Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 34
SKOÐUN
34 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
SAMFYLKINGIN
hlaut mikilvæga
traustsyfirlýsingu í
kosningunum sem fóru
fram fyrir sléttri viku.
Traust landsmanna á
hinum unga flokki jafn-
aðarmanna birtist í að
næstum þriðji hver
kjósandi greiddi Sam-
fylkingunni atkvæði í
þeim sextán sveitar-
félögum þar sem hún
bauð fram eigin S-lista.
Fylgi hennar í þeim
nam 31,6 % atkvæða.
Fylgi Samfylkingarinn-
ar í þingkosningunum
1999 var 26,8%. Sam-
fylkingin vann því mikilvægan sókn-
arsigur í kosningunum á laugardag-
inn.
Næststærsti flokkurinn
Til samanburðar reyndist fylgi
Framsóknar vera 23,4% í þeim sveit-
arfélögum þar sem hún bauð fram
eigin lista. Úrslitin sýndu svart á
hvítu, að gott gengi í skoðanakönn-
unum á miðju kjörtímabili þýðir ekki
sjálfkrafa fylgi í kosningum. Vinstri-
grænir, sem misserum saman hafa
siglt hátt í skoðanakönnunum, fengu
aðeins 6,6% atkvæða í þeim sveitar-
félögum sem þeir buðu fram í. Það
var skiljanlega órafjarri væntingum
flokksins.
Fylgi Samfylkingarinnar á laugar-
daginn, 31,6 % atkvæða, leiðir af-
dráttarlaust í ljós, að hún er næst-
stærsti flokkur landsins. Að því leyti
hnigu úrslit kosninganna í sama far-
veg og skoðanakannan-
ir sem síðasta misserið
hafa verið fram-
kvæmdar af vönduðum
stofnunum. Þar hefur
birst hæg en örugg
sókn Samfylkingarinn-
ar. Nokkrar undanfarn-
ar kannanir hafa sýnt
26–28% fylgi flokksins í
Reykjavík, 25% í
Reykjaneskjördæmi og
um 20% annars staðar.
Kosningarnar á laug-
ardaginn sýndu því með
afgerandi hætti að
Samfylkingin er næst-
stærsta stjórnmálaaflið
bæði í landsmálum og í
sveitarstjórnum.
80 bæjarfulltrúar
Sigurinn sem Samfylkingin vann í
kosningunum birtist mjög skýrt í
þeim mikla fjölda bæjarfulltrúa sem
flokkurinn á nú víðs vegar um landið.
Sumir urðu til fyrir tilstilli hreinna
S-lista Samfylkingarinnar. Aðrir
voru meðal þeirra þungavigtarmanna
sem Samfylkingin lagði til í sameig-
inleg framboð. Þar ber vitaskuld
Reykjavík hæst en auk þeirra má
nefna Vopnafjörð, Húsavík, Ólafs-
fjörð, Bolungarvík, Voga svo nokkur
slík séu nefnd.
Í sextán sveitarfélögum voru
hreinir Samfylkingarlistar bornir
fram. Mér reiknast til að í þeim hafi
Samfylkingin fengið samtals kosna
um 45 bæjarfulltrúa. Þetta er vösk
sveit og fjölmenn. Til samanburðar
má nefna, að vinstri-grænir fengu að-
eins 4 fulltrúa í þeim sveitarfélögum
þar sem þeir buðu fram hreina VG
lista.
Fráleitt er þarmeð sögð öll sagan
um hinn nýja styrk Samfylkingarinn-
ar á sveitarstjórnarstiginu. Mjög
margir samfylkingarmenn voru
kosnir í bæjarstjórnir af sameiginleg-
um listum. Þegar þeir eru taldir fjölg-
ar flokksbundnum samfylkingar-
mönnum í bæjarstjórnum landsins í
að minnsta kosti 80 fulltrúa.
