Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 02.06.2002, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 2. JÚNÍ 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. f í t o n / s í a www.bi.is Þú fellur aldrei á tíma í útgjaldadreifingu Búnaðarbankans besti lagasmiðurinn og fyrir besta lagið, „Why Does It Always Rain On Me“. Í fyrra fékk plata hljómsveit- arinnar, „The Invisible Band“, TOTP verðlaunin sem besta platan. Árið 2001 vann Travis kosningu STAÐFEST hefur verið að breska hljómsveitin Travis muni halda tón- leika í Laugardalshöll 4. júlí. Travis hefur hlotið fjölda verðlauna og við- urkenninga og tvívegis verið kosin besta breska hljómsveitin af Brit Awards. Nýlega var hljómsveitin til- nefnd til Ivor Novello-verðlaunanna fyrir besta lagið, „Side“, en árið 1999 fékk einn hljómsveitarmeðlimanna, Fran að nafni, þessi verðlaun sem MTV áhorfenda sem „Best MTV performance“. Hljómsveitin kemur fram sem að- alhljómsveitin á Hróarskelduhátíð- inni í sumar og fer þaðan til Noregs og kemur síðan hingað til lands. Travis spilar í Laugardals- höll 4. júlí LÍFSGÆÐI á borð við vináttu verða seint met- in til fulls og mismunandi er hvernig þessum eftirsóttu gæðum er skipt niður á milli mann- fólksins. Ljóst er þó að þessar hnátur hafa fengið dágóðan skerf enda kemst varla hníf- urinn á milli þeirra þar sem þær beina allri sinni athygli að sápukúlum svífa út í sumarið, sem kannski bera kveðjur til vina í fjarlægum löndum. Papillon-hundurinn fríði er í öruggum höndum og fylgist með umferð dýra og manna, svona til öryggis, eða kannski sá hann bara lúguna opnast hjá pylsusala handan við götuna! Morgunblaðið/RAX Með sápukúlukveðjum FYRSTI lax sumarsins, 11 punda hrygna, veiddist í Norðurá klukkan kortér í átta í gærmorgun. Það var Gylfi Gautur Pétursson varafor- maður Stangaveiðifélags Reykja- víkur sem veiddi laxinn á Brotinu á fluguna Snældu. Skilyrði til veiða voru afleit, mikið vatn í ánni og mikill kuldi bæði í lofti og vatni. Menn höfðu þó séð til laxa dagana á undan og vænta góðs þegar hlýnar aftur. Um miðjan morgun var lax Gylfa eini fiskurinn sem hafði veiðst. Á myndinni hefur Gylfi land- að laxinum með aðstoð Bjarna Óm- ars Ragnarssonar formanns SVFR. Morgunblaðið/Guðmundur Guðjónsson Fyrsti laxinn kominn á land SAMKVÆMT aflareglu leggur Hafrannsóknastofnun til að há- marksafli á þorski verði 179 þús- und tonn á næsta fiskveiðiári og er það samdráttur um 11 þúsund tonn frá í fyrra. Hafrannsóknastofnun telur jafnframt að frekari sam- dráttur í þorskveiðum sé nauðsyn- legur, en sem nemur aflareglunni. Hámarksafli á ýsu eykst úr 30 þús- und tonnum í 55 þúsund tonn, sam- kvæmt tillögum Hafrannsókna- stofnunar og einnig eykst há- marksafli á ufsa. Árni M. Mathie- sen sjávarútvegsráðherra segir tíðindin um ýsuna og ufsann já- kvæð og að skýrslan feli almennt í sér góð tíðindi. Skýrsla Hafrannsóknastofnunar um ástand fiskistofna og tillögur um aflahámark á næsta fiskveiðiári var kynnt í gær. Þar kemur einnig fram að Hafrannsóknastofnun vill takmarka sókn í djúpkarfa þar sem ástand stofnsins sé enn talið slæmt. Hámarksaflinn dregst saman úr 30 þúsund tonnum í 25 þúsund tonn, skv. tillögunum. Sjávarútvegsráðherra gerir þann fyrirvara að hann sé ekki búinn að kynna sér skýrsluna til fulls, en Morgunblaðið náði tali af honum þar sem hann var á leið til Rúss- lands. „Mér sýnist að þetta sé allt saman frekar jákvætt; að þorsk- stofninn hafi náð botninum og hann sé að styrkjast á ný. Sérstaklega eru tíðindin um ýsuna og ufsann já- kvæð, en kannski síðri hvað varðar djúpkarfann,“ segir hann. Árni segir að hann eigi eftir að skoða ýmislegt betur í skýrslunni. Aflareglan segi að skera skuli niður þorskaflann í samræmi við tillögur Hafrannsóknastofnunar. „Engar fyrirætlanir eru uppi um annað, en ég á eftir að skoða málið betur í heild sinni,“ segir hann. Síðastliðin tvö ár hefur Hafrann- sóknastofnun endurskoðað að- ferðafræði sína og síðastliðið vor var stofnmat á þorski leiðrétt og lagt til að hámarksafli yrði 190 þús- und tonn. „Endurbættar aðferðir okkar staðfesta niðurstöðu okkar frá síðasta vori. Þær benda til þess að þorskstofninn sé heldur að styrkjast en það er engu að síður staðreynd og nokkurt áhyggjuefni að staða stofnsins er veik ennþá og við erum ennþá að veiða af of mikl- um þunga og of mikilli sókn í þenn- an stofn,“ sagði Jóhann Sigurjóns- son, forstjóri Hafrannsóknastofn- unar, m.a. á blaðamannafundi í gær. Jóhann lagði einnig áherslu á að brýnt væri að nefnd, sem sjávar- útvegsráðherra hefur skipað til að endurskoða aflareglu sem gilt hef- ur síðastliðin ár, lyki sínu starfi sem fyrst. Breytt aflaregla síðustu misseri væri meðal þess sem vegið hefði þungt í of mikilli sókn í þorsk- stofninn, að mati Hafrannsókna- stofnunar. Skýrsla Hafrannsóknastofnunar um ástand fiskistofna við Ísland Vill meiri samdrátt í þorsk- veiðum en nemur aflareglunni Jákvæð tíðindi af ýsu og ufsa STEFÁN Ólafsson prófessor, formaður stjórnar Háskóla- bíós, segir að líklega komi til uppsagna hjá stofnuninni. Ver- ið sé að kanna möguleika til að bæta afkomu kvikmyndahúss- ins, sem ekki hafi verið full- nægjandi að undanförnu. Þar komi til greina að leigja rekstur kvikmyndasala til annarra að- ila. Stefán fundaði með starfs- mönnum Háskólabíós í fyrra- dag. Viðræður við tvo aðila Stefán segir að valkostur sem helst hafi komið til greina sé að leigja út kvikmyndasýn- ingar. „Við höfum átt í viðræð- um við tvo aðila sem hafa sýnt þessu áhuga og þær viðræður standa yfir,“ segir hann. Hann vill ekki gefa upp hverjir það séu. „Ég vildi upplýsa starfsfólkið um að þetta væri í gangi, enda er alltaf hætta á að sögusagnir fari af stað. Ef til þessa kemur er útlit fyrir að grípa verði til uppsagna. Raunar eru allar lík- ur á því að svo verði, hvernig sem niðurstaðan verður,“ segir hann. Háskólabíó Útlit fyrir uppsagnir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.