Morgunblaðið - 02.06.2002, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 53
DAGBÓK
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöld 7. júní og laugardag
8. júní í kórkjallara Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Hlíðarsmára 9, sími 564 6444
Xit
býður
Hafdísi Bridde
velkomna til
starfa
NÁMSK
EIÐ Í
SJÁLFS
TYRKIN
GU
Áhersluatriði:
• Að greina eigið samskiptamynstur
• Að efla öryggi og sveigjanleika
• Að ráða við vandasöm samskipti
• Að auka sjálfstyrk á markvissan hátt
Höfundar og leiðbeinendur námskeiðs eru
sálfræðingarnir Álfheiður Steinþórsdóttir
og Guðfinna Eydal.
Skráning í síma 562 3075
Netfang: psych.center@mmedia.is
SÁLFRÆÐISTÖÐIN
Lokað á laugardögum í sumar
Verslun opin frá kl. 10-18 mánud.-föstud.
Verslun Kays Austurhrauni 3 Gbæ/Hfj. s. 5552866
Hef opnað sálfræðistofu
Sálfræðiþjónusta með hugrænni atferlismeðferð Albert
Ellis Ph.D. Einnig ráðgjöf fyrir óvirka alkóhólista og
aðstandendur til að gera gott líf betra.
Viðtalsbeiðnir í síma 533 6325 frá kl. 9 til 17 virka daga.
Rúnar Guðbjartsson, sálfræðingur,
Selvogsgrunni 7, 2. hæð, 104 Reykjavík.
Árnað heilla STJÖRNUSPÁ
eft ir Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert frjór í hugsun og átt
því auðvelt með að finna
lausnir á vandamálum. Á
þessu ári muntu taka mik-
ilvæga ákvörðun sem mun
breyta stefnu þinni í lífinu.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Láttu það ekki koma þér á
óvart ef gömul metnaðarmál
skjóta upp kollinum að nýju.
Þú hefur fengið tíma til að
endurmeta hlutina og ert
orðinn eldri og sjálfsörugg-
ari.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það er aldrei of seint að gera
æskudrauma þína að veru-
leika.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Það hvarflar að þér að setj-
ast aftur á skólabekk. Þar
sem þú ert forvitinn að eðl-
isfari er þetta kjörin leið til
að örva hugann og ýta undir
starfsframa þinn.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Farðu í gegnum þá hluti í
fórum þínum sem tilheyra
öðrum. Skilaðu öllu sem þú
hefur að láni og eyddu allri
óvissu.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Samtöl við aðra geta veitt
þér skilning á því hvað fór
úrskeiðis í sambandi. Þú
þarft að prófa hugmyndir
þínar með því að leggja þær
fyrir aðra.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Dagurinn hentar vel til að
íhuga gamlar hugmyndir
um atvinnumöguleika.
Kannaðu hvaða leiðir standa
þér opnar.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Gefðu þér tíma til að njóta
samvista við börn í dag.
Láttu ekki tækifæri til að
halda á ungbarni fram hjá
þér fara.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Gamlar hugmyndir um
breytingar á heimilinu höfða
til þín á ný. Vertu óhræddur
við að íhuga nýstárlegar
lausnir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Örlögin geta komið í veg fyr-
ir að áætlanir þínar gangi
eftir. Óvæntar fréttir af
systkini eða nánum vini geta
breytt stefnu þinni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú þarft ekki að óttast trufl-
anir í vinnunni. Á næsta ári
muntu örugglega uppskera
viðurkenningu fyrir verk þín
og hljóta meira frelsi.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú ert uppreisnargjarn í eðli
þínu og blóðið ólgar í þér í
dag. Gakktu úr skugga um
að þú vitir hvaða breytingar
þú vilt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur þörf fyrir að losna
undan höftum sem tengjast
stórum stofnunum, sjúkra-
húsum eða fangelsum.
Gerðu það sem þú getur til
að gera þetta að veruleika.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
YFIRLEITT eru það ekki góð
vísindi að leggja niður óstuddan
ás í útspili gegn geimsamningi,
því „ásar eru til að drepa kónga,
en ekki til að veiða tvista og
þrista“. En allt á sinn tíma. Sig-
urbjörn Haraldsson var vakandi
fyrir rétta tímanum til að spila út
ás frá Áxx. Spilið kom upp á
landsliðsæfingu um síðustu
helgi:
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ KG1043
♥ 75
♦ 107
♣ÁK32
Vestur Austur
♠ Á75 ♠ 862
♥ KG4 ♥ 10
♦ 862 ♦ Á943
♣G1084 ♣D9765
Suður
♠ D9
♥ ÁD98632
♦ KDG5
♣--
Feðgarnir Karl Sigurhjartar-
son og Snorri Karlsson voru í
NS, Sigurbjörn í vestur og bróð-
ir hans Anton í austur. Brids er
fjölskylduspil. Sagnir gengu:
Vestur Norður Austur Suður
Sigurbjörn Snorri Anton Karl
1 grand * Pass Pass 4 hjörtu
Pass Pass Pass
* 9-12 punktar.
Bræðurnir spila svokallað
„minigrand“ á þessum hættum
(utan hættu gegn á), en Karl lét
það ekki trufla sig og stökk beint
í fjögur hjörtu.
Útspilsbækur mæla með lauf-
gosa frá vesturhendinni. Afleið-
ingin af því er augljós: Sagnhafi
hendir tveimur spöðum niður í
ÁK í laufi og vinnur sitt spil.
