Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 11
Saman.“ Svo mörg voru þau athygl-
isverðu orð.
Því verður ekki á móti mælt að ým-
islegt neikvætt er tengt knattspyrn-
unni. Bullur, svokallaðar, hafa sett
svartan blett á íþróttina þegar þær
fara saman í flokkum, meiða og eyði-
leggja – jafnvel drepa. Þegar grannt
er skoðað virðist hins vegar ekki um
að ræða einlæga áhugamenn um
knattspyrnu, heldur skemmdarvarga
sem nýta sér aðstæður hverju sinni.
Knattspyrnan varð fyrir valinu, en
hóparnir gætu líkast til eins tekið sig
til og stundað þessa iðju sína á póli-
tískum samkomum eða hefðbundn-
um listviðburðum.
Er þetta ekki ámóta og að margir
koma óorði á vínið?
Á heimasíðu heimsmeistarakeppn-
innar í Japan og Suður Kóreu er að
finna grein eftir blaðamanninn Serg-
io Di Cesare hjá íþróttadagblaðinu
La Gazzetta dello Sport í Mílanó. Þar
segir hann frá kunnum ítölskum öld-
ungi, sem býður spenntur eftir þeirri
stundu þegar fyrirliði heimsmeistar-
anna tekur við styttunni glæsilegu
sem nafnbótinni fylgir, eftir úrslita-
leikinn 30. júní.
Ráðgert er að einn og hálfur millj-
arður manna fylgist með úrslitaleik
HM í sjónvarpi en Silvio Gazzaniga
veit nú þegar að þegar styttan fer á
loft tárast hann bæði og hlær. Hann
er nefnilega hönnuður styttunnar og
þykir því vænna um hana en flestum
öðrum.
Þýska goðsögnin Franz Becken-
bauer varð fyrsti fyrirliðinn til að
hampa styttunni, þegar Vestur-
Þýskaland varð heimsmeistari 1974
og síðan hafa frægir kappar hand-
leikið hana; Argentínumaðurinn
Daniel Passarella 1978, Ítalinn Dino
Zoff 1982, snillingurinn Diego Mara-
dona frá Argentínu 1986, Þjóðverjinn
Lothar Matthaus 1990, Brasilíumað-
urinn Dunga 1994 og Frakkinn Did-
ier Deschamps fyrir fjórum árum, í
Frakklandi 1998.
Einu sinni aftur…
Gazzaniga – „meistarinn“ eins og
hann er gjarnan nefndur í heima-
landinu – býr enn í Mílanó þar sem
hann fæddist í janúar 1921. Ríflega
áttræður er hann enn í fullu fjöri og
fylgist vel með knattspyrnu sem fyrr.
Hann segist í samtalinu aldrei myndu
hafa trúað því í gamla daga að íþrótt-
in yrði jafnvinsæl og raun ber vitni í
Bandaríkjunum, eða næði jafnmikl-
um tökum á Suður-Kóreu og Japan
og nú er orðið. „Þegar ég var yngri
var orðið Kórea nánast skammaryrði
í ítölsku, tákn taps og niðurlæging-
ar,“ segir hann og rifjar upp svart-
asta dag ítalskrar knattspyrnusögu.
Margir urðu undrandi þegar Sen-
egalar unnu Frakka í opnunarleik
HM að þessu sinni og halda því jafn-
vel fram að það séu óvæntustu úrslit í
sögu HM, en tap Ítalíu fyrir Norður-
Kóreu á HM í Englandi 1966 verður
að teljast enn óvæntara. Það var
hreint hneyksli fyrir þá miklu knatt-
spyrnuþjóð, Ítali. Norður-Kórea! Sú
þjóð gat beinlínis ekki neitt í fótbolta!
Og þrátt fyrir að Ítalir hafi ekki
enn gleymt tapinu fyrir Norður-Kór-
eu, og geri líklega aldrei, fer Gazz-
aniga fögrum orðum um íbúa Japans
og Suður-Kóreu þar sem keppnin er
haldin að þessu sinni. „Íbúar beggja
landa eru ákaflega iðnir, tilbúnir að
leggja á sig persónulegar fórnir með
hagsmuni heildarinnar í huga. Það er
einmitt grunnur þeirrar efnahags-
legu uppsveiflu sem orðið hefur að
veruleika í báðum löndum og ótrúlegt
afrek þegar haft er í huga að bæði
voru meira og minna lögð í rúst í síð-
ari heimsstyrjöldinni.“
Eftirminnilegasta augnablik Gazz-
aniga í sögu HM var þegar Ítalir
hrepptu styttuna hans; þegar Dino
Zoff lyfti henni í Madríd 11. júlí 1982.
