Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 14
AKUREYRI
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
www. .is
ÍBÚÐIR TIL SÖLU • ÍBÚÐIR TIL LEIGU • TÆKJALEIGA • ÚTBOÐ
KÍKTU
Á NETIÐ
Blaðbera
vantar
• Skerjafjörður
Upplýsingar fást í síma
569 1122
Hjá Morgunblaðinu starfa um 600 blaðberar á
höfuðborgarsvæðinu
ⓦ
vantar
Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur
í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig.
Morgunblaðið,
Kaupvangsstræti 1, Akureyri,
sími 461 1600.
í Innbæinn.
Okkur vantar líka afleysingablaðbera
í sumar víðsvega í bænum.
LISTAMAÐURINN Jóhann Ingi-
marsson, betur þekktur sem Nói,
opnaði myndlistarsýningu í Gall-
erí Gersemi sl. laugardag. Gallerí
Gersemi er nýr sýningarsalur að
Hafnarstræti 96, París. Þar sýnir
Nói 36 verk, 25 málverk og 11
skúlptúra og eru tveir skúlptúrar
staðsettir utandyra. Sýninguna
kallar hann; „Svona glöð er jörð-
in.“
Nói, sem verður 76 ára í næsta
mánuði, er þarna með sína fyrstu
einkasýningu en hann hefur tekið
þátt í 5 samsýningum. Öll verkin
á sýningunni hefur Nói unnið á
þessu ári. Nói fór að sinna lista-
gyðjunni af miklum krafti eftir
brauðstritið, eins og hann orðaði
það sjálfur. Hann hannaði þó hús-
gögn á árum áður fyrir hús-
gagnaverksmiðjuna Valbjörk, sem
starfaði á Akureyri á sínum tíma.
Einnig rak hann húsgagnaversl-
unina Örkin hans Nóa til fjölda
ára. Sýningin í Gallerí Gersemi er
opin frá kl. 14-18, alla daga vik-
unnar og stendur út júnímánuð.
Nýtt gallerí opnað í göngugötunni
Morgunblaðið/Kristján
Jóhann Ingimarsson, Nói, við verkið Sameindir, sem stendur utan við
Gallerí Gersemi en þar sýnir hann 36 verk, málverk og skúlptúra.
Nói sýnir málverk
og skúlptúra
STÓRBÆNDURNIR á Hrafnagili
og Ytra-Laugalandi hófu slátt um
helgina og er sprettan ágæt. Mikil
hlýindi hafa verið undanfarna daga
og er rekja næg, þannig að gróðri
hefur fleygt fram.
Á Hrafnagili er rekið lang-
stærsta kúabú landsins, með fram-
leiðslurétt upp á 800.000 lítra.
Kýrnar eru um 170 og annað eins af
geldneytum. Þeir bræður Jón Elvar
og Grettir Hjörleifssynir, ásamt
mági sínum Ívari Ragnarssyni, hafa
nú rekið búið um þriggja ára skeið
og náð mjög góðum árangri. Þeir
eru til að mynda vel yfir landsmeð-
altali í afurðum eftir hverja kú,
með 5.375 lítra á ársgrundvelli,
þrátt fyrir hinn mikla kúafjölda.
Aðspurður um þennan góða ár-
angur, taldi Jón Elvar það fyrst og
fremst góðum heyjum að þakka og
einnig að kýrnar ganga frjálsar all-
an ársins hring.
Sláttur hafinn
á stórbúinu
Eyjafjarðarsveit
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Grettir Hjörleifsson við slátt á Ytra-Laugalandi í Eyjafjarðarsveit.
DÓMNEFND sem skipuð var til
að fjalla um tillögur í alútboði leik-
skóla við Hólmatún í Naustahverfi
á Akureyri hefur lagt til að tillaga
frá Hyrnu ehf. verði valin til frek-
ari úrvinnslu. Tillögur frá Hyrnu
og SS Byggi fengu hæstu einkunn-
irnar frá matsnefnd en tilboð
Hyrnu í verkið var um 11 millj-
ónum króna lægra en tilboð SS
Byggis.
Alls sendu fimm byggingafyrir-
tæki tillögur og tilboð í byggingu
leikskólans en auk Hyrnu og SS
Byggis, voru það P. Alfreðsson,
Fjölnir og Íslenskir aðalverktakar.
Hyrna bauð rúmar 129 milljónir
króna í verkið en SS Byggir bauð
140,6 milljónir króna. Hæsta til-
boðið átti Fjölnir en það hljóðaði
upp á tæpar 173 milljónir króna.
Hinn nýi leikskóli við Hólmatún
verður tæplega 700 fermetrar að
stærð en um er að ræða fjögurra
deilda skóla með 96 rými. Örn Jó-
hannsson framkvæmdastjóri
Hyrnu sagði ráðgert að hefja bygg-
ingarframkvæmdir næsta haust.
Hyrna byggir
nýjan leikskóla
ELDUR kom upp í spenni-
stöð sem er á milli Hvanna-
valla og Sólvalla á Oddeyri á
Akureyri um kl. 19.20 á laug-
ardagskvöld.
Þegar komið var á staðinn
var mikill reykur í stöðinni og
kváðu við tvær öflugar
sprengingar. Spennistöðin
stendur milli húsanna í göt-
unum og þurfti að rýma húsin
sem næst stóðu spennistöð-
inni. Slökkvliðsmenn héldu að
sér höndum þar til starfs-
menn Norðurorku komu og
tóku strauminn af en raf-
magnið var þegar farið af
hluta Oddeyrar. Í þessari
stöð er 11.000 volta spennir
en það var 400 volta lág-
spennufelt sem brann.
Reykræsta þurfti hús sem
næst stóðu áður en fólk gat
snúið heim. Rafmagn fór af
hluta hverfisins og var raf-
magnslaust fram á nótt.
Eldur
í spenni-
stöð
LJÓÐATÓNLEIKAR Þuríðar
Vilhjálmsdóttur sópransöng-
konu og Helgu Bryndísar
Magnúsdóttur píanóleikara
verða í Dalvíkurkirkju í kvöld,
þriðjudagskvöldið 11. júní, kl.
20:30, en ekki annað kvöld eins
og áður hafði verið auglýst.
Fluttir verða ljóðasöngvar
eftir Johannes Brahms og
Edvard Grieg og verður miða-
sala við innganginn.
Ljóðatón-
leikar í Dal-
víkurkirkju