Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 12
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ 12 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SINNISBATI, hagsmunafélag geð- sjúkra í Færeyjum, hélt upp á 20 ára afmæli sitt á dögunum og voru fulltrúar Geðræktar, þau Héðinn Unnsteinsson verkefnisstjóri Geð- ræktar og Elín Ebba Ásmundsdóttir, forstöðumaður iðjuþjálfunar Land- spítala – háskólasjúkrahúss, heiðurs- gestir afmælishátíðarinnar. Á hátíð- inni fluttu þau erindi og kynntu starfsemi Geðræktar og hugmynda- fræðina sem liggur að baki verkefn- inu. „Við vorum á vegum Sinnisbata en áttum einnig fund með fulltrúum landlæknisembættisins í Færeyjum. Sá fundur gekk mjög vel og þeir voru hrifnir af Geðræktarverkefninu,“ seg- ir Héðinn og bendir á að Færeyingar séu skammt á veg komnir með heilsu- eflingu. Þar sé áherslan lögð á með- ferð og endurhæfingu og þessi hug- myndafræði sé þeim alveg ný þrátt fyrir að hún hafi komið fram fyrir meira en tuttugu árum. Elín Ebba segir að ekki sé langt síðan Færeyingar byrjuðu að annast geðsjúklinga sína, fyrir þann tíma voru þeir ávallt sendir til Danmerkur og óvíst var hvort þeir ættu aftur- kvæmt. Héðinn bætir við að geð sé ennþá tengt sjúkdómum í Færeyjum líkt og hér heima, en annars staðar í Evrópu þýði geðheilsa vellíðan. „Það þarf að hamra það inn í fólk að geð- heilsa er eitthvað sem allir eiga,“ seg- ir hann. Aðspurður hvort tekist hafi að breyta hugarfari á Íslandi, telur hann að Geðrækt hafi vakið fólk til vitundar um geðheilsu og breytt hugarfari í garð geðsjúkdóma. Sjúklingar hafa hlutverki að gegna í Færeyjum Að sögn Héðins stóðu Íslendingar framar í umönnun geðsjúkra heldur en Færeyingar fyrir tuttugu árum, en á þeim tíma voru þeir nýbyrjaðir að sjá sjálfir um sína geðsjúklinga. Hann álítur hins vegar að nú stöndum við þeim aftar, þar sem við höfum lagt höfuðáherslu á lyfjameðferð en í Fær- eyjum sé mikil áhersla lögð á sam- félagsmeðferð. „Á Íslandi á allt að lækna með lyfj- um, en Færeyingar hafa setið svolítið eftir í þeim efnum, sem er kannski af hinu góða. Hins vegar borða þar allir saman, skjólstæðingar og starfs- menn. Þar sjá sjúklingar um að fara út í búð og elda matinn. Með öðrum orðum allir hafa einhverju hlutverki að gegna. Hér heima hefur verið strikað yfir allt slíkt og þar af leiðandi höfum við farið aftur á bak. En þó að þeir hafi staðið í stað þá erum við samt á vissan hátt fyrir aftan þá núna,“ segir Héðinn og bendir á að hér á landi hafi sjúklingar ekki hlut- verk. Þeir borði til að mynda ekki með læknum eða öðru starfsfólki, en eitt af þeim málum sem Héðinn hefur barist fyrir er að allir borði saman, þar sem í því felist viss jafnaðar- og mannúð- arnálgun. sElín Ebba segir að hér sé til vísir að þessu fyrirkomulagi sem Héðinn lýsir en það sé ekki forgangs- atriði. „Í forgangi er bráðaþjónustan og auðvitað þurfum við að hlúa vel að henni. En það þarf að gera svo miklu meira úti í samfélaginu. Til dæmis eiga atvinnutækifæri að vera réttindi fólks. Það á að vera réttur hvers og eins, þó að hann sé fatlaður, að geta tekið þátt í samfélaginu,“ bætir hún við. Að sögn Elínar Ebbu hefur áhersla verið lögð á það í Geðræktarverkefn- inu að það sé hluti af heilsu og heilsu- eflingu að geta haft áhrif á umhverfið. Allir verða að geta haft áhrif á nán- asta umhverfið í stað þess að vera allt- af þiggjendur. „Þetta snýst um það að hjálpa fólki að hjálpa sér sjálft,“ bend- ir Héðinn á. Vel tekið á afmælishátíð Sinnisbata Elín Ebba lýsir því að þeim hafi verið afar vel tekið á afmælishátíð Sinnisbata. Hún