Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 51
BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 51 FASTEIGNIR Á COSTA BLANCA Á SPÁNI Símar á Íslandi: 699 0044, 696 1450. Sími á Spáni 00 34 65990 6690 EUROFORMA S.L. OG FOLD FASTEIGNASALA KYNNA UM HELGINA Vandaðar og fallegar eignir - Allt að 80% kaupverðs lánað til 20 ára Íslenskir sölumenn á Spáni og hér heima bjóða ykkur velkomin á kynningarfund í dag, sunnudag, 2. júní á Hótel Loftleiðum milli kl. 13-17. Kaffi á könnunni. meistar inn. is ÁBYRGÐ ÁREIÐANLEIKI Nýnemar sem hyggja á nám við Háskóla Íslands í haust geta sótt um húsnæði á stúdentagörðum fyrir næsta skólaár, frá og með 1. júní á www.studentagardar.is. Eldri stúdentar geta sótt um allt árið. Umsóknir um vist á Stúdentagörðum Allar frekari upplýsingar, myndir og umsóknir er að finna á heimasíðunni: Kíktu í heimsókn og kynntu þér málið! ÁGÆTI verðandi bæjarstjóri, Árni Sigfússon. Um leið og við hjónin ósk- um þér til hamingju með kosningarn- ar vil ég minnast á málefni varðandi stjórnsýsluna í Reykjanesbæ sem ég tel betra að þér sé kunnugt um þegar þú tekur við yfirverkstjórn Reykja- nesbæjar á núverandi kjörtímabili. Ekki það að við hjónin vantreystum þér til verksins. Heldur hitt, að bæj- arstjóraembættið virðist snúið og í embættismannakerfi bæjarins eru misjafnir sauðir, sem og annars stað- ar. Þá vil ég reifa hugmynd þess efnis að þú komir upp tvöföldu eftirlits- kerfi með stjórnsýslunni í Reykja- nesbæ þannig að tryggt verði að þröngir einkahagsmunir embættis- eða bæjarráðsmanna blandist ekki málefnum stjórnsýsluákvarðana og geri umsýslu og lagasetningar tor- tryggilegar. Sendi þér tvö dæmi sem betur mættu fara: Að komast upp með að hirða lóðir af fólki, án bóta. Fyrrverandi meirihluti og emb- ættismannakerfi Keflavíkur notaði tækifærið þegar við keyptum húsið okkar fyrir 10 árum og hirti til sín, með einhliða þinglýstri yfirlýsingu, sneið af eignarlóð okkar við Hafnar- götu 18 upp á 122 fm, – sagði það vegna skipulagsbreytinga á svæðinu. Þegar leitað var leiðréttinga eða bóta var svarið að „þetta hafi verið fram- kvæmt með löggjörningi, rétt áður en við eignuðumst hús og lóð og kæmi okkur því ekki við“. Þó keypt- um við eignina með þeim formerkj- um „að henni fylgdi það sem fylgja bar“, þar með taldir umræddir fer- metrar. Við höfum ítrekað reynt að fá þessum gjörningi aflýst án árang- urs. Þess skal getið að bærinn á ekk- ert afsal eða annan eignarnáms- gjörning fyrir þessum fermetrum. Einungis áðurnefnda yfirlýsingu. Þá vil ég greina þér frá samflokks- manni þínum. Köllum hann hr. Grandvar. Hr. Grandvar Guðjóns- son, bæjarstjórnar- og bæjarráðs- maður, hyggst byggja sér hús við Hafnargötuna í Keflavík. „Deili- skipulag í almannaþágu.“ Á útmánuðum síðasta árs fékk Grandvar þá hugmynd að fá úthlutað lóð sem er í eigu bæjarins. Lóðin er staðsett við hliðina á okkar lóð. Á lóð Grandvars skal rísa allt að þriggja hæða hús. Húsið passaði ekki inn í skipulagið vegna stærðar, útlits og krafna um næg bílastæði. Umsókn Grandvars var samt meðhöndluð hjá byggingaryfirvöldum með sérstakri vandvirkni og lét byggingarnefnd bóka eftir sér röksemdir þess efnis, að deiliskipuleggja þyrfti miðbæjar- svæðið til að fyrirbyggja andstöðu við áform Grandvars og hugsanlega lögsókn á hendur stjórnsýslunni. Deiliskipulagið var síðan samþykkt