Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 11

Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 11 IÐKENDUR Falun Gong, sem eru komnir hingað til lands í tilefni heimsóknar Jiang Zemin forseta Kína, segja að þeir hyggist í einu og öllu hlíta íslenskum lögum og reglum meðan þeir koma boðskap sínum á framfæri, en þetta kom fram á fundi sem iðkendurnir héldu í gær. Á fundinum var lesin yfirlýsing frá þeim þar sem fram kom ákall til íslensku þjóðarinnar vegna þess að útlit er fyrir að margir iðkendur Falun Gong fái ekki inngöngu í landið, eins og þeir höfðu ráðgert, vegna komu Jiang Zemin. Talsmaður Falun Gong á fund- inum, Joel Chipkar, benti á að á síðastliðnum þremur árum hafi yfir 100.000 iðkendur Falun Gong í Kína verið sendir í fangelsi, vinnu- búðir og á geðsjúkrahús og margir hafi sætt pyntingum eða verið myrtir og þessar ofsóknir séu enn í fullum gangi. Ástæðan fyrir komu Falun Gong-iðkenda til Íslands núna sé að vekja athygli á þessu. Chipkar sagði að þau teldu sig hafa fengið hlýjar móttökur á Íslandi og fundið fyrir stuðningi hér. Enn sé ekki ljóst hvaða staði í Reykjavík þau muni nota til að vekja athygli á málstað sínum, en það verði vænt- anlega á stöðum þar sem almenn- ingur geti vel séð iðkendurna. „Við viljum að forseti Kína viti að hvert sem hann fer í heiminum, getur hann ekki losað sig undan þeirri staðreynd að hann hefur valdið því að margt saklaust fólk hefur verið pyntað og myrt, ein- ungis vegna löngunar sinnar til að leggja stund á Falun Gong,“ sagði Chipkar. Á fundinum var bent á að víðast hvar væru stjórnvöld um- burðarlynd gagnvart Falun Gong- iðkendum enda væru þeir þekktir fyrir friðsemi. Að sögn talsmann- anna er ekki vitað til þess að það hafi gerst áður að iðkendum Falun Gong hafi verið neitað um inn- göngu í lönd, fyrir utan Hong Kong, sem nú sé hluti af Kína. Þau sögðust hafa komið til Íslands með góðum fyrirvara í þeim tilgangi að hafa tal af stjórnvöldum og skipu- leggja aðgerðir hér í samræmi við þau svo sjá mætti til þess að allt færi fram samkvæmt lögum og reglum. Blaðamannafundur á vegum Falun Gong-iðkenda Aðgerðirnar á Íslandi einsdæmi í heiminum Morgunblaðið/Jim Smart Lillian Staf frá Svíþjóð og Kanadamaðurinn Joel Chipkar voru talsmenn Falun Gong-iðkendanna sem komnir eru til Íslands á fundi sem þeir héldu í gær. KÍNVERSKUR almenningur komst fyrst í kynni við Falun Gong árið 1992, en að sögn iðk- enda felst Falun Gong í fimm ein- földum líkamsæfingum og til- einkun kjörorðanna sannleikur, samúð og umburðarlyndi. Falun Gong breiddist hratt út og árið 1999 hófu kínversk stjórnvöld af- skipti af iðkendunum. Nokkrir iðkendur Falun Gong eru staddir hér á landi og hyggjast vekja at- hygli á málstað sínum á meðan á heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, stendur yfir. Morgunblaðið ræddi við fjóra þeirra í gær og kom fram í máli þeirra að nú iðka hátt í 100 milljónir Kínverja Falun Gong.. Dana Cheng fæddist í Kína og ólst þar upp, en fluttist fyrir ára- bili til Bandaríkjanna til að leggja stund á doktorsnám í eðl- isfræði. Hún er nú bandarískur ríkisborgari og býr og starfar í Washington DC, en Cheng hóf stundun Falun Gong eftir að hún fluttist til Bandaríkjanna. Hún telur að ofsóknir kínverskra stjórnvalda gegn iðkendum Falun Gong hafi stafað af ótta þeirra við þann fjölda Kínverja sem þá hafi verið farinn að leggja stund á Falun Gong. „Iðkun Falun Gong var orðin vinsælli en ráðamönnum líkaði. Kjörorðin