Morgunblaðið - 11.06.2002, Síða 8
FRÉTTIR
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Borgfirðingahátíð
Leggjum
áherslu á
léttleika
Borgfirðingahátíðverður haldin umnæstu helgi og má
segja að flestu verði þar
tjaldað til til að laða að
gesti og gangandi. Hólm-
fríður Sveinsdóttir er
verkefnisstjóri hjá Borg-
arbyggð og sér meðal ann-
ars um Borgfirðingahátíð-
ina. Hún svaraði nokkrum
spurningum Morgunblaðs-
ins.
Segðu okkur eitthvað
nánar um hátíðina.
„Við köllum hátíðina ein-
faldlega Borgfirðingahá-
tíð. Að hátíðinni standa
fjögur sveitarfélög í Borg-
arfirði; Borgarbyggð,
Borgarfjarðarsveit, Hvít-
ársíðuhreppur og Skorra-
dalshreppur. Hún fer fram
víða um Borgarfjörð dagana 14.–
17. júní, að þessu sinni þó aðallega
í Borgarnesi og í Reykholtsdal.“
Hvað verður helst til hátíða-
brigða?
„Allt sem nöfnum tjáir að nefna,
allt frá skiptimarkaði fyrir staka
sokka upp í stórdansleik fyrir alla
fjölskylduna. Hátíðin hefst form-
lega föstudaginn 14. júní með svo-
kölluðu Baðstofukvöldi í Loga-
landi í Reykholtsdal. Á
dagskránni þar eru Kaffibrúsa-
karlarnir, Alina Dubik og Gerrit
Schuil, Smaladrengirnir og Borg-
firðingarnir Bjartmar Hannesson
og Gísli Einarsson.
Á laugardaginn verður heilmik-
ið húllumhæ í Borgarnesi frá
morgni fram á rauðanótt. Við
byrjum á morgunverði í Skalla-
grímsgarði og útimessu. Eftir há-
degi verðum við með sannkallað
markaðstorg á gamla íþróttavell-
inum við Hyrnutorg. Fyrir utan
ýmiss konar varning sem þar
verður boðinn til sölu og kynning-
ar verða ýmiss konar uppákomur.
Karamellur munu svífa um loftin
blá, Egilssaga verður flutt í ör-
stuttri útgáfu af leikdeild Skalla-
gríms, Lionsmenn munu standa
fyrir fjörugu stóruppboði,
Fimmta herdeildin treður upp,
götuleikhús verður á staðnum,
leiktæki fyrir börn og fleira og
fleira.
Bifhjólasýning verður við Shell-
stöðina og hópakstur um Borgar-
nes og Borgarfjörð. Í eftirmiðdag-
inn verða Kiwanismenn með
spennandi Spiderman-keppni fyr-
ir krakka á öllum aldri og þá hefst
líka árgangamót í götukörfubolta
fyrir 30 ára og eldri, í umsjón
körfuboltadeildar Skallagríms.
Ég veit að brottfluttir Borgfirð-
ingar eru nú í óðaönn að grafa upp
gömlu körfuboltaskóna sína og
dusta af þeim rykið. Ég er t.d. bú-
in að finna mína og hlakka mikið
til. Á laugardagskvöldið sláum við
svo upp heljarmiklu fjölskyldu-
balli í íþróttamiðstöðinni og munu
hinir frægu Geirfuglar halda uppi
stanslausu stuði fyrir
alla aldurshópa. Afar
langt er síðan síðast
var slegið upp fjöl-
skyldudansleik í Borg-
arnesi og því margir
mjög spenntir. Jafnframt verða
dansiböll fyrir fullorðna öll kvöld-
in.
Sunnudagurinn verður á rólegri
nótum. Þá verður m.a. boðið upp á
skemmtilega menningardagskrá í
Snorrastofu í Reykholti, Kvenna-
hlaup ÍSÍ, margkonar gönguferð-
ir, kajakleigu og fleira. Þjóðhátíð-
ardagurinn verður haldinn
hátíðlegur víða um Borgarfjörð.
Hátíðardagskrá verður í Loga-
landi, Brautartungu og í Borgar-
nesi. Í Borgarnesi verður byrjað
með leikjum og sprelli á íþrótta-
vellinum þar sem fallhlífarstökkv-
arar svífa niður með íslenska fán-
ann. Á eftir hátíðarguðsþjónustu
verður skrúðganga niður í Skalla-
grímsgarð þar sem verður hátíð-
ardagskrá. Þennan dag hvetjum
við alla til að bera höfuðfat til að
skapa sérstaka hátíðarstemningu.
Síðasta dagskráratriðið verður
svo útiball með hljómsveitinni Úl-
rik við íþróttamiðstöðina í Borg-
arnesi að kvöldi 17. júní.“
Helsti tilgangur með hátíðinni
og helstu áherslur?