undir þeim formerkjum að um fram- tíðar deiliskipulag Hafnargötunnar væri að ræða. Og nú eru allir lóð- arhafar í nágrenni við fyrirhugað hús Grandvars réttindalausir. Þeir geta mótmælt, – en hafa engin áhrif á framgang byggingaráforma hans. Hvernig verða menn réttindalausir? Gætir þú spurt. – Jú, húsin sitt hvoru megin við hús Grandvars eru gerð „víkjandi“ Þau skal rífa og ekki nóg með það: Nærliggjandi lóðir eru gerðar að kvaðalóðum með gegnum akstri og opnum bílastæðum fyrir svokallað framtíðar miðbæjarsvæði. Þetta hlýtur þó að vera bótaskylt? Spyrð þú væntanlega. – Nei, alls ekki segja byggingaryfirvöld Reykjanes- bæjar. Þau senda mér svohljóðandi yfirlýsingu við mótmælum: „Með breyttu deiliskipulagi er heimilað að rífa núverandi hús, ef viðkomandi eigandi óskar eftir því, og heimilað verður að byggja allt að 465 fm í stað þeirra 258 fm sem eru á lóðinni. Skipulags- og byggingarnefnd fær ekki séð að breytt skipulag valdi á nokkurn hátt verðrýrnun á viðkom- andi eign.“ Hér eru byggingaryfir- völd að tala um húsið sem ég end- urbyggði á sl. ári. Ég má rífa það og byggja stærra. – Þökk sé þeim! – Var ég annars að biðja um leyfi fyrir stærra húsi? Þetta eru ekki tilvísanir í ævintýr- ið um Lísu í Undralandi, hr. Árni Sig- fússon, það getur þú kynnt þér á heimasíðu minni: http://www.net- verslun.com/hafnargata sem hefur að geyma afrit af öllum gjörningum varðandi lóðina og húsið. Með bestu kveðju og óska þér far- sældar í starfi sem bæjarstjóri Reykjanesbæjar. GUNNAR GEIR KRISTJÁNSSON, Hafnargötu 18, 230 Keflavík. Opið bréf til Árna Sigfússonar Frá Gunnari Geir Kristjánssyni: MIG langar aðeins að vekja athygli nýkjörinna sveitarstjórnarmanna á ákveðnu vinnulagi sem gerir þá sýnilega, ekki aðeins rétt fyrir kosningar. Þannig er að eftir kosn- ingar skipta menn með sér verkum og setu í málefnanefndum. Þetta er auðvitað mismikið starf og umfang. Í stærstu sveitarfélögunum er hafa yfir 12 þúsund íbúa er jafnan litið svo á að sá sveitar- eða bæjar- stjórnarfulltrúi geri setu sína að aðalstarfi. En eitt finnst mér á vanta í verklagi. Þessir fulltrúar eru ekki mjög sýnilegir. Þar sem ég þekki til telst það til undantekn- inga að t.d. fulltrúar skólanefndar sjáist á kennarafundum skólanna. Ef þeir koma þá er það rækilega auglýst fyrirfram og fjallað um eitt afmarkað málefni. Reyndar man ég ekki eftir slíku tilefni á sl. kjör- tímabili. Eitt er að halda skóla- nefndarfundi í ákveðnum skóla sem er í sjálfu sér ágætt. Þá er far- ið um skólann í fylgd skólastjórn- enda og ekki gert ráð fyrir að fleiri séu í för. Það sem vantar er að fulltrúinn í málefnanefndinni komi á starfsmannafund og fylgist með umræðum og jafnvel sé reiðubúinn að taka þátt í umræðum. Ég hef reyndar rætt þetta við nokkra sveitarstjórnarmenn en þeir bera því við að slíkir fundir séu ekki markvissir. Þegar sveitarstjórnar- fulltrúinn birtist sé strax farið að skammast og gagnrýna það sem illa hefur verið gert. Sjaldan sé fjallað um málefnið á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Ég held að þetta sé misskilningur og bið ykk- ur nýkjörna fulltrúa að kynna ykk- ur og sjást í fyrirtækjum og stofn- unum sveitarfélagsins. GÍSLI BALDVINSSON, náms- og starfsráðgjafi. Gerið ykkur sýnileg! Frá Gísla Baldvinssyni: MOGGABÚÐIN mbl.is
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.