Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 37
Samtökin saka Ísraelsher um að hafa haft óbreytta borgara sem skjöld fyrir sér þegar farið var inn í búðirnar, en svipaðar ásakanir hafa reyndar verið fram bornar á hendur palestínskum skyttum, sem feli sig á bak við börn og unglinga. Hvað er annars á bak við þessar tölur: 23 ísraelskir hermenn og 48 Palestínumenn? Aldrei hefðu slíkar tölur komið út úr árásum Rússa á höfuðborg Tsjetsjena, Groznij eða hernaði Bandaríkjamanna í Afgan- istan. Vegna þess að þau stórveldi spara líf sinna hermanna með því að varpa sprengjum úr lofti á þá sem andóf veita og senda helst ekki menn sína á vettvang fyrr en þaggað hefur verið niður í vopnum með gífurlegu sprengjuregni sem enginn veit hve marga hæfir. Ísraelsher hefur vafa- laust gert margt af sér í Jenín og víð- ar – en hann beitti ekki lofthernum, heldur barðist hús úr húsi. Engu að síður hafa menn hátt um að annan eins glæp hafi heimurinn ekki séð lengi. Franskir hershöfðingjar sögðu það við fréttaritara Le Monde fyrir skömmu, að það sem Ísr- aelsmenn gerðu í Jenin hefði verið verra en nokkuð sem Frakkar gerðu í Alsír meðan þar var barist. Frétta- ritarinn var víst nokkuð hissa á þeim samanburði, því í því stríði voru um miljón Alsírmenn drepnir. Víða um Evrópu er semsagt látið eins og Ísraelar séu að gera eitthvað hliðstætt og Þjóðverjar gerðu Gyð- ingum eða Frakkar Alsírbúum og haldi svo hver áfram. Menn spyrja sig hvernig á þessu stendur. Sum svör athyglisverð eru á þessa leið: Margir Evrópumenn finna til ónota í sálinni vegna útrýmingar evrópskra gyðinga í heimsstyrjöldinni síðari. Vegna þess að margir urðu með nokkrum hætti meðsekir: menn horfðu í aðra átt, lokuðu landamær- um fyrir flóttafólki, aðstoðuðu þýska hernámsliðið beint og óbeint. Þá kemur upp einskonar þörf fyrir að menn teygi sig út fyrir alla skynsemi og réttsýni í dómum sínum um Ísr- aela til að segja: sjáiði bara, gyðingar geta líka drepið fólk. Þeir eru engu betri en við. Og þá sýnist það sem við Evrópumenn gerðum, kristnir og siðaðir, einhvern veginn ekki alveg eins skelfilegt og einstakt. Það er eftir því tekið, að hinn nýi gyðinga- fjandskapur (með hatursskrifum og hermdarverkum á samkomuhúsum, grafreitum og víðar) er sérlega út- breiddur í Frakklandi (samanber einnig orð frönsku hershöfðingjanna sem áður var vitnað til). Og einmitt í Frakklandi hafa menn verið mjög seinir til að fjalla um ýmsar smán- arhliðar furðu náinnar samvinnu franskrar lögreglu, íhaldsmanna og fleiri aðila við þýskt hernámslið á stríðsárunum – og þá ekki síst við framkvæmd Helfarar. Að hafa rétt fyrir sér Grein um þessi efni getur orðið óendanlega löng, ekki síst ef rekja ætti sögu einstakra þátta málsins. Látum nægja að geta þess hér, að hver sá sem les sér af þolinmæði til um sögu átaka í Miðjarðarhafsbotn- um á von á mörgu óvæntu – og kemst helst að þeirri niðurstöðu að þau séu á margan hátt engum öðrum deilum og stríðum lík. Ekkert er sem sýnist. Allan málflutning verður að taka með fyrirvara. Og í því ástandi sem nú ríkir skiptir mestu að hver og einn fylli sína litlu teskeið með vatni til að stökkva á ófriðarbál eins og sá ágæti höfundur Amos Oz kemst að orði. Og þá er ekki ráðlegt að láta þá sem fylgja fram sínum málstað af mestri hörku halda að þeir einir hafi rétt fyrir sér. Þeir sem Ísraelar hlusta á þurfa að brýna það sem rækilegast fyrir ráðamönnum að Palestínuríki hljóti að verða til og landtökubyggðir að víkja. Þeir sem Arafat og hans menn hlusta á þurfa að vita að sættir munu aldrei takast nema hægt sé að kveða niður í raun og veru þau samtök, herská og vopn- uð, sem ekki vilja unna sér hvíldar fyrr en búið er að tortíma Ísrael. Yezid Sayigh, fyrrum einn af samn- ingamönnum Palestínumanna, segir í nýlegri grein, að þeir Sharon og Arafat hafi hvorugir til að bera hug- rekki eða pólitíska framsýni til að fást við þá menn í sínum eigin röðum sem berjast gegn hverri málamiðlun af mestri hörku. Þeir haldi því áfram að treysta á vopnaðan þrýsting í von um að einhver ófyrirséð framvinda mála verði til þess að skera þá niður úr þeirri snöru sem þeir hafa flækt sig í. Mestu varðar að hafa slíka hluti til hliðsjónar – en taka ekki hugs- unarlaust undir einföld heróp þeirra sem eru strax búnir að finna sér sökudólg í hverju máli. Heróp sem í þessu dæmi hér bera sorglega sterk- an keim af gyðingahatri sem er sterkari þáttur í evrópskum hugsun- arhætti en flestir kæra sig um að við- urkenna. Höfundur er rithöfundur. SKOÐUN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 37 Stiga sláttuvélar Hjá okkur er mikið úrval af hinum vel þekktu Stiga sláttuvélum. Aðalsmerki Stiga eru gæði og góð ending. Ef þú vilt hafa garðinn þinn grænan í sumar komdu þá til okkar og skoðaðu úrvalið. Askalind 4 Vetrarsól er flutt að í Kópavogi Vetrarsól - Askalind4 - Kópavogi - Sími 5641864 A U G L Ý S I N G A S E T R I Ð
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.