Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 6

Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 6
FRÉTTIR 6 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ VIKAN 26/5 –1/6 ERLENT INNLENT  NÍTJÁN Rúmenar, þar af nokkur ung börn, sem komu til landsins í síðustu viku og sóttu um pólitískt hæli hérlendis drógu um- sókn sína til baka á mánudag og og fóru af landi brott á fimmtudag.  RÍKISSTJÓRNIN ákvað á fundi sínum á þriðjudag að fara í al- mennt útboð á hlutabréf- um í Landsbanka Íslands. Áformað er að salan hefj- ist í júní og að seld verði 20% heildarfjár í bank- anum í þessum áfanga.  KJARADÓMUR hefur úrskurðað að laun æðstu embættismanna þjóð- arinnar skyldu hækka miðað við 1. júní um 3% frá síðustu ákvörðun dómsins. Eftir hækkunina verða mánaðarlaun for- seta Íslands 1,4 milljónir kr. og laun forsætisráð- herra um 682 þúsund kr.  ÍSLENSKA kvenna- landsliðið í knattspyrnu sigraði lið Spánverja 3:0 á fimmtudag í undan- keppni HM á Laugardals- velli.  BOÐAÐ verður til hlut- hafafundar í SR-mjöli hf. í kjölfar kaupa Síld- arvinnslunnar hf. í Nes- kaupstað og Samherja hf. á Akureyri á ráðandi hlut í félaginu í síðustu viku.  EISTNESKA og lett- neska lögreglan telur sig hafa öruggar upplýsingar um að þarlendar nekt- ardansmeyjar hafi stund- að vændi hér á landi. Hafi íslenskir vinnuveitendur hótað þeim ofbeldi ef þær segðu frá. Meirihlutavið- ræður í sveitarfélög- um eftir kosningar MEIRIHLUTAVIÐRÆÐUR í kjöl- far sveitarstjórnakosninganna 25. maí hafa farið fram víða um land undanfarna daga. Fjarðarlistinn og Framsóknarflokkur hafa myndað meirihluta í Fjarðarbyggð og í Skagafirði Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin-grænt framboð. Í Árborg mynduðu Framsóknarflokk- ur og Samfylkingin meirihluta og viðræður Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks standa yfir í Kópavogi. Reykjavíkurlistinn sigraði í kosning- unum í Reykjavík og Samfylkingin í Hafnarfirði. Sjálfstæðisflokkurinn fékk hreinan meirihluta í Mosfellsbæ og er Ragnheiður Ríkharðsdóttir nýr bæjarstjóri í sveitarfélaginu. Deilt um þjónustu- samning Sólheima og félagsmálaráðuneytis RÍKISENDURSKOÐUN og stjórn Sólheima í Grímsnesi eru ekki á einu máli um það hvort þjónustusamn- ingur Sólheima og félagsmálaráðu- neytisins frá 1. mars 1996 hafi verið í gildi síðustu árin eða ekki. Í skýrslu ríkisendurskoðunar um þjónustu Sólheima við fatlaða íbúa staðarins segir að þjónustan á ár- unum 2000 og 2001 hafi ekki verið í samræmi við fyrrgreindan þjónustu- samning. Segir ríkisendurskoðun m.a. að ljóst sé að fjárframlögum sem Sólheimar hafi fengið frá ríkinu á undanförnumn árum hafi verið ráðstafað með talsvert öðrum hætti en samningurinn kveði á um. Páll Pétursson félagsmálaráðherra segir ekki hægt að una þessari niðurstöðu og segir að óskað verði eftir skoðun á fjárframlögum til Sólheima aftur til ársins 1996. VAXANDI ótti er við stríðsátök milli Indlands og Pakistans og hefur hvort tveggja ríkið eflt viðbúnað sinn á landa- mærunum. Halda Indverjar því fram, að Pervez Musharraf, forseti Pakist- ans, hafi ekkert gert til að stöðva árásir múslímskra aðskilnaðarsinna í Kasmír en þeir gera þær frá búðum í Pakistan. Musharraf ber á móti því og fullvissaði meðal annars Jack Straw, utanríkisráð- herra Bretlands, um að allt væri gert til að halda aftur af þeim. Hann hefur hins vegar flutt mikið lið frá landamærunum við Afganistan til héraðanna næst Ind- landi. George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, tilkynnti á fimmtudag, að Donald Rumsfeld, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, færi til viðræðna við stjórnvöld í Indlandi og Pakistan eftir helgi en minnti um leið Musharraf á, að hann yrði að standa við orð sín og koma í veg fyrir árásir hryðjuverkamanna inn í Indland. Fulltrúar annarra ríkja reyna líka að bera klæði á vopnin. Auknar friðar- umleitanir FULLTRÚAR Bandaríkjanna og