Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 50

Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 50
50 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ                                         ! BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Á UNDANFÖRNUM árum hefur göngustígum á höfuðborgarsvæðinu fjölgað, þeir lengst og verið tengdir saman. Það hefur fólk kunnað að meta og á góðviðrisdögum eru hundruð manna sem nota stígana sér til ánægju og heilsubótar. Sú leið sem mér finnst einna skemmtilegust er gönguleiðin fyrir Seltjarnarnes. Á þeirri leið er margt að sjá og hefur, Lionsklúbbur Seltjarnarness víða komið fyrir smekklegum skiltum með upplýsingum um dýralíf og sögu viðkomandi staða. Utarlega á nesinu var mikið og gamalt innsiglingamerki sem hrundi í miklu sjávarróti fyrir nokkru. Hét það Suðurnesvarða. Þessi varða var úr grjóti, á að giska fjögurra metra há og tel ég að grunnflötur hennar hafi verið um sjö fermetrar. Senni- lega hefur þetta verið ein stærsta varða landsins. Á þessum stað höfðu verið innsiglingamerki öldum sam- an, sem oft hrundu í foráttubrimum en voru ætíð hlaðin að nýju. Legg ég til að Seltjarnarnesbær láti endurreisa Suðurnesvörðu. Með nútíma vinnuvélum og tækni ætti það ekki að vera tímafrekt eða erfitt. Að sjálfsögðu fylgir því nokkur kostnaður en e.t.v. væri hægt að fá nokkra útgerðarmenn (sægreifa) til að styrkja verkefnið. Trúlega eru einhverjir í þeirra röðum sem hafa áhuga á minjum sem tengjast sjávarútvegi. Nokkru norðar við þennan stað stendur stórt steinsteypt varðskýli frá stríðsárunum, sem staðist hefur ótrúlega vel tímans tönn. Frá því var fylgst með skipaferðum um sundin. Við skýlið er ekkert skilti með upplýsingum um það. Sjórinn er farinn að grafa undan skýlinu og ef ekkert er að gert, er bara dagaspursmál hvenær það hverfur í hafið. Auðvelt er að bjarga varðskýlinu með því að hlaða stórgrýti fyrir framan það. Frá varðskýlinu lá símalína í virki efst á Valhúsahæð. Þar höfðu Bretar komið fyrir tveimur stórum fall- byssum, en með þeim átti að verja innsiglinguna til Reykjavíkur. Þegar Bretar fóru í stríðslok, skildu þeir fallbyssurnar eftir. Íslendingar vildu að sjálfsögðu hafa eitthvert gagn af fallbyssunum og kom ekkert gáfulegra í hug en að losa þær af undirstöðunum, með mikilli fyrirhöfn, og steypa þeim síð- an í Reykjavíkurhöfn til uppfyllingar í hafnargarðinn út í Örfirisey. Við höfnina í Þórshöfn í Færeyj- um settu Bretar upp sams konar fall- byssu. Eftir því sem ég best veit er hún þar enn og vekur mikla athygli ferðamanna. Það væri ekki úr vegi að tækni- menn Seltjarnarnesbæjar verði sér úti um málmleitartæki og leiti að fallbyssunum. Ef þær finnast, verði þær grafnar upp og reynist þær í góðu ástandi, verði þeim komið fyrir að nýju á Sel- tjarnarnesi. ÞÓRIR HALLGRÍMSSON, Holtagerði 49, Kópavogi. Fallbyssur á Seltjarnarnes Frá Þóri Hallgrímssyni: SAMKVÆMT alþjóðalögum er her- námsríki óheimilt að reka íbúa af hernumdum svæðum og einnig er hernámsríki óheimilt að nema land á slíkum svæðum. Í Palestínu hefur Ísraelsríki þverbrotið þessa laga- bálka gróflega. Í alþjóðalögum er skýrt kveðið á um að óbreyttir borgarar hafi fullan rétt til að berjast gegn erlendu her- námsliði. Mikilvægt er að ljáð sé máls á þessu vegna átakanna sem nú eru fyrir botni Miðjarðarhafs. Hernám Ísraels í Palestínu hefur nú staðið í 35 ár. Síðan það hófst hafa Ísraelar notað hernumdu svæðin undir ólöglegar byggðir gyð- inga. Í Palestínu eru um 400 ólöglegar gyðingabyggðir og í þeim búa um 400.000 manns. Þessum byggðum fjölgar stöðugt þrátt fyrir gefin fyr- irheit og margundirritaða samn- inga. Útlit er fyrir að núverandi rík- isstjórn í Ísrael hafi í hyggju að halda þessu landráni áfram fremur en að hætta því. Efraim Sneh, sam- gönguráðherra Ísraels, hefur stað- hæft að ef byggðunum fjölgi mikið meira muni það útiloka sjálfstætt ríki Palestínumanna. Sneh hefur þó fullyrt að hann sé andvígur frekari landvinningum. Í skýrslu mannréttindasamtak- anna Amnesty International frá árinu 1999 um Ísrael og hernumdu svæðin kemur fram að Ísraelsher eyðilagði a.m.k 2.650 palestínsk heimili á Vesturbakkanum og í Austur-Jerúsalem það ár. Afleiðing- ar þess voru að 16.700 Palestínu- menn misstu heimili þ.m.t 7.300 börn. Þessi níðingsverk voru framin löngu fyrir palestínsku uppreisnina gegn hernáminu og mánuðum áður en sjálfsmorðsárásir hófust í Ísrael. Ísraelsk kona, Neta Golan að nafni, hefur búið í palestínsku borg- inni Ramallah í rúmt hálft ár. Hún fullyrðir að hernámið hafi skapað ógnina sem ísraelska þjóðin búi við nú. Hún segir að sjálfsmorðsárásir Palestínumanna hjálpi ekki málstað þeirra og séu fordæmanlegar. En bíðum við, segir hún, ef maður króar af kött út í horni og ræðst síðan á hann veit maður hvernig kötturinn bregst við. Því miður eru þessi orð Netu Gol- an raunhæf lýsing á þeim átökum sem nú eru fyrir botni Miðjarðar- hafs. SIGURÐUR ÞÓRARINSSON, Selvogsgrunn 22, Reykjavík. Hernám og ólöglegir landvinningar Frá Sigurði Þórarinssyni:

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.