Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 52

Morgunblaðið - 02.06.2002, Qupperneq 52
DAGBÓK 52 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RIT- STJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Of mikið spjall ÉG VIL koma á framfæri óánægju minni með Rás 2 um helgar. Finnst mér of mikið um svokallaða spjallþætti, ég get ekki ímyndað mér að fólk hafi gaman af að hlusta á þetta á frídögum. Hlustandi. Tapað/fundið Geisladiskakassi í óskilum PLASTKASSI með 10 geisladiskum, m.a. óperu- diskum, fannst í garði við Bárugötu. Kassinn hefur legið þar í nokkuð langan tíma. Upplýsingar í síma 552 5953. Gullarmband týndist GULLARMBAND frekar breitt týndist um síðustu helgi, líklega í miðbænum. Skilvís finnandi hafi sam- band í síma 551 0657. Filma fannst í Seljahverfi FILMA fannst í Selja- hverfi fyrir a.m.k. mánuði. Filman var framkölluð og myndirnar virðast vera úr fjölskyldusamkomu, af- mæli eða fermingarveislu. Uppl. í síma 557 2664. Vínrautt kven- veski týndist VÍNRAUTT leðurkven- veski með lakkbryddingu á hlið og hliðaról týndist úr bíl við Elliðaárdal á þriðjudagskvöldið milli 20:30 og 21:30. Veskisins er sárt saknað ásamt skil- ríkjum. Fundarlaun í boði. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 551 5287. Dýrahald Kanína í óskilum BRÚN kanína fannst við Kvarnaborg, Ártúnsholti. Uppl. hjá Sigrúnu í síma 567-3199 (milli kl. 8-17). Posi er enn týndur POSI týndist af heimili sínu á Vatnsstíg hinn 8.maí. Hann er 4 ára stein- grár högni með eyrna- merkinguna 375 en því miður engin ól. Posa er mjög sárt saknað. Hann er mjög gæfur og sérstak- lega forvitinn. Getur verið að hann hafi laumast inn í bílskúr, geymslu, þvotta- hús eða kjallara hjá þér? Fundarlaun. Birgitta S: 869 3093 – 5512144. Nala er týnd 5 MÁNAÐA, mjög smá- vaxin læða sem hlýðir nafninu Nala, týndist frá Baldursgötu 25 sl. fimmtudag. Hún er marg- lit, ólarlaus og ómerkt. Hún er mjög kelin og er hennar sárt saknað. Fólk er beðið að athuga skúra á svæðinu. Ef einhver hefur orðið hennar var vinsam- lega hafið samband við Jó- hönnu í síma 552 5859 eða 847 1064. Kettlingar fást gefins TVEIR kettlingar, læður, fást gefins. Kassavanar. Upplýsingar í síma 849- 0579. Læða fæst gefins TVEGGJA mánaða læða fæst gefins. Kassavön og vel upp alin. Upplýsingar í síma 557 1346. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15. Netfang velvakandi@mbl.is Víkverji skrifar... KONRÁÐ Lúðvíksson læknir hef-ur varpað fram hugmyndum um markaðssetningu á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja innan lands og utan. Í fróðlegu viðtali við Konráð – sem hellti sér út í bæjarmálapólitíkina fyr- ir kosningarnar um síðustu helgi og var á lista sjálfstæðismanna í Reykja- nesbæ – í nýjasta tölublaði Víkur- frétta, er m.a. haft eftir Konráði að sérfræðiþjónusta á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja hafi getið sér gott orð og reglulega heyrist af einstaklingum utan svæðisins sem komi þangað til að sækja sér þjónustu. Hann segir að fyrst þurfi að skapa umhverfi á stofnuninni en starfsum- hverfi skurðstofunnar sé t.d. óviðun- andi nú. „Við viljum oft bera okkur saman við aðra. Akranes er ágætt dæmi. Þar hefur heilbrigðisþjónustan byggst upp mun markvissara. Þar hafa margir eldhugar starfað. Á meðan við vorum að kljást við óeiningu innan stofnunarinnar, ríkti þar tíðarandi sem ég finn fyrir að er að byggjast upp hér í dag. Akurnesingar eru ófeimnir að segja að þeir ætli að byggja bestu fæðingardeild á land- inu. Þeir eru stoltir af skurðstofunum sínum. Þetta getum við líka gert,“ segir hann í viðtalinu og bætir við: „Þegar þessari uppbyggingu er lokið þá förum við út í umheiminn. Þá bjóð- um við bandarískum þegnum að koma til Íslands og fá bót meina sinna. Það er ekkert sem hindrar okkur. Það eru óendanleg tækifæri í þessa átt. Við getum markaðssett okkur eins og Bláa lónið. Við erum samkeppnishæf en á lægra verði. Við fáum fleira menntað fólk hingað og mannauður mun aukast.