Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 57
Opti L Zinc
FRÁ
FRÍHÖFNIN
H
á
g
æ
ð
a
fra
m
le
ið
sla
Öflugt gæðasink
30 mg. með kopar
með gæðaöryggi
Í MH er boðið upp á almenna menntun til stúdentsprófs á þremur bóknáms-
brautum: Málabraut, náttúrufræðibraut og félagsfræðabraut.
Meðal kjörsviða er tónlistarkjörsvið í samvinnu við tónlistarskóla og listdans-
kjörsvið í samvinnu við listdansskóla. Námsskipulag er sveigjanlegt og gefur
m.a. möguleika á að ljúka námi á skemmri tíma en 4 árum.
Ennfremur býður skólinn, einn skóla á Íslandi, IB-námsbraut til alþjóðlegs
stúdentsprófs sem lýkur með International Baccalaureate Diploma. IB nám
er 3 ára stúdentsprófsnám fyrir dugmikla nemendur.
Nemendur sem sækja um IB-námsbraut eiga að panta viðtal við umsjónarmann
IB-náms í vikunni 3. til 7. júní.
Tekið verður á móti umsóknum frá kl. 8:30 - 19:00 dagana 10. og 11. júní og
verða stjórnendur og námsráðgjafar þá til viðtals.
Umsóknum skal fylgja afrit af grunnskólaprófsskírteini, fylgiseðill mennta-
málaráðuneytis og passamynd.
Almennar upplýsingar um skólann og viðmiðunarreglur vegna innritunar nýrra
nemenda má finna á heimasíðu skólans www.mh.is
Rektor
Menntaskólinn við Hamrahlíð
Innritun fyrir haustönn 2002
verður dagana 10. og 11. júní.
ÞEIR Birgir Hilmarsson og Kjartan
Friðrik Ólafsson skipa rafdúettinn
Ampop. Dúettinn var stofnaður árið
1998 af þeim félögum og tveimur ár-
um síðar leit fyrsta breiðskífan dags-
ins ljós, Nature is not a Virgin. Á dög-
unum kom svo út hér á landi
smáskífan Made for Market. Þeir
drengir ætla þó ekki að láta þar við
sitja heldur gefa þeir hana einnig út í
Bretlandi á sama tíma í samvinnu við
útgáfufyrirtækið Static Caravan.
„Við gefum smáskífuna út á vínyl-
plötu í Bretlandi en á geisladiski hér
heima. Á disknum eru fleiri lög og
fleiri hljóðblandanir,“ byrjar Kjartan.
„Þetta er okkar fyrsta útgáfa á efni
okkar utan Íslands og það er auðvitað
ákveðið fagnaðarefni fyrir okkur.“
Nú hefur smáskífan þegar fengið
fínar viðtökur erlendis, ekki satt?
„Jú, jú, við höfum fengið prýðilegar
viðtökur,“ svarar Kjartan. „Þar ber
kannski hæst að John Peel hjá BBC
hefur tekið diskinn til spilunar í út-
varpsþætti sínum.“
„Já, svo er einhver útvarpsstöð í
Dublin, XFM Dumblin, sem hefur
líka verið að spila okkur,“ bætir Birg-
ir við.
„Platan er líka svo nýkomin út að
það er ekki komin nein almennileg
reynsla á þetta. Það eru ekki nema
tvær vikur síðan hún kom út í Bret-
landi. Við erum allavega ekki að sigra
heiminn ennþá,“ segir Kjartan.
Er stefnan tekin á frægð og frama
erlendis?
„Nei nei, en draumurinn er að búa
sér til aðstöðu til að vinna tónlist og
verja meiri tíma í það,“ segir Kjartan.
„Til þess þarf maður samt að fá borg-
að í peningum fyrir að spila. Maður
þarf helst að vera í nokkrum vinnum
með því að spila í hljómsveit.“
Teljið þið að gott gengi Bjarkar og
Sigur Rósar hafi greitt gengi ís-
lenskra tónlistarmanna á erlendri
grund?
„Já, alveg tvímælalaust,“ svarar
Kjartan um hæl.
„Það hefur hjálpað allri íslenskri
tónlist, nema kannski sveitaballa-
hljómsveitunum, enda held ég að fólk
sem er í því sé aðallega að einblína á
markaðinn hérna heima,“ segir
Kjartan.
„Já, ég vil meina að þau hafi opnað
markaðinn fyrir okkur sem erum að
gera tilraunakennda tónlist,“ segir
Birgir og Kjartan bætir við: „Það er
ekki það stór markaður fyrir það
hérna heima.“
Ný breiðskífa tilbúin
Næstkomandi þriðjudag munu
Ampop-menn svo blása til tónleika á
Gauki á Stöng í tilefni af nýútkominni
smáskífu sinni. Ásamt þeim koma
fram Skurken og Prince Valium sem
munu taka rafdúett og kynna nýtt
efni af væntanlegri plötu sinni. Birgir
segir svo óvæntan gest ætla að heiðra
þá með nærveru sinni.
Hvaða efni ætlið þið svo að flytja á
tónleikunum?
„Efni af smáskífunni og svo
væntanlegri breiðskífu. Þetta verður
því nær engöngu nýtt efni sem við
flytjum,“ svarar Birgir.
„Já, við höfum verið að taka upp
nýja breiðskífu sem stefnt er að að
gefa út á þessu ári þótt það sé enn
svolítið óljóst. Hún er allavega tilbúin
og eiginlega löngu tilbúin,“ segir
Kjartan.