„Ég var reyndar enn hrærðari þegar
forseti Ítalíu [Alessandro] Pertini hóf
styttuna á loft í heiðursstúkunni.“
Hann segir sigur í heimsmeistara-
keppninni hafa eflt þjóðarvitund
Ítala um tíma, þjóðin hafi sameinast.
„Mér fannst ég óvenju mikill Ítali
þennan dag.“
Og Gazzaniga á sér eina ósk: „Það
yrði ánægjulegt ef ég yrði svo hepp-
inn að finna þess tilfinningu einu
sinni aftur áður en ég dey.“
Þetta snýst sem sagt ekki bara um
22 leikmenn og einn bolta.
skapti@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 11
KNATTSPYRNA
HM í Japan og Suður-Kóreu
A-RIÐILL
Danmörk – Úrúgvæ 2:1
Mörk Dana: Jon Dahl Tomasson 44., 82.
Mark Úrúgvæ: Dario Rodriquez 46.
Markskot: Danmörk 7 - Úrúgvæ 10
Horn: Danmörk 8 - Úrúgvæ 7
Gul spjöld: Jan Heintze, Danmörk 34.,
Martin Laursen, Danmörk 51. - Gustavo
Mendez, Úrúgvæ 25.
Dómari: Saad Mane, Kúveit.
Áhorfendur: 30.157.
Lið Dana: Thomas Sörensen, Stig Töfting,
Rene Henriksen, Martin Laursen, Jan
Heintze (Nicolas Jensen 47.), Thomas
Helveg, Thomas Gravesen, Jesper Grønk-
jær (Martin Jørgesen 69.), Jon Dahl Tom-
asson, Ebbe Sand (Christian Poulsen 88.),
Dennis Rommedahl.
Lið Úrúgvæ: Fabian Carini, Gustavo
Mendez, Paolo Montero, Pablo Garcia,
Dario Rodriguez (Federico Magallanes
87.), Gianni Guigou, Gustavo Varela, Dario
Silva, Sebastian Abreu (Richard Morales
88., Gonzalo Sorondo, Alvaro Recoba
(Mario Regueiro 78.).
Staðan:
Danmörk 1 1 0 0 2:1 3
Senegal 1 1 0 0 1:0 3
Úrúgvæ 1 0 0 1 1:2 0
Frakkland 1 0 0 1 0:1 0
E-RIÐILL
Írland – Kamerún 1:1
Mark Íra: Matt Holland 52.
Mark Kamerún: Patrick Mboma 39.
Markskot: Írland 10 - Kamerún 10
Horn: Írland 8 - Kamerún 8
Gul spjöld: Jason McAteer, Írland 30.,
Steve Finnan, Írland 50., Stephen Reid,
Írland 82. - Raymond Kalla , Kamerún 89.
Dómari: Toru Kamikawa, Japan.
Áhorfendur: 34.000.
Lið Írlands: Shay Given, Ian Harte (Ste-
ven Reid 72.), Steve Staunton, Jason McA-
teer (Steve Finnan 46.), Matt Holland, Da-
mien Duff, Robbie Keane, Kevin Kilbane,
Mark Kinsella, Gary Breen, Garry Kelly.
Lið Kamerún: Boukar Alioum, Bill
Tchato, Pierre Wome, Rigobert Song,
Raymond Kalla, Geremi, Samuel Etoo,
Patrick Mboma (Patrick Suffo 68.), Laur-
en, Marc-Vivien Foe, Salomon Olembe.
Þýskaland – S-Arabía 8:0
Mörk Þýskalands: Miroslav Klose 20., 25.,
69.,Michael Ballack 40., Carsten Jancker
45., Thomas Linke 73., Oliver Bierhoff 84.,
Bernd Schneider 90.
Markskot: Þýskaland 14 - S-Arabía 1.
Horn: Þýskaland 10 - S-Arabía 1.
Gul spjöld: Christian Ziege 43., Dietmar
Hamann 83. - Mohammed Noor 90.
Dómari: Ubaldo Aquino, Paraguay.
Áhorfendur: 32.218.
Lið Þýskalands: Oliver Kahn, Thomas
Linke, Christoph Metzelder, Carsten
Ramelow (Jens Jeremies, 46.), Christian
Ziege, Dietmar Hamann, Michael Ballack,
Bernd Schneider, Torsten Frings, Kar-
sten Janker (Oliver Bierhoff, 67.), Mir-
oslav Klose (Oliver Neuville, 77.).
