Vísir - 30.09.1980, Síða 19

Vísir - 30.09.1980, Síða 19
Nýr áfangi fyrir stafni.næstur í nýrri sókn: vtsm Þriöjudagur 30. september X980 Haf skip hf .tekur upp Amerikusiglingar Áranqur sem skilar sér til allra________ Hafskip hf. hefur nú haldið uppi siglingum til meginlandsins í yfir 20 ár, til hafna á Norður- löndum, við Norðursjó og við Eystrasalt. Félagið heldur nú uppi áætlunarferðum til flestra hafna Evrópu. Þótt stundum hafi blásið á móti hefur félagið staðið af sér alla sjóa og tekist að tryggja heilbrigða samkeppni í vöruflutningum á þessum leiðum. Einnig hefur félaginu tekist að innleiða nýja tækni sem einfaldar störfin, eykur öryggi og dregur úr kostnaði. Sá árangur kemur inn- og út- flytjendum til góða með ýmsum hætti og hefur já- kvæð áhrif á vöruverð og hag alls almennings. Nú valkostur í siglingum til Vesturheims_____________________________ Nýtt átak er nú framundan í starfi Hafskips hf., fastar Ameríkusiglingar. Á bak við þá ákvörðun eru óskir margra viðskiptavina félagsins og hluthafa. öðrum skipafélögum hefur mistekist að halda uppi sam- keppni á þessari leið. Hafskip hf. ætlar sér að breyta þeirri stöðu. Ekki með óraunsæju farmgjaldastríði — heldur heiðarlegri samkeppni sem felur í sér aukna þjónustu og tryggir að allir farmflytjendur sitja við sama borð. Takist vel til, koma í veg fyrir tíðar hækkanir farmgjaldataxta og tryggja aukið viðskiptaöryggi allra inn- og útflytj- enda. í Bandaríkjunum gilda ströng lög um skrán- ingu slíkra taxta og þeim verður ekki breytt nema með fyrirvara. í meginatriðum býður félagið því taxta þá, sem gildandi eru á þessari flutningaleið. Hafskip býður því stórum sem smáum flutnings- aðilum þjónustu sína - hvort sem um er er að ræða búslóð einstaklings eða stóra gáma inn- og út- flytjenda. Fái Hafskip hf. byr á hinni nýju sigl- ingleið getur það gefið f jölda flutningsaðila vind í seglin og haft jákvæð áhrif á þjóðarhag. Tilboð um þátttöku þína Hlutafiárútboð_________ Hafskip er nú vel í stakk búið til að takast á við ný verkefni og byggja upp skipaflota sem fullnægir kröfum nútímans um hraða og fullkomna tækni. Á liðlega einu ári hafa hátt í þriðja hundrað nýjir hluthafa gengið til liðs við félagið og nemur hlutafé þess nú um 700 milljónum króna. Áformað er að bjóða viðbótarhlutafé 200 milljónir króna á tíma- bilinu fram til aðalfundar félagsins í marz 1981. Þeir sem vilja eiga hlut að nýrri sókn og taka þátt í upp- byggingu þróttmikils skipafélags, sem hefur hlut- að gegna, eru vinsamlega beðnir að hafa samband við skrifstofu okkar. Hafskiphí. Hafskip hf. Hafnarhúsinu við Tryggvagötu Sími 21160

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.