Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 23 ÉG HELD að flestir á mínureki, að minnsta kostikarlkynið, kannist við aðhafa spurt sjálfan sigþeirrar spurningar hvort þeir gætu staðið sig á sjó. Sumir fara alla leið og gerast sjómenn að atvinnu, mun fleiri fara einn eða fleiri túra á togara eða öðrum fleyj- um til að afla tekna á námsárunum, en flestir eru líklega þeir sem aldrei koma neitt nálægt raunverulegri sjómennsku. En innra með okkur öllum býr hinn íslenski sjómaður, sem horfist af einurð og festu í augu við raunveru- legan lífsháska og er söngvinn og kátur þegar hann kemur í land, færandi hendi. Í mínu tifelli er þessi maður afi minn, sem var lengst af skipstjóri á eigin báti á Ólafsfirði. Þegar ég var um það bil ellefu ára fór ég ásamt móður minni með Drangi sáluga fram og tilbaka frá Hrísey til Grímseyjar, sem var um fimm tíma sigling hvora leið. Ég harðneitaði að gleypa sjó- veikipillur eins og mamma, sem vissi af fyrri reynslu að sjóhreysti hennar voru veruleg takmörk sett. Á mína eigin sjóhreysti hafði ekki reynt fram að þessu. Þetta var próf. Meðan við sigldum út fjörðinn dundaði ég mér við spil í farþega- salnum milli þess sem ég fór upp á dekk til að litast um og fannst afi nálægur þegar saltur úðinn frá stefninu vætti vangann. Fyrstu klukkustundirnar gekk allt vel. Það var ekki fyrr en við vor- um komin út úr Eyjafirðinum og út á opið haf, að skipið tók að hreyfa sig með þeim hætti að ég gat ekki leitt það hjá mér. Ég varð spor- þungur og undi mér jafnvel betur í útiloftinu á dekki en hægindunum undir þiljum. Myndin af afa varð samt einhvern veginn óskýrari með hverri mínútu, hverri veltu. Ég var farinn að fylgjast dálítið óþreyju- fullur með klukkunni og rýna af áfergju fram fyrir stefnið í von um að sjá glitta í Grímsey framundan. Mér var líka orðið kalt. Ég spilaði nokkur spil við jafn- aldra minn um borð og reyndi að fylgja honum eftir á ferðum hans um innviði Drangs, þar sem hann var hagvanur. Þótt mér væri orðið dálítið illt í maganum, var vel hægt að lifa með því, sérstaklega með því að styrkja sig á kóki annað veifið. Um þetta leyti hafði ég algerlega misst sjónar á afa enda hugur minn fanginn af því einu að láta ekki á neinu bera. Tíminn og skipið siluðust áfram með hraða snigilsins, en þó kom að því að ég heyrði einu orðin sem ein- hverju máli skiptu bæði fyrir mig og Leif og Kólumbus og svo marga aðra sæfara: Land fyrir stafni. En það var enn ósegjanlega langt í burtu. Eftir þetta var ég mjög vær og lítt uppnuminn yfir spilum eða tíð- indum. Sat bara einrænn og hljóður úti í horni og beið eftir að geta stig- ið fæti á eitthvað sem ekki væri á hreyfingu. Þá spilaði félagi minn út stóra trompinu. Stýrimaðurinn vildi endi- lega bjóða okkur upp í brú. Ég gat ekki hafnað þvílíku kostaboði, þótt ég væri meira að segja hættur að nenna að teygja mig í kókflöskuna. Ég reis upp og labbaði sæmilega uppréttur og með djúpum og yfir- veguðum loftsogum inn eftir rugg- andi göngum og rangölum og loks upp mjóa vaggandi stiga, alla leið upp í brú. Og sjá: Höfnin í Grímsey blasti við í allri sinni landföstu dýrð. Ferðinni var nánast lokið og ég var að vísu fölur og fáskiptinn, en þó uppistandandi og hneisulaus. En einmitt þá, þegar allt stefndi í að ég myndi hafa það af að ná í land án þess að gubba eins og hver ann- ar landkrabbaræfill, brast vörnin. Veltingurinn hafði verið töluverður niðri í sal, en hér í brúnni var allt gersamlega á fleygiferð eins og risavaxin róla og um leið og Drang- ur smeygði sér inn fyrir brimbrjót- inn í Grímsey, varð ég að játa mig sigraðan, beina sjónum mínum að prýðilegri salernisaðstöðu hinna gestrisnu skipstjórnarmanna og leyfa meltingarfærunum að end- urskipuleggja reksturinn. Ég hafði gert heiðarlega tilraun til að standa í stykkinu og nánast klikkað á marklínunni. Það tók mig nokkurn tíma að manna mig upp í að horfast í augu við minn innri sjó- mann, en það má hann afi eiga, að hann hvorki vék sér undan né gerði lítið úr mér. Hann brosti bara, þurrkaði sér um nefið og deplaði öðru auga. Ég man ekki margt frá þessari hálfsdagsdvöl í Grímsey og enn minna um ferðina til baka. Mamma þurfti ekki nema að nefna pillurnar. Sjómennskuprófið HUGSAÐ UPPHÁTT Eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson Teikning/Andrés Stál og eðalmálmar Málmtæknisvið Iðnskólans í Reykjavík býður upp á tvær námsbrautir; málmtæknibraut og gull- og silfursmíði. Á málmtæknibraut er námið undirbúningur undir sérnám í bifvéla- virkjun, bílasmíði, bílamálun, pípulögnum, rennismíði, stálsmíði og vélsmíði. Margbreytilegt nám og hagnýt viðfangsefni í fjórar annir. Gull- og silfursmíði er samningsbundið nám, verklegt og bóklegt, þar sem mikil áhersla er lögð á hönnun skartgripa, efnisfræði, teikningar og smíði skartgripa af öllu tagi. IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is Málmtæknisvið Traust menntun í framsæknum skóla Stangarhyl 3A 110 Reykjavík Sími: 591 9000 terranova.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.