Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 16
LANDIÐ
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ
BÍLSLYS varð í Bjarnarfirði á
Ströndum um sjöleytið á sunnudags-
kvöld.
Subaru-bifreið skemmdist tölu-
vert er hún lenti utan vegar og valt
ofan í skurð. Slysið varð rétt við
vegamótin við Bjarnarfjarðará. Var
ökumaður að koma að norðan og hef-
ur misst stjórn á bifreiðinni er hann
beygði á vegamótunum. Ökumaður-
inn, sem ekki var í bílbelti, er ekki
mikið slasaður.
Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir
Gæta varð fyllstu varúðar við að
rétta bílinn við til að ná öku-
manninum út.
Bílslys í
Bjarnarfirði
Drangsnes
Í GÓÐA veðrinu undanfarna daga
hefur fólk verið að taka fram grill-
tækin og grillað. Hjónin Gunnar
Jónsson og Bryndís Guðjónsdóttir á
Fáskrúðsfirði hafa enn ekki getað
grillað á sínu grilli.
Á gaskútnum við grillið þeirra er
þrastarhreiður og í því sex ungar.
Þrastarhjónin hamast við fóðurgjöf
og að koma ungunum sínum út í
náttúruna.
Morgunblaðið/Albert Kemp
Þrastar-
hreiður á
gaskútnum
Fáskrúðsfjörður
VIÐ innganginn í Eden í Hvera-
gerði er stór hortensía, sem vekur
mikla athygli gesta. Þetta mun vera
stærsta hortensía á landinu og þótt
víðar væri leitað. Ummál hennar er
280 sentimetrar og knúpparnir eru
hvorki fleiri né færri en 140 talsins.
Hortensíur er hægt að hafa úti í
görðum á sumrin.
Að sögn Braga Einarssonar,
framkvæmdastjóra Eden, getur
hann ráðið lit blómanna. Hann
ákvað því eftir sveitarstjórnarkosn-
ingarnar, sem nú eru nýafstaðnar,
að hafa blóm hortensíunnar bleik.
Síðustu árin hafa blómin verið blá,
því sjálfstæðismenn hafa farið með
völd í bænum. Þetta breyttist núna
og því var ákveðið að skipta út bláa
litnum og hafa bleikan í staðinn.
Morgunblaðið/Margret Ísaksdóttir
Stærsta hortensía landsins, við
inngang Eden.
Landsins
stærsta
hortensía
Hveragerði
SAUTJÁN ára piltur keyrði ut-
an í vegg í Vestfjarðagöngum í
gærmorgun. Að sögn lögregl-
unnar á Ísafirði var hann fluttur
á Ísafjörð til aðhlynningar, en
meiðsl hans voru minniháttar.
Talið er að pilturinn hafi
sofnað undir stýri en vegfar-
andi kom þar að sem slysið
hafði orðið. Bifreiðin, sem er
jeppi, er mikið skemmd.
Keyrði utan
í vegg í
göngunum
Ísafjörður
JARÐFRÆÐISTOFAN Stapi ehf,
sem leitað hefur að jarðhita á köld-
um svæðum í Fjarðabyggð frá árinu
1999, hefur fundið um 72 gráða heitt
vatn í um 600 metra djúpri jarðhita-
holu í Eskifirði. Um tilraunaholu er
að ræða sem gefur vísbendingar
varðandi frekari boranir en ætlunin
er að nota vatnið til upphitunar húsa
í Eskifirði.
Þegar er búið að bora 56 holur í
Norðfirði, Eskifirði og Reyðarfirði.
Á dögunum var ein holan á Eski-
firði dýpkuð úr 405 m í 635 m. Hitinn
í holunni var 56 gráður fyrir dýpkun
en er nú í kringum 72 gráður.
„Það má segja að þetta sé eins gott
og við gátum búist við. Það er alveg
möguleiki á því að koma niður á svip-
að í öðrum fjörðum líka,“ segir Ómar
Bjarki Smárason sem á og rekur
Stapa ehf.
Að sögn Ómars gengur jarðhita-
leitin út á að kortleggja hitastigul.
Svæðishitastigullinn á Austurlandi
er í kringum 50–60 gráður að jafnaði
og segir Ómar að þar sem svæðis-
hitastigull gefi til kynna þrisvar
sinnum þann hita megi gera ráð fyrir
að nýtanlegt jarðhitakerfi fyrir hita-
veitu sé að finna. Hitastigull á Eski-
firði gerir ráð fyrir 145 gráða heitu
vatni á 1 kílómetra dýpi.
