Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 1
MORGUNBLAÐIÐ 2. JÚNÍ 2002
128. TBL. 90. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
STOFNAÐ 1913
Mikil óvissa ríkir um þessar mundir fyrir botni
Miðjarðarhafs. Engin leið er að segja til um frið-
arhorfur í deilu Ísraela og Palestínumanna, sem
virðist föst í vítahring hryðjuverka og hernaðar-
aðgerða. Í skugga þessara átaka heldur mann-
lífið áfram í rústunum. 10
Í skugga
átaka
Með fána í hendi. Þessi piltur heitir Muhamed og segist taka palestínska fánann með sér allra sinna ferða. Hann býr í Nablus
á Vesturbakkanum og á sér þann draum eins og margir ungir Palestínumenn að verða píslarvottur í baráttunni við Ísraela.
ferðalögSögusetrið á HvolsvellibílarHonda CRVbörnGunni og FelixbíóAtli Örvarsson
Sælkerar á sunnudegi
Að gera sér glaðan dag
Samskipti
eru lykillinn
að tungu-
málinu.
Prentsmiðja
Morgunblaðsins
Sunnudagur
2. júní 2002
B
Listahátíð knatt-spyrnumanna hafin
10 Þegar lífið
var saltfiskur
12
Trúði og vissi
að ég myndi
ná langt
20
„ÍSLANDS Hrafnistumenn“ halda
hátíð sína í dag, sjómannadaginn.
Sjómannadagurinn var fyrst hald-
inn í Reykjavík árið 1938 en á
fáum árum breiddist hann út um
öll sjávarpláss og er þar víða
mestur hátíðisdagur að jólum und-
anskildum. En íslenskir sjómenn
hafa síðan þá lifað tímana tvenna.
„En þó tækjum sé breytt, þá er
eðlið samt eitt – eins og ætl-
unarverkið er sjómannsins beið,“
eins og segir í ljóði Arnar Arn-
arsonar „Hrafnistumenn“ sem er
óbeinn einkennissöngur sjó-
mannadagsins.
Morgunblaðið/Alfons
Til ham-
ingju með
daginn,
sjómenn
ÍSRAELAR hafa verið með viða-
miklar aðgerðir á Vesturbakkanum
síðustu daga, ráðist inn í borgir og
bæi, einangrað ákveðin landsvæði og
handtekið fjölda manna. Er aðgerð-
unum líkt við skipulegar lögregluað-
gerðir með það að markmiði að lama
allt daglegt líf.
Ísraelskt herlið hefur verið sent
aftur inn í Nablus og Betlehem og
þar og í Tammun hafa margir verið
handteknir. Ísraelar segjast aðeins
vera að halda uppi „reglubundnu eft-
irliti“ en Palestínumenn segja, að til-
gangurinn sé að eyðileggja alla
stjórnsýslu á heimastjórnarsvæðun-
um.
„Þessi aðferð er runnin undan rifj-
um Ariels Sharons, forsætisráðherra
Ísraels, og henni er ekki aðeins ætlað
að eyðileggja heimastjórnina, heldur
stjórnsýsluna á öllum stigum,“ sagði
Mustafa Barghuti, kunnur baráttu-
maður fyrir réttindum Palestínu-
manna. Barghuti benti á, að Ísraelum
hefði tekist að beita umheiminn
blekkingum, þóst hafa dregið herinn
frá borgum og bæjum að lokinni sex
vikna herför en aldrei flutt hann
lengra en út fyrir borgarmörkin.
Þaðan væri síðan sótt inn í borgirnar
á ný.
Líkt við aðskilnaðar-
stefnuna í Suður-Afríku
Amos Gilad, yfirmaður ísraelska
hersins á Vesturbakkanum, kynnti
fyrir skömmu áætlun um að skipta
honum upp í átta svæði í kringum
borgirnar Jenin, Nablus, Tulkarem,
Qalqilya, Ramallah, Jeríkó, Betle-
hem og Hebron. Til að fara á milli
svæðanna í sínu eigin landi verða Pal-
estínumenn að fá vegabréf frá Ísr-
aelum, sem gildir í mánuð, og mega
aðeins vera á ferðinni frá klukkan
fimm á morgnana til sjö á kvöldin.