Evr- ópusambandsins, ESB, hafa komið hver af öðrum til viðræðna við stjórn- völd í Ísrael og Palestínu síðustu daga. Er tilgangurinn tvíþættur: Annars veg- ar, að Yasser Arafat, leiðtogi Palestínu- manna hrindi umsvifalaust í fram- kvæmd nauðsynlegum umbótum á heimastjórninni og hins vegar, að und- irbúningi undir friðarráðstefnu verði hraðað. Þar eru enn ýmis ljón í veg- inum en vonast er til, að af henni geti orðið síðar í sumar og þá líklega í Tyrk- landi. Nokkra athygli hefur vakið grein eftir fréttaritara bandaríska stórblaðs- ins Washington Post í Miðausturlönd- um en þar er landtaka Ísraela sögð undirrót átakanna og Ariel Sharon, for- sætisráðherra Ísraels, sakaður um að styðja þá stefnu. Óttast stríð út af Kasmír  LEIÐTOGAR aðild- arríkja Atlantshafs- bandalagsins, NATO, og Rússa skrifuðu á þriðju- dag undir samkomulag um nýtt samstarfsráð, sem veitir Rússum aðild að ákvörðunum banda- lagsins. Var það gert á fundi í Róm en áður hafði verið samið um það á fundi NATO og Rússa í Reykjavík. Þeir George W. Bush, forseti Banda- ríkjanna, og Vladímír Pútín, forseti Rússlands, fögnuðu samkomulaginu og sögðu það mundu koma að gagni í barátt- unni við sameiginlegan óvin, hryðjuverkamenn.  KYNNTAR voru í síð- ustu viku tillögur fram- kvæmdastjórnar Evrópu- sambandsins, ESB, um breytingar á sjávarútvegs- stefnu bandalagsins. Er stefnt að því að minnka sóknina um 30 til 60% eft- ir fisktegundum og fækka fiskiskipum verulega. Það getur þýtt, að um 28.000 sjómenn missi atvinnuna.  MÖRG Evrópuríkjanna hafa á síðustu dögum ver- ið að kynna stórhertar reglur um innflytjendur og hælisleitendur. Sem dæmi má nefna Bretland en þar verður öllum skil- ríkjalausum hælisleit- endum umsvifalaust vísað burt. Í Austurríki verður þeim hjálpað til að snúa aftur til síns heima og væntanlegir stjórnar- flokkar í Hollandi ræða nú svipaðar reglur og kynntar hafa verið í Bret- landi. Traust menntun í framsæknum skóla Spennandi tækifæri Byggingasvið Iðnskólans í Reykjavík er fjölbreytt og gefur mikla möguleika. Í húsasmíði vinna nemendur fjölbreytileg smíðaverkefni. Í húsgagnasmíði ljúka nemendur námi með smíði húsgagna sem þeir hanna, teikna og smíða. Í málun læra nemendur bæði húsamálun og skrautmálun, auk t.d. leturmálunar. Í múrsmíð læra nemendur að múra hús, hlaða veggi og leggja flísar. Í veggfóðrun læra nemendur meðferð hvers konar gólfefna, flísalagnir og teppalagnir. Í tækniteiknun er kennt á öll helstu flatar- og þrívíddarforrit; mikil áhersla er lögð á fagteikningar, t.d. húsa-, innréttinga-, véla- og raflagnateikningar;. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is Byggingasvið til að skapa HAFRÓ leggur til samkvæmt afla- reglu, að hámarksafli á þorski á næsta fiskveiðiári verði 179 þúsund tonn. Það er 11 þúsund tonnum minna en í fyrra þegar aflamarkið var 190 þúsund tonn. Hafrann- sóknastofnun telur jafnframt æski- legt að draga enn frekar úr sókn en gert er ráð fyrir samkvæmt afla- reglu, vegna aldurssamsetningar stofnsins, óvissu í stofnmati og fyrstu vísbendinga um stærð 2001- árgangsins. Hafrannsóknastofnun gerir til- lögu um talsvert aukinn hámarks- afla á ýsu, eða 55 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári miðað við 30 þús- und tonna tillögu í fyrra. Ýsuafli á fiskveiðiárinu 2001/2002 er áætlaður 45 þúsund tonn. Veiðistofn 2002 er metinn 120 þúsund tonn og hrygn- ingarstofn 69 þúsund tonn. Árgang- urinn 1996 var lélegur og árgangur 1997 heldur undir meðallagi. Ár- gangar 1998–2000 eru hins vegar allir yfir meðallagi. Ennþá of mikil sókn Síðastliðin tvö ár hefur Hafrann- sóknastofnun endurskoðað aðferða- fræði sína „sem lyktaði með leiðrétt- ingu á stofnmati á þorski á síðastliðnu vori. Við höfum haldið þeirri vinnu áfram“, sagði Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrann- sóknastofnunar m.a. á blaðamanna- fundi í gær þar sem skýrsla Haf- rannsóknastofnunar um ástand fiskistofna og aflahorfur fiskveiðiár- ið 2002/2003 var kynnt. „Endurbættar aðferðir okkar staðfesta niðurstöðu okkar frá síð- asta vori. Þær benda til þess að þorskstofninn sé heldur að styrkjast en það er engu að síður staðreynd og nokkurt áhyggjuefni að staða stofnsins er veik ennþá og við erum ennþá að veiða af of miklum þunga og of mikilli sókn í þennan stofn,“ sagði Jóhann m.a. „Hins vegar er því ekki að leyna að afleiðing þess að við ofmátum stofninn á allra síðustu árum hefur leitt til of þungs veiði- álags.