Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 49
HUGVEKJA
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 49
ÞEGAR ég var í barna-skóla á Siglufirði, í tíueða ellefu ára bekk,sem þá hét, var okkureinhverju sinni uppá-
lagt að skrifa ritgerð um það,
hvað við ætluðum að verða þeg-
ar við yrðum stór. Ég man að ég
ætlaði að verða sjómaður. Afi
minn hafði verið útvegsbóndi í
Grímsey, faðir minn einnig verið
sjómaður um tíma, og bræður
mínir líka, á hinum ýmsu bátum
og skipum. Ég var ákaflega
stoltur af þeim. Og ég ætlaði sko
ekki að verða eftirbátur þeirra.
Þetta var á þeim tíma, þegar
aðalskip Siglfirðinga var Hafliði
SI 2, gamli síðutogarinn. Þangað
skyldi ég fara og vera.
En svo liðu árin. Maður hafði
um annað að hugsa, og sjó-
mennskan varð að bíða. Og ein-
hvern veginn æxlaðist það svo,
að ég fór aðra leið en ég hafði
ákveðið forðum, þarna á harða
stólnum í litlu kennslustofunni
hjá Sigþóri kennara.
Allt þetta flaug um huga minn
nú fyrir skemmstu, þegar ég var
að hugleiða texta sjómannadags-
ins, um bátinn í öldurótinu. Inn í
það blandaðist mynd af altaris-
töflu Siglufjarðarkirkju, verk
Gunnlaugs Blöndal listmálara,
þar sem Jesús gengur á vatninu,
segjandi: „Það er ég, óttist eigi.“
Fjölskylda mín var heppin.
Alltaf komu þeir heim, afi minn,
faðir og bræður, þótt litlu mun-
aði stundum. Ekki hafa allir get-
að fagnað slíku láni í gegnum
aldirnar, að heimta ástvinina lif-
andi úr greipum sjávarins, eftir
dimm veður og ill. Margar eru
þær fjölskyldur, sem eiga um
sárt að binda eftir þau viðskipti,
og hafa mátt sjá á eftir feðrum
og börnum, án þess að hafa get-
að komið þeim til bjargar. En
baráttan við náttúruöflin og
harðneskju lífsins efldi mann-
kosti, þolgæði, kjark og dugnað
þessa fólks – með hjálp trú-
arinnar á almættið, sem breiddi
líkn og frið yfir hverja raun.
Vegna staðhátta á þessu harð-
býla eylandi sem við byggjum,
eigum við að mörgu leyti auð-
veldara með að setja okkur inn í
frásögu Matteusarguðspjalls (8:
23–27) heldur en margar aðrar
þjóðir. Við getum að nokkru
leyti hermt eigin reynslu og um-
hverfi upp á hana, getum sett
okkar hyrndu klettaborgir og
fjöll í stað hæðanna í Galíleu í
Palestínu, og firði okkar og djúp
í stað Genesaretvatnsins. Og
skip okkar í stað bátsins litla,
sem lærisveinarnir velktust á.
Og þá erum við nánast komin
með þennan atburð hingað, yfir
2000 ára víðáttu í tíma.
Veðrið og hafið þarf ekki að
túlka eða heimfæra. Þau hafa
ávallt verið tákn fyrir allt hið
villta og eyðandi, hið ótamda og
óræða. Óskapnaðinn sjálfan.
Þann hluta veraldarinnar, sem
Guð setti lausar skorður, þegar
hann bjó lífinu skilyrði á jörð-
unni. Vindur og haf voru á dög-
um Jesú, eins og í dag, utan
þess, sem menn fá hamið. Þau
voru samnefnari allra þeirra
ógnarafla, er steðjuðu að mann-
heimi. Þess vegna er frásagan
um björgunina sterkur vitn-
isburður til okkar um það, að við
þurfum ekki að óttast, ef við trú-
um.
Orðin, sem Jesús sagði forð-
um við Matteus tollheimtumann
og síðar guðspjallamann, voru
ekki mörg, heldur einungis þrjú:
„Fylg þú mér.“ En þessi orð
voru áhrifarík. Og þau hrifu
fleiri. Þar á meðal nokkra fiski-
menn. Hann vildi fá þá í lið með
sér, vildi hafa þá í áhöfn sinni.
Þetta var fyrir margt löngu.
Hvaða erindi skyldi hann eiga
við íslenska sjómannastétt í
dag? Á öld tækni og framfara,
sem varla og ekki hefur rúm
fyrir Guð? Vill hann nokkuð með
sjómenn hafa að gera, deyjandi
stétt, eða þeir hann?