“ x x x Í SAMA viðtali kemur fram að Kon-ráð hefur komið með nýstárlegar hugmyndir er varða fæðingardeildina í Reykjanesbæ. Í viðtalinu í Víkurfréttum, sem komu út síðastliðinn fimmtudag, er haft eftir honum: „Útávið hefur fæðingardeildin ver- ið það sem talað er um á sjúkrahús- sviðinu. Umönnun á sjúkradeild er hins vegar til mikillar fyrirmyndar en störfin þar eru unnin hljóðlátlega. Þau eru annars eðlis. Mikill sómi er af umönnun hjúkrunarfólks við lok lífs, enda ósjaldan sem því berst þakklæti fyrir.“ Konráð upplýsir að fæðingar hafi flestar verið 306 á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja á einu ári en þeim hafi farið fækkandi undangengin ár. „Ég vil gjarnan sjá 350 til 400 fæðingar hér á ári. Það myndi skapa minni sveiflur, því fæðingastarfsemin er sveiflukennd. Við höfum jú ekki fengitíma! Við viljum stöðugleika og minni sveiflur. Sú hugmynd hefur komið fram að við ættum að markaðs- setja deildina og horfum til Hafnar- fjarðar. Við þurfum að skapa okkur orðstír þar og tengsl við Hafnarfjörð. Hvernig væri að bjóða hverjum Hafnfirðingi 10.000 kr. fyrir að fæða á Suðurnesjum? Eitt hundrað konur úr Hafnarfirði kosta eina milljón. Það er ekki neitt. Hvað fáum við í staðinn? Við fáum jákvætt umtal, ef vel tekst til. Margfeldisáhrifin eru mikil. Við erum ekki að gera Hafnfirðinga að fé- þúfu, heldur bjóða þjónustu af gleði. Markmiðið er að gera okkar stöðu sterkari.“ Spennandi hugmyndir og gaman verður að sjá hvort einhverjar þeirra komast í framkvæmd. ÞEGAR sjálfstæðismenn í Hafnarfirði , sumir hverj- ir, telja að flokkurinn hafi aukið fylgi sitt í nýaf- stöðnum kosningum þar í bæ, fékk 40,6%, verður að hafa í huga að við kosn- ingarnar 1998 komu fram tveir listar sjálfstæð- ismanna, en Hafnarfjarð- arlistinn undir forystu Ellerts Borgar, fyrrv. bæjarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins, hlaut þá 6,3% atkvæða. Þar sem ætla má að fylgi þess lista frá 1998 hafi nú að mestu skilað sér til Sjálfstæð- isflokksins væri nær að tala um 3% tap hjá Sjálf- stæðisflokknum. Og þegar gumað er af því að Sjálfstæðisflokk- urinn hafi nú fengið í Hafnarfirði eina bestu út- komu í sögu flokksins er farið með vægast sagt villandi mál og óbeint kastað rýrð á þá sem áður fóru í forystu fyrir flokk- inn í Hafnarfirði. Þannig fékk Sjálfstæðisflokk- urinn 42,1% atkvæða 1954, 44,5% 1962 og 41,5% 1974, allt byggt á upplýs- ingum í blaði flokksins, Hamri, fyrr á þessu ári. Ætíð skal kappkostað að fara með sem réttast mál og því er þessum skrifum komið hér á framfæri. Hafnfirskur eldri borgari. Um fylgi Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði LÁRÉTT: 1 skemmtitæki, 8 skrifuð, 9 vondur, 10 starf, 11 rík, 13 kona, 15 metta, 18 refsa, 21 næstum því, 22 skarpskyggn, 23 ólyfjan, 24 hafnaði. LÓÐRÉTT: 2 visnar, 3 kyrrðin, 4 vaf- inn, 5 hátíðin, 6 espum, 7 skjóta, 12 sár, 14 klauf- dýr, 15 saga, 16 áræðin, 17 hryggja, 18 grikk, 19 illkvittið, 20 siga. