Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 11.06.2002, Qupperneq 19
NEYTENDUR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 2002 19 APÓTEKARINN, ný lág- vöruverðskeðja á smásölumark- aði lyfja, opnaði þrjár lyfjabúðir í gær. Tvær verslananna eru í Reykjavík og ein á Akureyri og segir Ingólfur Garðarsson tals- maður Apótekarans að lífeyr- isþegum og barnafólki verði sinnt sérstaklega með afslátt- artilboðum. Apótekarinn er í eigu Hagræðis sem einnig á Lyf og heilsu. Einkunnarorð Apótekarans eru lyf á lægra verði og segir Ingólfur að verslanirnar geti boðið lægra verð til við- skiptavina með sérstökum samn- ingum við birgja og heildsala, markvissu vöruúrvali, styttri opnunartíma og einfaldari lausn- um í innréttingum. Allt að 70% afsláttur af ofnæmislyfjum Þessa vikuna veitir Apótek- arinn til að mynda allt að 70% af- slátt af ofnæmislyfjum og segir Ingólfur að tilboð muni taka mið af aðstæðum á hverjum tíma og þörfum almennings, einkum þeirra hópa sem fyrr greinir. Hlutfall afsláttar er mismun- andi eftir því hvort um er að ræða lausasölulyf eða lyfseð- ilsskyld lyf og hvort um er að ræða lyfseðilsskyld lyf til al- mennings eða lífeyrisþega. Segir Ingólfur að afsláttur sá sem nú er í gildi sé um 30% af útsöluverði lausasölulyfs, um 45% af greiðsluhluta sjúklings af lyfseðilsskyldu lyfi til almenn- ings og 70% af greiðsluhluta sjúklings á lyfseðilsskyldu lyfi til lífeyrisþega. Undirbúningur að opnun Apó- tekarans hefur tekið talsverðan tíma og segir Ingólfur aðspurður að ein ástæða þess að farið var út í þennan rekstur sé meðal annars umræða um lyfjaverð á undanförnum mánuðum. „Einnig höfum við heyrt af fólki sem þarf aðstoð við að leysa út lyf og þá er eitthvað um að einstaklingar bíði eftir mánaðamótum til þess að geta sótt lyf,“ segir hann. Fólk hvatt til þess að fylgjast með verðinu Eitt markmiða með rekstri Apótekarans er að taka vel á móti þeim sem vilja auka ráð- stöfunartekjur heimilanna og verða hagstæð tilboð í öllum helstu vöruflokkum með reglu- legu millibili að Ingólfs sögn. Fólk er hvatt til þess að sækja verslanirnar reglulega til þess að fylgjast með auglýstum til- boðum. Gefin hefur verið út sérstök viljayfirlýsing þar sem mark- miðum með rekstrinum er komið á framfæri. Þar óskar Apótek- arinn eftir aðstoð fólks við að fylgjast með almennu lyfjaverði og „aðstoða hann þannig við að standa við það yfirlýsta markmið sitt að bjóða lyf á lægra verði. Með þessu vonast Apótekarinn til að vera vinur í raun,“ segir í yfirlýsingunni. Litir Apótekarans eru gult og bleikt og segir Ingólfur að engar verslanir eigi einkarétt á þeirri litasamsetningu. Kannanir hafi sýnt að almenningur tengi slíka liti við lágvöruverðsverslanir. Verslanir Apótekarans eru við Nóatún 17 og Hraunberg 4 í Reykjavík og Hafnarstræti 95 á Akureyri. Afgreiðslutíminn er 10–18 í Reykjavík og 10–17 fyrir norðan. Tegund lyfs Skammtar Hópur Tilboðs- verð Hámarks- verð Afsl. kr. Afsl. % Histal 10 mg 30 stk. Almenn. 998 1780 782 44% Lífeyrisþ. 357 1211 854 71% 10 mg 100 stk. Almenn. 2266 4748 2482 52% Lífeyrisþ. 423 1446 1023 71% Loradin NM 10 mg 30 stk. Almenn. 997 1821 824 45% Farma Lífeyrisþ. 357 1225 868 71% 10 mg 100 stk. Almenn. 2208 4045 1837 45% Lífeyrisþ. 397 1375 978 71% Hér má sjá dæmi um hvernig afsláttur af ofnæmislyfjum sem nú stendur yfir í Apótekaranum birtist, samkvæmt útreikningum frá fyrirtækinu. Áhersla lögð á þjónustu við lífeyrisþega og barnafólk Morgunblaðið/Árni Sæberg Apótekarinn er ný keðja verslana í lyfsölu sem ætla að selja lyf á lægra verði og bjóða afslátt af vöruflokkum. Ný lágvöruverðs- keðja með þrjár verslanir á smá- sölumarkaði lyfja

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.