Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 8

Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 8
FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ SMÁRALIND S. 569 1550 KRINGLUNNI S. 569 1590 AKRANESI S. 430 2500 Þú kau pir nún a en bo rgar ek ki fyrst u afborg un fyrr en efti r 4 mánu ði, vax talaust . Og þá er mög uleiki á allt a ð 32 m ánaða raðgre iðslu. FYRSTA AFBOR GUN Í OKTÓ BER! 0VEXTIR% GRÍPTU GÆSINA, HÉR ER 44.995,- Ver› á›ur 49.995 kr. Philco kæli- og frystiskápur Pho-FR240 240 l með grænmetisskúffu. H139 B55 D60. Það hlýtur að vera kaldhæðni örlaganna að maðurinn sem leiddi kvótakerfið yfir þjóðina skuli nú telja það sína æðstu skyldu að leiða sjómenn til endanlegrar útrýmingar. Ráðstefna um bráðalækningar Fá færustu sér- fræðinga Í NÆSTU viku er ráð-stefna í bráðalækn-ingum hér á landi. Mary Palmer, læknir á Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi, er í undirbún- ingsnefnd ráðstefnunnar og svaraði hún nokkrum spurningum Morgunblaðs- ins. Hvert er inntak ráð- stefnunnar? „Umfjöllunarefnið er bráðalækningar, sem er fyrsta meðferð og sú þekk- ing sem felst í því að leysa vandamál sem þola enga bið. Þær ná yfir ferli og innígrip sem bjarga lífi og limum. Þessi þriggja daga ráðstefna mun ekki aðeins hressa upp á þekkingu reyndra sérfræðinga í bráðalækningum sem hingað koma frá Ástralíu, Evrópu, Kan- ada og Bandaríkjunum heldur einnig alla þá sem koma að fyrstu hjálp, allt frá læknanemunum sem takast á við sín fyrstu vandamál og til heimilislækna sem vilja auka við þekkingu sína. Á ráðstefnunni munum við einnig taka fyrir nýja tækni sem gæti hugsanlega átt vel við á Íslandi, svo sem fjarlækn- ingar sem hafa náð fótfestu og skilað árangri á afskekktum svæð- um í öðrum löndum. Einnig verð- ur komið inn á forvarnarmál í tengslum við umferðaröryggi, nauðganir og heimilisofbeldi. Í stuttu máli fá þátttakendur á ráð- stefnunni ótrúlega mikið fyrir eyr- inn með setu á ráðstefnunni, enda spannar hún furðumörg svið.“ Segðu okkur eitthvað frá fyrir- lesurunum. „Fyrirlesarahópurinn er í einu orði sagt stórkostlegur. Þetta eru bestu og hæfustu sérfræðingarnir á þessum sviðum. Ég fletti upp á höfundum allra helstu þekkingar- rita sem ég hef á skrifstofu minni og það er einmitt fólkið sem er á leiðinni hingað eftir tæpa viku. Bandarískir kollegar mínir í bráðalækningum hafa spurt mig hvernig í veröldinni mér hafi tek- ist að setja saman þvílíkt einvala- lið. Þetta er einstakt tækifæri til að hitta og hlýða á helstu sérfræð- ingana á þessu sviði.“ Hvers vegna eru bráðalækning- ar ekki komnar lengra á veg á Ís- landi en raun ber vitni? „Reyndar var Ísland fyrst Norðurlandanna til að taka upp bráðalækningar sem sérgrein og við erum stolt af því. Hins vegar hefur þróunin verið hæg. Þetta eru orðin tíu ár og framgangur greinarinnar er á mjög viðkvæmu stigi. Greinin nær þó alls staðar fótfestu vegna þess að hún eykur ánægju fólks í heilbrigðisstéttum. Sjúklingar kunna að meta hæfni og þjónustu þá sem sérfræðingar í bráðalækningum hafa yfir að ráða. Stjórnvöld kunna að meta framlag greinarinnar vegna for- varnargildis hennar og samstarfs- aðilar í heilbrigðisgeiranum kunna því vel að hafa reynda sérfræðinga til að sjá um afgreiðslu mála í bráðamóttökum, jafnvel að nóttu til, um helgar og á frídögum. Þegar fólk venst okkur, getur það ekki hugsað sér heildarþjón- ustuna án okkar. Eini vandinn er að það tekur vissan tíma að aðlag- ast breytingunni.“ Mun þetta ganga upp á Íslandi? „Í löndum þar sem ríkis- og há- skólastofnanir standa að baki bráðalækningum eru vöxtur og þróun þeirra gríðarleg. Við sjáum það best í Póllandi þar sem bráða- lækningar hófust um líkt leyti og á Íslandi. Þar eru bráðalækningar hins vegar undir menntastofnun og lúta heilbrigðisreglugerðum. Svíar, Eistar og Litháar eru á sömu leið með sínar bráðalækn- ingar og Pólverjar. Það er ekki nokkur vafi á því, að Ísland gæti orðið, og ætti að vera, leiðandi þjóð í bráðalækningum í Evrópu, án þess þó að glata sér- íslenskum einkennum sínum. Nú þegar er umönnun utan spítala vel þróuð og í landinu