Sigurbjörn kom hins vegar út
með spaðaásinn. Útspilið er
mjög rökrétt í samhenginu.
Vestur horfir á þrjá slagi og þarf
aðeins einn frá makker. Hann
veit að sagnhafi er með mikla
skiptingu og vafalítið einspil eða
eyðu í einhverjum lit. Því er þýð-
ingarmikið að taka strax sitt og
nota janframt frumkvæðið sem
vörnin hefur með útspilinu til
hins ýtrasta.
Anton vísaði spaðanum frá og
Sigurbjörn spilaði tígli í öðrum
slag: Einn niður áður en sagn-
hafi komst að.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
70 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 2. júní,
er sjötugur Trausti Björns-
son, Smáratúni 40, Kefla-
vík. Eiginkona hans er Ás-
laug Hilmarsdóttir. Þau
hjónin verða að heiman.
90 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 3. júní, verður níræður
Þorkell G. Sigurbjörnsson,
fv. verslunarmaður. Þorkell
var m.a. fyrsti formaður
Gídeonfélagsins á Íslandi og
er heiðursfélagi KFUM.
Hann sat lengi í stjórn Hins
íslenska Biblíufélags og var
safnaðarfulltrúi Laugarnes-
safnaðar. Kona hans er
Steinunn Pálsdóttir. Eiga
þau 40 ára brúðkaupsafmæli
í dag. Þeim sem vildu gleðja
þau er bent á heillaóskakort
Biblíusjóðs Gídeonfélagsins.
Á NÁMSÁRUM mínum
fyrir miðja síðustu öld
lögðu móðurmálskennarar
áherzlu á, að nemendur not-
uðu smáorðið að í sambandi
við margar samtengingar,
enda væri það upprunalegt
í íslenzku máli, en hefði svo
fallið niður í almennu tali.
Má þar nefna sem dæmi
samtengingar eins og því
að, af því að, svo að o.s.frv.
Þetta var einnig tekið skýrt
fram í málfræðibókum.
Býst ég raunar við, að svo
sé enn gert. Hins vegar veit
ég ekki, hversu mikil
áherzla er nú lögð á að
benda nemendum á þennan
mun. Hitt sé ég aftur á móti
við blaðalestur, að bæði
blaðamenn og aðrir, sem
skrifa í blöðin, sleppa mjög
oft þessum hluta tengingar-
innar. Sama hygg ég, að sjá
megi einnig oft í bókum og
tímaritum. Virðist þetta
óneitanlega benda til þess,
að þessu atriði sé lítið sinnt
í kennslu og nemendur hafi
hér frjálst val. Eru þá dæmi
sem svo: Hann gerði þetta
af því hann mátti til. Hann
verður kyrr svo þú getir
farið. Í þessum dæmum og
mörgum öðrum er komm-
unni síðan sleppt á undan
tengingunni samkv. þeim
að mínum dómi þarflausu
kommureglum, sem komið
var á 1974 og hafa í reynd
lítið gert annað en rugla
marga herfilega í ríminu.
Samkv. því, sem gilti í þess-
um efnum lengst af fram
eftir síðustu öld, hefðu
menn ritað ofangreindar
setningar þannig: Hann
gerði þetta, af því að hann
mátti til. Jafnvel má breyta
hér aðeins um og skrifa:
Hann gerði þetta af því, að
hann mátti til. Hér kemur
greinilega fram áherzlu-
munur, sem síður kemst til
skila, ef menn sleppa að.
Hér vil ég einungis benda
lesendum á þetta til um-
hugsunar. Svo er aftur ann-
að atriði, sem sjálfsagt er að
minna á í þessum pistlum
og er gagnstætt því, sem
hér hefur verið fjallað um.
Er það notkun smáorðsins
að með samtengingum, þar
sem það á alls ekki heima.
Verður það til umræðu í
næsta pistli.
– J.A.J.
ORÐABÓKIN
Því – því að
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, mánudag-
inn 3. júní, er sjötugur Páll
Hreinn Pálsson, útgerð-
armaður, Efstahrauni 34,
Grindavík. Páll og eigin-
kona hans, Margrét Sig-
hvatsdóttir, verða stödd
hjá dóttur sinni í Þýzka-
landi á afmælisdaginn.
1. e4 g6 2. d4 Bg7 3. Rc3 d6
4. f4 a6 5. Rf3 b5 6. Bd3 Rd7
7. e5 c5 8. Be3 Bb7 9. Be4
Dc8 10.
Bxb7 Dxb7
11. dxc5
dxe5 12. Dd5
Dxd5 13.
Rxd5 Hc8
14. Rb6
Rxb6 15.
cxb6 e4 16.
Re5 Bxe5
17. fxe5 e6
Staðan
kom upp á
fyrsta bikar-
móti FIDE
sem haldið
var í Dubai.
Alexander
Grischuk (2651) hafði hvítt
gegn Etienne Bacrot (2649).
18. Bc5! Re7 19. Bd6 Hxc2
20. b7 Rc6 21. O-O f5 22.
exf6 Kf7 23. Hac1 Hc4 24.
b3 Hxc1 25. Hxc1 Rd4 26.
Hc8 og svartur gafst upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
LJÓÐABROT
VORVÍSUR
Sólin kyndir klakatind,
kætir vinda-bragur.
Dregur í skyndi dýrðarmynd
dagur yndisfagur.
– – –
Sólin hellir geislaglóð.
Gleður kellu ljóminn,
þegar Elli yfir fljóð
er að fella dóminn.
Guðlaug Guðnadóttir