„Við erum reyndar tiltölulega ný-
búnir að hljóðblanda hana. Hún kem-
ur svo vonandi út á þessu ári, við þurf-
um bara að finna henni farveg,“ segir
Birgir og bætir við:
„Nú þekkja kannski einhverjir
gömlu plötuna okkar og þetta er ekki
beint framhald af henni. Í þessari
nýju einbeitum við okkur meira að
tónlist án söngs og erum kannski
orðnir rólegri.“
„Það er ákveðinn rokkkafli á nýju
breiðskífunni,“ skýtur Kjartan inní.
„Þetta er samt svona frekar mel-
ódískt og tilraunakennt,“ segir Birg-
ir.
Hvað er svo framundan hjá Am-
pop?
„Það er fyrirhuguð tónleikaferð til
Frakklands í september. Við verðum
í slagtogi með fleiri íslenskum hljóm-
sveitum á borð við Maus, Lo-Fi, Lúna
og fleiri,“ segir Birgir.
„Já, þetta er fyrirtæki sem hefur
verið að einbeita sér að því að fá ís-
lenska listamenn til að koma og spila í
Frakklandi,“ segir Kjartan að lokum.
„Það er auðvitað gaman að fá tæki-
færi á borð við þettta.“
Tónleikarnir verða haldnir sem áð-
ur sagði á Gauk á Stöng næstkomandi
þriðjudag og opnar húsið klukkan 21.
Áhugamenn um tónlist ættu að sjálf-
sögðu ekki að láta fram hjá sér fara að
hlýða á nýtt efni frá hinum tilrauna-
kenndu rafbræðrum.
„Erum ekki að sigra
heiminn…ennþá“
birta@mbl.is
Morgunblaðið/Ásdís
Kjartan F. Ólafsson og Birgir Hilmarsson skipa rafdúettinn Ampop.
Dúettinn Ampop heldur tónleika á Gauk á Stöng á þriðjudaginn
ÉG ER ekki alveg farinn að skilja
hvað rekur Michael Bolton áfram í
tónlistariðkuninni. Allt frá fyrsta
degi hefur þetta
dufl hans aðeins
snúist um að verða
frægur og græða
peninga – hvernig
svo sem hann fari
að því. Hann virðist
stjórnast af krónískri sviðsljóssþrá,
því ekki er það ... uuu ... metnaðurinn
til að gera góða tónlist sem rekur
hann áfram (segðu okkur annan
Arnar).
Dæmi: Maðurinn hefur á ferlinum
sungið m.a. þessi lög: „Your Love“,
„If I Had Your Love“, „You Make
Me Feel Like Lovin’ You“, „ You’ve
Got the Love I Need“, „Save Our
Love“, „Hot Love“, „Wait on Love“,
„That’s What Love Is All About“,
„You Wouldn’t Know Love“, „Love
Cuts Deep“, „ Stand up for Love“,
„Love Is a Wonderful Thing“, „
We’re Not Makin’ Love Anymore“
og „New Love“.
Já, af þessu sést að hann er ástleit-
inn maður hann Bolton. Og smekk-
laus. Og smekklaus. Og smekklaus.
Var ég búinn að segja að hann væri
smekklaus?
Til hamingju, Bolton. Þér tókst
það enn eina ferðina. Ein ömurleg
platan til viðbótar á þínu nafni er
komin í búðir. Við verðum bara að
vona ... heimsins vegna ... að enginn
leggi sig eftir að kaupa hana. Versta
plata ársins, jafnvel verri en hörm-
ungin hennar Victoriu Beckham sem
út kom í fyrra. Þetta á fjandakornið
ekki að vera hægt!
0 stjörnur
Tónlist
Bolton! Þú ert
nú alveg …
Michael Bolton
Only A Woman Like You
Jive
Jæja, Michael minn. Eigum við nú ekki að
fara að hætta þessu?
Arnar Eggert Thoroddsen
Stríð Foyles
(Foyle’s War)
Sakamálamynd
Bretland, 2001. Skífan VHS. (104 mín.)
Bönnuð innan 12 ára. Leikstjórn: Jeremy
Silberston. Aðalhlutverk: Michael Kitch-
en, Edward Fox, Robert Hardy og Joanna
Kannska.
MYND þessi gerist árið 1940, þeg-
ar stríðsrekstur Breta er í fullum
gangi, en allt virðist ganga á aftur-
fótunum og útlitið
ekki beinlínis
gæfulegt fyrir
bandamenn. Mið-
aldra lögreglumað-
ur, Christopher
Foyle, á sér þann
draum heitastan að
þjóna ættjörðinni á
vettvangi átaka en
verður að sætta sig
við að halda uppi lögum og reglu í ró-
legum smábæ við ströndina. Blikur
eru þó á lofti. Þýsk eiginkona auðugs
landeiganda er myrt og í kjölfarið er
hulunni svipt af ýmiskonar spilling-
armálum og áður en Foyle veit af er
hann kominn á spor svika og land-
ráða.
Hér er á ferðinni afar vel gerð
sakamálamynd þar sem framúrskar-
andi leikur blandast trúverðugri
mynd af róstusömum tíðaranda og
einkar haganlega smíðuðu handriti.
Sérlega áhrifamikil er sú mynd sem
dregin er upp af stríðinu „heima fyr-
ir“ og hvernig líf allra sögupersón-
anna litast af ófriðnum. Úrvalsmynd
sem óhætt er að mæla með. Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Eins manns
orrusta