Lið S-Arabíu: Mohammed Al Deayea,
Redha Tukar, Abdullah Sulaiman Zubr-
omawi, Ahmed Dukhi Al Dossary, Huss-
ein Sulimani, Mohammed Noor, Khamis
Alowairan Al Dosari (Ibrahim Al Shahr-
ani, 46.), Abdullah Alwaked Al Shahrani,
Nawaf Al Temyat (Abdulaziz Al Khathr-
an, 46.) Sami Al Jaber, Al Hassan Al Yami
(Abdullah Jumaan Al Dosary, 77.)
Staðan:
Þýskaland 1 1 0 0 8:0 3
Kamerún 1 0 1 0 1:1 1
Írland 1 0 1 0 1:1 1
Sádi-Arabía 1 0 0 1 0:8 0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Leikir aðfaranótt laugardags:
Austurdeild:
Boston - New Jersey...........................88:96
New Jersey vann austurdeildina og leik-
ur við Sacramento eða LA Lakers um sig-
urinn í NBA deildinni.
Vesturdeild:
Sacramento - LA Lakers ................102:106
Staðan í einvíginu er jöfn, 3:3.
ÚRSLIT
Þjóðverjar kjöl-
drógu Sádi-Araba
ÞJÓÐVERJAR voru ekki langt frá því að jafna markametið í lokakeppni HM er liðið
skellti slöku liði Sádi-Araba, 8:0, í fyrsta leik liðanna í E-riðli sem fram fór í Sapporo í
Japan. Markametið er í eigu Ungverja sem lögðu El Salvador að velli á Spáni árið 1982,
10:1. Árið 1954 skoraði Ungverjaland níu mörk gegn Kóreu og 1974 gerði Júgóslavía slíkt
hið sama gegn Zaire. Þetta er stærsti sigur Þjóðverja til þessa en árið 1954 lagði liðið
Tyrki, 7:2, og lið Mexikó, 6:0, í Argentínu árið 1978. Lærisveinar Rudi Völlers verða ekki
dæmdir út frá þessum leik því lið Sáda var með eindæmum slakt.
MIROSLAV Klose skoraðiþrennu og öll með skalla, en
þeir Michael Ballack, Carsten
Jancker, Thomas Linke, Oliver
Bierhoff og Bernd Schneider
bættu við mörkum. Reyndar skor-
aði Jancker mark í upphafi leiksins
sem var dæmt af, en að flestra
mati gerði dómari leiksins mistök í
því tilviki. Þjóðverjar skoruðu
fjögur mörk í hvorum hálfleik fyrir
sig og áttu Sádar eitt skot að
marki í öllum leiknum.
Rudi Völler sagði fyrir keppnina
að liðið ætlaði sér í átta liða úrslit.
„Leikmenn liðsins voru ótrúlega
einbeittir frá upphafi til enda og
það leyndi sér ekki að allir voru
tilbúnir í verkefnið. Við vorum
reyndar aldrei í vafa að okkur
tækist að leggja Sáda að velli,“
sagði Völler.
Nasser Al Johar þjálfari Sádi-
Araba tók á sig alla ábyrgð. „Ég
er vonsvikinn en ég ber ábyrgðina
á þessum úrslitum. Hinsvegar eig-
um við enn möguleika og við ætl-
um að sýna hvað í okkur býr í
næstu leikjum,“ sagði Al Johar.
Tomasson skellti Úrúgvæ
Danski landsliðsmaðurinn Jon
Dahl Tomasson var í aðalhlutverk-
inu þegar Danir lögðu Úrúgvæ að
velli í fyrsta leik liðanna á HM, en
Tomasson skoraði bæði mörk
Dana í 2:1 sigri þeirra. Dario
Rodriguez jafnaði metin á 47. mín-
útu, með viðstöðulausu skoti utan
af velli og má búast við að mark
Rodriguez sé nú þegar líklegt til
þess að verða valið glæsilegasta
mark keppninnar. Tomasson kom
Dönum yfir á 44. mínútu og hann
skallaði knöttinn af krafti í slá og
inn á þeirri 82., og tryggði Dönum
sigur. Tomasson er á leið til
ítalska liðsins AC Milan í haust
eftir áralanga dvöl hjá Feyenoord í
Hollandi.
Leikur Dana var yfirvegaður og
gefur góð fyrirheit um framhaldið
á meðan lið Úrúgvæ virtist ekki í
jafnvægi. Alvaro Recoba átti besta
færi þeirra í fyrri hálfleik. Morten
Olsen þjálfari Dana var að vonum
ánægður með sigurinn en hann var
í liði Dana sem sigraði Úrúgvæ,
6:1, á HM í Mexíkó árið 1986.