Úrslitin fela því í sér gríðarleg og
jákvæð umskipti fyrir Samfylk-
inguna. Hún er með ótvíræðum hætti
orðin næststærsti stjórnmálaflokk-
urinn og á mjög marga fulltrúa í
sveitarstjórnum landsins. Þessi
breytt staða Samfylkingarinnar birt-
ist í því að þessa dagana er hún í óða
önn að mynda meirihluta í mörgum
bæjarfélögum.
Hafnarfjörður og Siglufjörður
Utan Reykjavíkur fólust stærstu
tíðindi kosninganna í sögulegum sigri
Samfylkingarinnar í Hafnarfirði.
Hún náði sex bæjarfulltrúum, og
hlaut hreinan meirihluta, þrátt fyrir
mjög góða kosningu sjálfstæðis-
manna í bænum. Stórsigur Samfylk-
ingarinnar í Hafnarfirði er líklegur til
að koma í veg fyrir að hafnfirsku til-
rauninni, sem Sjálfstæðisflokkurinn
framkvæmdi með því að innleiða
einkavæðingu í grunnskólann í Hafn-
arfirði, verði haldið áfram annars
staðar þar sem sjálfstæðismenn náðu
meirihluta. Pólitískar afleiðingar
verða því að líkindum mestar vegna
úrslitanna í Hafnarfirði.
Á öllu suðvesturhorninu er staða
Samfylkingarinnar nú mjög góð. Hún
fékk 33,1% í Reykjanesbæ, 43% í
Grindavík, framboð sem flokkurinn
studdi og lagði til burðarása í náðu
57,5% í Vogunum og 42,5% í Sand-
gerði. Í Kópavogi fékk Samfylkingin
28,3%, og 32,4% á Akranesi.
Á Norðurlandi er Samfylkingin
einnig í öflugri sókn víða. Framboð á
hennar vegum hlaut hreinan meiri-
hluta á Siglufirði. Fyrir flesta aðra en
innvígða samfylkingarmenn voru það
óvænt tíðindi. Mikil áhersla á starf
flokksins í bænum, og geysiötull sigl-
firskur þingmaður flokksins gerðu
hins vegar að verkum að hreinn
meirihluti á Siglufirði var talinn
raunhæft markmið. Það gekk eftir. Á
Ólafsfirði vannst líka meirihluti af
lista, sem Samfylkingin lagði þunga-
vigtarmenn til.
Sameinaður listi vinstri manna,
með öflugum fulltrúum Samfylking-
arinnar, hélt meirihluta sínum á
Húsavík. Samfylkingin var sömuleið-
is sterk á sameinuðum lista sem vann
meirihluta á Vopnafirði. Í Fjarðar-
byggð náði Fjarðarlistinn, náskyldur
ættingi Samfylkingarinnar, ekki að
halda hreinum meirihluta að þessu
sinni. Án efa verður hann þó ráðandi í
þeim meirihluta sem veður myndað-
ur í bæjarstjórn Fjarðarbyggðar.
Samfylkingin mun ekki liggja á liði
sínu til að hreinn meirihluti Fjarðar-
listans vinnist aftur í næstu kosning-
um.
Umskipti á Suðurlandi
Hinn nýi styrkur Samfylkingar-
innar birtist líka með glæsilegum
hætti í stóru sveitarfélögunum á Suð-
urlandi. Þar hafa orðið alger um-
skipti. Sókn Samfylkingarinnar felldi
meirihluta í Vestmannaeyjum, Ár-
borg, og Hveragerði. Þegar þetta er
ritað er útlit fyrir að Samfylkingin
gæti myndað meirihluta í fjórum
stærstu sveitarfélögunum í kjör-
dæminu.
Í Árborg varð pólitískur jarð-
skjálfti. Sterkir frambjóðendur,
sterk málefni og vel útfærð barátta
færði flokknum 14% sveiflu. Hann
stökk úr 26% í 40%. Samfylkingin er
nú langstærsti stjórnmálaflokkurinn
í Árborg. Í Hveragerði urðu líka
gagnger umskipti. Samfylkingin
stórjók fylgi sitt og hlaut 26,4% at-
kvæða. Þar er þegar búið að mynda
meirihluta með atbeina flokksins.
