Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 4
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Audi A4 1.8T,
f.skr.d. 23.03. 2001, ek. 20 þ. km,
4 d., bsk., 17“ álf., leðurinnrétting
o.fl. Verð 3.290.000.-
Nánari upplýsingar
hjá Bílaþingi.
Opnunartímar: Mánud.-föstud.
kl. 10-18 og laugard. kl. 12-16.
Laugavegur 170-174 • Sími 590 5000 • Heimasíða: www.bilathing.is
Netfang: bilathing@hekla.is
STJÓRNARMENN í Byggðastofn-
un, sem Morgunblaðið ræddi við og
vildu tjá sig, aðrir en formaður og
varaformaður stjórnar, segja að deil-
urnar sem ríkt hafa að undanförnu
milli Kristins H. Gunnarssonar
stjórnarformanns og Theodórs A.
Bjarnasonar forstjóra hafi óhjá-
kvæmilega skaðað stofnunina og
ímynd hennar útávið. Bréfaskipti
Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og
viðskiptaráðherra, og Theodórs hafi
heldur ekki verið til að bæta þar úr
en stjórnarmennirnar vilja flestir
ekki taka afstöðu til innihalds bréf-
anna.
Búist er við að þessi mál verði til
umræðu á stjórnarfundi sem fram á
að fara á Sauðárkróki á fimmtudag,
þeim síðasta fyrir ársfund Byggða-
stofnunar á Ísafirði í næstu viku, 21.
júní.
Allt starfsfólk unnið gott starf
Örlygur Hnefill Jónsson, lögmað-
ur á Húsavík og varaþingmaður fyrir
Samfylkinguna á Norðurlandi
eystra, segir að deilurnar í Byggða-
stofnun að undanförnu hafi skaðað
stofnunina og brýnt sé að vinda lægi
um hana þannig að hún geti starfað
vel og í þágu allrar landsbyggðarinn-
ar. Hann segist ekki ætla að blanda
sér inn í bréfaskriftir á milli manna
eða stjórnsýslusviða innan Byggða-
stofnunar, hann vilji ekki taka af-
stöðu til þeirra eða draga neina
ályktun af þeim.
„Ég hef bent á að starfsfólk
Byggðastofnunar er að vinna gott
starf. Stofnunin var flutt norður á
Sauðárkrók og hana þurfti að endur-
manna að stærstum hluta. Þar tókst
vel til. Starfsfólk allt hefur mitt
traust, og undanskil ég þar engan.
Mér hefur líkað vel að vinna með
starfsfólkinu og forstjórinn er þar
meðtalinn. Flutningurinn norður
tókst vel en auðvitað geta komið upp
tímabundnir erfiðleikar. Stofnunin
er vel virk og skiptir miklu máli fyrir
atvinnulíf á landsbyggðinni, sem
henni ber að styrkja og efla. Lands-
byggðarfólk horfir til þessarar stofn-
unar og auðvitað gerir það kröfu um
að hún sé starfhæf. Miklir hagsmun-
ir þess fólks eru undir,“ segir Örlyg-
ur Hnefill.
Ekki tilefni til athugasemda
Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Austurlandi,
segist vel geta tekið undir með Guð-
jóni Guðmundssyni, varaformanni
stjórnar, sem í Morgunblaðinu á
sunnudag lýsti yfir fullu trausti á
störf Theodórs og
sagðist hafa orðið
undrandi á svarbréfi
Valgerðar til forstjór-
ans. Arnbjörg segir að
þau atriði sem fram
hafi komið í svarbréf-
inu hafi ekki verið það
stórvægileg að þau hafi
verið tilefni til athuga-
semda.
Að öðru leyti vill hún
ekki taka afstöðu til
innihalds bréfanna en
segir augljóst að deilur
stjórnarformanns og
forstjóra skaði ímynd
Byggðastofnunar og
séu ekki til góðs.
Hún segir að aðfinnsla ráðherra
um drátt á að skila ársreikningi
stofnunarinnar sé meira „praktískt“
atriði sem ekki hafi verið hægt að
ráða við. Skýringar hafi verið gefnar
á þeim drætti sem Arnbjörg telur að
hafi verið eðlilegar, sem og fleiri
skýringar sem gefnar hafi verið af
hálfu forstjórans.
„Ég hef ágæta reynslu af sam-
skiptum mínum við Theodór. Hann
hefur unnið af mikilli samviskusemi
og ég hef ekkert út á hans störf að
setja. Það hefur tekið tíma fyrir hann
að setja sig inn í mál, sem er eðlilegt í
ljósi þess að hafa komið hingað beint
frá útlöndum,“ segir Arnbjörg.
