Morgunblaðið - 11.06.2002, Blaðsíða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 17
R
227.800 m/vskIntel Celeron 1.06GHz örgjörvi
Intel 830MP kubbasett
256MB vinnsluminni
30GB ATA-100 diskur
Windows XP Professional
2ja ára ábyrg› á vinnu og varahlutum
f
a
s
t
la
n
d
-
8
1
4
4
-
1
1
0
6
0
2
14.1" XGA TFT skjár
16MB ATI Radeon skjákort, TV útgangur
Innbyggt hljó›kort og hátalarar
16x CDRW/DVD
S É R S N I ‹ N A R L A U S N I R O G F Y R I R T Æ K J A R Á ‹ G J Ö F + I S O 9 0 0 1 V O T T A ‹ G Æ ‹ A K E R F I + H A F ‹ U S A M B A N D Í S Í M A 5 6 3 3 0 0 0 + W W W . E J S . I S
Dell Inspiron 4100 er frábær vinnufélagi og öflug margmi›lunartölva,
en fla› skemmtilegasta vi› hana er fló a› hún getur skipt litum.
Árei›anleiki, afköst og frábær fljónusta fær›u Inspiron-línunni
lesendaver›laun PC-Magazine á sí›asta ári.
Félagi í leik og starfi
!"
#$
%&
'()
*
+
,
-
.
,
/
0
.
1 212 34 13
50
,
,
#
1*
5#$
/
/
#
6
/
/
/
$ /
0/
5
/
0
0
/
,
/
#
/#$
%&
* 5
7
*
1
86 #, *
/
2
+*
999 /7
!"
#$
%&
'()
* :"
+4*
11
86 #, *
/
2+*
999 /7
HÓPUR fjárfesta hefur keypt
70,01% hlutafjár í Húsasmiðjunni
hf. af systkinunum Jóni Snorra-
syni, Sturlu Snorrasyni og Sigur-
björgu Snorradóttur auk Íslands-
banka hf. á rúmlega 3,7 milljarða
króna. Í kjölfarið verður gert yf-
irtökutilboð í hlutabréf minnihluta í
félaginu.
Alls nam nafnverð hlutabréfanna
sem keypt voru rúmum 196,5 millj-
ónum króna að nafnverði og voru
19 krónur greiddar fyrir hverja
krónu nafnverðs. Virði félagsins er
samkvæmt þessu metið á rúma 5,3
milljarða króna.
Kaupendur hlutarins eru Árni
Hauksson, fjármálastjóri Húsa-
smiðjunnar, og Hallbjörn Karlsson,
starfsmaður á fyrirtækjasviði
Kaupþings, fyrir hönd annarra
fjárfesta. Árni Hauksson segist
ekki geta gefið upplýsingar um
hverjir meðfjárfestar þeirra séu, og
segir óvíst að það verði gert. Fyrir
liggi að gera yfirtökutilboð í hluti
minnihluta í Húsasmiðjunni þegar
endanlegur kaupsamningur hefur
verið undirritaður í ágúst og stefnt
sé að því að afskrá hlutafé félagsins
á Verðbréfaþingi Íslands í haust.
Telur Árni líklegt að minni hlut-
hafar taki yfirtökutilboði meirihlut-
ans vel enda sé hér um hagstætt
verð að ræða, en lögum samkvæmt
mun tilboðið hljóða upp á sama
verð og meirihlutinn var keyptur á.
Húsasmiðjan verður, að sögn
Árna, áfram rekin í óbreyttri
mynd. Líklega verði þó um ein-
hverja stefnubreytingu að ræða,
þ.e. stefnt verði að því að draga úr
útþenslu fyrirtækisins og kröftun-
um beint að bættum rekstri og
aukinni hagkvæmni. Jón Snorra-
son, einn seljenda, er stjórnarfor-
maður Húsasmiðjunnar. Hann seg-
ir það hafa verið ætlun og yfirlýsta
stefnu fjölskyldunnar að draga úr
eignarhlut sínum í félaginu, eins og
fram hafi komið í útboðslýsingu
Húsasmiðjunnar á árinu 2000 þeg-
ar félagið var sett á markað. „Við
fengum þarna viðunandi tilboð,
sem reyndar var í allt okkar
hlutafé, og ákváðum að taka því,“
segir Jón en eignarhlutur fjölskyld-
unnar nam um 55%.
Kaupin eru gerð með fyrirvara
um áreiðanleikakönnun og fjár-
mögnun kaupanna. Gengið verður
frá kaupsamningi 1. ágúst nk. að
fyrirvörunum uppfylltum. Ekki
verður tekin ákvörðun um boðun
hluthafafundar eða kosningu í nýja
stjórn fyrr en í ágúst.
