Morgunblaðið - 02.06.2002, Page 33

Morgunblaðið - 02.06.2002, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 33 að þeim tímum þar sem skilningur stjórnenda fyrirtækja virðist vera að aukast á mikilvægi þess að atvinnulífið rækti félagslegar skyldur sínar í samfélaginu, en eins og Tessa Blackstone bendir á er mikilvægt að sú viðleitni haldi áfram að þróast. Í Bretlandi þar sem upphafið að sam- starfi atvinnulífs og menningar var með líkum hætti og hér, segir hún fyrstu tilraunir hafa snú- ist um að „fá atvinnulífið til að styðja við listir með því að taka þátt í kostnaði við sviðsetningar eða uppsetningar á nýjum sýningum og þess háttar. Helsta markmiðið þá var að fá meira fjár- magn inn í listastarfsemi. Nú hefur þessi viðleitni þróast út í annað og meira; hún snýst um að koma á varanlegri tengslum á milli einstakra listastofnana og atvinnufyrirtækja […], þar sem samstarf á sér stað um lengri tíma í stað þess að snúast um eitt verkefni.“ Íslensk atvinnufyrirtæki munu því vonandi sjá hag sinn í frekara samstarfi við listirnar í fram- tíðinni og reyna að nýta sér þann sköpunarkraft sem þar er að finna á jákvæðan hátt, þannig að báðir aðilar hafi gagnkvæman hag af. Í öllu menningarstarfi býr mikil og dýrmæt menntun sem fyrirtæki geta án efa notfært sér til að auka áræði, hugmyndaauðgi og skapandi þætti innan fyrirtækjanna, ekki síst með tilliti til þeirrar miklu skörunar sem er að verða á öllum sviðum samfélagsins í samtímanum. Mikilvægt frumkvæði Það vekur nokkra eft- irtekt að Listahátíð í Reykjavík er í aukn- um mæli farin að sýna frumkvæði í því að óska eftir verkum frá íslensk- um listamönnum. Slíkt frumkvæði sýnir aukinn styrk hátíðarinnar við að skapa listum frjóan jarðveg og afhjúpar jafnframt möguleika Listahátíðar til að vera atvinnuskapandi, enda er þetta tilvalin leið til að gefa þeim íslensku lista- mönnum sem fram úr skara tækifæri til að sýna hvað í þeim býr. Jafnframt má líta á pantanir á verkum listamanna sem tækifæri fyrir stjórn- endur Listahátíðar til að miðla þeirri þekkingu sem þar safnast á samtímamenningu þjóðarinnar til listahátíðargesta, hvort sem þeir eru skapandi þátttakendur eða áhorfendur. Sem dæmi um þessa ánægjulegu þróun á hátíðinni í vor má nefna hljóðverk Finnboga Péturssonar mynd- listamanns, sem tileinkað var Halldóri Laxness, og afhjúpað í Borgarleikhúsinu við opnunarat- höfnina. Einnig má nefna tónverk Jóns Nordals, sem dæmi um verkefni af þessu tagi, en hann samdi það að beiðni Kammersveitar Reykjavíkur til að frumflytja á Listahátíð, en fjárstyrkur fyrir verkinu fékkst úr Menningarborgarsjóði. Vonir standa til að Sigur Rós semji á næstunni verk í samvinnu við Kronos-kvartettinn eins og fram kom á síðari tónleikum kvartettsins fyrir nokkr- um dögum, en Kronos hélt hér tvenna tónleika á hátíðinni og flutti þá m.a. tvö þekkt verk Sigur Rósar sem hann hafði látið útsetja sérstaklega fyrir sig, en Listahátíð á heiður af því að koma þessu samstarfi fyrir sjónir okkar hér. Í þessu síðastnefnda dæmi skarast íslensk listsköpun og erlend með einkar áhrifamiklum hætti, því flutn- ingur hins heimsfræga Kronos-kvartetts mun án efa auka enn á hróður Sigur Rósar erlendis og væntanlega verða til að víkka út hlustendahóp þeirra enn frekar. En þessi ánægjulega skörun á milli íslenskrar listsköpunar og erlendrar á sér fleiri hliðar en þá sem lýsir sér í samstarfi Sigur Rósar og Kronos- kvartettsins. Fleiri íslenskir listamenn hafa skapað sér starfsgrundvöll og vakið eftirtekt erlendis á und- anförnum árum og eru myndlistarmennirnir Sig- urður Guðmundsson og Ólafur Elíasson lifandi dæmi um það að Íslendingar eiga fullt erindi við hinn alþjóðlega listheim. Báðir sóttu þeir Ísland heim til að taka þátt í Listahátíð að þessu sinni, Sigurður til að afhjúpa fjöruverk sitt við Sæ- brautina og Ólafur með sýningu í