segir að í fyrirlestri sínum hafi hún rætt um hvernig atriði í umhverfi okkar hafi áhrif á heilsuna og hvernig ábyrgðin hafi smátt og smátt verið tekin af einstaklingunum og sett í hendurnar á sérfræðingun- um. „Það eru sérfræðingarnir sem segja okkur hvað er að okkur og hvað við eigum að gera. Ég er aðeins að reyna að fá fólk til að hugsa um hver ber ábyrgðina í þessu neyslusam- félagi en það erum við sjálf. Við þurf- um að hlusta á það sem líkami okkar segir okkur,“ segir hún. Að sögn Héðins var fyrirlestur hans meira byggður upp sem leik- þáttur. Hann segir erindið byggjast mikið á frumspeki orða. Hann leiki sér með orð, auk þess að miðla af reynslu sinni og endi síðan í hugleið- ingum um lífið og tilveruna. „Ég hafði ekki velt því fyrir mér fyrr en það kom til mín maður eftir fyrirlestur úti á landi og benti mér á að boðskap- urinn í fyrirlestrinum væri umfram allt kristnifræði. Kristilegt siðfræði er rauði þráðurinn án þess að ég hafi nokkurn tímann gert mér grein fyrir því.“ „Færeyingarnir voru mjög hrifnir af Héðni. Þá vantar einhverja svona fyrirmynd,“ segir Elín Ebba og bend- ir á að í raun hafi enginn rutt þessa braut þar. Það hafi áhrif á fólk þegar það hitti venjulega manneskju sem hafi þorað að koma fram og viður- kenna að hún hafi verið veik. Héðinn segir fyrirlestur sinn vera fyrir alla, jafnt heilbrigða sem geð- sjúka. Hann segir að með honum sé jafnframt reynt að brjóta niður ákveðna staðlaða mynd af geðsjúkum. „Héðinn er að breyta ásýnd hins geðsjúka manns. Héðinn er kraftmik- ill maður sem hefur mikið að segja. Hann gefur fólki von og breytir mörg- um af þeim ranghugmyndum sem tengjast geðsjúkdómum,“ segir Elín Ebba. Morgunblaðið/Þorkell Þorkelsson Héðinn Unnsteinsson og Elín Ebba Ásmundsdóttir. Fulltrúar Geðræktar heiðursgestir á afmælishátíð Sinnisbata í Færeyjum Mikil áhersla lögð á samfélagsmeðferð í umönnun geðsjúkra FORELDRAR og aðstandendur þeirra, sem starfa í Ásgarði, hand- verkstæði fatlaðra, skora á bæjaryf- irvöld í Kópavogi að veita bygging- arleyfi fyrir nýju handverkstæði í Kópaseli í Lækjarbotnum í stað þess sem brann í desember síðastliðnum. Átelja foreldrarnir Kópavogsbæ fyrir framgöngu hans í málinu. Bæjar- stjóri segir ekkert því til fyrirstöðu að veita leyfi fyrir byggingu færan- legs tréhúss, líkt og húsið var sem brann – hins vegar komi ekki til greina að veita byggingarleyfi fyrir steinhúsi eins og rekstraraðilar stað- arins hafi sótt um. Um tuttugu fatlaðir einstaklingar starfa í Ásgarði, sem hefur verið rek- inn frá árinu 1993 samkvæmt þjón- ustusamningi við ríkið. Rekstraraðili staðarins, Ásmegin, rekur einnig grunnskóla sem kenndur er við Wal- dorfstefnuna og leikskóla í Lækjar- botnum þar sem vinnustofan var einnig staðsett þar til hún brann. Ekki hefur verið hafist handa við endurbyggingu vinnustofunnar held- ur hefur starfsemin haft bráða- birgðaaðstöðu í gamla Kópavogshæl- inu. Í bréfi forstöðumanns vinnustofunnar til bæjarráðs kemur fram að það húsnæði hafi Ásgarður til afnota út júní. Því sé mjög alvarlegt ástand að skapast vegna óvissu um framtíð Ásgarðs. Undir þetta taka foreldrar og að- standendur þeirra sem starfa í Ás- garði eins og fram kemur í áskorun sem samþykkt var á fundi þeirra 3. júní síðastliðinn. „Nú eru liðnir 6 mánuðir frá því Ásgarður brann og enn hefur ekki fengist byggingar- leyfi. Okkur finnst það mjög alvarlegt hvernig Kópavogsbær hefur staðið í vegi fyrir þessari nauðsynlegu þjón- ustu fyrir fatlaða og skorum því á Kópavogsbæ að veita Ásgarði bygg- ingarleyfi nú þegar,“ segir í áskor- uninni sem tæplega 30 manns