Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 10

Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 10
FRÉTTIR 10 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ býst við því að í dag og á morgun komi hundruð Falon Gong-félaga til lands- ins í þeim tilgangi að mótmæla Jiang Zemin, forseta Kína. Björn Friðfinnsson ráðuneytis- stjóri segir þetta með þeim fyrirvara að margir muni hugsanlega hætta við að koma vegna ákvörðunar forsætis- ráðherra, dómsmálaráðherra og ut- anríkisráðherra um að synja Falun Gong-félögum um landgöngu. Málið verður rætt í ríkisstjórn í dag. Ekki náðist í Sólveigu Pétursdótt- ur dómsmálaráðherra í gær. Björn segir að vitað sé til þess að hundruð Kínverja og Taívana séu á leið til landsins en hluti af þeim sé eingöngu að koma hingað sem ferða- menn. Hann hefur ekki upplýsingar um hversu margir eru félagar í Falun Gong en hann vonast til að þeir verði ekki fleiri en 200–300. Margir þeirra hafa fylgt Jiang Zemin eftir á ferða- lagi hans um Rússland, Eistland og Lettland en þá í smærri hópum en hóparnir hyggjast sameinast hér á landi. Aðspurður hvernig hægt verði að þekkja Falun Gong-félaga frá öðr- um farþegum segir Björn að lögregl- an hafi lista með nöfnum félaga og farþegar verði einnig spurðir hvort þeir tilheyri félagsskapnum. Býst hann við að flestir muni greina satt og rétt frá enda sé sannleikurinn ein af mikilvægustu kennisetningum Falun Gong. Aðspurður segir Björn að fulltrúar kínverskra stjórnvalda hafi lýst yfir ánægju sinni við lögreglu með ráð- stafanir íslenskra stjórnvalda. Haldið í Njarðvíkurskóla? Komi eins margir Falun Gong-fé- lagar til landsins og dómsmálaráðu- neytið telur, er ljóst að þeim verður ekki haldið í flugstöðinni þar til þeir verða sendir til baka. Staðfestir Björn að rætt hafi verið um að halda þeim í Njarðvíkurskóla þar til þeir verða fluttir til baka. Þá komi einnig til greina að leigja flugvélar til að flytja fólkið. Spurður um kostnað vegna heimsóknarinnar segir Björn að slíkt sé erfitt að meta, nú sé gert ráð fyrir að kostnaður verði um og yf- ir 20 milljónir. Morgunblaðið hefur áreiðanlegar heimildir fyrir því að nafnalistarnir sem lögregla styðst við séu að mestu leyti komnir frá kínverskum stjórn- völdum. Á listunum munu einkum vera nöfn kínverskra og taívanskra ríkisborgara og hafa Kínverjar kraf- ist þess að öllum á listanum verði meinaður aðgangur til landsins. Aðspurður sagði Björn að listarnir væru m.a. komnir frá kínverskum stjórnvöldum en vildi ekki tjá sig nánar um þetta atriði. Aðspurður segir hann að aðgerðir stjórnvalda beinist ekki sérstaklega að Kínverj- um eða Taívönum heldur að öllum fé- lögum í Falun Gong sem koma til landsins. Björn segir að engin at- hugasemd hafi borist frá öðrum Schengen-ríkjum um þær ráðstafanir sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til. Aðspurður hvort stjórnvöld muni falla frá þessum aðgerðum ef Falun Gong heita því að fara eftir tilmælum lögreglu, segir Björn að það verði metið ef tilefni gefst til. Fulltrúar Falun Gong ræddu við yfirmenn í lögreglunni í Reykjavík í gær og settu fram óskir um staði fyrir mót- mælaaðgerðir og hétu því jafnframt að hlíta fyrirmælum lögreglu í einu og öllu. Aðspurður sagði Björn að ekkert hefði komið fram á fundinum sem gefi tilefni