Vísir - 30.09.1980, Blaðsíða 26

Vísir - 30.09.1980, Blaðsíða 26
26 VÍSIR Þriöjudagur 30. september 1980 ... EF ÞAB ERÞfl FOLK 1728—1855 skrifar: Ég veit ekki af hverju þessi „Aðdáandi góðrar tónlistar skrifar i Visi 15. og 23. septem- ber, sennilega einhver útrás, sem hann lætur bitna á poppinu. Hann hlýtur að vera eitthvað bilaður greyið að halda þvi fram, að þessi hry llilegi sinfóniuviðbjóður, sem þessi hljóðfæri geta gefið frá sér sé tónlist. Hann vill, að þessir fáu poppþættir hætti i útvarpinu, og þá kemur náttúrulega sinfóniu- óþverrii staðinn. Þetta er klikk- un. Að fara fram á annað eins. Þetta urg og sarg, sem þessi ofstopafulli, grobbni aðdáandi hryllilegrar tónlistar kallar góða tónlist er ekki annaö en *»# m. Bréfritari er harla óhress meö sinfóniugargiö i útvarpinu. ógeðsleg óhljóð, sem enginn botnar i, varla hann sjálfur né annar skrill, sem hlustar á þennan óþverra. Það er auðsjáanlegt, að hann veit ekkert, hvað hann er að rausa. Ég skil ekkert i fólki, sem hefur sömu skoðun og hann, ef það er þá fólk. Svo er hann tii i að beita ofbeldi, ef með þarf og svo er verið að amast yfir okkur unglingunum. Þarf ekki leng- ur að vinna með námlnu Námsmaður skrifar: Mig langar að vekja athygli allra námsmanna á stórgóðri grein i siðasta helgarblaði Visis varðandi ókeypis Ijósritunar- þjónustu hjá þvi opinbera.Þarna er komin lausnin, allavega á minu vandamáli og vafalaust margra annarra. Nú sé ég nefnilega fram á að geta snúið mér allshugar að náminu, en þarf ekki að vinna með til að hafa upp i námskostnað. Ljós- ritun hefur verið með meiri háttar útgjöldum hjá mér, en nú munsá útgjaldaliður hverfa. Og fyrst hægt er að fá ljósritað ókeypishjá rikisstofnunum, ætli sé þá ekki alveg eins hægt að verða sér úti um ritföng, pappirsblokkir og jafnvel ritvél- ar hjá þessum stofnunum?- sér að kostnaðarlausu að sjálf- sögðu. Kirkjuklukkurnar i Laugarneskirkju viröast valda ónæöi á sunnudagsmorgnum. Lækkiö aöeins í kirkjuklukkunum! Húsmóðir skrifar: Þannig er mál með vexti, að ég bý ásamt fjölskyldu minni i nágrenni Lauganeskirkju, sem alveg er gott og blessað, enda við mjög trúrækin fjölskylda. Það er bara eitt heljarstórt vandamál, þar að lútandi. Nefnilega það, að á hverjum sunnudagsmorgni hrökkvum við öll upp af værum blundi, þegar kirkjuklukkurnar byrja að hringja til messu. Og satt best að segja er þetta afskap- lega þreytandi að geta bókstaf- lega aldrei fengið að sofa út. Þvi langar mig i allri vinsemd að biðja umsjónarmenn kirkj- unnar að lækka örlitið niður i kirkjuklukkunum. Eru dagar rikisstjórnarinnar taldir? FERD AN FYRIRHEITS Guðmundur Guðmundsson, Flyðrugranda 4, skrifar: Erlendur stjórnmálafræðing- ur, sem hér dvaldist um hrið nú i sumar, til þess að kynnast islensku þjóðlifi, komst þannig aðorði um stjórnmálaástandið i landinu: „The government has no strategy for anything. It just rolls along fram day to day”. (Rikisstjórnin hefur enga stefnu i neinu máli. Hún lætur bara reka á reiðanum frá degi til dags). Þarna hitti maðurinn naglann á höfuöið. Vegna langvinnrar stjórnarkreppu naut rikis- stjórnin nokkurrar velvildar i upphafi vega. En nú eru menn teknir að þreytast á stjórnleysi og stefnuleysi. Virðist nú sýnt, að dagar núv. rikisstjórnar séu senn taldir, ef svo heldur fram sem horfir. Vill ekki einhver eignast pennavin f Kóreu? Hverjir vilja pennavini? Lesendasiðunni barst