Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 18

Morgunblaðið - 11.06.2002, Page 18
TVÖ ný félög koma inn í úr- valsvísitölu aðallista hinn 1. júlí næstkomandi, Bakkavör og Skeljungur. Koma þau í stað Marels og SÍF. Alls eru 50 hlutafélög skráð á aðallista þingsins, utan hlutabréfasjóða, og vega þau 15 félög sem verða í úrvalsvísitölunni sam- tals 71,2% af markaðsverð- mæti þeirra. Velta þessara fé- laga sem valin hafa verið í vísitöluna er 87% af kauphall- arveltu hlutabréfa á aðallista á síðastliðnum 12 mánuðum Af þeim 20 félögum á aðallista þingsins sem tíðust viðskipti eru með á þinginu á 12 mán- aða tímabili eru það 15 stærstu félögin að markaðs- verðmæti í lok tímabilsins sem mynda úrvalsvísitöluna næstu 6 mánuði. Hlutabréfasjóðir eru þó undanskildir við val þetta. Bakkavör og Skeljungur ný inn í úrvals- vísitöluna VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 18 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ KAUPÞING banki hf. hefur gert samning um kauprétt og sölurétt um kaup á allt að 7,8 milljón hlutum í sænska bankanum JP Nordiska AB. Ef rétturinn verður nýttur eignast Kaupþing rúmlega 40% í JP Nord- iska AB og skapast þá yfirtökuskylda samkvæmt sænskum lögum. Kaup- þing á nú 28% í JP Nordiska eftir samruna sænska bankans við Arag- on, verðbréfafyrirtæki í eigu Kaup- þings. Kaupréttinn getur Kaupþing banki nýtt á tímabilinu frá 15. ágúst 2002 til 15. janúar 2003 og söluréttinn er unnt að nýta gagnvart Kaupþingi banka á sama tíma. Verði sölu- eða kaupréttur nýttur að fullu innan samningstímans mun Kaupþing banki eiga allt að 24.776.461 hlut í JP Nordiska banka sem samsvarar rúmlega 40% eignar- hlut í bankanum, að því er fram kem- ur í tilkynningu til Verðbréfaþings Ís- lands. Hreiðar Már Sigurðsson, aðstoðar- forstjóri Kaupþings, segir í samtali við Morgunblaðið að engin endanleg ákvörðun hafi verið tekin um hvort stefnt sé að sameiningu Kaupþings og JP Nordiska en Kaupþing hafi viljað tryggja sér kauprétt á bréfum næst- stærsta hluthafa í JP Nordiska, Lars Magnusson. Kaupþing er nú lang- stærsti hluthafinn með 28% og útlit er fyrir að eignarhluturinn muni enn stækka. „Þetta er í samræmi við það sem við höfum lýst yfir áður um fyr- irhugaðan vöxt á Norðurlöndunum,“ segir Hreiðar Már. Varðandi samruna Aragon og JP Nordiska segir Hreiðar Már að mark- miðið með þeirri sameiningu sé að mynda öflugan fjárfestingarbanka í Stokkhólmi. „Áætlun okkar gerir ráð fyrir að JP Nordiska verði meðal fimm stærstu aðilanna í Kauphöllinni í Stokkhólmi með um 6% hlutdeild. Eigið fé sameinaðs banka er um 6,5 milljarðar íslenskra króna. Ef af sam- einingu við Kaupþing verður í fyll- ingu tímans yrði eigið fé slíks banka um 16 milljarðar.