Keyptu 70% hlut í
Húsasmiðjunni
FREMUR treg veiði hefur verið úr
norsk-íslenska síldarstofninum síð-
ustu daga en þau skip sem veiða í
flottroll hafa þó fengið ágætis afla.
Minna veiðist hinsvegar í nót, síldin
stendur djúpt og erfitt að ná til
hennar með nótinni.
Vilhelm Þorsteinsson EA-11 kem-
ur til hafnar í Sortland í Noregi í dag
með fullfermi, 530 tonn, af frystum
síldarflökum úr norsk-íslenska síld-
arstofninum. Aflinn, sem samsvarar
um 1.100 tonnum upp úr sjó, fékkst
að mestu í og við Jan Mayen lögsög-
una á rúmum fjórum sólarhringum.
Vilhelm landaði 525 tonnum á sama
stað fyrir fimm dögum.
Birkir Hreinsson, stýrimaður á
Vilhelm, sagði við Fréttavef Morg-
unblaðsins í gær að veiðin hefði
gengið vel og haldist í hendur við
vinnslugetuna um borð. Hann sagði
að fyrsta sólarhringinn hafi þeir
veitt inn í Jan Mayen lögsögunni, en
síðan næsta dag austan við lögsög-
una og síðan enduðu þeir við lögsögu
Svalbarða.
Nóta- og togveiðiskipið Guðrún
Gísladóttir KE landaði 856 tonnum
af frystum síldarflökum í Leknes í
Noregi í síðustu viku. Það er mesti
afli sem íslenskt skip hefur komið
með að landi í einu af frystum síld-
arflökum. Aflaverðmætið er áætlað
um 70 milljónir króna. Þetta magn
samsvarar um 1.700 tonnum af síld
upp úr sjó. Ætla má að um 10 til 12
milljónir króna fáist fyrir 1.700 tonn
af síld sé aflanum landað til bræðslu.
Aflinn fékkst að mestu innan Jan
Mayen-lögsögunnar og tók veiði-
ferðin tvær vikur.
Góð síldveiði í flottroll
Aflaverðmæti
Guðrúnar Gísla-
dóttur KE
70 milljónir eftir
tvær vikur
Morgunblaðið/Jón Páll
HÁSKÓLINN í Reykjavík og
Tandur hf. fengu á föstudag við-
urkenningu VR sem Fyrirtæki árs-
ins 2002. Valið byggist á árlegri
könnun Félagsvísindastofnunar Há-
skóla Íslands sem unnin er að frum-
kvæði VR. Lagt er mat á viðhorf
starfsfólks til nokkurra lykilþátta,
s.s. starfsánægju, trúverðugleika
stjórnenda og vinnuumhverfis, og
fyrirtækjum raðað samkvæmt því.
Háskólinn í Reykjavík, sem var
að taka þátt í könnuninni í fyrsta
skipti, varð hlutskarpastur í flokki
stærri fyrirtækja með 50 starfs-
menn eða fleiri. Í öðru sæti varð
Teymi hf. og Anza hf. hafnaði í því
þriðja.
Tandur hf. varð hlutskarpast í
flokki minni fyrirtækja þriðja árið í
röð. Í öðru sæti varð Dressmann á
Íslandi ehf. og í því þriðja hafnaði
Amadeus Ísland hf. Minni fyrirtæki
eru með 49 eða færri starfsmenn en
að minnsta kosti 5 félagsmenn í VR
eða VA.
VR hefur staðið fyrir vali á Fyr-
irtæki ársins undanfarin sex ár og í
ár gafst félagsmönnum í Verslunar-
mannafélagi Akraness kostur á að
vera með í fyrsta sinn. Þátttakend-
ur í könnuninni voru félagsmenn
VR og VA sem höfðu greitt fé-
lagsgjöld í a.m.k. þrjá mánuði.
Félagsmönnum í 540 fyrirtækjum
var sendur spurningalisti, auk þess
sem þrjú fyrirtæki, Deloitte &
Touche, PricewaterhouseCoopers
og IMG, óskuðu eftir að allir starfs-
menn þeirra fengju könnunina
senda, óháð félagsaðild. Jafnframt
tóku starfsmenn RÚV og ÍTR þátt í
könnuninni. Fleiri fyrirtæki hafa nú
þegar óskað eftir þátttöku allra
starfsmanna í næstu könnun.
Háskólinn í Reykjavík og
Tandur valin fyrirtæki ársins