Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 15

Morgunblaðið - 11.06.2002, Side 15
SUÐURNES MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 15 Myndlistasmiðjur fyrir börn í Svarta pakkhúsinu, Hafnargötu 2 í Keflavík, 1.–15. júlí, tvo tíma á dag fyrir 7–8 ára – kl. 13 til 15 Krakkarnir búa til hljóðfæri úr ýmsum efnivið (t.d. pappamassa), spreyta sig á munsturgerð o.fl. fyrir 9–10 ára – kl. 10 til 12 Krakkarnir kynnast grímugerð á liðnum öldum fram á okkar dag og búa til grímur úr ýmsum efnivið og skreyta. fyrir 11–14 ára – kl. 16 til 18 Krakkarnir læra ýmsar aðferðir við þrykkmyndagerð t.d. límþrykk, mónóþrykk, pappaþrykk o.fl. og prenta sínar eigin myndir. Kennarar eru Íris Jónsdóttir og Vignir Jónsson. Verð kr. 4.500, allt efni innifalið. Skráning er hjá Írisi Jónsdóttur í síma 699 4775 fyrir 15. júní 2002. Félag myndlistamanna í Reykjanesbæ. FISKUR og kross eru helstu tákn- in sem glerlistakonan Halla Har- aldsdóttir vann með þegar hún gerði steinda glugga fyrir kór safn- aðarheimilisins í Sandgerði. Glugg- arnir eru gefnir af Jóhönnu Sig- urjónsdóttur til minningar um eiginmann hennar, Jón Erlingsson framkvæmdastjóra, en hann hefði orðið 69 ára í gær. Jóhanna afhenti Reyni Sveins- syni, formanni sóknarnefndar Hvalsneskirkju, gjafabréf fyrir gluggunum sjö í upphafi messu síð- astliðinn sunnudag. Gluggarnir voru þá komnir á sinn stað. Gat Reynir þess að Jóhanna hefði átt langt og farsælt starf við Hvals- neskirkju, í sóknarnefnd og kirkju- kór, og voru henni þökkuð störf í þágu kirkjunnar. Halla Haraldsdóttir listakona í Keflavík hefur gert fjölda steindra glugga og annarra glerlistaverka í kirkjur, kapellur, fyrirtæki og stofnanir hérlendis og erlendis, meðal annars í Þýskalandi. Hún vann gluggana í safnaðarheimilið, eins og önnur glerverk sín, á gler- verkstæði dr. H. Oidtmann í Linn- ich í Þýskalandi. Algengt kristið tákn Halla segir að Jóhanna hafi kom- ið að máli við sig fyrir ári og óskað eftir hugmynd að steindum glugg- um í kór safnaðarheimilisins og síð- ar samþykkt tillögur sínar. Hún fékk hugmyndina að gluggunum úr gríska orðinu yfir fisk, ikþys. Hún segir að fiskurinn hafi oft verið not- aður sem kristið tákn og sé eitt elsta táknið um nafn Krists enda hafi fiskar með ugga og hreistur verið álitnir hreinir, auk þess sem margir af lærisveinum Jesú hafi verið fiskimenn. Í gluggunum er einnig myndaður kross, tákn um dauða Krists og upprisu, algeng- asta tákn kristinnar trúar. Halla segist hafa haft mikla ánægju af því að gera gluggana fyr- ir Sandgerði, eins og alltaf þegar hún sé beðin um slík verkefni. Það sé spennandi að fá tækifæri til að spreyta sig á því að útfæra hug- myndir sínar á þennan hátt. Fiskur kveikti hugmyndina Einstaklingur gefur sjö steinda glugga í kór safnaðarheimilisins Sandgerði Morgunblaðið/Reynir Sveinsson Halla Haraldsdóttir glerlistakona og Jóhanna Sigurjónsdóttir í kór safnaðarheimilisins í Sandgerði, með steindu gluggana í baksýn. METÞÁTTAKA var í Bláa- lónskeppninni í fjallahjólreið- um sem fram fór í fyrradag þrátt fyrir að veður hafi ekki verið með besta móti. Fimmtíu og