„Við náðum tökum á leiknum
eftir 25 mínútur. Það er mikilvægt
að ná hagstæðum úrslitum í fyrsta
leik á stórmóti. Slíkt eykur sjálfs-
traust leikmanna. Að mínu mati
var sigur okkar sanngjarn og við
sýndum það að leikmenn okkar eru
í betra líkamlegu ásigkomulagi.“
Olsen bætti því við að Frakkar
væru enn sigurstranglegir þrátt
fyrir áfallið gegn Senegal.
„Við megum búast við gríðarlega
erfiðum leik nk. fimmtudag gegn
Frökkum.“
Þjálfari Úrúgvæ var upplits-
djarfur þrátt fyrir tapið en margir
spekingar telja að liðið fari ekki
langt án þess að grafa fyrst upp
hinn kunna „grófa“ leikstíl liðsins.
„Við lékum vel í dag en Danir
skoruðu þegar mest á reyndi. Við
höfum hinsvegar ekki gefist upp
og æltum að berjast í næstu tveim-
ur leikjum,“ sagði Victor Pua.
Þess ber að geta að Jon Dahl
Tomasson á ættir sínar að rekja til
Íslands, afi hans var Íslendingur,
fæddur í Hafnarfirði, og sonur
hans, Bjarne, er faðir Jon Dahls.
Líf í Írum án Roy Keane
Leikmenn írska landsliðsins og
hinn umdeildi Mick McCarthy
þjálfari liðsins sýndu að það er líf í
liðinu þrátt fyrir fjaðrafokið í kjöl-
far þess að fyrirliði liðsins, Roy
Keane, var sendur heim á leið áður
en keppnin hófst. Írar áttu í höggi
við Kamerún í fyrsta leik E-riðils í
gær og lyktaði leiknum með jafn-
tefli, 1:1.
Lið Kamerún sýndi ágæta takta
og sýndi á köflum að þar fer lið
sem getur náð langt í keppninni,
en leikur þess þótti kraftmikill en
að sama skapi lipur.
Patrick Mboma skoraði fyrra
mark leiksins á 39. mínútu fyrir
Kamerún eftir undirbúning Sam-
uel Eto. Shay Given markvörður
Íra mátti hafa sig allan við á 18.
mínútu er hann varði glæsilega frá
Eto.
Matt Holland jafnaði metin fyrir
Íra á 52. mínútu með bylmings-
skoti eftir að Raymond Kalla varn-
armanni Kamerún mistókst að
hreinsa frá marki sínu.
Írar voru mun sterkari í síðari
hálfleik og aðeins tréverkið á
marki Kamerún kom í veg fyrir að
Robbie Keane skoraði á 82. mínútu
en knötturinn small í stöng.
Mick McCarthy sagði eftir leik-
inn að þungu fargi hafi verið létt af
sér og leikmönnum sínum.
„Síðasta vika var okkur erfið.
Það var gott að fara með eitt stig í
farteskinu úr þessum leik. Viður-
eignin var góð auglýsing fyrir
íþróttina og við náðum að sýna
mun betri leik í síðari hálfleik. All-
ir leikmenn liðsins eiga hrós skilið
og fá klapp á bakið frá mér,“ sagði
McCarthy.
„Ég skoraði tvö mörk í und-
ankeppninni sem voru svipuð
þessu marki. Það var því gott að
sjá knöttinn í netinu. Við erum
með eitt stig og það skipti öllu
máli að tapa ekki þessum leik.
Núna sjáum við bara til hvað við
getum gert í framhaldinu,“ sagði
Matt Holland markaskorari Íra.
Winfried Schafer þjálfari
Kamerún var vonsvikin í leikslok,
sérstaklega í ljósi þess að lið hans
átti gott færi á 51. mínútu en
skömmu síðar skoraði Matt Hol-
land jöfnunarmarkið. „Við stýrðum
fyrri hálfleik en Írar þeim síðari
þannig að jafntefli eru kannski
sanngjörn úrslit. Aftur á móti
fengum við tækifæri til þess að
komast í 2:0 en þess í stað gerum
við varnarmistök og fáum á okkur
mark. Ég var órólegur í síðari
hálfleik er Írar sóttu í sig veðrið.
Lið þeirra á eftir að koma á
óvart,“ sagði Schafer.
AP
Miroslav Klose fagnaði með lipurlegu heljarstökki eftir að hann skoraði annað mark sitt af þremur í stórsigri Þjóðverja,
8:0, á Sádi-Arabíu á HM í knattspyrnu í Sapparo í Japan.