“ Jákvætt ef Kaupþing eignast meira Í samtali við Morgunblaðið segir Lage Jonasson, forstjóri JP Nord- iska, að aðkoma Kaupþings að sænska verðbréfamarkaðnum sé ánægjuleg og samruni Aragon og JP Nordiska sé hagstæður. Að hans mati er það jákvætt að Kaupþing muni jafnvel eignast stærri hlut í JP Nord- iska, eins og samningar um kaup- og sölurétt gera ráð fyrir. Við samruna Aragon og JP Nord- iska er nauðsynlegt að fækka starfs- fólki um hundrað manns og verða starfsmenn sameinaðs banka, sem ber heitið Bankaktiebolaget JP Nordiska, þá 240 talsins. Starfsmenn JP Nordiska eru nú 230 og starfs- menn Aragon um 110. Jonasson bendir á að JP Nordiska hafi nú þeg- ar nokkra reynslu af samruna en fyr- irtækið sameinaðist fjármálafyrir- tækinu Matteus á síðasta ári og hafði það nokkra hagræðingu í för með sér, m.a. uppsagnir starfsfólks. „Það má því segja að JP Nordiska sé í aðeins meira jafnvægi en Aragon að því leyti, en það er óhjákvæmilegt að hagræða og fækka starfsfólki við samruna af þessu tagi. Við teljum að það muni ganga vel,“ segir Jonasson. Hagræðing á sænskum fjármálamarkaði JP Nordiska er eitt af þeim fjár- málafyrirtækjum á sænska markaðn- um sem talið var að væri á leið í sam- runa, þessi fyrirtæki verða fjögur, eftir samruna JP Nordiska og Arag- on, en sérfræðingar telja ákjósanlegt að þeim fækki í þrjú þannig að fleiri samrunar gætu verið í sjónmáli, eins og fréttavefur Dagens Industri bend- ir á. Hin þrjú eru Erik Penser Fond- kommission, Öhmans og Hagströmer & Qviberg. JP Nordiska starfar á sviði einka- bankaþjónustu, fjárfestingarþjónustu og verðbréfaviðskipta. Bankinn starf- ar í Stokkhólmi, Gautaborg og Malmö. Aragon hefur sérhæft sig í miðlun og ráðgjöf í verðbréfaviðskipt- um. Í Dagens Industri kemur einnig fram að þeir sem sagt verður upp verði aðallega miðlarar og starfsfólk í einkaráðgjöf. Þar segir einnig að sameinað félag muni eiga samvinnu við Kaupþing, t.d. um greiningar og fyrirtækjaviðskipti. Á fréttavef Svenska Dagbladet kemur fram að eigendur 45% hluta- fjár í JP Nordiska hafi lýst yfir stuðn- ingi við samrunann við Aragon en hluthafafundur verður haldinn 28. júní nk. og þar verður samruninn bor- inn undir hluthafa. Meðal hluthafa í JP Nordiska eru fjárfestingarfélag IKEA og sparisjóðir í Svíþjóð. Næst- stærsti hluthafinn, Lars Magnusson, mun eiga 12,8% hlutafjár í JP Nord- iska þegar gefnir hafa verið út nýir hlutir í JP Nordiska og þriðji stærsti hluthafinn, Ikano, mun eiga 9,22%. Búist er við að kostnaður vegna sameiningarinnar nemi 55 milljónum sænskra króna eða um 500 milljónum íslenskra króna. Varanlegur sparnað- ur og afkomubati er áætlaður um 75 milljónir sænskra króna á ári frá og með síðasta fjórðungi þessa árs. Kaupþing getur eignast 40% í JP Nordiska AB Morgunblaðið/Ásdís Verði kaupréttur nýttur að fullu skapast yfirtökuskylda en hún myndast við 40% eignarhlut samkvæmt sænskum lögum ÞRÓUN í utanríkisviðskiptum bendir ótvírætt til þess að þjóðarbúskapur- inn sé að færast í átt til aukins jafn- vægis, að því er fram kemur í vefriti fjármalaráðuneytisins. Þar segir að nýjustu tölur Hagstofunnar um utan- ríkisviðskipti staðfesti þau miklu og jákvæðu umskipti sem orðið hafi í efnahagsmálum á síðustu missserum. Afgangur á vöruskiptajöfnuði fyrstu fjóra mánuði þessa árs hafi verið rúm- ir 8 milljarðar króna en á sama tíma í fyrra hafi hallinn verið rúmlega 5½ milljarður á sama gengi. Fram kemur í vefritinu að síðustu spár bendi til þess að afgangur á vöru- og þjónustuviðskiptum