Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum
www.mbl.isKR ́í efsta sæti efstu
deildar karla / B2
Ragnar Óskarsson
í liði ársins / B1
16 SÍÐUR48 SÍÐUR
Sérblöð í dag
Á ÞRIÐJUDÖGUM
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
setti velferð barna á oddinn á leið-
togafundi Eystrasaltsráðsins í
Sankti Pétursborg í gær. Á fund-
inum var meðal annars rætt um
inngöngu Eystrasaltsríkjanna í
Evrópusambandið (ESB), og taldi
forsætisráðherra að samhliða henni
þyrfti að efla samstarf ESB og
Rússlands. Landsvæði Rússlands
við Kaliníngrad var einnig til um-
ræðu í tengslum við stækkun ESB,
en Vladimír Pútín, forseti Rúss-
lands, sagði nauðsynlegt að tryggja
íbúum Kaliníngrad örugg tengsl við
Rússland ef af inngöngu ríkjanna í
ESB yrði.
Davíð Oddsson lagði til í ræðu
sinni að samstarf ríkjanna í Eystra-
saltsráðinu um öryggi barna yrði
eflt og komið yrði á fundi ráðherra
sem fara með málefni barna í ríkj-
unum. Stofnað var til samstarfsins
eftir fund ríkjanna í Riga í Lett-
landi árið 1998, og beindist það
fyrst gegn misnotkun og sölu
barna, en forsætisráðherra lagði til
að farið yrði inn á fleiri svið barna-
verndar, til dæmis málefni heim-
ilislausra barna.
Á fundinum var almannaöryggi í
Eystrasaltsríkjunum einnig rætt,
og má þar nefna samstarf þar-
lendra við íslensk fyrirtæki um
uppsetningu sambærilegrar neyð-
arlínu í Eystrasaltslöndum og
þekkist í númerinu 112 í Evrópu.
Samstarf af þessum toga þykir
til marks um þann árangur sem
náðst hefur af starfi Eystrasalts-
ráðsins, en í því sitja Eistland,
Lettland, Litháen, Rússland, Finn-
land, Svíþjóð, Noregur, Danmörk,
Ísland, Pólland og Þýskaland.
Reuters
Leiðtogar Eystrasaltsráðsins f.v.: Anders Fogh Rasmussen forsætisráðh. Danmerkur, Siim Kallas forsætisráðh. Eistlands, Paavo Lipponen forsæt-
isráðh. Finnlands, Davíð Oddsson forsætisráðh. Íslands, Andris Berzins forsætisráðh. Lettlands, Gerhard Schröder kanslari Þýskalands, Vladimir
Pútín forseti Rússlands, Mikhail Kasyanov forsætisráðh. Rússlands, Brazauskas forsætisráðh. Litháen, Kjell Magne Bondevik forsætisráðh. Noregs,
Leszek Miller forsætisráðh. Póllands og Göran Persson forsætisráðh. Svíþjóðar.
Efla þarf samstarf ESB og Rússlands
Davíð Oddsson ávarpar leiðtogafund Eystrasaltsráðsins í Sankti Pétursborg
HAGKAUP hafa farið þess á leit við
landbúnaðarráðherra að fá leyfi til að
flytja inn 20 tonn af frosnum kjúkling-
um frá Svíþjóð, að sögn Finns Árna-
sonar, framkvæmdastjóra Hagkaupa.
„Skortur á kjúklingum í landinu er
orðinn viðvarandi og hefur farið stig-
vaxandi, til dæmis fengum við einung-
is 20–30% af því magni sem þarf til að
anna eftirspurn viðskiptavina okkar í
liðinni viku og útlitið er ekki betra
nú,“ segir Finnur. Hagkaup óskar eft-
ir því að landbúnaðarráðherra felli
niður aðflutningsgjöld á kjúklingum
en að sögn Finns er innflutningur
ekki mögulegur núna vegna þess hve
gjöldin eru há, sú vara myndi ekki
vera samkeppnishæf á markaðnum.
„Gjaldlaus innflutningur myndi hins
vegar gera okkur kleift að bjóða kjúk-
linga á mjög góðu verði til neytenda,“
segir Finnur.
Guðni Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segist ekki hafa heyrt um að
skortur sé á kjúklingum í landinu.
„Það hafa engar aðrar kvartanir
komið enn í landbúnaðarráðuneytið
um skort á kjúklingum þannig að við
þekkjum ekki vandamálið sem Hag-
kaup eru að tala um. Hins vegar er
málið farið í vinnslu hjá okkur og við
munum skoða hvernig staðan er,“
segir landbúnaðarráðherra.
Hagkaup vilja flytja inn
20 tonn af kjúklingum
FJÓRIR menn eru í varðhaldi lög-
reglu í Kópavogi og Reykjavík
vegna falsaðra peningaseðla, sem
hafa verið í umferð á höfuðborg-
arsvæðinu að undanförnu, og við
húsleit í Kópavogi í gær fannst
búnaður til peningaframleiðslu.
Lögreglan í Reykjavík handtók
mann í gærkvöldi vegna þessa
máls. Síðastliðinn föstudag var
maður úrskurðaður í gæsluvarð-
hald fram á miðvikudag, að kröfu
lögreglunnar í Kópavogi, vegna
rannsóknar á peningafölsun. Þá
voru tveir menn handteknir að-
faranótt mánudags eftir að hafa
framvísað fölsuðum peningaseðl-
um. Annar maðurinn var handtek-
inn á skemmtistað en hinn á bens-
ínstöð. Báðir hafa þeir komið við
sögu lögreglunnar áður og hefur
lögreglan gert kröfu um gæslu-
varðhald yfir þeim sem og mann-
inum sem handtekinn var í gær-
kvöldi til föstudags.