nýlega eftirfarandi bréf frá Seoul i Kóreu. Ég er enskukennari i menntaskóla i Seoul i Kóreu. Nemendurnir eru á aldrinum 12 til 19 ára og byrja strax á fyrsta ári að læra ensku. Þannig er mál með vexti, að nemendur .minir hafa mikinn áhuga á að eignast pennavini á Islandi. Þannig gætu þeir fræðst um land og þjóð um leið og þeir fengu góða æfingu i ritaðri ensku. Og þetta gildir að sjálf- sögðu einnig um Islendingana, sem koma til með að svara þessu. Þeir, sem áhuga hafa eru vin- samlegast beðnir að gefa upp nafn, heimili, kyn, aldur og áhugamál i fyrsta bréfi, svo og að senda mynd. öllum bréfum verður svarað. Með fyrirfram vinsemd og þakklæti. Miss An-Soon Kim Heimilisfangið er: Central P.O. Box 8365 SEOUL, KOREA. sandkorn Sæmundur Guövinsson skrifar. Lygar um Gailara Um leið og ég þakka Sigur- jóni fyrir að hafa haldiö uppi merki Sandkorns siðustu daga langar mig til aö minnast á þann hvimleiða ósiö sem nú er rikjandi viöa, að gera grin af Hafnfirðingum. Það er ekki sist timaritið Fólk sem hefur verið iðið við að segja brand- ara á kostnað Hafnfirðinga og ekki ætla ég að taka undir þá iðju. Hitt er annað mál, að sem sýnishorn af óþokkabröndur- um að Gaflaranaget ég nefnt einn sem ég heyrði um daginn. Knattspyrnulið frá Hafnarfirði var að keppa aust- ur á landi fyrir skömmu og sóttu heimamenn ákaft en markvörður Hafnfirðinga varði af snilld. Ahangandi heimaliðsins sá að við svo búið mátt i ekki standa og hrópaði þvi til markvarðarins snjalla: —Flýttu þérheim Óli. Húsið þitt er að brenna. Markvörð- urinn tók þegar á rás og var kominn langt út fyrir völl þeg- ar hann áttaði sig á þvi að hann hét alls ekki Óli. Fróður er Rragi Bragi Sigurðsson blaðamað- ur á Dagblaðinu er maður fjöl- fróður fyrir utan það að vera skemmtilegur. Þegar honum þótti dragast úr hófi að Þjóð- viljinn birti áður boðaðan ætt- fræðiþátt um ætt Sveins Niels- sonar prófasts. gerðiBragi sér litið fyrir og rakti í blaði sínu skilmerkilega afkomendur prófastsins og hverjum þeir tengdust, án þess aðhafa mik- ið fyrir. Jafnframt segir Bragi að það hafi heyrst að Einar Olgeirsson hafi lagst gegn þessari ættfræðslu Þjóðviljans þar sem fornvinur hans, Sveinn Valfells er einn af af- komendum Svein Níelssonar. • Klipptogskorið Þjóðviljinn var að gera grin að þvi um daginn að það væri létt verk að sjá um Staksteina Morgunblaðsins. Þar væru bara birtar úrklippur úr leið- ara Vísis og greinum Svart- höfða. Svo hlálega vill til að siöustu vikur hefur dálkurinn Klippt og skorið i Þjóðviljanum verið litið annað en endurprentun úr leiðurum Vísis og skrifum Svarthöfða með tilheyrandi útleggingum. Okkur á Visi er það að sjálf- sögðu ljúft að hjálpa kollegun- um á Mogga og Þjóðvilja að fylla siður blaða sinna góðu efni. ^ Lífsins línfl Danskur biskup kom f óvænta heimsókn til að hlýða messu, i þorpskirkjunni. Kirkjan var galtóm. Biskup- inn settist niður og beið. Svo heyrði hann raddir inn- an úr skrúðhúsinu: ,,Þrjú grönd.” „Fjórir spaðar.” ,,Ég dobla það." Biskupinn þekkti meðal annara raddir prestsins og meðhjálparans og ákvað að koma þeim á óvart. Hann fór upp f turninn og hringdi hátt og ákveöið. Svo settist hann aftur niðri i kirkjunni og beið átekta með töluveðri eftir- væntingu. Það liðu áeinar mfnútur. Þá kom sonur kaupmannsins hlaupandi inn i kirkjuna með hálfan kassa af bjór.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.