Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 59

Morgunblaðið - 02.06.2002, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 59 Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2. Vit 379. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti Sýnd kl. 2. Ísl tal. Vit 370. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. 1/2 Kvikmyndir.is  Sánd  RadioX / i i i i Sýnd Kl. 6, 8 og 10. B.i. 16 ára Vit 385. STUART TOWNSEND AALIYAH FRUMSÝNING This time there are no interviews Frá Anne Rice, höfundi Interviewwitha Vampire, kemur þessi magnaða hrollvekja með Stuart Townsend og Aaliyahí aðalhlutverki, en þetta var jafnframt hennar seinasta mynd. Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. 421 -1170 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Sánd  SV Mbl Sýnd kl. 2, 4.40 og 8.Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 10.30. B.i 16 ára. 1/2 Kvikmyndir.is  Sánd  RadioX / i i i i Sýnd kl. 2. Vit 379. 150 kr. í boði VISA ef greitt er með VISA kreditkorti SÍMI 564 0000 - www.smarabio.isÍ I - .s ara i .is Miðasala opnar kl. 13.30 5 hágæða bíósalir Stærsta bíóupplifun ársins er hafin Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4 Íslenskt tal. Power- sýning kl. 10.50 i l. . Yfir 25.000 áhorfendur Sýnd kl. 2, 3, 5, 6, 8, 9 og 10.50. Mán kl. 5, 6, 8, 9 og 10.50. B. i. 10. kl. 4, 7 og 10. Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.30. Mán kl. 5, 8 og 10.30. B. i. 10. 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Tímaritið Sánd  SV Mbl  Rás 2 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.30. B.i 16 ára. Hversu vel þekkir þú maka þinn? Allt sem þú treystir á Allt sem þú veist Gæti verið lygi Magnaður spennutryllir með frábærum leikurum. FRUMSÝNING Yfir 42.000áhorfendur! Sánd DV 1/2 RadioX 1/2 kvikmyndir.is kvikmyndir.com www.laugarasbio.is Yfir 25.000 áhorfendur 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Tímaritið Sánd  SV Mbl  Rás 2 BRJÁLAÐUR HASAR OG GEGGJAÐ GRÍN Í ICE CUBE MIKE EPPS 1/2 kvikmyndir.is 1/2 RadióX kvikmyndir.com  DV Yfir 42.000 áhorfendur! Sánd FRUMSÝNING Þeir eru á höttunum eftir 60 milljón dala lottómiða og helling af demöntum!! Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10. Mán kl. 5.30, 8 og 10. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.15. Mán kl. 5.30, 8 og 10.15. B. i. 10.Sýnd kl. 3, 6 og 9. Mán kl. 6 og 9. betra en nýtt Sýnd kl. 5.50. B. i. 10. Sýnd kl. 4. Ísl. tal. „Fylgist með á www.borgarbio.is“ Sýnd kl. 3 og 10.10. B. i. 10. FORSÝNING kl. 8 B. i. 16. Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B. i. 16. 1/2 kvikmyndir.is 1/2 kvikmyndir.com  Sánd  SV Mbl FRUMSÝNING FORSÝNING FYRSTA breiðskífa rafkvartettsins múm, Yesterday was dramatic – today is ok, kom út í blálok 1999 og aflaði þeim orðunnar „bjartasta vonin“ sem hengd hefur verið með misvel ígrunduðum væntingum á hinar og þessar ís- lenskar hljómsveitir. Raftónlistarmarkaðurinn hér heima er svo agnarsmár að menn virðast dæmdir til að berjast áfram í sínu hugsjóna- herbergi fram á elliár, en sem betur fer eru raf- miðin stærri í útlöndum og múm hefur getið sér gott orð þar. Þessi upphefð í útlöndum endur- speglast í því að nýja platan þeirra, sem ber hinn furðulega titil Loksins erum við engin, kemur út bæði á íslensku og ensku (þ.e. með enskum titlum og textum en er að öðru leyti eins). Hljóðheimi plötunnar má best lýsa sem smá- gerðum: yfir lágværum vafningum af takt- grunnum og trommum, suði og rispum svífa „líf- ræn“ hljóðfæri eins og selló, harmónikka, klukkuspil, gítar o.fl. Í melódískum línum og inn á milli er skeytt hversdagslegum umhverfis- hljóðum sem stundum trufla mann í að hlusta á lagið því maður fer ósjálfrátt að hugsa: „Hvaða hljóð er þetta aftur?