Vísir - 16.08.1980, Blaðsíða 19
vtsm
Laugardagur 16. ágúst 1980
Heimalningurinnvarekkimikiðbanginnog leitaði á náð>
ir nýja vinnumannsins.
Honum virtist fara það verk vel úr hendi.
Kovalenko rölti um hlaðið með Hildi túlk og blm. og sýndi það sem honum þótti
markverðast.
//Nei ég er ekki farinn að keyra traktorinn en þau eru að kenna mér á hann".
Aldur, menntun og fyrri
störf
Victor Kovalenko verður
24 ára í október. Hann hef-
ur unnið fyrir sér frá 17
ára aldri við ýmis algeng
störf, í málmsmiðju og
raftækjaverksmiðju. Auk
þess hefur hann verið í
hernum og nú siðast á
verksmiðjutogaranum
sem gerði flóttadraum
hans að veruleika. Hann
var kominn í 11. bekk í
skóla þegar hann hætti
námi.
Af flóttanum
„Við fengum um 33 þús-
und íslenskar þegar við
fórum í land og venjulega
fáum við um einn þriðja af
kaupinu í erlendum höfn-
um og svo dálítinn hluta í
„kúpónum", sem er gjald-
miðill, sem er hægt að
versla fyrir í sérstökum
verslunum heima. Ég var
þess vegna ekki í vandræð-
um með að taka leigubílinn
í ameríska sendiráðið."
Kovalenko segir að það
muni eflaust taka sig
nokkurn tíma að átta sig á
þessum mjög svo breyttu
aðstæðum og eflaust verði
hann lengur að aðlagast
nýju þjóðfélagi en að læra
málið ef til þess kæmi að
hann verði áfram hér.
Hann langar þó mest til
Ameríku vegna þess að þar
eru samlandar hans og
býst hann því við að þar
muni hann eiga auðveldara
með að komast yfir þá
erfiðleika sem óhjákvæmi-
lega fylgja slíkri ákvörðun
og athöfnum.
— ÖM
Kovalenko var viö mjaltir þegar viö heimsóttum hann.
i
Vel fór á með Kovalenko og túlkinum okkar, Hildi Haf-
stað, enda hefur hann ekki haft mörg tækifæri til að
mæla á móðurmálinu síðan hann kom.
'é