til þess að endurskoða ráðstafanir stjórnvalda en hafa verði í huga að hópnum geti fylgt óróa- seggir. Þrátt fyrir að Íslandi hafi verið lok- að fyrir félögum í Falun Gong gera lögregluyfirvöld fastlega ráð fyrir því að allmargir komist í gegn. Örygg- isgæsla verður því hert og því hefur þurft að kalla allmarga lögreglumenn úr sumarfríi en Björn hefur þó ekki upplýsingar um fjölda þeirra. Auk þess verður myndað öryggis- svæði um Hótel Sögu þar sem Jiang Zemin mun gista og götum í ná- grenninu verður lokað. Björn segir að ríkislögreglustjóri hafi veitt heim- ild fyrir þeim 29 vopnuðu öryggis- vörðum sem fylgja forsetanum og hefur jafnframt eftirlit með þeim, en slíkt sé jafnan gert við opinberar heimsóknir. Stjórnvöld hafa nokkrar áhyggjur af viðbrögðum þeirra ef mótmælin fara úr böndunum. Að- spurður segir Björn að þeir njóti diplómatískrar friðhelgi og verði ekki sóttir til saka hér á landi. Vandlega skipulagðar aðgerðir Eins og kom fram í Morgunblaðinu á laugardag eru mótmæli Falun Gong ekki ofbeldisfull en þau eru sögð aðgangshörð. Björn segir að þetta sé m.a. byggt á skýrslu frá lög- reglunni í Wiesbaden í Þýskalandi en þar var Falun Gong með talsverðar mótmælaaðgerðir meðan Jiang Zem- in var þar í opinberri heimsókn í apríl sl. Þýska lögreglan segir augljóst að mótmælaaðgerðirnar hafi verið vand- lega skipulagðar. Þátttakendur voru frá Evrópu og víðar. Í skýrslunni segir m.a. að Falun Gong hafi mótmælt á friðsamlegan hátt með leyfi yfirvalda en auk þess fóru fram ýmsar minniháttar aðgerð- ir og vökur sem lögregla hafði fulla stjórn á. Forseti Kína og fylgdarlið hans voru aldrei í hættu en örygg- isgæsla var afar ströng. Ýmsir Falun Gong-félagar gerðu á hinn bóginn hvað þeir gátu til að ná athygli kín- verska forsetans eða nálgast hann við ýmis tækifæri, s.s. við brottför af hót- eli eða á blaðamannafundum. Kínversk fréttakona með fullgild fréttamannaskilríki hrópaði t.d. slag- orð á kínversku meðan Jiang Zemin var í móttökuathöfn hjá kanslara Þýskalands og hún reyndi síðar að komast inn á blaðamannafund. Þessi kona mun vera stödd hér á landi og hefur hitt fulltrúa dómsmálaráðu- neytisins. Björn segir að eftirfarandi hegð- unarmynstur Falun Gong-félaga hafi verið áberandi, skv. skýrslu lögregl- unnar í Wiesbaden: Falun Gong-fé- lagar skráðu sig inn á hótel forsetans fyrir komu hans til að vera inni á ör- yggissvæðum áður en þeim var lokað. Þeir héldu sig í anddyri hótelsins og töfðu starfsfólk í móttöku með sam- tölum og símtölum. Aðrir földu sig við þær leiðir þar sem von var á forset- anum s.s. bak við hús, í verslunum og veitingastöðum. Höfðu þeir klæðst stuttermabolum með merki hreyfing- arinnar undir venjulegum fötum og sýndu þá þegar forsetinn fór fram hjá og hrópuðu að honum slagorð. Þá höfðu þeir falið mótmælaspjöld og borða, bæði innanklæða og í ílátum og lyftu þeim upp þannig að forsetinn sæi. Studdust mótmælendur við út- gefna dagskrá heimsóknarinnar en Björn gerir ekki ráð fyrir að dagskrá- in verði gefin út opinberlega hér á landi. Björn segir að slíkar aðgerðir séu ekki hættulegar en geti engu að síður valdið vandræðum. Þá verði að hafa í huga að Kínverjar hafa önnur viðhorf gagnvart slíkum mótmælum. Íslensk stjórnvöld hafi áhyggjur af því að heimsókn Jiang Zemin muni falla í