Í Vestmannaeyjum féll meirihluti
sjálfstæðismanna. Þar réð mestu að
Vestmannaeyjalistinn, sem þingmað-
ur Samfylkingarinnar leiddi, hélt
þremur bæjarfulltrúum, þrátt fyrir
að Framsókn hefði klofið sig frá list-
anum fyrir kosningarnar. Samfylk-
ingin réð þannig úrslitum um niður-
stöðuna í Eyjum.
Sigurinn í Reykjavík
Stórsigur Reykjavíkurlistans var
mjög mikilvægur fyrir Samfylk-
inguna. Ein leið stjórnmálaflokka til
valda í íslenskum stjórnmálum liggur
um borgarstjórn Reykjavíkur. Það
skýrir hina gríðarlegu áherslu Sjálf-
stæðisflokksins á að vinna borgina.
Samfylkingin hefur lagt til bæði
burðarása og þverbita í Reykjavík-
urlistann. Borgarstjórinn, sem er
einn öflugasti stjórnmálamaður
landsins í dag, kemur úr röðum Sam-
fylkingarinnar. Hún á langmestan
þátt í sigri hans, og án persónulegra
yfirburða Ingibjargar Sólrúnar er
óvíst um niðurstöðuna. Það er heldur
ekkert leyndarmál að borgarstjórn
Reykjavíkur tengjast upprennandi
stjórnmálamenn á vegum Samfylk-
ingarinnar, sem seta í borgarstjórn
mun bæði þroska og efla til átaka á
öðrum vettvangi þegar fram í sækir.
Sigur okkar í Reykjavík var satt að
segja aldrei í hættu. Þegar Björn
Bjarnason og aðrir reyna að sjá
vatnaskil í kosningabaráttunni í
kringum einstaka atburði gleyma
þeir að skoða kosningabaráttu
R-listans. Hún var háð af fjárhags-
legum vanefnum, miðað við for-
dæmalausan fjáraustur sjálfstæðis-
manna. Kosningabaráttan var
skipulögð á þeim forsendum. Frá
upphafi var gert ráð fyrir að bæði
fjárhagslegu og starfslegu atgervi
baráttunnar yrði einhent á síðustu 7–
10 dagana. Þá fyrst var Stóra-Berta
dregin fram og látin skjóta. Það
dugði.
Styrkleikapróf
Morgunblaðsins
Á kosningadaginn sagði í leiðara
Morgunblaðsins að kosningarnar
væru styrkleikamæling fyrir flokk-
ana. Samfylkingin væri að fara í
fyrstu sveitarstjórnarkosningarnar
frá því flokkurinn varð til. Útkoma
hennar og sameiginlegra framboða á
vinstri vængnum, þ.m.t. Reykjavík-
urlistans, myndi ráða miklu „um
þann byr sem Samfylkingin fær fyrir
þingkosningarnar“. Leiðarahöfundur
tók sérstaklega fram, að fyrir vinstri-
græna væri mikilvægt að „fá góða út-
komu þar sem þeir bjóða fram eigin
lista, til að staðfesta að það fylgi, sem
flokkurinn hefur mælst með í skoð-
anakönnunum á landsvísu, sé til í
raunveruleikanum.“
Þessi greining Morgunblaðsins á
laugardaginn var hárrétt. Niðurstaða
kosninganna hlaut að verða styrk-
SÆTIR SIGRAR SAM-
FYLKINGARINNAR
Össur
Skarphéðinsson
Úrslitin sýndu svart á
hvítu, segir Össur
Skarphéðinsson, að gott
gengi í skoðanakönn-
unum á miðju kjör-
tímabili þýðir ekki sjálf-
krafa fylgi í kosningum.