tveir komu í mark. Í karlaflokki sigraði Haukur Már Sveinsson, annar varð Guðmudur Guðmundsson og Jóhann Leósson í því þriðja. Marleen Van Geest varð fyrst í kvennaflokki, Þóra Elín Ein- arsdóttir í öðru sæti og Kristín B. Helgadóttir þriðja. Haukur Már varð jafnframt sigurvegari í flokki 16 til 18 ára karla, Guðmundur í flokki 19 til 34 ára og Jóhann í flokki karla 35 ára og eldri. Marleen sigraði í flokki kvenna 19 til 34 ára og Alda Jónsdóttir í flokki kvenna 35 ára og eldri. Hjólað var úr Hafnarfirði að Bláa lóninu. Sigruðu í Bláalóns- keppninni Reykjanes NÝKJÖRNIR bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Reykja- nesbæ hafa óskað eftir því að fulltrúar minnihlutaflokkanna taki að sér tiltekin ábyrgðarstörf við stjórnun bæjarins, Jóhann Geirdal, oddviti Samfylkingarinnar, verði annar varaforseti bæjarstjórnar og Kjartan Már Kjartansson fulltrúi Framsóknarflokks verði áfram for- maður nefndar um Staðardagskrá 21. Árni Sigfússon, oddviti bæjar- fulltrúa sjálfstæðismanna sem hafa hreinan meirihluta í bæjarstjórn, hefur lýst því yfir að hann vilji nýta hæfileika allra ellefu bæjar- fulltrúanna, eins og mögulegt sé. Hann segir að ósk hans til Jó- hanns og Kjartans sé liður í þessu. „Við teljum að þetta geti skapað betri starfsmöguleika fyrir bæjar- fulltrúana sem vinna í þágu bæj- arins og bæjarbúa og vona að það skapi góðan samstarfsanda,“ segir Árni. Kosið verður í trúnaðarstöður á fyrsta fundi nýkjörinnar bæjar- stjórnar síðdegis í dag. Minnihlut- inn fær embætti Reykjanesbær TVEIR varðstjórar úr lögreglunni á Keflavíkurvelli hafa lokið nám- skeiði hjá rannsóknarlögreglu bandaríska sjóhersins í aksturs- tækni og viðbrögðum við óvæntum aðstæðum í akstri. Ætlunin er að þeir kenni þetta síðan félögum sín- um í lögregluliðinu. Haraldur Sigurðsson varðstjóri segir að leiðbeinandi frá rann- sóknadeild sjóhersins komi reglu- lega hingað til lands til að þjálfa hermenn og lögreglumenn sjóhers- ins á Keflavíkurflugvelli. Fyrir orð góðra manna fái liðsmenn úr lög- reglunni á Keflavíkurflugvelli að taka þátt í námskeiðunum. Nú hafi maðurinn, Ronald Schott Hoyle, gefið kost á að þjálfa menn í akstri lögreglubifreiða við sérstakar að- stæður. „Við gripum þetta tæki- færi fegins hendi, ekki er hægt annað en að þiggja aðstoð sérþjálf- aðra manna,“ segir Haraldur. Hann og Einar Ásbjörn Ólafsson fóru á námskeiðið og er ætlunin að þeir kenni öðrum lögreglumönnum það sem þeir lærðu. Fengu þeir lánaðan bíl frá VÍS og lögreglu- bifreið og æfðu sig á ónotaðri flug- braut vallarins. Haraldur segir að farið hafi verið yfir aksturstækni, til dæmis við fylgd háttsettra emb- ættismanna sem til landsins koma, og hvernig bregðast skuli við óvæntum aðstæðum, til dæmis vegna hryðjuverkaógnar. Varð- andi síðarnefnda atriðið segir Har- aldur að þótt slík starfsemi hafi ekki náð til landsins vilji lögreglan vera við öllu búin, ekki síst eftir at- burðina í Bandaríkjunum 11. sept- ember. Þjálfa sig í akstri við hættulegar aðstæður Keflavíkurflugvöllur Haraldur Sigurðsson og Ronald Schott Hoyle á æfingu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.