“ Oftar en ekki er innbyggð stígandi og aukinn þungi eftir því sem líður á lögin sem gefur þeim dáleiðandi yfirbragð. Eins konar nútímasveitarómantík svífur hér yfir og ef til vill seytla þarna inn áhrif frá verunni í hin- um afskekkta Galtarvita þar sem hluti tónlistar- innar var saminn. Það er eins og maður sé kom- inn í gamlan sveitabæ; afaklukka tikkar í kyrrðinni, einhver fiktar við stofuorgelið, suð í fiskiflugu í gluggakistunni. Eins og Gyrðir El- íasson hafi pantað tónlistina sérstaklega fyrir bækur sínar. Fleiri lög eru sungin en áður og textarnir eru undirfurðulegar náttúrusælu- myndir út frá barnslegu sjónarhorni í „skrúbba hrossaflugur og klemma þær á snúru“-andan- um. Næstum því smábarnalegar raddir systr- anna Kristínar og Gyðu, sem sjá um sönginn, auka á þessa hrekklausu stemmningu. Það er öruggt að þessi plata á ekki eftir að draga úr þeirri ímynd að Íslendingar séu allir smáskrítin náttúrubörn í félagsskap við álfa og drauga. Eitt besta lag plötunnar, „Grasi vaxin göng“, er melódískt lag með nettri undiröldu og popp- vænleiki þess kemur nokkuð á óvart. Þetta er fyrsta smáskífan af plötunni og ekki að undra, svo grípandi sem það er. „Ekki vera hrædd, þú ert bara með augun lokuð“ er heldur ekkert til að vera hræddur við, leikið lag með óvenjuleg- um taktpælingum þar sem hrynjandin er stund- um brotin niður og bjöguð meðan glaðlegar nót- ur skoppa yfir og gott ef einhver trallar ekki með eftir því sem stígandin eykst – upplífgandi og hér um bil auglýsingavænt lag. Í „Held fast í hjólið mitt“ er farið mjög skemmtilega með tvær raddir sem blandast saman og renna sundur og gera það sem yfirleitt er alveg bannað, renna sér upp og niður á nóturnar, og fylgja eftir harm- ónikkuhljóðum meðan bassinn leggur trausta braut undir þennan háskalega hjólatúr. Tvö áhugaverð „sundlaugarlög“ er að finna á plöt- unni, reyndar ekki beinlínis lög heldur hljóð- myndir með vatnsdropalegum hljóðum, stutt en gera sitt til að fylla út í þennan bernska fantasíu/ náttúrusæluheim sem tónlistin í heild sinni vek- ur upp. Aðeins eitt lag fannst mér heldur leiði- gjarnt og einhæft („K/hálft óhljóð“) og stundum verður of mikið af því smáa – þegar hlutirnir verða bara einum of sætir og barnalegir – en það er sjaldan. Flest lögin hafa sterka melódíska taug sem heldur athyglinni og fjölbreytileg og frumleg notkun óhefðbundinna hljóðfæra og hljóða, ásamt markvissri uppbyggingu, veldur því að lögin hverfa aldrei inn í veggfóðrið. Múmliðar hafa nú fastari tök á sínum sérstæða og heillandi hljóðheimi, sem virðist glitrandi ein- faldur á yfirborðinu en býr yfir óræðara dýpi undir niðri, og færa okkur samþjappaðri, heil- steyptari og ívið aðgengilegri tónlist án þess að fórnað sé hinum múmísku sérkennum og til- raunagleði. Tónlist Suð hins smáa Múm Loksins erum við engin Fatcat/Smekkleysa Hljómsveitina múm skipa Gunnar Örn Tynes, Gyða Valtýsdóttir, Kristín Anna Valtýsdóttir og Örvar Þór- eyjarson Smárason. Samuli Kosminen leikur á trommur í nokkrum lögum og Eiríkur Orri leggur einn- ig til trompet í völdum lögum.Upptökustjórn og hljóðblöndun: múm og Valgeir Sigurðsson. Morgunblaðið/Þorkell „Eins og Gyrðir Elíasson hafi pantað tónlist- ina sérstaklega fyrir bækur sínar,“ segir Steinunn Haraldsdóttir m.a. um vel heppn- aða plötu múm, Loksins erum við engin. Steinunn Haraldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.