Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 13
Þarftu að
ná tökum á
tölvunni?
Rafiðnaðarskólinn kynnir fjölbreytt tölvunám á haustönn 2002
Tölvunám
Tölvu- og rekstrarnám
Grunnnám í tölvum og bókhaldi. Um er að ræða krefjandi
starfsnám sem hannað er með þarfir atvinnulífsins í huga. Þetta
er nám fyrir þá sem vilja styrkja stöðu sína á vinnumarkaðinum
og læra mikið á stuttum tíma. Að námi loknu eru þátttakendur
orðnir öruggir með að nota tölvur við dagleg störf og geta fært
bókhald. Vinsæl námsbraut sem hefur verið kennd í átta ár.
➾ 280 kennslustundir.
Tölvur og vinnuumhverfi 1
Hnitmiðað nám fyrir byrjendur þar sem farið er vandlega í
grunnatriði tölvunotkunar. Lögð er áhersla á að nemendur nái
góðum tökum á Windows, Word, Excel og Internetinu og að
þeir noti rétt vinnubrögð við tölvuna. Þetta er námsbrautin fyrir
þá sem vilja fá trausta og góða undirstöðu og/eða eru að stíga
sín fyrstu skref á tölvubrautinni. Frekar hæg yfirferð.
➾ 120 kennslustundir. Einnig í boði sem fjarnám.
Tölvur og vinnuumhverfi 2
Framhaldsnám fyrir þá sem hafa lokið Tölvum og vinnuumhverfi 1
eða þá sem hafa grunnþekkingu í Windows, Word og Excel en
vilja auka hæfni sína og læra meira. Þetta er nám sem veitir
þátttakendum góða tölvuþekkingu og kunnáttu til að leysa
flóknari vandamál með hjálp Office forritanna.
➾ 120 kennslustundir. Einnig í boði sem fjarnám.
Tölvunotkun 1. hluti
Stutt hagnýtt tölvunám fyrir byrjendur. Nemendur ná valdi á
grunnatriðum Windows, Word, Internetsins og notkun tölvu-
pósts. Ekki er reiknað með heimavinnu.
➾ 60 kennslustundir.
Tölvunotkun 2. hluti
Stutt hagnýtt tölvunám fyrir lengra komna. Word framhald,
Excel og PowerPoint. Í tímum eru unnin raunhæf verkefni sem
stuðla að þjálfun í notkun allra forritanna. Engin heimavinna.
➾ 60 kennslustundir.
Tölvunotkun 3. hluti
Stutt hagnýtt tölvunám fyrir þá sem vilja kennslu í sérhæfðari
hlutum. Forritin Word og Excel notuð til að leysa flóknari
viðfangsefni. Gerð eru verkefni þar sem fleiri en eitt forrit koma
við sögu. Ekki er reiknað með heimavinnu.
➾ 60 kennslustundir.
Ertu kennari og viltu verða tölvukennari?
Ætlað kennurum sem vilja bæta tölvuþekkingu sína og/eða
sinna tölvukennslu. Farið er yfir Windows umhverfið og flest
Office forritin. Einnig vefsíðugerð, gagnagrunna, netumsjón,
kennslufræði tölvukennslu, hugbúnað/vélbúnað og mynd-
vinnslu. Öflugt nám sem gefur þátttakendum tækifæri til að
öðlast mikla þekkingu og ná góðu valdi á tölvunni.
➾ 580 kennslustundir. Morgunhópur.
Tölvur og kennsluumhverfi - fjarnám
Fjarnám ætlað kennurum sem vilja öðlast góða tölvukunnáttu
en vilja/geta ekki sótt hefðbundin námskeið. Þátttakendum er
kennt að nota tölvur við dagleg störf og vinna verkefni sem
tengjast störfum þeirra.
➾ 160 kennslustundir.
Tölvunámskeið
Access 1, 2 og 3
Á námskeiðinu lærir þú að hanna og búa til gagnasöfn, útbúa
innsláttarform, prenta skýrslur, skoða gögn út frá mismunandi
forsendum og gera fyrirspurnir (queries). Þátttakendur verða
færir um að setja upp einfalda gagnagrunna og vinna með þá.