Persónuleg deila stjórnar-
formanns og forstjóra
Orri Hlöðversson, fráfarandi
framkvæmdastjóri Fjárvaka á Sauð-
árkróki og verðandi bæjarstjóri í
Hveragerði, segir að sér finnist mið-
ur hvernig málum sé komið innan
Byggðastofnunar og hvernig deilur
manna hafi magnast stig af stigi.
Hann segist líta svo á að um per-
sónulega deilu sé að ræða milli
stjórnarformannsins og forstjórans
sem aðrir stjórnarmenn hafi verið
áhorfendur að en ekki beinir þátttak-
endur. Orri segist hafa átt farsælt
samstarf við bæði Kristin og Theo-
dór, hann hafi heilshugar stutt ráðn-
ingu þess síðarnefnda á sínum tíma.
Þrátt fyrir það séu þeir ekki yfir
gagnrýni hafnir, frekar en aðrir
menn.
Orra finnst það ennfremur miður
að bréfaskrif innan stofnunarinnar
hafi farið fram á síðum dagblaðanna,
það hafi ekki verið til að auðvelda
lausn deilunnar. Um innihald bréf-
anna vill Orri ekki tjá sig að öðru
leyti en því að þar hljóti að vera um
ákveðna viðleitni ráðherrans að
ræða til að komast til botns í málinu,
a.m.k. annarri hlið þess. Vonast hann
til að ráðherra finni farsæla lausn á
næstu dögum.
Deilurnar veikja
stofnunina
Drífa Hjartardóttir, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins á Suðurlandi og
bóndi að Keldum, segist ekki vilja
taka afstöðu til bréfaskrifanna þar
sem hún hafi ekki séð þau vegna fjar-
veru sinnar í útlöndum að undan-
förnu. Hún tekur fram að hún beri
fullt traust til Theodórs í starfi for-
stjóra án þess að hún vilji hvorki gefa
honum né Kristni eitthvað sérstakt
„vottorð“.
„Það hefur verið ömurlegt að sitja
undir þeim deilum sem hafa verið
milli Kristins og Theodórs. Nauð-
synlegt er í öllum stofnunum og fyr-
irtækjum að traust ríki á milli for-
stjóra og stjórnarformanns. Því
miður hafa þessar deilur ekki góð
áhrif á Byggðastofnun, þær veikja
hana. Annaðhvort verða þeir að taka
á þessu eða ráðherra. Í öllu falli get-
ur þetta ekki haldið svona áfram,“
segir Drífa.
Gunnlaugur tjáir sig ekki
Gunnlaugur Stefánsson, sóknar-
prestur að Heydölum og varaþing-
maður Samfylkingarinnar á Austur-
landi, segist ekki vilja tjá sig
opinberlega um þær deilur sem verið
hafa innan stofnunarinnar að undan-
förnu. Hann segist fyrst ætla að tjá
sín viðhorf meðal stjórnarmanna á
næsta fundi.
Stjórnarmenn í Byggðastofnun um deilurnar milli formanns og forstjóra
Gunnlaugur
Stefánsson
Drífa
Hjartardóttir
Arnbjörg
Sveinsdóttir
Hafa óhjákvæmilega skaðað
stofnunina og ímynd hennar
Síðasti stjórnarfundur fyrir ársfund haldinn á Sauðárkróki á fimmtudag
Örlygur Hnefill
Jónsson
Orri
Hlöðversson
EINAR Oddur Kristjánsson, vara-
formaður fjárlaganefndar Alþingis,
segir að fjárveitingar hér á landi til
heilbrigðismála, sem hlutfall af
landsframleiðslu, sé mjög hátt, sér í
lagi með tilliti til þess hversu þjóðin
sé ung. Þrátt fyrir það sé skipulagi á
heilbrigðisþjónustunni af hálfu lög-
gjafans ábótavant, efla þurfi grunn-
þjónustu eins og heilsugæslu og eft-
irlit, frekar en að færa alla þjónustu
upp á hæsta stig með hátækniað-
gerðum. Áherslu þurfi að leggja á
sem ódýrasta þjónustu og vill Einar
Oddur í því sambandi skoða mögu-
leika á einkarekstri þar sem því
verði við komið.
