Vísir - 30.09.1980, Blaðsíða 16

Vísir - 30.09.1980, Blaðsíða 16
vlsm Þribjudagur 30. september 1980 'Umsjón: Gylfi Kristjánsson Kjartan L. Pálssoi Tililinn lór tii Vikinas Reykjavikurmótinu i hand- knattleik lauk á fimmtudags- kvöldiö. Vikingur varö meistari eftir aö liöiö sigraöi Fram meö 27 mörkum gegn 21. Vikingar höföu forustuna allan leikinn og komust i 8:1 i byrjun og geröu þar meö Ut um leikinn. 1 siöasta leik mótsins sigraöi KR Þrótt Lokastaöan I Reykjavlkurmót- inu varö þessi: Vikingur..........3 3 0 Q 72:56 6 KR................3 2 0 1 72:65 4 Fram..............3 1. 0 2 66:72 2 Þróttur...........3 0 0 3 62:79 0 Pétur imiimn Pétur Pétursson lék ekki meö liöiö sinu Feyenoord i hollensku 1. deildinni i knattspyrnu um helg- ina, en þá sigraöi Feyenoord i viöureigninni viö NAC Breda 4:0. Hollenska sjónvarpiö skýröi frá þvi að Pétur myndi ekki leika meö Feyenoord næstu sex vik- urnar a.m.k. og yröi erfitt fyrir Feyenoord aö finna markaskor- ara i hans gæöaflokki á meðan. Pétur hefur átt viö meiösli i hné að striöa nú aö undanförnu, en forráðamenn Feyenoord hafa ekki viljað láta hann ganga undir aðgerö fyrr en i lengstu lög. Hafa þeir viljaö biða og sjá, hvort hann næði sér ekki og m.a. hvilt hann við æfingar, en látiö hann aftur á móti taka þátt i leikjunum. Jolmson áfram Bandariski körfuknattleiks- maöurinn John Johnson, sem lék með Fram i úrvalsdeildinni um tima sl. vetur er kominn aftur til tslands. Hann mun leika og þjálfa meö 2. deildarliö Akraness i vetur, en meö Skagaliöinu lék Johnson eftir aö hann fór frá Fram. Likaöi hon- um dvölin á Skipaskaganum svo vel, aö hann ákvaö aö koma aftur og veröur þetta þvi þriöji vetur- inn, sem hann dvelur hér á landi.... — klp — Þærsovésku sterkastar í kðrfunni Sovétkonur uröú sigurvegarar i Evrópukeppni kvenna i körfu- knattleik, sem lauk i Banje Luka i Júgóslaviu um helgina. Þær sovésku sigruðu þær pólsku i úrslitaleiknum meö 95 stigum gegn 49. Júgóslavnesku stúlkurnar hlutu bronsverðlaunin meö 61:57 sigri yfir Tékkó- slóvakiu. en silfurliöiö frá Olympiuleikunum i Moskvu, Búlgaria, varö i 5. sæti eftir 71:38 sigur yfir Hollandi.... —klp — Lárus Grétarsson, hinn ungu nýliöi I Fram, sést hér misnota besta færi Framara I leiknum gegn Hvidovre. Lárus fékk knöttinn eftir góöan skalla frá Gústafi Björnssyni, en markvöröur Hvidovre náöi aö verja skot hans. Vlsismynd Friöþjófur. Framlínan hélt ekki hita á markmanninum Fram álll melra í Evrópuleiknum vlð Hvidovre en varð samt að gera sér að ,,Ég átti aldrei von á þvi, aö þetta yröi svona auðvelt hér á heimavelli Fram. Viö vorum allir dauðhræddir við aö tapa og jafn- vel það stórt að viö yröum siegnir út úr Evrópukeppninni”, sagði John Sinding, þjálfari dönsku bikarmeistaranna Hvidovre, eftir að hans menn höfðu sigrað Fram 2:0 í siöari leik liðanna i Evrópu- keppni bikarmeistara i knatt- spyrnu á Laugardaisvellinum á sunnudaginn. Þeir dönsku höföu sigrað 1:0 i fyrri ieiknum og átti þvi Fram að eiga möguleika á hefnd hér heima. En sú varð ekki raunin. Þaö voru þeir dönsku, sem fóru brosandi i baðið eftir leikinn og biða nú spenntir eftir að vita hvaða kappa þeir fá i næstu um- ferð. Þessi sigur Dananna var ekki fyUilega sanngjarn. Framarar áttu öllu meir i leiknum og betri marktækifæri i heildina, en þau voru þó ekki fleiri en það, aö markvöröur Dananna sá sig til- neyddan tU að fara i auka peysu og sfðar buxur I hálfleik til að halda almennilega á sér hita. ,,Ég hefði dáið úr kulda ef ég hefði ekki gert þaö’’ sagði hann eftir leikinn. „Þaö var ekkert aö gera hjá mér þarna i markinu og i þau fáu skipti, sem ég þurfti að verja hafði ég meiri áhyggjur af þvi að ég myndi missa boltann inn vegna þess hvaö mér var kalt en að