➾ 20 kennslustundir hvert námskeið.
Excel 1, 2 og 3
Excel töflureiknirinn hefur mikla möguleika varðandi vinnu með
tölulegar upplýsingar og gagnasöfn. Farið er í gerð formúla,
útlitsstillingar, útprentanir, myndritsgerð og möguleika Excel við
flóknari úrvinnslu. Það getur borgað sig að kynnast Excel og láta
hann sjá um vinnuna fyrir sig.
➾ 15 - 20 kennslustundir hvert námskeið.
AutoCAD 1, 2 og 3
Þátttakendur læra að teikna og málsetja hluti í AutoCAD. Einnig
er farið í að málsetja og ganga frá flóknum tvívíðum teikningum
hvort sem er á skjá eða í útprentun. Á lokanámskeiðinu eru
kynntar hinar ýmsu þrívíddaraðgerðir í AutoCAD.
➾ 20 - 40 kennslustundir hvert námskeið.
FrontPage 1 og 2
Fyrir þá sem vilja læra vefsíðugerð með FrontPage. Kennt er að
búa til samtengdar vefsíður til notkunar á veraldarvefnum eða
á innanhússvef.
➾ 20 kennslustundir hvort.
HTML
Þekking á HTML er forsenda fyrir því að ná valdi á vefsmíði og
skilja það sem gerist þegar vefsíða er birt á tölvuskjá.
Nemendur læra að búa til vefsíðu með því að rita HTML texta.
➾ 20 kennslustundir.
Internet Explorer
Hér lærir þú hvernig Internetið virkar og hvernig þú getur nýtt
þér það. Helstu forrit til að hafa samskipti við Netið eru kynnt.
Farið yfir helstu stillingar Explorer, öryggismál og hjálparkerfi.
➾ 10 kennslustundir.
Outlook
Með Outlook getur þú haldið utan um helstu þætti vinnunnar:
verkefnalista, dagbók, samskipti við aðra og tölvupóst. Á nám-
skeiðinu læra þátttakendur helstu grunnaðgerðir forritsins.
➾ 20 kennslustundir.
PowerPoint 1 og 2
PowerPoint er notað við gerð glæra, kennslugagna og rafrænna
kynninga. Þátttakendur læra að búa til kynningarefni bæði til að
prenta út og nota sem glærusýningu. Það kemur flestum á óvart
hversu einfalt forritið er í notkun og eftir stutt námskeið hafa
þátttakendur öðlast færni til að gera glæsilega glærusýningu.
➾ 15 kennslustundir hvort.
Publisher
Publisher er einfalt umbrotsforrit sem hentar þeim sem sjá um
kynningarrit eða fréttabréf í fyrirtækjum og skólum. Einnig fyrir
þá sem vilja gera eftirtektarverðar tilkynningar af ýmsu tagi.
Geysilega skemmtilegt forrit sem býr yfir ótal möguleikum.
➾ 20 kennslustundir.
Windows
Margir tölvunotendur eru óöruggir í samskiptum við tölvuna því
þeir þekkja ekki undirstöðuatriðin í Windows stýrikerfinu.
Námskeiðið er nauðsynlegt fyrir alla þá sem ætla sér að vinna í
þessu umhverfi og nota Windows forrit s.s. Word og Excel.
➾ 20 kennslustundir.
Word 1, 2 og 3
Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér rétt vinnubrögð og
læri að nýta sér kosti forritsins. Farið er í uppsetningu texta og
útprentun. Einnig er farið yfir ýmsa flóknari möguleika, kennd
vinnusparandi vinnubrögð og ýmsar sjálfvirkar aðgerðir.
➾ 20 kennslustundir hvert námskeið.
Rafiðnaðarskólinn mun standa fyrir öflugu námskeiðahaldi á næsta skólaári. Í boði verða fjölbreytt
tölvunámskeið og nám ætlað byrjendum og þeim sem lengra eru komnir á tölvusviðinu.
Skeifan 11 b · Sími 568 5010 · skoli@raf.is · www.raf.is
Skráning og nánari upplýsingar í síma 568 5010 og á www.raf.is