skuggann af mótmælendum en slíkt geti haft alvarleg áhrif á samskipti landanna. Rætt um að halda Falun Gong-félögum í Njarðvíkurskóla Búist við miklum fjölda til landsins í dag og á morgun Reuters Á NÆRFELLT öllum pólitísku vef- ritunum er ákvörðun íslenskra stjórnvalda að meina félögum í Fal- un Gong um að koma til landsins harðlega gagnrýnd og er sums stað- ar hvatt til þess að fólk safni liði og mótmæli komu Jiang Zemins hingað til lands. Á vefritinu Frelsi.is sem gefið er út af Heimdalli, félagi ungra sjálf- stæðismanna í Reykjavík, er fram- koma íslenskra stjórnvalda sögð ámælisverð. „Ef íslensk stjórnvöld treysta sér ekki til að tryggja öryggi gesta, sem kalla á svo mikla andúð umheimsins, þá á að sleppa því að bjóða þeim í stað þess hefta tján- ingar- og ferðafrelsi tiltekinna hópa,“ segir þar. „Við hvetjum alla til að mótmæla komu forsetans hingað til lands og um leið berjast fyrir mannréttindum í Kína. Ofsókn- ir, manndráp og pyntingar eru að- alsmerki þessarar ríkisstjórnar sem Zemin leiðir. Slíkir menn eru ekki virðulegir gestir á Íslandi. Söfnum liði og mótmælum,“ segir á vefritinu. Stjórn Vöku, félags lýðræðissinn- aðra stúdenta við Háskóla Íslands mótmælir því að Jiang Zemin, sem fulltrúa þeirra stjórnvalda sem stóðu fyrir fjöldamorðunum á Torgi hins himneska friðar, skuli vera boð- ið til landsins og honum tekið með kostum og kynjum. Þá er harmað að ríkisstjórn Íslands skuli gangast við þeim kröfum forsetans að mótmæl- endur megi ekki verða fyrir hans augum. „Það er með öllu óafsakan- legt ef frelsið, mannréttindin og lýð- ræðið sem okkur eru tryggð í stjórn- arskránni skuli vera notað sem ódýr skiptimynt við heimsókn erlendra harðstjóra,“ segir í ályktun frá Vöku. Formaður Vöku, Guðfinnur Sig- urvinsson, hefur sent öllum forystu- mönnum ungliðahreyfinga stjórn- málaflokkanna, formanni Röskvu samtaka félagshyggjufólks við Há- skóla Íslands og formanni Stúdenta- ráðs Háskóla Íslands skeyti þar sem óskað er eftir því að þessi aðilar eigi frumkvæði að því að samræmd og þverpólitísk mótmæli fari fram í til- efni af heimsókninni. Í fréttatilkynn- ingu segir að það skýrist síðar í vik- unni með hvaða hætti af þessu verður. Aumar og veigalitlar skýringar „Tjáningarfrelsið fótum troðið,“ ritar Guðjón Ólafur Jónsson, for- maður kjördæmisráðs framsóknar- félaganna í Reykjavíkurkjördæmi- suður á vef framsóknarfélaganna í Reykjavík, Hrifla.is. Hann segir ástæður sem undirmenn dómsmála- ráðherra hafa gefið fyrir því að synja félögum í Falun Gong um vegabréfsáritanir „aumar og veiga- litlar“. Hann segir íslensk stjórnvöld komin inn á mjög varhugaverða braut ef þau ætla að meina erlendu fólki að njóta sjálfsagðs tjáningar- frelsis hér á landi. „Það á ekki að hlífa kínverskum stjórnvöldum við mótmælum gegn síendurteknum mannréttindabrotum þar í landi. Og auðvitað verður mótmælt þótt engir verði útlendingarnir. Íslenskur al- menningur mun láta vanþóknun sína á kínverskum stjórnvöldum í ljós og þau mótmæli fær forseti Kína ekki umflúið,“ segir Guðjón. Ómar R. Valdimarsson, ritstjóri Pólitíkur.is, sem ungir jafnaðar- menn skrifa, segir ákvörðun stjórn- valda hneisu. Þetta sé þó ekki í fyrsta skipti sem stjórnvöld ákveði að taka skellinn sem fylgi því að taka ólýðræðislegar ákvarðanir. Öryggismálin eru