Lögreglan í Kópavogi gerði hús-
leit í húsi í bænum í gærkvöldi og
fann tækjabúnað til peningafram-
leiðslu sem talið er að tengist öll-
um mönnunum fjórum en ekki
fundust neinir peningar við leitina.
Hins vegar er rannsóknarlögregl-
an í Kópavogi með í rannsókn 10
5.000 króna seðla, sem höfðu verið
notaðir við kaup á varningi.
Fjórir
menn
í haldi
Falsaðir seðlar í umferð
Náðu 200 e-töflum við götueftirlit
FÍKNIEFNADEILD lögreglunnar í
Reykjavík lagði á föstudagskvöld
hald á um 200 e-töflur og þakkar Ás-
geir Karlsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn það auknum mannskap sem
deildin hefur fengið, m.a. til að sinna
eftirliti á götum úti.
Fjórir menn voru handteknir
vegna málsins, en við skoðun á bifreið
þeirra í miðborginni á föstudagskvöld
fannst hluti efnanna og afgangurinn
við húsleit heima hjá þeim í kjölfarið.
Að sögn Ásgeirs voru mennirnir á
aldrinum frá tæplega tvítugu til þrí-
tugs og hafa sumir þeirra áður komið
við sögu fíkniefnamála. Var þeim
sleppt að lokinni yfirheyrslu og telst
mál þeirra upplýst.
Vegna magnsins má telja víst að
mennirnir hafi ætlað e-töflurnar til
sölu en ekki einkanota, samkvæmt
heimildum blaðsins. Götuverð á e-
töflu er um 2.500 krónur. „Við höfum
fengið aukinn mannskap til fíkniefna-
deildarinnar til að sinna eftirliti, eink-
um á götum úti. Það var við eftirlit af
því tagi sem bíllinn var stöðvaður og
mennirnir gripnir,“ sagði Ásgeir og
vísar til þess að fimm mönnum var
bætt við deildina fyrir rúmlega ári.
Aukinn mannskapur fíkniefnadeildar skilar árangri
Allt að 70%
afsláttur í
nýrri lyfja-
verslun
APÓTEKARINN, ný lágvöruverðs-
keðja á smásölumarkaði lyfja, opnaði
þrjár lyfjabúðir í gær. Einkunnarorð
Apótekarans eru lyf á lægra verði og
segir Ingólfur Garðarsson talsmaður
fyrirtækisins gert ráð fyrir, að afslátt-
ur Apótekarans taki mið af aðstæðum
í samfélaginu á hverjum tíma og þörf-
um almennings. Nú séu frjókornaof-
næmi og heymæði til að mynda að ná
hámarki og því bjóði verslanirnar allt
að 70% afslátt af tveimur ofnæmis-
lyfjum fyrstu vikuna. Apótekarinn er
í eigu Hagræðis sem einnig á Lyf og
heilsu.
Afsláttur af umræddum lyfjum,
Histal og Loradin NM Farma, er 44–
71%, eftir því hvort um er að ræða lyf-
seðilsskylt lyf til almennings eða líf-
eyrisþega og tekur hann til greiðslu-
hluta sjúklings, að Ingólfs sögn.
Hámarksverð á 100 töflum af Hist-
al er 1.446 krónur til lífeyrisþega og
greiðir hann því 423 krónur fyrir lyfið
á tilboðsverði, sem er 71% afsláttur.
Hámarksverð til almenns sjúklings
fyrir sama skammt af sama lyfi er
4.748 krónur og greiðir hann 2.266
krónur með 52% afslætti, samkvæmt
útreikningum Apótekarans fyrir
Morgunblaðið.
Áhersla á lífeyrisþega/19
Annmarkar
á umfjöllun
dómnefndar
STÖÐUNEFND, sem fjallaði um álit
dómnefndar á umsækjendum um
stöðu lektors í fornleifafræði við
heimspekideild Háskóla Íslands,
komst að þeirri niðurstöðu að ýmsir
annmarkar væru á áliti dómnefndar
og greindi meðal annars hlutdrægni í
umfjöllun hennar, að sögn Vilhjálms
Árnasonar, deildarforseta heimspeki-
deildar.
Umsækjendur um stöðuna voru
fornleifafræðingarnir dr. Bjarni F.
Einarsson, dr. Margrét Hermanns-
Auðardóttir, dr. Orri Vésteinsson og
Steinunn Kristjánsdóttir. Dómnefnd-
in taldi að Orri væri hæfur til að
gegna stöðu lektors og dósents í forn-
leifafræði og að Margrét væri hæf til
að gegna stöðu lektors en að hún upp-
fyllti ekki kröfur til að gegna stöðu
dósents. Bjarni og Steinunn voru ekki
talin hæf til að gegna stöðunni og
vakti athygli hve stór orð voru höfð
um þau í dómnefndarálitinu.
Vilhjálmur Árnason segir að bókun
stöðunefndar hafi verið samþykkt
samhljóða. Sagnfræðiskor fjallar um
málið í dag, en svo verður það tekið
fyrir á deildarfundi, sem verður vænt-
anlega í næstu viku.
♦ ♦ ♦