á árinu 2002 geti numið allt að 3–4% af lands- framleiðslu. Samkvæmt því yrði lítill sem enginn viðskiptahalli á árinu sem yrðu að teljast ótrúlega snörp um- skipti á tveimur árum, en árið 2000 hafi viðskiptahallinn numið 10% af landsframleiðslu sem svarar til tæp- lega 80 milljarða króna á núgildandi verðlagi. Segir í vefritinu að skýringin á þessum umskiptum sé tvíþætt; ann- ars vegar mikill samdráttur í inn- flutningi og hins vegar umtalsverð aukning í útflutningi. Eftirtektarvert sé þó að frá því í febrúar sl. sýnist sem þessi þróun hafi snúist við hvað inn- flutning varðar. Þannig hafi almenn- ur innflutningur, þ.e. án skipa og flug- véla, smám saman farið vaxandi. Í vefriti fjármálaráðuneytisins seg- ir að bráðabirgðatölur um innheimtu virðisaukaskatts af innflutningi í maí bendi til þess að innflutningur hafi haldið áfram að vaxa. Annan mánuð- inn í röð aukist almennur innflutning- ur að raungildi eftir fjórtán mánaða samfellt samdráttarskeið. „Þótt vissulega sé of snemmt að draga þá ályktun af þessum tölum að botni hagsveiflunnar sé náð gefa þær óneitanlega vísbendingu um að sam- dráttur sé í rénun, ef ekki beinlínis að baki,“ segir í vefritinu. „Í þessu felst þó ekki að framundan sé tímabil óhóf- legrar uppsveiflu og vaxandi misvæg- is í efnahagslífinu. Þvert á móti. Fátt bendir til þess að vöxtur útflutnings sé á undanhaldi og nýlegar ákvarð- anir um aflakvóta á næsta ári gera ráð fyrir að sjávarvöruframleiðsla á næsta ári muni standa sem næst í stað frá því í ár.“ Segir í vefritinu að að öllu saman- lögðu virðist því mega gera ráð fyrir hægfara bata og auknum hagvexti í efnahagslífinu á næstu árum eftir kyrrstöðu á þessu ári. „Gangi þetta eftir mun hagkerfið lenda svokallaðri mjúkri lendingu áður en það hefur sig til lofts á nýjan leik. Það verður að teljast viðunandi árangur,“ segir í vef- riti fjármálaráðuneytisins. Aukið jafnvægi í þjóðarbúskapnum Hlutabréfa- eign Burðar- áss færð á markaðsverði STJÓRN Eimskips hefur ákveðið að framvegis verði hlutabréfaeign dótturfélagsins Burðaráss færð við markaðsverði í ársreikningum fé- lagsins, en fram til þessa hefur hlutabréfaeignin verið færð við framreiknuðu kaupverði. Breyting- in tekur gildi miðað við 1. janúar 2002. Í tilkynningu til Verðbréfaþings kemur fram að rekstur Eimskipa- félagsins byggist nú á þremur sjálfstæðum rekstrareiningum, flutningum, sjávarútvegi og fjár- festingum. Í ársreikningum félagsins verður gerð grein fyrir hverri þeirra fyrir sig. „Ákvörðun um breytta reikn- ingsskilaaðferð, það er að færa hlutabréf við markaðsverði, er tek- in með hliðsjón af þessu og einnig er alþjóðleg tilhneiging í þá átt að bókfæra skráð hlutabréf við mark- aðsverði.“ Í ársreikningi félagsins fyrir árið 2001 kemur fram að markaðsverð hlutabréfa, sem skráð eru á mark- aði, nam rúmum 1.100 milljónum króna umfram bókfært verð þegar tekið hefur verið tillit til tekju- skattsskuldbindingar þeirra vegna. Við þessa breytingu verða óskráð hlutabréf jafnframt metin reglu- lega til verðs, að því er fram kemur í tilkynningunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.