Palestínumenn segja, að þetta sé
enn eitt dæmið um aðskilnaðarstefnu
Ísraela og nákvæm eftirmynd af
framkomu hvítra manna við blökku-
menn í Suður-Afríku á sínum tíma.
Jean Breteche, sendimaður Evr-
ópusambandsins á Vesturbakkanum
og Gaza, sagði í fyrradag, að áætlun
Ísraela, sem væri raunar þegar kom-
in til framkvæmda að sumu leyti,
myndi lama allt daglegt líf meðal Pal-
estínumanna. Sagði hann, að sér-
stakt leyfi þyrfti fyrir hvert einstakt
svæði og benti á, að bílstjórar hjálp-
arsamtaka þyrftu 25 leyfi frá Ísr-
aelum en hefðu aðeins fengið 20.
Vesturbakkanum skipt
upp í vegabréfssvæði
Jerúsalem. AP, AFP.
Palestínumenn
segja tilganginn
að lama daglegt
líf og eyðileggja
stjórnsýsluna
SANNKALLAÐ fótboltaæði
hefur gripið um sig í Kabúl,
höfuðborg Afganistans, vegna
heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu en í tíð talibana-
stjórnarinnar var bannað að
horfa á slíka skemmtun. Raun-
ar var sjónvarpið sjálft bannað
á valdatíma þeirra.
Síðustu daga hefur verið ríf-
andi sala í gervihnattadiskum
enda treystir fólk því varlega,
að afganska ríkissjónvarpið,
vanbúið og í sundursprengdri
byggingu, geti haldið uppi
áfallalausum útsendingum.
„Við erum í hátíðarskapi.
Salan hefur rokið upp. Í síðustu
viku seldi ég átta móttakara og
diska en 16 á fyrstu dögum
þessarar viku,“ sagði Abdul
Tawab, kaupmaður á rafeinda-
vörumarkaðinum í Kabúl, og
Shah Mahmoud, þjálfari ung-
lingaliðsins í knattspyrnu,
sagði að áhuginn á heimsmeist-
arakeppninni væri óskaplegur.
„Ég er viss um, að 80% íbú-
anna vildu fylgjast með en lík-
lega hafa aðeins um 20% tök á
því vegna rafmagnsleysis og
truflana,“ sagði Mahmoud.
Afganir kunna margir skil á
helstu knattspyrnuhetjunum
en svo virðist sem franski
landsliðsmaðurinn Zinedine
Zidane sé í sérstöku uppáhaldi.
Fótbolta-
æði í Kabúl
Kabúl. AFP.
INDVERJAR vísuðu í gær á bug yf-
irlýsingum Pakistana um að þeir
hefðu hert tökin á íslömskum öfga-
mönnum og kváðust vera að íhuga
viðbrögð við því. Sagði varnarmála-
ráðherra Indlands, að engin lausn
væri í sjónmáli.
Lal Krishna Advani, innanríkis-
ráðherra Indlands, sagði í gær, að
ekkert benti til, að Pakistanstjórn
reyndi að koma í veg fyrir árásir inn í
Kasmír. Sagði hann, að Pakistanar
hefðu í raun haldið uppi hernaði gegn
Indverjum í tvo áratugi og nú væru
Indverjar að hugleiða alvarlega
hvernig því skyldi svarað. George
Fernandes, varnarmálaráðherra
Indlands, sagði að ekkert benti til, að
lausn fyndist á deilunni í bráð.
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði hins vegar í
viðtali við breska ríkisútvarpið,
BBC, að vísbendingar væru um, að
Pakistanstjórn væri að láta til skarar
skríða gegn íslömskum öfgamönn-
um.
Bandaríkjamenn, Bretar, Ástralir,
Kanadamenn og Nýsjálendingar
hafa ráðlagt þegnum sínum að yfir-
gefa Indland og Pakistan og í gær
bættust Frakkar í þann hóp. Hefur
flestum stjórnarerindrekum þessara
ríkja verið sagt að fara heim og Sam-
einuðu þjóðirnar ákváðu í gær að
senda heim fjölskyldur starfsmanna
sinna í ríkjunum.
Kasmír-deilan
Engin lausn
í sjónmáli
Nýju-Delhi, Washington. AP, AFP.
♦ ♦ ♦