Morgunblaðið - 24.05.2002, Side 53
Sýning og
vorhátíð í
Ísaksskóla
Í TILEFNI af 75 ára afmæli Ísaks-
skóla efna skólinn og foreldrafélagið
til sýningar og vorhátíðar í skólanum,
laugardaginn 25. maí kl. 12, en sýn-
ingin er opin frá kl. 10–15.
Nemendur og kennarar skólans
hafa unnið að sýningunni í vetur og
vor og kennir þar ýmissa grasa. Með-
al annars verður yfirlitssýning í einni
stofunni á kennslugögnum og verk-
efnum frá gamalli tíð til dagsins í dag.
Einnig verður til sýnis mikið safn
af gömlum ljósmyndum ásamt kvik-
mynd sem tekin var í skólanum rétt
eftir 1960. Allir vinir og velunnarar
skólans eru velkomnir.
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. MAÍ 2002 53
debenhams
S M Á R A L I N D
Nýir litir - nýjar víddir.
Pure Color augnskuggar
Kaldir kubbar, kristaltærir, sem geyma ómótstæðilega freistingu - silkimjúka, litamettaða
Pure Color augnskugga. Augu þín virðast stærri og skærari og öðlast nýjar víddir í tjáningu.
Kubbarnir luma á ótal litbrigðum sem erfitt er að standast.
Komdu í kubbaleik - því fleiri því betri!
Ráðgjafar frá Estée Lauder verða í versluninni í dag og á morgun laugardag og aðstoða
við val á nýju augnskuggunum.
VEL á áttunda hundrað gesta kom
á fjölskylduhátíð D-listans á Sel-
tjarnarnesi, sem haldin var sl.
þriðjudag á Eiðistorgi, að því er
fram kemur í frétt frá sjálfstæð-
ismönnum á Seltjarnarnesi.
Frambjóðendur D-listans buðu
gestum grillaðar pylsur og tilheyr-
andi, börnin fengu blöðrur og and-
litsmálun og síðan stjórnaði Sólveig
Pálsdóttir hátíðinni. Fjöldi
skemmtikrafta kom fram.
Fjöldi gesta á Eiðistorgi
Lýst eftir
vitnum
LÖGREGLAN í Reykjavík lýsir
eftir vitnum að ákeyrslu á númers-
lausa Nissan fólksbifreið við
Tunguveg 22. maí sl. Atvikið varð
fyrir kl. 19.33 og fór tjónvaldur af
vettvangi án þess að tilkynna hlut-
aðeigandi eða lögreglu um ákeyrsl-
una. Ekki er talið ólíklegt að um
sé að ræða BWM bifreið með eldri
gerð skráningarnúmera. Þeir sem
geta gefið frekari upplýsingar eru
beðnir um að snúa sér til umferð-
ardeildar lögreglunnar í Reykja-
vík.
Málfundur
um stöðu
bænda
MÁLFUNDUR sósíalíska viku-
blaðsins Militants um stöðu bænda
verður haldinn í dag, föstudaginn
24. maí, kl. 17.30 á Skólavörðustíg
6b, Pathfinder-bóksölunni.
Að fundinum stendur Skipulags-
nefnd fyrir stofnun kommúnista-
bandalags, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Flóamark-
aður í
Hafnarfirði
ÖRKIN hans Nóa verður með flóa-
markað helgina 25.–26. maí kl. 13–16
að Reykjavíkurvegi 68, 2. hæð. Til
sölu verður m.a.: Boss jakkaföt,
dragtir, kápur og jakkar, íþróttaföt,
leikföng, línuskautar, snjóbretti,
lampar og eldhúsdót og bækur, segir
í fréttatilkynningu.
Fjölskyldu-
grill
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational stendur fyrir fjölskyldu-
grilli laugardaginn 25. maí kl. 16.
Samkoman verður í yfirbyggða skál-
anum við Vífilsstaðahlíð í Heiðmörk
or er ætluð félögum og velunnurum
Amnesty International.
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
Afhenti
trúnaðar-
bréf
STEFÁN Haukur Jóhannesson
sendiherra afhenti þriðjudaginn 21.
maí hr. Milan Kucan, forseta Slóven-
íu, trúnaðarbréf sitt sem sendiherra
Íslands í Slóveníu með aðsetur í
Genf, segir í frétt frá utanríkisráðu-
neytinu.