„Ég fullyrði að það getur ekki
vantað peninga inn í heilbrigðiskerf-
ið. Við höfum læknalið og starfsfólk
sem er fullkomlega sambærilegt á
við það sem gerist annars staðar í
Evrópu. Við höfum fleiri sjúkrarúm
á hvern íbúa heldur en nokkur önn-
ur þjóð í Evrópu, aðeins Japan er
með sambærilega tölu. Það vantar
ekki húsnæði og ég veit að það vant-
ar ekki tæki. Við höfum mjög hátt
menntunarstig starfsfólks og við
verjum miklum peningum í heil-
brigðiskerfið. Ég fullyrði þess vegna
að það hljóti að vera skipulagið sem
sé vandamálið hjá okkur,“ segir Ein-
ar Oddur en tekur fram að hann sé
ekki að gagnrýna stjórnendur stóru
sjúkrahúsanna, vandinn liggi í heild-
arskipulaginu sem löggjafinn leggi
til. Hann hafi margsinnis bent á
þetta á Alþingi.
Horfa má til
Frakklands og Belgíu
Aðspurður hvernig eigi að taka á
þessu segir Einar Oddur að Íslend-
ingar eigi að horfa til þjóða eins og
Frakklands og Belgíu, þar sem fram
hafi farið mikil vinna í að endur-
skipuleggja heilbrigðiskerfið. Þar
hafi verið sérstök áætlun í gangi til
að komast framhjá stighækkandi
kostnaði við heilbrigðisþjónustuna.
„Frakkar og Belgar hafa komið
stórum hluta þjónustunnar inn í
einkarekstur og þannig tekist að
lækka kostnaðinn. Þeir hafa gert
þetta án þess að hverfa frá sam-
hjálpinni og opinberum greiðslum,
enda er ég ekki að leggja til að við
gerum það. Ég hef margsinnis bent
á þetta á Alþingi,“ segir Einar Odd-
ur.
Hann segir að þjónustunni sé
meira þrýst inn í hátæknigreinar um
leið og verið sé að vanrækja grunn-
þjónustu á borð við heilsugæslu-
stöðvar og ungbarna- og mæðraeft-
irlit. „Við megum ekki að láta undan
endalausum þrýstingi á meiri pen-
inga. Það væri hægt að eyða öllum
fjármunum ríkisins í hátækniað-
gerðir ef menn vildu,“ segir Einar
Oddur.
Djarflega mælt að sameining
hafi ekki skilað árangri
Í samtali við Morgunblaðið um
helgina sagði Einar Oddur að við
fjárlagagerð undanfarin ár hefði
verið gengið út frá því að sameining
stóru sjúkrahúsanna myndi skila
mikilli hagræðingu en það hefði ekki
gengið eftir. Spurður um viðbrögð
við þessum ummælum sagði Magn-
ús Pétursson, forstjóri Landspítala
– háskólasjúkrahúss, að sameining
skilaði sér ekki með ákvörðunum,
hún skilaði sér með breytingunni
sem hún kallaði á. Sameining stóru
sjúkrahúsanna stæði enn yfir en á
þeim deildum sem henni væri lokið,
hefði árangurinn verið góður.
Nefndi Magnús þar sem dæmi æða-
og þvagfæraskurðlækningar og
þjónustu við geðfatlaða.
„Ég staðhæfi að sameiningin er
farin að skila sér á sumum stöðum
en alls ekki á öllum. Þess vegna
finnst mér djarflega mælt að sam-
einingin hafi ekki skilað neinum ár-
angri. Árangur hefur átt sér stað en
hagræðingin er ekki öll komin fram
ennþá,“ sagði Magnús og benti á að
raunkostnaður við rekstur spítalans
í fyrra hefði verið minni en árið áður
og ívið minni en árið þar áður.
Varaformaður fjárlaganefndar Alþingis
Efla þarf grunnþjónustu
frekar en hátækniaðgerðir
SKIPT var um turn á Akra-
neskirkju nýlega en gamli turninn
var farinn að láta á sjá, enda um 40
ára gamall. Trésmiðjan Akur smíð-
aði nýja turninn, sem var unninn í
heilu lagi á verkstæði þeirra, og er
hann nákvæm eftirlíking af þeim
gamla. Guðni Hannesson, sem býr
við Skólabraut gegnt kirkjunni,
óskaði eftir því að fá gamla turninn
í sína umsjá og hefur nú reist hann í
garði sínum. Guðni sagði að sér
hefði brugðið nokkuð er hann sá
turninn koma niður úr háloftunum,
en turninn er rúmlega átta metra
hár.
Akraneskirkja var vígð árið 1896
og hafa margvíslegar endurbætur
verið gerðar á turninum, sem í
fyrstu var gluggalaus.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar
Gamli turninn þjónar nú hlut-
verki garðskála.
Gamli
kirkjuturn-
inn fær nýtt
hlutverk
Akranesi. Morgunblaðið.