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU: Lárétt: 1 husla, 4 sarga, 7 fatli, 8 líðan, 9 nam, 11 reif, 13 barr, 14 ryðja, 15 nóló,17 Krít, 20 sal, 22 semja, 23 úruga, 24 iðnar, 25 aftra. Lóðrétt: 1 hæfir, 2 sótti, 3 alin, 4 sálm, 5 riðla, 6 asnar, 10 auðna, 12 fró, 13 bak, 15 nisti, 16 lómur, 18 raust, 19 tjara, 20 saur, 21 lúga. K r o s s g á t a 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Skipin Reykjavíkurhöfn: Brú- arfoss kemur í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss kemur til Straumsvíkur á morgun, Rán fer á morgun. Mannamót Aflagrandi 40. Á morg- un kl 9 vinnustofa, kl 13 vinnustofa, kl 14 spila- vist. Ferð á Langjökul: Miðvikud. 10. júlí. Kirkjuferð farið verður í Grensárskirkju mið- vikud. 5. júní farið frá Aflagranda 40 kl 13.30, skráning í ferðir í af- greiðslu s. 562 2571 Árskógar 4. Á morgun kl. 9 opin handa- vinnustofan, kl. 10.15 leikfimi, kl. 11 boccia, kl. 13.30–16.30 opin smíða- stofan/útskurður, kl. 13.30, félagsvist, kl. 16 myndlist. Bingó er 2. og 4. hvern föstudag. Dans hjá Sigvalda byrjar í júní. Púttvöllurinn er opin alla daga. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handa- vinna, kl. 10–17 fótaað- gerð. Ekið um borgina þriðjudaginn 11. júní. Lagt af stað kl.13. Skráning í s. 568 5052 fyrir kl. 12, föstud. 10. júní. Allir velkomnir. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 á mánud. kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin á morgun kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Á morgun kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerð og myndlist, kl. 10 versl- unin opin, kl. 11.20 leik- fimi, kl. 13 föndur og handavinna. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Á morgun kl. 9 böðun. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraunseli , Flatahrauni 3. Á mánu- dag félagsvist kl. 13.30. Brids á þriðjudag 13.30 pútt á Hrafnistuvelli og verður í sumar á þriðju- og föstudögum kl 14–16. Dagsferð að Skógum miðvikud.19. júní Lagt af stað frá Hraunseli kl. 10, skráning í Hraunseli s. 555 0142. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Kaffistofan opin virka daga frá kl. 10–13. Kaffi, blöðin og matur í hádegi. Sunnud: Dansleikur kl. 20 Caprí- tríó leikur fyrir dansi. Mánud: Brids kl. 13. Danskennsla framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. Dagsferð í Krísu- vík, Þorlákshöfn, Eyr- arbakka, Stokkseyri 6. júní. Vestmannaeyjar 11.–13. júní, 3 dagar, nokkur sæti laus vegna forfalla. Söguferð í Dali 25. júní, dagsferð, skrán- ing í ferðir á skrifstof- unni s. 588-2111. Silf- urlínan er opin á mánu- og miðvikudögum frá kl. 10–12. Skrifstofa félags- ins er flutt í Faxafen 12, sama símanúmer og áð- ur. Félagsstarfið er áfram í Ásgarði Glæsibæ. Upplýsingar á skrifstofu FEB. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Opið sunnu- daga frá kl. 14–16 blöðin og kaffi. Á morgun kl. 9–16.30 opin vinnustofa, handavinna og föndur, kl. 9–13 hárgreiðsla, kl. 14 félagsvist. Gerðuberg, félagsstarf. Á morgun kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, 9.30 sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, frá há- degi spilasalur opinn, kl. 15.30 dans. Veitingar í Kaffi Berg. Upplýs- ingar um starfsemina á staðnum og í s. 