Morgunblaðið - 11.06.2002, Síða 1

Morgunblaðið - 11.06.2002, Síða 1
135. TBL. 90. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS STOFNAÐ 1913 MORGUNBLAÐIÐ 11. JÚNÍ 2002 YFIRVÖLD í Bandaríkjunum hafa handtekið meintan hryðjuverka- mann samtakanna al-Qaeda sem lagt hafði á ráðin um að smíða og sprengja geislavirka sprengju, að því er John Ashcroft, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, greindi frá í gær. Ashcroft sagði að maðurinn, Ab- dulla Al Mujahir, væri í haldi banda- ríska hersins og farið væri með hann eins og óvinahermann. Benti það til þess að í undirbúningi væru fyrstu herréttarhöldin yfir meintum hryðju- verkamanni. Sagði Ashcroft að Mujahir hefði verið handtekinn áttunda maí sl. á O’Hare-flugvelli í Chicago er hann var að koma frá Pakistan. Banda- ríkjamenn hefðu „margar óháðar, staðfestar heimildir“ um fyrirætlanir Mujahirs. Allt frá árás- inni á Bandaríkin 11. september hafa sér- fræðingar haft áhyggj- ur af hugsanlegum geislasprengjuárásum hryðjuverkamanna. Geislasprengja er ekki kjarnorkuvopn en slík sprengja gæti orðið fjölda fólks að fjörtjóni í nágrenni við sprengju- staðinn og mengað stórt svæði enda myndi vígvélin innihalda geislavirkan úrgang þótt sjálf sprengju- hleðslan væri hefðbundin. Mujahir sat í fangelsi í Bandaríkj- unum í byrjun tíunda áratugarins, að því er fram kom í máli Ashcrofts, fór síðan til Afganistans og Pakist- ans 2001 og hitti þar fulltrúa al-Qaeda. Mu- jahir hefði „hlotið þjálf- un hjá óvininum, þ. á m. í sprengjusmíð og dreifingu geislavirkra efna“. Svo virtist sem al- Qaeda hefði talið að Mujahir myndi fá að ferðast óáreittur um Bandaríkin vegna þess að hann er bandarískur ríkisborgari og hefur bandarískt vegabréf. Líklegt er að skotmark Mujahirs hafi verið Wash- ington, að því er bandarískur emb- ættismaður, sem ekki vildi láta nafns síns getið, greindi frá. Annar ónafngreindur embættis- maður sagði að upplýsingarnar, er leitt hefðu til þess að Mujahir var handtekinn, hefðu komið fram við yf- irheyrslu á Abu Zabaydah, leiðtoga í al-Qaeda, sem situr í varðhaldi í Bandaríkjunum. Að sögn talsmanns bandaríska varnarmálaráðuneytisins hefur ekki verið ákveðið hvort eða fyrir hvað Mujahir verði ákærður. Mujahir gengur einnig undir nafn- inu Jose Padilla. Hann er 31 árs, fæddist í Brooklyn í New York en flutti fjögurra ára til Chicago. Hann var meðlimur í götugengi þar í borg og snérist til múhameðstrúar þegar hann var í Afganistan og Pakistan í fyrra. Bandarísk stjórnvöld handtaka meintan hryðjuverkamann al-Qaeda Lagði á ráðin um smíði geislavirkrar sprengju Mujahir Washington. AP. ROHIT, sem er sex ára og á heima í þorpi á landamærum Ind- lands og Pakistans í Kasmírhér- aði, horfir út um gat á hurðinni í barnaskóla þorpsins, en skólinn er nú notaður sem bráðabirgða- heimili fyrir fólk sem hrakist hef- ur frá heimilum sínum vegna átakanna í héraðinu og spennunn- ar milli ríkjanna undanfarnar vik- ur og mánuði. Heldur hefur þó horft til betri vegar undanfarna daga og í gær tilkynntu Indverjar að þeir hefðu ákveðið að leyfa á ný að pakist- anskar flugvélar flygju um ind- verska lofthelgi. Tóku Pakistanar þessum