skálkaskjól Á Múrnum sem er gefinn út af Málfundafélagi úngra róttæklinga segir Sverrir Jakobsson að þetta sé aðeins „eitt dæmi af mörgum um ruddaskap gagnvart útlendingum sem hafa ekkert til saka unnið á grundvelli „öryggismála“. „Þessi öryggismál eru skálkaskjól til þess að veita ríkisvaldinu meiri rétt gagnvart einstaklingum en það hefur almennt í lýðræðissamfélög- um. Og ríkisvaldið þarf ekki að út- skýra aðgerðir sínar, né bera ábyrgð á þeim gagnvart stofnunum sem gætu veitt því lýðræðislegt aðhald,“ segir þar. Aðgerðir stjórnvalda harðlega gagnrýndar á pólitískum vefritum Hvatt til mót- mæla gegn Jiang Zemin MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá þingflokki Samfylkingarinnar: „Þingflokkur Samfylkingar- innar mótmælir harðlega þeirri dæmalausu aðgerð íslenskra stjórnvalda að meina félögum alþjóðlegu hreyfingarinnar Fal- un Gong að koma inn í landið. Tilgangur farar þeirra til Ís- lands var að mótmæla friðsam- lega við komu forseta Kína til Ís- lands og vekja athygli á mannréttindabrotum kín- verskra stjórnvalda gegn fé- lögum í Falun Gong í Kína. Dómsmálaráðherra, forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra ákváðu að heimila meðlimum Falon Gong ekki að koma til landsins og á sú ákvörðun sér engin fordæmi á Vesturlöndum og vekur bæði furðu og reiði. Ísland hefur um árabil verið í brjóstvörn lýðræðisríkja um all- an heim og málsvari mannrétt- inda. Þingflokkur Samfylking- arinnar mótmælir því harðlega að land og þjóð skuli niðurlægt með þessum hætti á alþjóðavett- vangi. Meðlimum Falun Gong hefur ekki verið meinaður að- gangur að neinu öðru vestrænu ríki, enda um afar friðsama hreyfingu að ræða. Því er þessi aðgerð íslenskra stjórnvalda dæmalaus og þingflokkur Sam- fylkingarinnar krefst þess að hún verði afturkölluð nú þegar.“ Þingflokkur Samfylkingarinnar Dæmalaus ákvörðun stjórnvalda MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá þingflokki VG: „Þingflokkur Vinstrihreyf- ingarinnar – græns framboðs leggur áherslu á að gestkom- andi fólk til Íslands verði ekki flokkað eftir skoðunum á stjórnmálum eða lífsviðhorfum og að ekki verði settar skorður við friðsamlegum aðgerðum í landinu. Ákvörðun íslenskra stjórnvalda um að meina and- ófsmönnum gegn kínverskum stjórnvöldum að heimsækja Ís- land vegna heimsóknar forseta Kína er ekki í samræmi við ís- lenskar hefðir um opna og lýð- ræðislega stjórnarhætti. Á undanförnum mánuðum og misserum hefur verið hert margvísleg löggjöf sem lýtur að meintu öryggi íslenska ríkisins, m.a. í tengslum við Schengen samkomulagið um sameiginleg landamæri okkar og Evrópu- sambandsríkja. Ástæða er til að vara við því að hert öryggiseftirlit af þessu tagi snúist upp í andhverfu sína á kostnað lýðræðis og mann- réttinda. Þingflokkur Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs telur mikilvægt að skýrar reglur verði settar um komu fólks til landsins og allt sem lýtur að ör- yggisbúnaði og öryggisgæslu í landinu, þar á meðal vopnabún- að erlendra lífvarðasveita. Þá er mikilvægt að erlendum gest- um verði jafnan gerð grein fyr- ir því að hingað komi þeir á for- sendum Íslendinga.“ Þingflokkur Vinstri- hreyfingarinnar – græns framboðs Gestir ekki flokkaðir eftir skoð- unum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.