myndlistargall- eríinu i8. Að auki vildi svo skemmtilega til að formleg kynning á verki því sem Íslensk erfða- greining pantaði af Ólafi var möguleg á sama tíma og sýning hans var opnuð í i8, en það verk er vissulega einnig vísir að vaxtarbroddi í samstarfi atvinnulífs og samtímalista. Eitthvað fyrir alla Menningarborgarárið 2000 gaf nýjan tón í skipulagningu listahá- tíðarhalda hvað alþýð- leika varðar og þeirri þróun var fylgt eftir á Listahátíð nú þar sem boðið var upp á viðburði við allra hæfi. Óróaseggirnir, fjöllistamenn sem léku loftfimleika fyrir landsmenn þrátt fyrir kulda og trekk í miðbænum, vöktu mikla ánægju, ekki síst þar sem aðgangseyrir var enginn og því á allra færi að fylgjast með. Örleikverkin, sem flutt voru víða um borgina og þar að auki útvarp- að til landsmanna, voru áhugaverð, öllum að- gengileg, og byggðust þar að auki á afhjúpandi samruna leiklistar og myndlistar sem vel mætti þróa áfram. Sápukúlusýning spænskra trúða vakti einnig áhuga margra fjölskyldna og leik- verkið Týndar mömmur og talandi beinagrindur var verðugt framlag til barnamenningar sem nú er sinnt af vaxandi þrótti hér á landi. Þótt stórviðburðir af sígildu tagi á borð við tón- leika Maxim Vengerov og June Anderson og flutning Hollendingsins fljúgandi hafi að sönnu sett svip sinn á hátíðina var einnig mikið úrval viðburða af öðrum toga – nægir að nefna Hrafna- galdur, sígaunasveitina Taraf De Haïdouks og Vocal Sampling í því sambandi. Óhætt er að segja að með þessari breidd í framboði á list eða menningartengdum viðburðum sinni Listahátíð með sóma því hlutverki sínu að mennta þjóðina á sviði menningar og færa það sem listir hafa upp á að bjóða „hvað varðar skilning, gleði og fagur- fræðilega tilfinningu, til mun fleiri þjóðfélags- hópa – og helst til allrar þjóðarinnar“, svo enn sé vitnað í orð Tessu Blackstone. Reglulegur þáttur í þjóðlífinu Ef litið er yfir þró- unina í sögu Listahá- tíðar kemur í ljós að íslenskt menningarlíf hefur eflst mjög mikið á þeim tíma sem hún hefur verið reglulegur þáttur í þjóðlífinu. Það má að sjálfsögðu fyrst og fremst rekja til þess hversu mikill og stór hópur vel menntaðra at- vinnulistamanna er nú starfandi hér á landi, en þó má ekki gleyma því hversu mikilvægt það er að skapa þeim frjóan jarðveg til að stunda sinn skapandi starfa og þar hefur Listahátíð án efa leikið stórt hlutverk. Í viðtalinu við Svein Einarsson, sem vísað var til hér að ofan, ítrekar hann hversu mikilvægt það var að gera sér grein fyrir hlutverki lista í samfélaginu fyrir rúmum þrjátíu árum, og jafn- framt hversu persónuleg tengsl Ashkenazys voru mikilvæg til þess að koma Íslandi í tengsl við umheiminn í því sambandi. Ef til vill eru þau straumhvörf sem nú hafa orðið í starfsháttum Listahátíðar vitnisburður um að flestir séu orðn- ir meðvitaðir um hlutverk listanna í samfélaginu, og jafnframt að við þurfum ekki lengur að reiða okkur á persónuleg tengsl velunnara á borð við Ashkenazy til að fá hingað fólk erlendis frá. Sú þekking sem nauðsynleg er til að koma Íslandi í tengsl við umheiminn er án efa til staðar meðal þeirra sem nú stýra Listahátíð og því afar for- vitnilegt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér í þessu sambandi. Hver veit nema Listahátíð eigi í framtíðinni eftir að verða farvegur til þess að ís- lenskir listamenn hleypi heimdraganum í aukn- um mæli svo þeir geti átt frjóan og framsækinn orðastað við umheiminn í alþjóðlegu samstarfi. Morgunblaðið/Ásdís Frá ylströndinni í Nauthólsvík. Jafnframt má líta á pantanir á verkum listamanna sem tækifæri fyrir stjórnendur Listahátíðar til að miðla þeirri þekk- ingu sem þar safn- ast á samtímamenn- ingu þjóðarinnar til listahátíðargesta, hvort sem þeir eru skapandi þátttak- endur eða áhorf- endur. Laugardagur 1. júní

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.