“ Þetta er bagalegt, að mati Jóhanns. Komið hefur verið á fót sérstakri verkefnastjórn sem er ætl- að að hafa með höndum stofnmat á þorski og samhæfa allar þær rann- sóknir sem Hafrannsóknastofnun og aðrir gera sem styrkt geta áreið- anleika stofnmats á þorski. „Þetta er okkar viðleitni til að bæta okkur,“ sagði Jóhann m.a. Brýnt að endurskoðun afla- reglu ljúki sem fyrst Jóhann sagði að Hafrannsókna- stofnun teldi brýnt að sú nefnd sem sjávarútvegsráðherra hefur skipað til þess að endurskoða aflareglu sem gilt hefur síðastliðin ár, ljúki sínu starfi sem fyrst. „Meðal annars breytt aflaregla síðustu misseri hef- ur vegið þungt í of mikilli sókn í þorskstofninn, að því er við teljum. Það er mikilvægt að þessi mál séu tekin til sérstakrar meðferðar og endurskoðunar hið fyrsta.“ Jóhann benti á að loðnustofninn stendur með ágætum en bakslag er í síldarstofnum sem m.a. helgast af erfiðleikum við að ná bergmálsmæl- ingum á síldinni. „Almennt má segja að jákvæð teikn séu á lofti varðandi nokkra okkar mikilvægustu botn- fiskstofna, sérstaklega ýsu. Einnig gullkarfa, grálúðu og ufsa.“ Of hátt hlutfall ungs þorsks Hvað varðar þorskstofninn kom fram í máli Björns Ævarrs Stein- arssonar, sérfræðings hjá Hafrann- sóknastofnun og formanns verkefn- ishóps, að afli fiskveiðiárið 2001/2002 sé áætlaður um 215 þús- und tonn. Veiðistofn í ársbyrjun 2002 er áætlaður um 680 þúsund tonn, miðað við 640 þúsund tonn í fyrra og hrygningarstofn um 280 þúsund tonn. Gert er ráð fyrir að veiðistofn í ársbyrjun 2003 verði um 756 þúsund tonn. Veiðidánartala var 0,81 á árinu 2001 sem er tvöfalt hærra en upphafleg aflaregla gerði ráð fyrir og þriðja hæsta gildi sem mælst hefur. Björn sagði þetta gildi allt of hátt og mun hærra en stefnt var að með aflareglunni. Veiðidán- artala á árinu 2002 er áætluð um 0,7. Hann benti einnig á að 6 ára fisk- ur og yngri væri 83% aflans í fjölda á árinu 2002 og áætlað hlutfall 6 ára fisks og yngri væri um 90% á árinu 2003. Þetta eru slæm teikn, að mati Björns, þar sem mikilvægi eldri fisks í hrygningarstofni væri nú við- urkennt og svo hátt hlutfall ungs fisks væri ekki jákvætt. Áætlun Hafrannsóknastofnunar gerir ráð fyrir að veiðistofn þorsks muni vaxa úr 680 þúsund tonnum í ársbyrjun 2002 í 940 þúsund tonn í ársbyrjun 2004 en hrygningarstofn úr 280 þúsund tonnum í 425 þúsund tonn árið 2004. Tillögur um hámarksafla á ufsa breytast úr 25 þúsund tonnum í fyrra í 35 þúsund tonn nú. Tillögur um hámarksafla á loðnu eru óbreyttar, 690 þúsund tonn og á út- hafskarfa 120 þúsund tonn, skv. til- lögum Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Hámarksafli á síld úr íslenska sum- argotsstofninum er miðaður við kjörsókn skv. tillögum Hafrann- sóknastofnunar og samsvarar það 105 þúsund tonna hámarksafla á vertíðinni 2002/2003. Það er sam- dráttur frá í fyrra þegar hámarks- aflinn var 125 þúsund tonn. Alþjóða- hafrannsóknaráðið hefur lagt til að leyfilegur hámarksafli norsk-ís- lenskrar síldar verði 710 þúsund tonn árið 2003 sem er samdráttur frá í fyrra þegar tillagan hljóðaði upp á 850 þúsund tonn og koma 132 þúsund tonn í hlut Íslendinga. Tillögur Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla á næsta fiskveiðiári Morgunblaðið/Þorkell Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, segir enn of mikla sókn í þorskstofninn. 179 þús. tonn af þorski samkvæmt aflareglu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.