Ég svara þessu hiklaust ját-
andi. Að sjálfsögðu vill Kristur
enn sem fyrr munstra þá á lífs-
skútuna, sem hefur inni að halda
þriðjung allra jarðarbúa, alls um
tvö þúsund milljónir ein-
staklinga, tvo milljarða. Og hann
vill svo gjarnan fá þá í áhöfnina
vegna þess, að hann veit, að í
þeirra röðum á hann marga sína
dyggustu liðsmenn, eins og fyrr-
um daga og alla tíð þaðan. Og
auðvitað vill hann alla hina líka,
okkur sem vinnum í landi eða
annars staðar, en ég nefni sjó-
mennina hér alveg sérstaklega
vegna dagsins þeirra.
Eins og ég gat um hér í upp-
hafi, varð lítið úr sjómanns-
draumum mínum frá barna-
skólaárunum. En ég hef alla tíð
hugsað vel til sjómanna, litið
upp til þeirra fyrir þau verk,
sem þeir inna af hendi, oftast
víðs fjarri heimahögum og ást-
vinum, langtímum saman. Og
þeir munu halda áfram að eiga
hug minn og bestu óskir, alla
tíð.
Ef grannt er skoðað, er ég –
eins og reyndar við öll, kristið
fólk – þó ekkert annað en sjó-
maður, og þeir aftur bræður
mínir og systur, ef athuguð er
táknræn merking skútunnar, en
hún er kirkjan, sem hið trausta
fley okkar mannanna á siglingu
um mislyndan veraldarsjóinn, til
ákvörðunarstaðarins á himnum.
Þetta er með elstu táknum krist-
inna manna, á sér rætur allt aft-
ur til 2. aldar e.Kr. og jafnvel
dýpra en það.
Til hamingju með daginn, sjó-
menn.
Þeir sem aldrei náðu til hafn-
ar séu Guði vígðir um eilífð.
Sjómaður
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
Sjómannadagurinn
er í dag. Víða er hon-
um fagnað, einkum í
sjávarplássunum, en
þó ekki alls staðar af
jafn miklum krafti og
á árum áður. Því
miður. Sigurður
Ægisson lítur hér til
íslenskra sjómanna
fyrr og nú, og tekur
ofan fyrir þeim. Að
sjálfsögðu.
Staður Nafn Sími 1 Sími 2
Akranes Jón Helgason 431 1347 431 1542
Akureyri Skrifstofa Morgunblaðsins 461 1600
Bakkafjörður Stefnir Elíasson 473 1672
Bifröst Bára Rúnarsdóttir 435 0054
Bíldudalur Pálmi Þór Gíslason 456 2243
Blönduós Gerður Hallgrímsdóttir 452 4355 868 5024
Bolungarvík Nikólína Þorvaldsdóttir 456 7441 867 2965
Borgarnes Þorsteinn Viggósson 437 1474 898 1474
Breiðdalsvík Skúli Hannesson 475 6669 894 2669
Búðardalur Anna María Agnarsdóttir 434 1381
Dalvík Halldór Reimarsson 466 1039 862 1039
Djúpivogur Sara Dís Tumadóttir 478 8161
Egilsstaðir Páll Pétursson 471 1348 471 1350
Eskifjörður Björg Sigurðardóttir 476 1366 868 0123
Eyrarbakki R. Brynja Sverrisdóttir 483 1513 699 1315
Fáskrúðsfjörður Jóhanna Sjöfn Eiríksdóttir 475 1260/853 9437/475 1370
Flateyri Hjördís Guðjónsdóttir 456 7885
Garður Álfhildur Sigurjónsdóttir 422 7310 699 2989
Grenivík Ólína H. Friðbjarnardóttir 463 3131
Grindavík Kolbrún Einarsdóttir 426 8204 426 8608
Grímsey Ragnhildur Hjaltadóttir 467 3148
Grundarfjörður Bjarni Jónasson 438 6858/854 9758/894 9758
Hella Brynja Garðarsdóttir 487 5022 892 1522
Hellissandur Sigurlaug G.Guðmundsdóttir 436 6752 855 2952
Hnífsdalur Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Hofsós Jóhannes V. Jóhannesson 453 7343
Hólmavík Ingimundur Pálsson 451 3333 893 1140
Hrísey Siguróli Teitsson 466 1823
Húsavík Bergþóra Ásmundsdóttir 464 1086 893 2683
Hvammstangi Gunnar Þorvaldsson 451 2482 894 5591
Hveragerði Imma ehf. 483 4421 862 7525
Hvolsvöllur Helgi Ingvarsson 487 8172/893 1711/853 1711