þrjú, sannleikur, sam- úð og umburðarlyndi, eru ólík hugmyndafræði kommúnista og sú staðreynd að iðkendur Falun Gong voru orðnir fleiri en með- limir í kínverska Komm- únistaflokknum féll ekki vel í kramið. Stjórnvöld urðu óttasleg- in jafnvel þótt við höfum enga pólitíska skírskotun“ segir Cheng. Sjálf segist hún þekkja fólk í Kína sem hefur orðið fyrir barðinu á stjórnvöldum þar vegna iðkunar á Falun Gong. „Ég á fimm vini í Kína sem hafa verið sendir í fangelsi eða vinnubúðir,“ segir Cheng. Einn vinur minn sem lagði stund á doktorsnám í Tsinghua-háskólanum, sem er virtasti háskóli í Kína og hafði lokið námi sínu, fékk ekki að út- skrifast einfaldlega vegna þess að hann iðkaði Falun Gong og það varð einnig til þess að hann gat ekki þegið stöðu sem honum bauðst í Bandaríkjunum þar sem hann fékk ekki fararleyfi. Síðar var hann sendur í vinnubúðir, þar sem hann er enn, og átti barns- hafandi eiginkona hans í engin hús að venda eftir þetta. Annar vinur minn var settur í varðhald þar sem hann hefur verið í meira en eitt ár, en ekki hefur tekist að finna nein ákæruatriði á hann. Á meðan hafa kona hans og börn ekkert til að lifa á,“ segir hún. Viljum samvinnu við íslensk yfirvöld Cheng segir að hópurinn sem hingað er kominn vilji samvinnu við íslensk lögregluyfirvöld. „Það eina sem við förum fram á er að Jiang Zemin hætti ofsóknum sín- um á hendur iðkendum Falun Gong, boðskapur okkar er ekki pólitískur. Markmið okkar er ekki að breyta samfélaginu, að- eins að biðja um rétt til að iðka Falun Gong,“ segir hún. Cheng bendir á að kínverskir fjölmiðlar, sem allir eru í rík- iseigu, hafi haft uppi mikinn áróður gegn Falun Gong og reynt sé eftir megni að gera iðkendur Falun Gong tortryggilega, þetta hafi svo breiðst út um heim allan. Iðkendur Falun Gong í Kína eigi óhægt um vik með að koma skila- boðum áleiðis til umheimsins og segir hún dæmi þess að maður sem sendi tölvupóst frá Kína til Bandaríkjanna, þar sem hann lýsti ástandinu, hafi fyrir vikið hlotið í Kína þriggja ára fangels- isdóm. Norðmaðurinn Peder Giertsen og sænsk kona hans Annika Giertsen búa í Ósló í Noregi og kynntust þau Falun Gong fyrir þremur árum. Peder segir að kín- versk stjórnvöld hafi þar til fyrir nokkrum árum verið mjög stolt af Falun Gong og hvatt kínverska þegna í útlöndum til iðkunar þess og var hægt að fá kennslu í því í kínverskum sendiráðum. „Ég hóf að stunda Falun Gong því það gerði mér gott,“ segir Peder og Annika segist hafa fylgt í kjölfarið. „Við erum hér á Ís- landi núna til að upplýsa almenn- ing um Falun Gong og vekja at- hygli á þeim ofsóknum sem iðkendur þess verða fyrir í Kína. Við teljum það skyldu okkar að taka þessu ekki með þegjandi þögninni og höfum farið víða um Evrópu í sömu erindagjörðum. Mér finnst það sem er að gerast í Kína núna að sumu leyti sam- bærilegt við það sem átti sér stað á uppgangstíma nasismans í Þýskalandi á fjórða áratug tutt- ugustu aldar “ segir Peder. Spurður um viðbrögð íslenskra stjórnvalda við komu Falun Gong-iðkenda til Íslands segir Peder að honum finnist þau sorg- leg. „Þið eruð aðilar að norrænni samvinnu en þar hafa lönd á borð við Svíþjóð tekið allt aðra afstöðu til málsins,“ segir hann. Peder tekur fram að mikilvægt sé að það komist til skila að þetta snú- ist ekki um stjórnmál heldur mannréttindi, en auðvitað sé þetta þó inni á hinu pólitíska sviði. Zhi-ping C. Kolouch fluttist frá Kína til Bandaríkjanna fyrir 16 árum og býr í Seattle í Banda- ríkjunum þar