skrifa undir. Skilyrði að húsið sé færanlegt Ekki liggur fyrir samþykkt deili- skipulag af svæðinu. Í umsögn skipu- lagsstjóra og framkvæmdastjóra fræðslu- og menningarsviðs Kópa- vogs, sem rituð var vegna erindis for- stöðumanns Ásgarðs, segir að í skipulags- og byggingalögum sé bráðabirgðaákvæði sem gefi sveitar- stjórn heimild fyrir einstökum fram- kvæmdum þó ekki liggi fyrir sam- þykkt deiliskipulag en það sé bundið því skilyrði að húsið sé færanlegt. Þá telja þeir að einnig komi til greina að Kópavogsbær kanni hjá Ríkisspítöl- um hvort ekki sé möguleiki á að koma starfseminni fyrir á Kópavogshæli tímabundið, þar til búið sé að sam- þykkja deiliskipulag fyrir Kópasel eða þar til samningur Kópavogsbæj- ar og Ásmegin um starfsemi hinnar síðarnefndu í Lækjarbotnum rennur út. Í minnispunktum skipulagsstjóra, bæjarverkfræðings og bæjarlög- manns frá því í apríl kemur fram að þeir leggi til að ekki verði heimiluð frekari uppbygging eða framkvæmd- ir á umræddu svæði án undangeng- innar endurskoðunar á samningi Ás- megin og Kópavogsbæjar, sem deiliskipulag svæðisins tæki síðan mið af. Óvíst með framtíðarstarfsemi Sigurður Geirdal, bæjarstjóri Kópavogs, segir það mikinn misskiln- ing að staðið hafi á Kópavogsbæ með að byggja nýtt hús. „Þetta er óskipu- lagt svæði og þeir fengu samning um Bæjarstjóri segir ekki standa á bænum varðandi endurbyggingu vinnustofu fatlaðra í Lækjarbotnum Fá að byggja tréhús en ekki steinhús Kópavogur SKIPULAGSSTOFNUN mælir ekki með staðfestingu Svæðisskipu- lags höfuðborgarsvæðisins hvað varðar stefnu sem þar er sett fram um flugsamgöngur. Stofnunin fellst ekki á að sveitarfélög á höfuðborg- arsvæðinu geti tekið bindandi ákvörðun í svæðisskipulagi um að leggja Reykjavíkurflugvöll niður í áföngum á meðan afstaða ríkisins er önnur. Þetta kemur fram í greinar- gerð Skipulagsstofnunar með tillögu að afgreiðslu umhverfisráðherra á Svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðis- ins 2001–2024. Er þar lagt til að ráð- herra staðfesti skipulagið með fyrir- vara um ofangreint atriði. Öll sveitarfélögin á höfuðborgar- svæðinu hafa samþykkt umrætt svæðisskipulag og í apríl síðastliðn- um sendi samvinnunefnd sveitarfé- laganna það til staðfestingar um- hverfisráðherra. Skipulagsstofnun hefur haft svæðisskipulagið til um- fjöllunar og í greinargerðinni eru settar fram athugasemdir í ellefu lið- um. Sú veigamesta þeirra varðar stefnu svæðisskipulagsins varðandi flugvallarsvæðið í Vatnsmýrinni en þar er gert ráð fyrir að svæði NA-SV brautarinnar verði tekið undir byggð og að N-S flugbrautin verði lögð af eftir árið 2016 og sömuleiðis tekin undir byggð. Svæði A-V flugbrautar- innar er síðan hugsað til uppbygg- ingar fyrir blandaða byggð eftir árið 2024. Ósamræmi milli stefnu borgar og ríkis Í greinargerð Skipulagsstofnunar eru tíundaðar athugasemdir í um- sögn Flugmálastjórnar Íslands um svæðisskipulagstillöguna þar sem lagst er gegn áætlunum um að leggja niður umræddar flugbrautir. Sömu- leiðis er greint frá stefnu samgöngu- yfirvalda á landsvísu um Reykjavík- urflugvöll en í Flugmálaáætlunum Greinargerð Skipulagsstofnunar um Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins sem bíður staðfestingar ráðherra Sveitarfélög geta ekki ákveðið að flytja flugvöllinn Morgunblaðið/Árni Sæberg Ekki liggur annað fyrir af hálfu ríkisins en að miðstöð innanlandsflugs verði á Reykjavíkurflugvelli, segir í greinargerð Skipulagsstofnunar með tillögu hennar að afgreiðslu umhverfisráðherra á svæðisskipulaginu. Vatnsmýri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.