Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 25

Morgunblaðið - 02.06.2002, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 25 við þá hugmynd. Láti prinsinn síð- an verða af því að ganga í hnapp- helduna að nýju eru fjórir fimmtu hlutar Breta ósáttir við að Camilla fái að titla sig sem drottningu. Sé hins vegar borinn upp sú hugmynd að afnema konungsveldið að fullu er einungis fimmtungur landsmanna því sammála. Konungsfjölskyldan þykir líka, þrátt fyrir þá gagnrýni sem hún hlýtur, hafa sýnt af sér vilja til að fylgjast með tíðarandanum, líkt og ákvörðun drottningar um að greiða skatta hin síðari ár þykir vera til merkis um, sem og sú nýlunda að opna Buckingham-höll fyrir al- menningi í nokkra mánuði á ári hverju til að drottning geti sjálf fjármagnað viðgerðir á Windsor- höll. Viktoría drottning langlífust í embætti Frá því Normanir báru sigur af Söxum í baráttunni um Hastings 1066 hafa einungis fjórir breskir kóngar og drottningar, utan Elísa- betar, náð að sitja fimmtíu ár í há- sæti. Viktoría drottning var 63 ár í embætti, Georg III 59 ár, Hinrik III 56 ár og Eðvarð III 50 ár. Jakob VI Skotakonungur var reyndar konungur Skota í 58 ár, en einungis konungur Englendinga frá 1603– 1625. Það má því búast við miklum há- tíðarhöldum nú um helgina og er talið að hundruð þúsunda manna geri sér ferð til nágrennis Bucking- ham hallar ýmist til að fylgjast með tónleikadagskrá sem í boði verða í hallargarðinum 1. og 3. júní og sjón- varpað verður í nærliggjandi lystigörðum, eða til að fylgjast með skrúðgöngunni miklu 4. júní er drottningin heimsækir bæði St. Paul’s dómkirkjuna, sem og West- minister Abbey. Krýningarafmæli virðast líka eiga sér langa sögu, en þeim hefur verið fagnað allt frá tímum forn Egypta sem kröfust þessarar stað- festingar á heilsufari faraóanna, þótt hátíðarhöldin hafi efalítið verið með öðru sniði en nú. Sé hins vegar litið aftur til tíma Viktoríu drottn- ingar, sem náði að fagna bæði 50 og 60 ára krýningarafmæli sínu, má sjá að þótt margt hafi breyst, virð- ist áhugi almennings vera samur við sig. En Viktoría er sú breskra kónga og drottninga sem hvað lengst hefur setið við völd, enda var hún krýnd aðeins 19 ára gömul. Há- tíðarhöldin í tilefni af 50 ára krýn- ingarafmæli hennar árið 1887 hóf- ust þannig til að mynda með morgunverði við gröf hennar ást- kæra Alberts prins við Frogmore- kastala, en að honum loknum hélt drottningin til Lundúna þar sem hún tók þátt í hátíðarverði með um 50 þjóðhöfðingjum Evrópu og rík- isstjórum bresku nýlendnanna. Daginn eftir fylgdi indverska ridd- araliðið henni síðan til Westminster Abbey og líkt og bandaríski rithöf- undurinn Mark Twain punktaði hjá sér þá teygðu fylkingar áhorfenda sig „allt að endimörkum sjónlínu til beggja átta“. Eftir komuna til Buckingham var Viktoríu síðan fagnað af fjöldanum þar sem hún stóð á svölum hallarinnar. Tíu árum síðar, er drottning fagnaði 60 árum í embætti, var hins vegar aðeins efnt var til stuttrar þakkargjörðarmessu við St. Paul’s- dómkirkjuna. Viktoría var þá orðin svo hrum að hún gat ekki gengið upp tröppurnar að kirkjuskipinu og var messan því haldin fyrir utan kirkjuna. Að því loknu ók hún í opn- um vagni um götur Lundúna á leið aftur til hallarinnar, en eftir öku- ferðina skrifaði hún í dagbók sína: „Enginn hefur nokkru sinni, að ég held, mætt jafnmiklum fagnaðarlát- um og biðu mín á þessum sex mílna vegakafla … allt ætlaði um koll að keyra og hvert andlit virtist lýsa raunverulegum fögnuði. Ég var verulega hrærð og þakklát.“ Ekki eru þó nema 25 ár liðin frá því að Bretar efndu síðast til hátíð- arhalda í tilefni krýningarafmælis, en árið 1977 fögnuðu þeir 25 ára setu Elísabetar II í hásæti og var þá mikið um götuhátíðir og flug- eldaveislur. Í ár eru hátíðarhöldin öllu formlegri, tónleika og hersýn- ingar ber þar hæst þó minni við- burðir sem sveitarfélög, einstak- lingar, stofnanir, félög og áhuga- hópar standi fyrir setji einnig svip á árið. Áhugi almennings á krýning- arafmælinu hefur líka verið mun meiri en bjartsýnustu menn gerðu sér vonir um og eru skipulagðir við- burðir mun fleiri en var 1977. Það virðist því nokkuð ljóst að Bretar eru upp til hópa ánægðir með drottningu sína og konungs- fjölskylduna, líkt og tregi þeirra til að leggja konungsveldið niður bendir skýrlega til. Konungsfjöl- skyldan hefur enda mikið aðdrátt- arafl fyrir erlenda ferðamenn og er talið að henni beri að þakka millj- ónir punda í ferðamannatekjur á ári hverju. Stoltið nær þá líka dýpra hagsýninni, því ekki eru margir mánuðir frá því að eitt af bresku blöðunum birti lista yfir 100 ástæð- ur þess að það er frábært að vera Breti og fyrir lát drottningarmóð- urinnar var hún þar efst á blaði. Elísabet II á brúðkaupsdag sinn 1947. Demantarnir í kórónu hennar eiga að hafa verið í eigu konungsfjölskyldunnar frá dögum Georgs III. annaei@mbl.is Traust menntun í framsæknum skóla Á rafiðnasviði Iðnskólans í Reykjavík er hægt að velja úr fjórum námsleiðum eftir grunndeild; rafvirkjun, rafvélavirkjun, rafeindavirkjun og símsmíði. Á öllum þessum námsleiðum er bæði bóklegt nám og verklegt og fást nemendur við raunhæf verkefni, svo sem viðgerðir á hljómtækjum, heimilis- tækjum og hönnun ýmiss konar stýringa. Það sem einkennir störf rafiðnaðarmanna eru stöðugar breytingar og nýjungar. Fáar greinar þurfa jafnmikla endur- og símenntun og gera jafnmiklar kröfur til starfsmannaþróunar.IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK Skólavörðuholti • 101 Reykjavík • Sími 522 6500 www.ir.is • ir@ir.is Rafiðnasvið Rafmögnuð framtíðarsýn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.