sem hún rekur eig- in læknastofu og hefur hún lagt stund á Falun Gong í meira en sex ár. „Ég kem hingað til að láta Íslendinga vita af því sem er að gerast í Kína, ég veit að Íslend- ingar eru fordómalaus þjóð. Ástandið í Kína er mjög alvar- legt, verið er að pynta og myrða fólk á hverri mínútu. Sem dæmi get ég nefnt að vinkona mín í Kína, sem var 25 ára gömul, var handtekin og flutt á lögreglustöð og viku síðar var ösku hennar skilað til ættingja hennar,“ segir Kolouch. Höfum ekkert með stjórnmál að gera Kolouch bendir á að Falun Gong séu ekki trúarbrögð, heldur andleg iðja. Við eigum ekki kirkju, musteri og ekki einu sinni skrifstofu og allar okkar aðgerðir eru unnar í sjálfboðavinnu. Við höfum ekkert með stjórnmál og völd að gera, kínversk stjórnvöld eru hins vegar hrædd vegna þess fjölda sem iðkar Falun Gong, þeir vilja stjórna huga fólks,“ segir hún. Kolouch segir að færi hún til Kína yrði hún mjög sennilega handtekin. „Mér finnst ég gera meira gagn á Vesturlöndum við að upplýsa fólk þar um það sem er að gerast í Kína,“ segir Koluch. Vilja að ofsókn- um á hendur iðkendum í Kína linni Morgunblaðið/Árni Sæberg Þau Zhi-ping C. Kolouch, Dana Cheng, Peder og Annika Giertsen eru hingað komin til að kynna málstað Falun Gong-iðkenda meðan á heimsókn Jiang Zemin, forseta Kína, stendur. Í PISTLI á heimasíðu sinni seg- ir Björn Bjarnason, oddviti sjálfstæðismanna í borgar- stjórn og fyrrv. menntamála- ráðherra, að það veki undrun „hve víðtækar öryggisráðstaf- anir þarf að gera vegna komu Jiangs Zemins, forseta Kína, til landsins, þegar ákvörðun er tekin um að loka landamærun- um fyrir hópi fólks, sem leggur stund á Falun Gong eða Falun Dafa, eins og æ fleiri kalla þær andlegu og líkamlegu æfingar, sem helst eru taldar ógna veldi kínverska kommúnistaflokksins um þessar mundir. Er harka- legt, að gera iðkendur Falun Gong útlæga frá Íslandi, á með- an kínverski valdsmaðurinn er hér á landi með miklu fylgdar- liði sínu,“ segir Björn. Hann rekur sögu Falun Gong og hvernig kínversk stjórnvöld hafa markvisst unnið að því að uppræta hreyfinguna. „Stríð kínverskra valdamanna við fé- laga í Falun Gong er ekki háð innan landamæra Kína heldur teygir sig um alla veröldina eins og við Íslendingar fáum að reyna núna. Á milli Kína og Ís- lands er himinn og haf, þegar litið er til virðingar fyrir ein- staklingnum og réttindum hans. Vissulega er nauðsynlegt hér eins og annars staðar að gera ráðstafanir til að tryggja öryggi opinberra, erlendra gesta. Í þeim efnum verður hins vegar að gæta þess meðalhófs, sem á við í öllum samskiptum manna,“ segir Björn. Ekki hugmynda- fræðileg tengsl Björn er einn þeirra sem leggur stund á chi kung eða qi- gong. Sérstakt félag var stofnað um þessar æfingar hér á landi 1. júní sl. Segir Björn að þess sé gjarnan getið að æfingarnar sem stundaðar eru af Falun Gong hreyfingunni, eigi rætur í qigong-æfingunum. „Þetta er í raun hið eina, sem tengir Falun Gong við qigong, því að ekki er þar um nein hug- myndafræðileg tengsl að ræða. Ég sé í blaðagreinum, að rætt er um qigong, sem kínverska bardagalist, sem er misskilning- ur, því að qigong snýr að rækt- un einstaklingsins fyrir hann sjálfan en ekki til bardaga við aðra. Hitt má til sanns vegar færa, að það tryggir góðan ár- angur í kínverskri bardagalist að tileinka sér þá lífsorkustjórn, sem qigong tryggir,“ segir Björn að lokum. Björn Bjarnason Harkaleg- ar aðgerðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.