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Á morgun kl. 9 handa- vinna, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl.11 hæg leikfimi, kl. 13 lomber. Hraunbær 105. Á morg- un kl. 9 perlusaumur, postulínsmálun og kortagerð, kl. 10 bæna- stund, kl. 13 hár- greiðsla. Miðvikudaginn 10. júlí verður farin ferð á Langjökul þar sem snæddur verður hádegi- verður, uppl. í s. 587 2888. Miðvikudag- inn 5. júní verður leir- námskeið, innritun á skrifstofu. Hvassaleiti 56–58. Á morgun kl. 9 böðun og föndur, kl. 10 boccia, kl. 13 frjáls spilamennska, kl. 13.30 gönguferð. Fótaaðgerð, hársnyrt- ing. Allir velkomnir. Norðurbrún 1. Á morg- un kl. 10 ganga, kl. 9 fótaaðgerð. Allir vel- komnir. Vesturgata 7. Á morg- un kl. 9–16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15 handavinna, kl. 10 boccia, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13.30 ganga. Landsbanki Ís- lands verður með al- menna bankaþjónustu mánud. 3. júní kl.13.30– 14. Mósaiknámskeið hefst miðvikud. 5. júní kl. 9. 15–12, skráning í s.562 7077. Vitatorg. Á morgun kl. 9 smíði og hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morg- unstund, kl. 10 fótaað- gerðir og sund, kl. 13 handmennt, gler- bræðsla, leikfimi og spilað. Gullsmárabrids. Eldri borgarar spila brids í Gullsmára 13 mánu- og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45. Spil hefst kl. 13. Bridsdeild FEBK í Gullsmára. Háteigskirkja, eldri borgarar, mánudaga fé- lagsvist kl. 13–15, kaffi. Kvenfélag Bústað- arkirkju. Sumarferðin verður laugardaginn 15. júní. Miðar seldir í kirkj- unni mánudaginn 3. júni kl. 17–18. Uppl. í s. 861 6049 Sigurlín eða 568 0075 Sigríður. Púttklúbbur Ness, pútt- að verður á Rafstöðv- arvelli þriðudaginn 4. júní kl. 13. Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík. Nokkur pláss laus í eftirtaldar ferðir. Laugar í Sælings- dal 4.–9. júní, Stóru Tjarnir í Þingeyjarsýslu 20.–23. júní, og til Ruh- polding í Þýskalandi 5.– 11. júlí. Uppl. í s. 864 2617 og 897 6608 og á skrifstofunni Hverf- isgötu 69 mánu- til fimmtudaga kl 17–19, s. 551 2617 Minningarkort Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Suðurlandi: Í Vestmannaeyjum: hjá Axel Ó. Láruss. skó- verslun, Vest- mannabraut 23, s. 481- 1826. Á Hellu: Mosfelli, Þrúðvangi 6, s.487-5828. Á Flúðum: hjá Sólveigu Ólafsdóttur, Versl. Grund s. 486-6633. Á Selfossi: í versluninni Ír- is, Austurvegi 4, s. 482- 1468 og á sjúkrahúsi Suðurlands og heilsugæslustöð, Árvegi, s. 482-1300. Í Þorláks- höfn: hjá Huldu I. Guð- mundsdóttur, Odda- braut 20, s. 483-3633. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga, fást á eftirtöldum stöðum á Reykjanesi. Í Grindavík: í Bókabúð Grindavíkur, Víkurbraut 62, s. 426-8787. Í Garði: Íslandspósti, Garða- braut 69, s. 422-7000. Í Keflavík: í Bókabúð Keflavíkur Pennanum, Sólvallagötu 2, s. 421- 1102 og hjá Íslandspósti, Hafnargötu 89, s. 421- 5000. Í Vogum: hjá Ís- landspósti b/t Ásu Árna- dóttur, Tjarnargötu 26, s. 424-6500, í Hafn- arfirði: í Bókabúð Böðv- ars, Reykjavíkurvegi 64, s. 565-1630 og hjá Penn- anum-Eymundsson, Strandgötu 31, s. 555- 0045. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum í Reykjavík: Skrifstofu LHS Suð- urgötu 10, s. 552-5744, 562-5744, fax 562-5744, Laugavegs Apóteki, Laugavegi 16, s. 552- 4045, hjá Hirti, Bón- ushúsinu, Suðurströnd 2, Seltjarnarnesi, s. 561- 4256. Minningarkort Lands- samtaka hjartasjúk- linga fást á eftirtöldum stöðum á Vesturlandi: Á Akranesi: í Bókaskemm- unni, Stillholti 18, s. 431- 2840, Dalbrún ehf., Brákarhrauni 3, Borg- arnesi og hjá Elínu Frí- mannsd., Höfðagrund 18, s.431-4081. Í Grund- arfirði: í Hrannarbúð- inni, Hrannarstíg 5, s. 438-6725. Í Ólafsvík hjá Ingibjörgu Pétursd., Hjarðartúni 1, s. 436- 1177. Í dag er sunnudagur 2. júní, 153. dagur ársins 2002. Sjómannadag- urinn. Orð dagsins: Ég hefi losað hendur hans við byrðina, hendur hans eru sloppnar við burðarkörfuna. (Sálm. 81, 7.)
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.