hestaiþróttum
hefur verið fjarlægt og völlur-
inn þakinn grænu teppi.
Sigurður
Magnússon
skrifar
frá Moskvu.
Rússneski björninn var sýndur sem vinaiegur bangsi á leikunum.
Stórkostlegasta og tækni-
legasta skrautsýning frá
upphafi Olympíuleikanna
A slaginu klukkan 19.30 geng-
ur 120 manna lúöraflokkur inn á
leikvanginn leikandi létt göngu-
lag og síðan strax útaf aftur.
Siðan komu 140 fánaberar með
rauða fána og ólympiumerkið
en þvi næst um 5 þúsund fim-
leikastúlkur I marglitum
búningum, siðan merkisberar
og fánaberar hvers lands og
loks iþróttafólkið sjálft, sem
ekki var farið þegar áður heim
til sin. Lestina rak svo hópur
kósakkadansara er léku listir
sinarog einnig u.þ.b. 300 manna
herlúörasveit.
Snjöll ræöa Killanen
Killanen lávarður, sem nú
lætur af formennsku alþjóða
ólympiunefndarinnar eftir átta
ára starf, flutti stutta en snjalla
ræðu, þar sem hann þakkaöi
framkvæmdaaðilum sérlega vei
unnin störf og óskaði rússnesku
þjóðinni til hamingju með
hversu vel hefði tekist til. Hann
hvatti ungt fólk allra þjóöa til
að sameinast um ólympiuhug-
sjónina og Ólympiuleikana og
að fjölmenna I Los Angeles að
fjórum árum liönum. Samtimis
þessu birtist á hinum risastóra
tölvuskermum ræða Killan-
Opnunarhátiðin i Moskvu var glæsileg en lokasýningin tók öllu fram sem áður hefur sést á Ólympiuleik-
um til þessa.
ens á rússnesku með þessum
lokaoröum: Vertu sæl Moskva,
vertu sæl, uns við hittumst aftur
I Los Angeles. ,
Mikill glæsibragur
Oll atriði lokaathafnarinnar
voru framkvæmd af þvilikum
glæsibrag, aö með ólikindum er.
Voru allir sem ég ræddi við
siöar um kvöldið þar á meðal
fréttamenn frá U.S.A., Bret-
landi, Astraliu, Danmörku og
viðar sammála um aö þetta
heföi verið mikilfenglegasta
skrautsýning frá upphafi
Ólympileikanna. Hugvitinu og
tækninni aö baki sýningarinnar
er engin leiö að lýsa. Sjón er
sögu rikari og vonandi fá
islenskir sjónvarpsahorfendur
aö njóta þessa I einhverjum
mæli á næstunni.
Dómarar vilhallir
Sterkur orðrómur hefur geng-
ið um það hér I Moskwu, að
dómarar, t.d. i köstum hafi
verið mjög vilhallir Sovétmönn-
um og hafi þetta komiö fram á
kvikmyndum m.a. i ýmsum
löndum Vestur Evrópu hefur
verið skrifaö um þetta af mikilli
reiði og látið að þvi liggja að
þetta muni hafa mikil eftirköst.
Hiö sanna og rétta i þessu hlýtur
þó að koma i ljós fljótlega.
Nokkra islenska feröalanga
hitti ég rétt eftir lokahátiðina og
voru þeir orðlausir yfir þvi hvaö
vel tókst til bæði við setningu og
slit leikanna, og kváöust ekki
hafa getað gert sér i hugarlund
að svona skipulag og fram-
kvæmd væri til.
Þetta verður siðasti pistiilinn
frá Moskvu. Með kveðju til les-
enda VIsis.