tíðindum vel og sögðu þau „skref í rétta átt“. Varnarmálaráðherra Banda- ríkjanna, Donald Rumsfeld, er væntanlegur til Suður-Asíu síðar í vikunni, og er vonast til að hann geti enn frekar liðkað fyrir bætt- um samskiptum Indverja og Pak- istana, en bæði ríkin búa yfir kjarnorkuvopnum. AP Slaknar á spennunni í Kasmír  Pakistönum leyft/20 TONY Blair, forsætisráðherra Bret- lands, sagði í gær að „vatnaskil“ þyrftu að verða í viðhorfum til vel- ferðarríkisins, að því er breska rík- isútvarpið, BBC, greindi frá. Ekki væri lengur hægt að atvinnulausir fengju umyrðalaust styrki. Öllum væri skylt að taka nýjum atvinnu- tækifærum, samkvæmt „sáttmála“ borgarans og samfélagsins. Sagðist Blair vilja „hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft“, en Íhaldsflokkur- inn gagnrýndi forsætisráðherrann og sagði ekki vera samræmi í orðum hans og gjörðum. Flóknu og dýru skrifræði Verkamannaflokksins hefði ekki tekist að fá einstæða for- eldra og fatlaða til að fara út á vinnu- markaðinn. Blair hélt ræðu við opnun nýrrar atvinnumiðlunarskrifstofu í London í gær, en breytingar er gerðar hafa verið á skipulagi atvinnumiðlunar- skrifstofa fela m.a. í sér að þær ann- ast líka félagslega aðstoð. Verður at- vinnulausum meinað um bætur neiti þeir að taka vinnutilboðum er talin eru viðunandi. Lagði Blair áherslu á að það væri hneyksli að 2,7 milljónir manna hefðu verið „skildar eftir“ á örorku- bótum. Nauðsynlegt væri að ná til þess fólks sem velferðarkerfið hefði „afskrifað“. Íhaldsmenn sögðu að ekkert nýtt hefði komið fram í ræðu Blairs. Hún hefði verið endurtekið efni sem ætl- að væri að draga athyglina frá þeim hneykslismálum sem plagað hefðu ríkisstjórnina undanfarnar vikur. Blair vill „vatnaskil“ í velferðarmálum AP ÞRÁTT fyrir úrhelli í Seoul í gær fögnuðu þessar s-kóresku stúlkur innilega þegar s-kóreska fótbolta- landsliðið skoraði jöfnunarmarkið í leiknum gegn Bandaríkjamönnum í D-riðli HM í gær. Leikurinn, sem lauk með jafntefli, 1–1, var spilaður í borginni Daegu í S-Kóreu en sýnd- ur á stórum sjónvarpsskjá í mið- borg Seoul. Fagnað í Seoul  Bandaríkjamenn/B11 ENSKAN sækir fram af ógnar- þunga og nú virðast Frakkar af öll- um mönnum vera að gefast upp við að standa vörð um sína eigin tungu. Franska vísindaakademían til- kynnti nýlega, að framvegis yrði enskunni gert hærra undir höfði í riti hennar, Comptes Rendus, en frönsk- unni og tilgangurinn sagður sá að ná þannig til fleiri lesenda. Hingað til hefur hins vegar verið lögð á það mikil áhersla, að vísindamálið, inn- anlands að minnsta kosti, sé franskt og lögum samkvæmt verða vísinda- ráðstefnur á vegum opinberra stofn- ana að fara fram á frönsku. Undanhaldið fyrir enskunni hefur einnig teygt anga sína inn á franska dagblaðið Le Monde en það olli fyrir skömmu miklu uppnámi er það fór að gefa út vikulega blaðauka með fréttum upp úr The New York Times og þá á ensku en ekki frönsku. Voru rökin þau, að helmingur lesenda blaðsins skildi ensku. Ekkert var sagt um hinn helminginn. Franskan hörfar fyrir enskunni Talið líklegt að hryðjuverkamenn hafi beint spjótum sínum að Washington

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.