er lítill hópur einbeitts og vel þjálfaðs starfs- fólks á bráðamóttökum. Þessu þarf að fylgja eftir með því að stækka þennan kjarna með þjálf- un og ráðningum á fleira starfs- fólki. Til að slíkt gerist þurfa stofnanir, ríki, háskólar og spítal- ar, að leggjast á eitt. Þetta þokast allt í áttina, endurskipulagning bráðamóttöku Landspítalans er til marks um það. Því miður sér unga fólkið síður þessa þróun. Það sér öllu frekar að við erum upp við vegg og höfum ekki þann munað að geta gefið okkur tíma til að kenna lærling- unum samhliða því að sinna bráða- lækningunum vegna hins mikla vaxandi fjölda þeirra sem sækja í bráðamóttökuna. Þess vegna eru þessir fáu krakkar, sem vinna með okkur þrátt fyrir erfiðleikana, gulls ígildi því þeir sjá hvert stefn- ir, hvað þarf að gera og eru þess vegna leiðtogar framtíðarinnar. En það þarf að hlúa að þeim.“ Telurðu að ráðstefnan muni flýta fyrir gangi mála hér á landi? „Það vona ég svo sannarlega. Hefurðu einhvern tímann lent í brjálaðri vinnu, fjar- stæðukenndum hug- myndum og stöðugum fórnum fyrir lítinn eða engan ávinning og það eina sem rekur þig áfram er tilhugsunin að eitthvað merkilegt kunni að skila sér og sé bara rétt handan við hornið? Þannig er þetta mál. Þessi ráð- stefna virtist hreinlega velja mig. Ég hef frá upphafi aldrei litið svo á að hér sé aðeins um þrjá daga í júní að ræða. Við erum að tala um stefnu sem fer nú um alla Evrópu og Ísland er með fyrstu löndunum til að tileinka sér hana.“ Mary Palmer  Mary Palmer er fædd í Alex- andriu í Virginiu 1955. Hún er með gráðu í bráðalækningum og jafnframt menntuð í klínískri eit- urefnafræði. Vann sem sérfræð- ingur á því sviði við NYC Poison Control Center. Maki er Edwin Brown yngri, starfsmaður við bandaríska sendiráðið í Reykjavík. Þau eiga tvö börn, Christopher Palmer 7 ára og Matthew Emery 3 ára. Ísland ætti að vera leið- andi þjóð HEILDARKJÖRSÓKN í sveitar- stjórnarkosningunum um síðustu helgi liggur ekki formlega fyrir þar sem félagsmálaráðuneytið bíður enn eftir staðfestum tölum frá kjör- stjórnum í tveimur sveitarfélögum; Reykjavík og Akureyri, auk þess sem von er á tölum frá Árneshreppi eftir helgi. Kjörstjórnin á Akureyri ætlar að láta þann vikufrest líða sem lögboð- inn er til að leggja fram kæru á fram- kvæmd kosninganna og samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu ætlar kjörstjórnin í Reykjavík að láta tíu daga líða frá kosningum þar til að staðfestum tölum verður skilað. Á kjörskrá í kosningunum voru alls 204.923 manns, þar af 101.837 karlar og 103.086 konur. Þess má geta að í kosningunum fyrir fjórum árum voru 193.632 einstaklingar á kjörskrá og af þeim greiddu atkvæði 159.187. Kjörsókn var því 82,2% í heild. Hjá körlum var kjörsóknin 81,5% en 82,8% hjá konum. 100% kjörsókn í Mjóafirði Fyrir liggur í þeim staðfestu töl- um sem félagsmálaráðuneytinu hef- ur borist um kjörsókn, að í einu sveitarfélagi kusu allir sem á kjör- skrá voru, þ.e. í Mjóafjarðarhreppi. Þar voru 25 manns á kjörskrá, 24 komu á kjörstað og einn hreppsbúi skilaði utankjörfundaratkvæði. Eng- inn seðill var auður eða ógildur, en kosning í hreppnum var óbundin þar sem enginn listi kom fram. Heildarkjörsókn í sveitarstjórnarkosningunum Beðið eftir staðfestum tölum frá Reykjavík og Akureyri FORSETI Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hefur boðið Jiang Zemin, forseta Alþýðulýðveldisins Kína, í op- inbera heimsókn til Íslands um miðj- an júnímánuð. Í för með forseta Kína verða meðal annarra Qian Qichen varaforsætisráðherra og Tang Jia Xuan utanríkisráðherra og fjölmarg- ir aðrir forystumenn úr stjórnkerfi landsins. Auk funda með Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, mun Ji- ang Zemin, forseti Alþýðulýðveldis- ins Kína, eiga viðræður við Davíð Oddsson forsætisráðherra og Hall- dór Ásgrímsson utanríkisráðherra. Jiang Zemin forseti og fylgdarlið munu jafnframt kynna sér íslenska avinnuhætti, sögu og menningu, seg- ir í frétt frá skrifstofu forseta Íslands. Forseti Kína í opinbera heim- sókn til Íslands ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.