Að sögn Ómars verður næsta
skref að bora vinnsluholu. Um 25–30
lítra þarf af 70–75 gráða heitu vatni á
sekúndu til húshitunar í Eskifirði.
„Ég reikna með að við freistum
þess að bora þá holu síðar á þessu
ári,“ segir Ómar.
Jarðboranir hafa séð um hitastig-
ulsboranirnar en Ræktunarsamband
Flóa og Skeiða sá um borun á hol-
unni í Eskifirði.
Leitað að jarðhita á köldum svæðum í Fjarðabyggð
Fundu um 70 gráða
heitt vatn í Eskifirði
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Ómar Bjarki Smárason við vinnu við holuna sem boruð var í Eskifirði.
Fjarðabyggð
HVALASKOÐUNARBÁTURINN
Haukur, í eigu Norðursiglingar
ehf. á Húsavík, hefur gengið í
gegnum miklar breytingar í vet-
ur. Þær eru fólgnar í því að bátn-
um hefur verið breytt í skonnortu
eins og þær sem gerðar voru út
hér fyrir Norðurlandi fyrir rúm-
um 100 árum. Jafnframt var skipt
um aðalvél og útbúnaður hennar
gerður þannig úr garði að hávaði
verði sem minnstur þegar siglt
verður undir vélarafli.
Nú hillir undir að Haukurinn
verði tilbúinn. Heimir Harðarson
hjá Norðursiglingu vonast til að
það verði innan tveggja vikna.
„Annars er aldrei að vita hvað
það það tekur langan tíma að
klára þetta, það eru svo mörg
störfin sem við rennum blint í sjó-
inn með hvað tímalengd varðar.
Þau hafa kannski ekki verið unn-
in hér í 50–100 ár. Við eigum eft-
ir að kom upp seglunum og fáum
hjálp til þess hjá norskum manni
sem tengist fjölskyldunni, en
hann teiknaði fyrir okkur allar
breytingar á bátnum og fylgir
þeim eftir með okkur núna,“ seg-
ir Heimir.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Skonnortan Haukur í reynslusiglingu.
Skonnortan Haukur
senn tilbúin til siglinga
Húsavík
SLÖKKVILIÐ Hornafjarðar var
kallað út um kvöldmatarleytið á
föstudag að einbýlishúsi við Voga-
braut á Höfn, en þar var eldur laus í
eldhúsi.
Að sögn lögreglunnar á Höfn tók
um hálftíma að ráða niðurlögum
eldsins og var húsið þá reykræst.
Málsatvik eru ókunn en ekkert
bendir til íkveikju eða annarra óeðli-
legra orsaka.
Lögreglan segir að engin slys hafi
orðið á fólki en talsverðar skemmdir
urðu á húsinu.
Morgunblaðið/Sigurður Mar Halldórsson
Eldur laus í
eldhúsi á Höfn
Hornafjörður
BJÖRGUNARSVEITIN Káraborg
á Hvammstanga fékk afhenta
björgunarbifreið á sjómannadag-
inn. Bifreiðin er af gerðinni
IVECO og er fimm ára gömul,
keypt af Flugbjörgunarsveitinni í
Reykjavík. Hún er búin öllum
björgunar- og fjarskiptabúnaði og
því tilbúin til notkunar. Leysir hún
af hólmi tvo bíla, sem eru um 35
ára gamlir.
Björgunarsveitin á nú þrjá
björgunarbíla, snjóbíl og tvo vél-
sleða. Einnig rekur deildin líkbíl,
til þjónustu fyrir héraðið. Sr. Sig-
urður Grétar Sigurðsson blessaði
bifreiðina við guðsþjónustu við
Hvammstangahöfn og var talsverð-
ur mannfjöldi viðstaddur.
Björgunarsveitina skipa um 25
manns og er hún deild í Hvamms-
tangadeild RKÍ. Rauðakrossdeildin
stóð þennan dag fyrir hefðbundn-
um hátíðahöldum á Hvammstanga
og fékk til liðs við sig Borgarkvart-
ettinn, sem söng í Félagsheimilinu,
ásamt gestasöngvara, Kristjönu
Thorarensen. Var þeim ákaft þakk-
að gott framlag og allir settust síð-
an að kaffikræsingum. Samkoman
var liður í fjáröflun til kaupa á nýju
bifreiðinni.
Ný björgunarbifreið
Hvammstangi
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
Vilberg Sigurjónsson, formaður Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykja-
vík, Gunnar Örn Jakobsson, formaður Káraborgar, sr. Sigurður Grétar
Sigurðsson sóknarprestur og Páll Magnússon frá Fbsv. í Reykjavík.