Vísir - 16.08.1980, Blaðsíða 5

Vísir - 16.08.1980, Blaðsíða 5
£ „ Laugardagur 16. ágúst 1980 d í Bifreidaeftirlitinu samvista vift verkfærin. Okkar menn þurftu reyndar ekki á þvi aö halda þvi Jón lumaði á skrúf- járni af stærri gerðinni. Bölv- og ragnkaflinn sem nú kom verður ekki hafður eftir en islensku númerin virðast passa illa á ameriska bila. Þannig jþurfti að beygla og skæla númer- in á alla kanta til að koma þeim á bflana að framan. Inn aftur Númerin á sinum stað og þá inn aftur að athuga hvort sú stund væri upp runnin, að gjaldkerinn hefði fengið tilskilin gögn og hægt væri að þynna veskið ofurlitiö. Ekki stóð á gjaldkeranum og Jón fékk að borga 19.300 krónur en Sigurður 16.800. Mismunurinn lá i skeytakostnaðinum. Skoðunar- vottorðin fóru nú i smá ferðalag meðfram afgreiðsluborðinu og nú kom smá hinkr. „Á ekkert að borga hér?" Svo birtust vottorðin og okkar menn voru kvaddir að borðinu til að taka við þeim á nýjan leik ásamt smá miða með númeri á. Það númer táknar skoðunarröð- ina. Fyrir þetta þurfti ekkert að borga og þeim voru meira aö segja boðnar skrúfur i númerin. Skyldu þær vera gratis. Sjalf skoðunin var ekkert mál. Eftirlistmaðurinn vildi ekki einu sinni hreyfa Plymmann enda nánast nýr bill en Novuna tók hann aðeins i með þeim afleiðing- um að miðinn varð grænn en ekki hvitur. Það er nefnilega talið afar æskilegt að bremsur séu i góðu lagi að auðveldara sé aö stöðva bifreiðina. Ekki satt? Reddum þessu í hvelli Jón sagðist auövitað borga við- geröina á bremsunum, hann hefði selt bilinn i skoöunarfæru ástandi og nú væri málið bara að finna verkstæði, sem gæti reddað þessu i hvelli. Sem við höfðum rétt kvatt þá Jón Viggósson og Sigurð Sverrisson sem höfðu verið svo vinsamlegir aö leyfa okkur að hnusa utani þeirra mál vikur sér að okkur Nojari (maöur frá Noregi) og spyr á góöri islensku með nokkrum hreim: „Hvernig er það þarf maður að fara eitt- hvaö þarna inn áður en maður lætur skoöa?” Áttú annan fimmtíukall Þetta gekk tiltölulega lipurt hjá þeim Jóni og Sigurði en við fylgd- umst með fleirum sem þarna voru á ferð. Sérstaka athygli okk- ar vöktu yngri hjón sem voru komin með bil til skráningar eftir að númerin höfðu legið inni um nokkurt skeið. Það mál var allt nokkuð þyngra i vöfum. Fyrst reyndi frúin á meðan bóndinn var úti að stússa i bflnum en þegar hún var komin i þrot hóaði hún i hann og hann skundaöi vasklega inn. Það var sama sagan, veð- bókarvottorðið vantaði i sim- skeytisformi I þetta skipti frá Sel- fossi. Og hringingarnar þangað voru með skemmtilegra móti þ.e. fyrir þann sem með fylgdist. Fyrsti fimmtiukallinn var fljótur að hverfa og aðvörunarsónn heyrðist. Hófst þá mikill umsnún- ingur vasa i örvæntingarfullri leit að öðrum og auðvitað rofnaði sambandið I miðjum kliðum. Annar fannst um siðir og nú tókst manninum að koma erindinu til skila. Bíddu augnablik Biddu augnablik, sagði stúlkan við hinn enda línunnar kurteis- lega. Á þessu augnabliki gleypti siminn ótölulegt magn fimmtiu- kalla og aftur heyrðist aðvörunarsrfnn og stúlkan kom i simann og spurði hvaöa númer hefði „aftur” verið á bilnum? Að- ur en ráðrúm gafst til svara hafði sambandið rofnað. í þriðju til- raun hafðist árangur sem erfiði og stúlkan tók vingjarnlega aö sér það hlutverk, að hringja i Bif- reiðaeftirlitið og tilkynna að skeyti væri á leiðinni. Það nægir sem sagt og maðurinn fékk skoðunarnúmer og númeris- plöturnar sinar, sem hann hafði lagt inn fyrir nokkrum mánuðum. Hann kenndi okkur aðferð til að koma i veg fyrir að númer sem manni væru hjartfólgin hyrfu á vörslum „Eftirlitsins”. Pakka skal maður þeim inn og merkja sér vandlega. Það er allur gald- urinn. Rauður miði A skoðunarplaninu stóö fákur- inn glæstur *>g eftirlitsmaðurinn tók á honum með járnum eins og titt er. Smá ökuferð sannfærði hann fljótlega um að þessum vagni mætti ekki aka. Eigandinn fékk rauðan miða, sem þýðir að hann má aðeins aka bilnum til og frá verkstæöi. Greinilega ekki hans dagur. Við kvöddumst þessa umdeildu stofnun. Vist þekkjum við sögur um erfiðleikana og seinaganginn sem oft er kvartað undan þar. Þær sögur eru eflaust um margt sannar og þegar við það bætist vanþekking þeirra sem á þjónust- unni þurfa að halda er auðvitað ekki von á góðu. Það gerði kannski ekkert til þótt gefinn yrði út bæklingur með leiðbeiningum um hvað hafa þarf meðferðis i hinum mismunandi tilvikum. Bæklingurinn gæti legið frammi i öllum mjólkurbúðum ef ekki væri búiö að leggja þær niður. —ÓM 8. Skrúfa... 14. Málið leyst, miðarnir komnir á. Veriöi sæl. 13. Hinkra ögn. Gjöra siðansvo vel aöaka bilnum inn á planiö. 12. Inn aftur að borga. Alit fyrir ánægjuna. 11. Réttnúmer á réttan bil. Plymminn orðinn G ogNóvan P. íu. ...gaia 9. ...beygla

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.