„Tilgangurinn er í raun marg-
þættur. Fyrst og fremst er til-
gangurinn þó að Borgfirðingar
geri sér og gestum sínum glaðan
dag. Við leggjum áherslu á létt-
leika og lítið verður um formleg-
heit. Jafnframt má segja að það sé
markmið okkar að fá sem flesta
brottflutta Borgfirðinga til að
koma á heimaslóðir þessa daga.“
Hafið þið haldið svona hátíð áð-
ur?
„Þetta er í þriðja sinn sem há-
tíðin er haldin og nýtur hún vax-
andi vinsælda. Borgfirðingahátíð
er alveg örugglega búin að festa
sig í sessi.“
Skiptimarkaður fyrir staka
sokka … er mikið úrval?
„Þú getur rétt ímyndað þér.
Samkvæmt tiltölulega áreiðanleg-
um heimildum eru að meðaltali sjö
stakir sokkar á hverju heimili.
Þannig má ætla að á þúsund heim-
ilum séu 7.000 stakir sokkar. Við
munum leitast við að
finna þessum einmana
sokkum göngufélaga.“
Eru Borgfirðingar
sjálfir jákvæðir gagn-
vart svona hátíð?
„Já, mjög. Það hefur verið afar
gott að leita til íbúanna, félaga-
samtaka og fyrirtækja og allir eru
af vilja gerðir til að gera þesa há-
tíð sem skemmtilegasta. Í raun
kom það mér skemmtilega á óvart
hvað allir voru fúsir til að leggja
hönd á plóginn. Yfirskrift hátíð-
arinnar er Fljúgum hærra og það
munum við svo sannarlega gera
um næstu helgi.“
Hólmfríður Sveinsdóttir
Hólmfríður Sveinsdóttir fædd-
ist á Akranesi 18. júní 1967. Alin
upp í Borgarnesi. Stúdent frá FV
1988 og er með BA-próf í stjórn-
málafræði frá Háskóla Íslands
1994. Starfaði hjá Vinnumála-
stofnun 1994–99 og hjá Iðn-
tæknistofnun 2000–2001. Hefur
starfað sem verkefnisstjóri hjá
Borgarbyggð frá nóvember 2001.
Gera sér
og gestum
glaðan dag
Sjáumst í landsmálahringnum við tækifæri, hr. Davíð.
ÞAÐ er sami dróminn yfir laxveið-
inni. Laxá í Aðaldal og Laxá í Kjós
voru opnaðar í gærmorgun og var
veiði lítil. Einn kom úr Laxá nyrðra
og undir hádegi var sömu sögu að
segja í Kjósinni, einn kominn á land.
Þá var líkt á komið með Kjarrá sem
var opnuð síðastliðinn föstudag.
Hópurinn sem hóf veiðarnar veiddi
til sunnudagskvölds og var afrakst-
urinn aðeins tveir laxar.
Ókominn
„Það er reytingur af laxi hérna en
hann hefur tekið illa. Það kom einn
úr Laxfossi að sunnan á maðk og
annar slapp af flugu í fossinum að
norðan. Það voru laxar hér fyrir
helgi sem eru greinilega gengnir
fram ána, en það er erfitt að finna
þá. Þó hefur sést lax í Bugðu,“ sagði
Ásgeir Heiðar, fulltrúi leigutaka í
Laxá í Kjós, í gærmorgun.
Gunnar Gíslason, leiðsögumaður
við Þverá/Kjarrá, sagði laxinn
greinilega ekki kominn í Kjarrána.
„Við fórum að vísu lítið inn fyrir
Eyrar, en menn voru duglegir að
fara um og reyna. Þessir tveir sem
veiddust komu úr Efri-Johnson og
Réttarhyl, 11 og 12 punda. Við
heyrðum að eitthvað hefði glæðst í
Þveránni, t.d. veiddust 4–5 laxar á
sunnudagsmorguninn,“ sagði Gunn-
ar.
Skást í Blöndu
Eins og stundum síðustu sumur
er júníveiðin skást í Blöndu. Hollið
sem opnaði ána 5. júní fékk 9 laxa á
einum og hálfum degi. Síðan hefur
verið reytingsveiði. Allt eru þetta
boltafiskar, 10 til 13 pund.
Miðfjarðará verður opnuð næsta
laugardag. Um helgina sáust nokkr-
ir vænir fiskar bæði í Efri-Kistu og
Hlíðarfossi í Vesturá og eru menn
því eftirvæntingarfullir að opna ána.
Lítil veiði í Laxá í Aðal-
dal og Kjós fyrsta daginn
Aðalsteinn Jónsson með
11 punda hrygnu úr
Efri-Johnson í Kjarrá.
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?