Höfn Ólafía Þóra Bragadóttir 478 1786 896 1786
Innri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 862 3281
Ísafjörður Auður Yngvadóttir 456 5477 893 5478
Keflavík Elínborg Þorsteinsdóttir 421 3463 896 3463
Kirkjubæjarkl. Birgir Jónsson 487 4624 854 8024
Kjalarnes Haukur Antonsson 566 8372 895 7818
Kópasker Hrönn Guðmundsdóttir 465 2112
Laugarás Reynir Arnar Ingólfsson 486 8913
Laugarvatn Berglind Pálmadóttir 486 1129 865 3679
Neskaupstaður Sólveig Einarsdóttir 477 1962 848 2173
Ólafsfjörður Árni Björnsson 466 2347 866 7958
Ólafsvík Laufey Kristmundsdóttir 436 1305
Patreksfjörður Björg Bjarnadóttir 456 1230
Raufarhöfn Alda Guðmundsdóttir 465 1344
Reyðarfjörður Guðmundur Fr. Þorsteinsson 474 1488/892 0488/866 9574
Reykholt Bisk. Guðmundur Rúnar Arneson 486 8797
Reykhólar. Ingvar Samúelsson 434 7783
Reykjahlíð Mýv. Pétur Freyr Jónsson 464 4123
Sandgerði Sigurbjörg Eiríksdóttir 423 7674 895 7674
Sauðárkrókur Ólöf Jósepsdóttir 453 5888/854 7488/865 5038
Selfoss Jóhann Þorvaldsson 482 3375 899 1700
Seyðisfjörður Margrét Vera Knútsdóttir 472 1136 863 1136
Siglufjörður Sigurbjörg Gunnólfsdóttir 467 1286 467 2067
Skagaströnd Þórey og Sigurbjörn 452 2879 868 2815
Stokkseyri Kristrún Kalmansdóttir 867 4089
Stykkishólmur Erla Lárusdóttir 438 1410 690 2141
Stöðvarfjörður Sunna Karen Jónsdóttir 475 8864
Suðureyri Tinna Sigurðardóttir 456 6244
Súðavík Ingibjörg Ólafsdóttir 4564936
Tálknafjörður Sveinbjörg Erla Ólafsdóttir 456 2676
Vestmannaeyjar Jakobína Guðlaugsdóttir 481 1518 897 1131
Vík í Mýrdal Hulda Finnsdóttir 487 1337 698 7521
Vogar Hrönn Kristbjörnsdóttir 424 6535 557 5750
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir 473 1289 473 1135
Ytri-Njarðvík Eva Gunnþórsdóttir 421 3475 868 3281
Þingeyri Sigríður Þórdís Ástvaldsdóttir 456 8233 456 8433
Þorlákshöfn Ragnheiður Hannesdóttir 483 3945 483 3627
Þórshöfn Ragnheiður Valtýsdóttir 468 1249
Dreifing Morgunblaðsins
Hér eru upplýsingar um þá sem dreifa blaðinu á landsbyggðinni
Breidd 60 sm.
Verð frá kr. 29.880,-
Breidd 90 sm.
Verð frá kr. 44.820,-
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Skeifan 2 • 108 Reykjavík
S. 530 5900 • Fax 530 5911
www.poulsen.is
Baðinnréttingar
Spegill m. ljósi fylgir.
Hvítt eða viðarlitt.
Bjóðum RC íbúðarhús, sumarhús og fjölnotahús, stór og lítil
RC Hús, Sóltún 3, 105 Rvík. s. 511 5550
Veffang: www.rchus.is Netfang: rchus@rchus.is
Vegna nýrra samninga á efni og hönnun tilkynnum við nú allt að
1,5 millj. króna VERÐLÆKKUN á sumarhúsum, frá og með
13. maí 2002. Höfum yfir 60 teikningar af sumarhúsum og á annað
hundrað teikningar af íbúðarhúsum.
VERÐLÆKKUN!
Þetta hús lækkar um kr. 1,500,000.-
Ármúla 36 • 108 Reykjavík
Sími 568 8866
NÝLEGA var haldin svokölluð
stóra Blackpool-keppnin, eins og
hún er nefnd á Íslandi. Þetta er ein
sterkasta danskeppni sem haldin er
í heiminum í dag og þar áttu Íslend-
ingar 2 pör. Keppt var í flokki ung-
menna, áhugamanna, atvinnu-
manna og í flokki fullorðinna.
Karen og Adam Reeve frá ÍR
kepptu í flokki atvinnumanna og
Robin og Elísabet Sif Haraldsdóttir
frá Dansfélaginu Hvönn í Kópavogi
kepptu í flokki áhugamanna.
Í flokki atvinnumanna í Rising
Star-keppninni komust Karen og
Adam í undanúrslit, segir í frétta-
tilkynningu.
Karen og
Adam í und-
anúrslit
FRÉTTIR