Framarar skoruöu sjálfir”. Guðmundur Baldursson I markinu hjá Fram hafði þó enn minna aö gera en Curlei Nilsen I hinu markinu. Hann varð samt aö ná tvisvar i knöttinn i netiö hjá sér. Fyrra skiptið var á 10. minútu leiksins. Þá höfðu Framarar sótt heldur fast og Simon Kristjánsson gleymdi að hafa eins góðar gætur á Englendingnum þeidökka, Leroy Ambrose og I fyrri leikn- um. Hann slapp þvi i gegn og var þá ekki að sökum að spyrja. Framarar sáu i bakhlutann á gððu að tapa heimaleiknum honum um leið — enda maðurinn óhemju fljótur að hlaupa — og hann skoraði með þvi að renna knettinum undir Guðmund, sem virtist renna til i markinu, áður en hann kastaði sér. Síöara markið var hrein endur- tekning á markinu sem Danir skoruöu I fyrri leiknum. Sóknar- maður var feildur á mörkum vítateigs og lét sig detta inn i teig- inn með miklum tilþrifum. Dómarinn norski, dæmdi um- svifalaust vftaspyrnu, sem Sten Hansen skoraði út. Þetta var fimmta vitaspyrnan, sem Hvidovre fær á þennan hátt i sfö- ustu ieikjum sínum — þar af tvær á móti Fram. Bestu marktækifæri Fram I leiknum áttu þeir Lárus Grétars- son sem fékk knöttiiui óvænt á markteig en markmaðurinn varði vel. Hafþór Sveinjónsson hitti svo ekki knöttinn I opnu færi og þeir Gústaf Bjömsson og Marteinn Geirsson áttu skot, sem Curlei rétt varöi. Vörnin var sem fyrr besti hluti Framliösins. Trausti Haraldsson var þó óheppinn i vitinu, en þetta var f þriðja sinn i röð, sem hann brýtur af sér á sama máta og fær dæmt á sig viti — þeas f báðum leikjunum við Danina og I lands- ieiknum viö Tyrki. Gústaf Björnsson og Gunnar Guðmundsson höfðu gott pláss á miöjunni og unnu þar vel. Gústaf gaf marga góða bolta á framlinu- mennina, en þeir náðu aldrei að vinna aimennilega úr þeim. Framlinan og getuieysi hennar uppivið markið var nú veikasti hlekkurinnhjá Fram og má segja að á þvi hafi Evrópudraumur liösins endað i þetta sinn.— kip — La Louviere aðeins með eitt stig i 2. deildinnl Frá Kristjáni Bernburg fréttaritara Visis i Belgiu: — Asgeir Sigurvinsson var með allra daufasta móti þegar Standard Liege fékk Waregem i heimsókn i 1. deildinni hér i Belgiu á sunnudaginn. Var hann svo ólikur sjálfum sér í leiknum að Hapel þjálfari Standard tók hann útaf i hálfleik. Standard sigra.öi I leiknum 2:1 og er nú i efsta sæti í deildinni með 10 stig eöa einu stigi meir en Anderlecht, sem tapaöi 4:1 fyrir Beveren um helgina og RWD Molenbeek, sem sigraði Liegeois 2:1. Lokeren er nú i 7. til 10. sæti með 7 stig ásamt CS Bruges og FC Bruges. Lokeren tapaði á sunnudaginn gegn Winterslag á útivelli 2:0 og var Arnór, sem er nú búinn aö ná sér af meiðslum, með I þeim leik. Ástandið hjá Karli Þórðarsyni og félögum hans i La Louviere er allt annað en gott þessa stundina. Liðiö tapaöi 2:1 heima fyrir Oderenderde og er nú neðst i 2. deildinni með aðeins eitt stig... ÞRÍR FÚRU HOLU í HttGGI Á HttFH Þrir islenskir kylfingar fóru „holu í höggi” á golfvellinum á Höfn i Hornafirði um helgina. Tveir þeirru gerðu þaö i opna golfmótinu, sem þá fór fram, en sá þriöji, er hann var aö æfa sig fyrir mótið. Þaö var Vestmannaeyingurinn Leifur Gunnarsson, sem þetta gerði á 4. braut á vellinum á föstudagskvöldið. Keppnin byrjaöi svo á laugardeginum og þá haföi Einar Guðnason GA þaö loks af að komast i Einherja- klúbbinn með þvi að fara „holu i höggi” á 5. braut. Hefur hann leikiö golf i 27 ár, en samt aldrei fyrr farið „holu i höggi”. Daginn eftir lék fulltrúi sýslu- mannsins á staðnum, Björgvin Þorsteinsson, þetta eftir honum á sömu braut. Hann er aftur á móti oröinn vanur að fara „holu i höggi” þvi að þetta var i 3ja sinn sem hann nær þessu drauma- höggi allra kylfinga... —klp—

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.